Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Blaðsíða 28
Vel heppnað Spörtumót
KR-ingar gengust fyrir Spörtu- Leikið var í 6. og 7. flokki karla og leikandi lið HK. í keppni B-liða ar þeirra úr B-liðinu komu rétt á keppni B-liða sigruðu Framarar
mótinu í handknattleik dagana fyr- 5. og 6. flokki kvenna. sigraði Valur Stjömuna sannfær- hæla þeirra. í 5. flokki kvenna A- örugglega lið ÍR. 16. flokki kvenna
ir páska og má segja að vel hafi í 6. flokki karla A-liða sigraði lið andi. í 7. flokki karla sigraði A-lið liða sigruðu ÍR-ingar Gróttustúlk- sigruðu Gróttustúlkur með fullu
tekist til þegar á heildina er litið. KR eftir hörkuúrslitaleik við létt- Hauka nokkuð örugglega en félag- ur, 5-4, eftir hörkuviðureign og i húsi stiga.
LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991.
Handbolti unglinga
Lið KR sem sigraði í 6. flokki A-liða.
Gróttustúlkurnar i 6. fiokki kvenna unnu alla andstæðinga sína.
Spennandi úrslitaleikur
Úrslitaleikur Spörtumótsins í 5.
flokki kvenna var viöureign ÍR og
Gróttu. Leikurinn var ótrúlega jafn
og spennandi og var jafnt á flestum
tölum. Grótta byrjaði betur og leiddi
leikinn fram í miðjan seinni hálfleik,
1- 0, en þá jafnaði IR, 1-1. Stuttu fyrir
leikslok náði Grótta aftur eins marks
forustu og bjuggust flestir við að það
yröi úrslit leiksins en ÍR-stúlkurnar
voru á öðru máli, jöfnuðu, 2-2 og
náðu síðan tveggja marka forustu,
4-2, þegar langt var liðið á framleng-
inguna. Grótta náði að jafna leikinn
fyrir leikslok og þurfti bráðabana til
að skera úr um hvort liðið ynni mót-
ið. Það gerði ÍR með glæsilegu marki
úr horni.
Svandís Þorvaldsdóttir skoraði tvö
marka ÍR en Margrét Friðriksdóttir
var markahæst hjá Gróttu með tvö
mörk.
Yfirburðir hjá Fram
Framstúlkurnar í 5. flokki B unnu
léttan sigur á ÍR í úrslitaleik keppn-
innar, 10-4 en í hálfleik leiddu stúlk-
umar úr Safamýri með einu marki,
3-2.
Jóhanna Jensdóttir, Fram fór ham-
fóram í leiknum og skoraði sex mörk
en Lilja Hauksdóttir skoraði tvö
mörk fyrir ÍR.
Hartbaristí
úrslitaleikA-liða
í úrslitum í 6. flokki mættust lið
HK og KR og var leikurinn mjög
skemmtilegur á að horfa. KR-ingar
náðu fljótlega forustunni en HK jafn-
aði skömmu seinna. í hálfleik hafði
KR aftur náð eins marks forustu,
2- 1.
KR skoraði fyrsta mark seinni hálf-
leiks en aftur náði HK að minnka
muninn í eitt mark, 4-3. Mikið gekk
á á síðustu mínútum leiksins er HK
reyndi að jafna leikinn en það voru
KR-ingar sem áttu síðasta orðið og
unnu, 5-3.
Ásgrímur Sigurðsson var marka-
hæstur KR-inga með tvö mörk og Óli
Þór Júlíusson var markahæstur hjá
HK með tvö mörk.
Otrúlegur
seinni hálfleikur
Úrslitaviðureignin hjá B-liðum 6.
flokks karla verður lengi í minnum
höfð fyrir það hversu sveiflukenndur
leikurinn var en það voru lið Vals
og Stjörnunnar sem áttust þar við. í
fyrri hálfleik leiddu Garðbæingar og
Umsjón:
Heimir Ríkarðsson
og Lárus H. Lárusson
höfðu eins marks forskot í hálfleik,
2-3. í seinni hálfleik komu Hlíðar-
endapiltarnir mjög ákveðnir til leiks
og skoruðu flmm mörk á móti aðeins
einu frá Stjörnunni. Kristinn Guð-
mundsson er án efa maður leiksins
en hann skoraði fimm af sjö mörkum
Vals í leiknum en hjá Stjörnunni
skoruðu þeir Andrés Magnússon og
Einar Einarsson tvö mörk hvor.
Gróttustúlkurnar í 6. flokki kvenna
unnu alla andstæðinga sína að þessu
sinni en sjö lið tóku þátt í keppn-
inni. Fylkir varð í öðru sæti, tapaði
aðeins leiknum gegn Gróttu.
Þá var einnig leikið í 7. flokki karla
og tóku þrjú lið þátt í keppninni. A
og B-lið Hauka urðu í efstu sætunum.
í 5. flokki kvenna varð lið ÍR sigurveigari A-liða.
Framstúlkurnar urðu sigurveigarar i 5. flokki B.
Heiður Björnsdóttir, fyrirliði Fram i
5. flokki B lék vel í úrslitaleiknum
gegn ÍR og skoraði þrjú mörk.
Tómas Bjarnason, fyrirliði Vals í 6.
flokki B hampar hér bikarnum sem
liðið hlaut fyrir fyrsta sætið.
Auður Vésteinsdóttir, Gróttu reynir hér markskot í úrslitaleiknum gegn IR
og félagi hennar, Björg Fenger fylgist spennt með.