Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991.
Veiðivon
Hvammsvíkin
opin um helgar
á næstunni
Á meðan ekki er búið að selja
Hvammsvík í Kjós verður opið
þar um helgar. En það er íslands-
banki sem rekur staðinn eins og
er. Núna eru um 8000 fiskar í
vatninu en um páskana veiddust
900 fiskar. Það voru veiðimenn á
öllum aldri sem renndu fyrir
regnbogasilunginn.
Flugan hefur verið vinsæl þessa
síðustu daga í Hvammsvík og
þetta er góð æfing fyrir sumarið.
En það styttist óðum í að þetta
hefjist allt fyrir alvöru.
-G.Bender
Hann er vænn sjóbirtingurinn sem
Olafur Þór Hauksson heldur á við
Varmá, 6 punda fiskur veiddur á
rækjuna. DV-mynd HH
Vel veiddist af
sjóbirtingi
Gott veðurfar í vetur gerði þaö að
verkum að sjóbirtingsveiðin byrjaði
mjög vel núna. Líklega hafa veiðst
um 100 fiskar fyrstu dagana sem er
mjög gott. Þrátt fyrir að það sé búið
að loka fyrir veiði í mörgum veiðiám
á þessum tíma árs.
„Það er alltaf jafn skemmtilegt að
opna veiðiárnar svona snemma,
þetta hefur maður gert síðustu 30
árin," sagði Haukur Haraldsson þeg-
ar við hittum hann við Varmá fyrsta
veiðidaginn. -G.Bender
Það vakti engan fögnuð hjá stangaveiðimönnunum, sem mættu á formannafund LS, er Svend Aage lýsti því yfir
að laxveiðin yrði ekki góð í sumar. DV-myndir G.Bender
Svend Aage Malmberg haffræðingur:
Spáir ekki góðri
laxveiði
næsta sumar
„Eg spái ekki góðu laxveiðisumri
í sumar, eins árs laxinn skilar sér
illa og þaö gerir tveggja ára laxinn
líka,“ sagði Svend Aage Malmberg,
haffræðingur á formannafundi
Landssambands stangaveiöifélaga,
fyrir fáum dögum.
„Sumarið 1992 verður aftur á móti
miklu betra og báðir laxastofnarnir
munu skila sér vel þá. Þetta byggjum
við á ástandi sjávar á íslandsmiðum,
ástandið í hafinu er gott núna. En
ef það er slæmt árið er seiðin ganga
til sjávar höfum við reynslu af því
og sjáum að það er minna um endur-
heimtur. Síðustu vor hafa ekki verið
góð fyrir seiðin," sagði Svend Aage
ílokin. -G.Bender
Þjóðar-
spaug DV
Dýr leiga
Pétur Ottesen, fyrrverandi al-
þingismaöur, var eitt simi stadd-
ur ásamt nokkrum félögum sín-
um við Genesaretvatnið. Ákváðu
þeir að leigja sér bátskænu og róa
út á vatnið. Er þeir töluðu við
þann sem hafði með bátaleiguna
að gera setti hann upp það verð
fyrir emn bát að Pétur og félagar
hans töldu það nálgast okur.
Minnti þá leigjandi bátsins þá á
að það hefði nú veriö hér sem
Jesús hefði gengið á vatninu. Þá
mælti Pétur;
„Mig skal ekki furða þó að frels-
arinn hafi gengið á þessu vatni,
eins dýr og leigan á bátunum hér
er.“
Skoöanimar
Það kom í hlut Halldórs E. Sig-
urðssonar, framsóknarmanns og
þáverandi samgöngináðherra, að
ráða í stöðu vitavarðar á Svalvog-
um. Nokkrir framsóknarmenn
voru meðal umsækjanda svo og
Ólafur Þ. Jónsson sem fáir þekkja
undir ööru nafni en Óli kömmi.
Þaö kom framsóknarmönnum
mjög á óvart er Halldór veitti Óla
komma stöðuna og gengu þeir því
á fund Halldórs og kröiðust skýr-
inga á stöðuveitingunni. Halldór
svaraði þeim með svohljóðandi
orðum:
„Ef ég hefði veitt einum fram-
sóknarmanni stööuna hefðu hin-
ir orðið sármóögaðir út í mig og
því ákvað ég að veita Óla stöö-
una. Menn með svona skoðanir
eins og ÓU eru líka best geymdir
á svona stöðum.“
Þaö þarf varla að segja frá því
að framsóknarmerín héldu ahir
glaðir heim af fundinum við
Halldór.
Kjósið D
Séra Bjarni Jónsson Dóm-
kirkjuprestur þótti mjög hallur
undir Sjálfstæðisflokkinn.
Skömmu fyrir einar kosningar
var hann að messa í kirkju sinni
og í lok messunnar sagði hann
skýrum rómi:
„Kjósiö D. Kjósið D. Kjósið
Drottin.“
Finnur þú flmm breytingai? 99
Nafn:........
Heimiiisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriöum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
2. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
Vinningarnir koma frá versl-
uninni Hljómbæ, Hverfisgötu
103, Reykjavík.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 99
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir nítug-
ustu og sjöundu getraun
reyndust vera:
1. Ásta Ástvaldsdóttir,
Asparlundi 1,
210 Garðabæ.
2. Vigdís Þorsteinsdóttir,
Lækjargötu 10,
530 Hvammstanga.
Vinningarnir verða sendir
heim.
V>