Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1991, Síða 2
2
MÁNUDAGUK 10. JÚNÍ 1991.
Fréttir______________________
Minnihluti bæjarráðs Kópavogs:
Hrun blasir við
félagsmálastofnun
- starfsfólkið segir upp vegna óánægju
Á fundi bæjarráös Kópavogs síö-
astliðinn fimmtudag lagði minni-
hlutinn fram bókun þar sem meiri-
hluti bæjarstjómarinnar var sakaö-
ur um aö vera óviljandi eöa vísvit-
andi aö eyðileggja félagsmálastofnun
bæjarins.
„Núverandi meirihluti bæjar-
stjórnarinnar hefur kollvarpað því
skipulagi sem einkennt hefur félags-
málastofnunina til þessa og gert
henni kleift að vera í forystu um fé-
lagsleg málefni," sagði Guðmundur
Oddsson, en hann og Elsa Þorkels-
dóttir eru fulltrúar minnihlutans í
bæjarráði Kópavogs.
„Ég lagði fram bókunina og Elsa
skrifaði undir, því með þessu áfram-
haldi blasir hrun við stofnuninni,"
sagði Guðmundur.
Hann sagði að allir félagsráðgjaf-
arnir hefðu sagt upp störfum í síð-
asta mánuði vegna óánægju, svo og
dagvistarfulltrúinn og umsjónar-
fóstran. Að sögn Guðmundar finnast
þeim störf þeirra ekki lengur njóta
þeirrar virðingar sem þau nutu áður.
„Það er ekki hægt að benda á neitt
eitt atriði í þessu sambandi, maður
finnur bara fyrir breyttum viðhorf-
um og áherslan er allt önnur,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagði aö minnihlutinn hefði
boriö fram tillögu á fundinum um
að sett yrði á stofn þriggja manna
nefnd til þess að kanna þessi mál og
koma með tillögur um úrbætur en
tillagan hefði verið felld hið snarasta
með þremur atkvæðum gegn tveim-
ur, þ.e. atkvæðum Guðmundar og
Elsu.
Hann sagði þetta vera undarlega
málsmeðferð og fullyrti að meirihlut-
inn hefði jafnan haft litla samvinnu
við minnihlutann.
-ingo
DV
Sjöungmenni
tekin vidinnbrot
Sjö ungmenni á aldrinum 16 og
17 ára voru handtekin við versl-
unina Hjólagallerí viö Suöurgötu
3 á sjöunda tímanum á laugar-
dagsmorgun. Höfðu þau brotist
inn í verslunina með því að
spenna upp útihurð, farið í pen-
ingakassann og látið greipar sópa
um vörur.
Lögreglan í Reykjavik var á eft-
irlitsferð um borgina þegar sást
aö eitthvaö var grunsamlegt á
seyði viö Hjólagallerí. Þegar farið
var að kanna málið betur kom í
ljós að unga fólkiö hafði komið á
sendiferðabíl og var alit ölvað
nema bílstjórinn.
Eitthvaö af ungmennunum
hafði klætt sig í leðuijakka sem
voru í versluninni. Hreyft hafði
verið við skiptimynt en í peninga-
kassanum voru 500 og 100 króna
seölar. Ungmennin voru flutt í
fangageymslur. Eigandi verslun-
arinnar sagðí að ekki væru öll
kurl komin til grafar. Eitthvað
afvörumvantaði. -ÓTT
Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins fór fram á laugardag og var þátttaka mjög góð. Hlaupnir voru 2, 4 og 10 kíló-
metrar og voru þátttakendur á öllum aldri, þeir yngstu í barnavögnum. Hér eru hlauparar að leggja upp frá húsi
Krabbameinsfélagsins i Skógarhlíð í Reykjavík en einnig var hlaupið á Akureyri og Egilsstöðum. DV-mynd GVA
Atvmnumál námsmanna:
Bjartara framund-
anenífyira
- atvinnurekendur virðast hafa haldið að sér höndum framað þessu
Atvinnumál námsmanna eru í
svipuðu ástandi og á sama tíma í
fyrra en þó virðist bjartara framund-
an en þá. Búist hafði verið við fyrr í
vor að ástandið yrði verra, en ræst
hefur úr, alténd hjá atvinnumiðlun
námsmanna.
Hjá atvinnumiölun námsmanna er
það að frétta að eftir frekar slaka
byrjun tóku atvinnurekendur við sér
um mánaðamótin og nokkuö gott
streymi er á störfum nú. Börkur
Gunnarsson, framkvæmdastjóri at-
vinnumiðlunarinnar, segir aö um 800
manns séu á skrá hjá miðluninni sem
er heldur færra en í fyrra.
„Af þessum 800 höfum við útvegað
170 manns vinnu og svipaður fjöldi
hefur útvegað sér vinnu á eigin spýt-
ur. Síöustu mánaðamót voru mikfil
annatími og mér virðist að atvinnu-
rekendur hafi haldið að sér höndum
fram aö þeim og verið frekar varkár-
ir. En núna þurfa þeir skyndilega
starfsfólk og við getum útvegaö þaö
Unglingavinnan er þegar byrjuó og
rúmlega 1700 unglingar eru byrjaðir
að starfa i göröum og fleiru. At-
vinnuástand námsmanna virðist
svipað og í fyrra en þó virðast horf-
ur betri en þá. DV-mynd Hanna
á stundinni. Ástandið virtist vera
mjög slæmt fyrr í vor og allt leit út
fyrir að það yrði verra en í fyrra en
núna eru allar líkur á að það verði
betra,“ segir Börkur.
Að sögn Gunnars Helgasonar, for-
stöðumanns ráðningaskrifstofu
Reykjavíkur, hafa um 1800 manns,
16 ára og eldri, þegar sótt um hjá
þeim og á biðlista eru 277 manns.
„Reykjavíkurborg úthlutaði um
1200 manns störfum í fyrra og um
200 fóru frá okkur í alls konar fyrir-
tæki. Ástandið er mjög svipað og í
fyrra og hittiðfyrra. Það er erfitt fyr-
ir skólafólk að fá vinnu,“ segir Gunn-
ar.
Unglingavinnan er fyrir krakka
sem eru 14 og 15 ára og að sögn Sig-
urðar Lyngdals, aöstoðarskólastjóra
Vinnuskólans, eru ekki biðlistar þar
enda eru allir ráðnir sem sækja um.
Rúmlega 1700 unglingar eru þegar
komnir í vinnu.
-ns
Meirihlutinn í bæjarráði Kópavogs:
Uppsagnirnar
tilviljun
- segir Bragi Michaelsson bæjarfulltrúi
„Eg kann engar aðrar skýringar á
þessum uppsögnum starfsfólks fé-
lagsmálastofnunar en að þær séu til-
viljun ein. Það hafa engar kvartanir
komið inn á borð til okkar,“ sagði
Bragi Michaelsson, einn fulltrúi
meirihlutans í bæjarráði Kópavogs.
Hann sagði að sumir dagvistarfull-
trúarnir hefðu einfaldlega farið til
starfa annars staðar og það væri al-
farið túlkun minnihlutans að um
óánægju væri að ræða.
„Við höfum, mér vitanlega, ekki
verið með neikvæð viðbrögð gagn-
vart starfsfólki stofnunarinnar, ég
hef reyndar alltaf átt viö það gott
samstarf. Það hafa heldur engar
breytingar verið gerðar á starfslið-
inu, svo að ég skil ekki hvað átt er
við með óánægju," sagði Bragi.
Aðspurður hvers vegna tillaga
minnihlutans um að setja á stofn
sérstaka nefnd til þess að kynna sér
þessi mál hefði verið felld sagði Bragi
að afstaöa meirihlutans væri einfóld.
„Það er verkefni félagsmálaráðs að
fjalla um málefni félagsmálastofnun-
ar, ekki bæjarráðs. Mér finnst eðli-
legt að það sjái alfarið um þessi mál
ásamt nýjum félagsmálastjóra, sem
væntanlega tekur við innan tíðar,"
sagöi Bragi.
- Það blasir þá ekki hrun við stofn-
uninni?
„Ég vona að málið sé nú ekki svo
alvarlegt. Það verður haldinn fundur
í félagsmálaráði á morgun og þá ætti
að koma í ljós hvort um einhverja
óánægju sé að ræða.“
-ingo
Rúnar Sigurkarlsson og (jolskylda með glaðninginn óvænta sem þau fengu
í gær. Með þeim á myndinni eru, frá vinstri: Helgi Ibsen, framkvæmda-
stjóri hf. Skallagríms, Óskar Ólafsson, skipstjóri Akraborgar, Guðbjartur
Hannesson, formaður stjórnar hf. Skallagríms, Hannes Valdimarsson, hafn-
arstjóri í Reykjavik, og Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður.
DV-mynd Sigurður
Milljónasti bfllinn
með Akraborg í gær
Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi:
Milljónasti bíllin frá því hf. Skalla-
grímur hóf rekstur bílferja árið 1974
var fluttur frá Akranesi til Reykja-
víkur síðdegis í gær.
Það voru Rúnar Sigurkarlsson og
fjölskylda hans úr Kópavogi sem áttu
milljónasta bílinn. Fjölskyldan, sem
hafði dvalið á Snæfellsnesi um helg-
ina, rétt náði í tæka tíð áður en Akra-
borgin lagði úr Akraneshöfn kl. 17 í
gær.
Ekki var laust við að undrunar-
svipur færðist yfir andlit fimmmenn-
inganna í bílnum þegar prúðbúið
fólk þyrptist að honum og óskaði
þeim til hamingju með daginn.
I tilefni dagsins var Rúnari og fjöl-
skyldu færð gjöf frá Akranesbæ og
Reykjavíkurhöfn auk þess sem fjöl-
skyldan fékk frímiða með skipinu til
áramóta. Einnig fékk fjölskyldan
blóm á þessum tímamótum. Á leið-
inni til Reykjavíkur þáði fjölskyldan
veitingar í boði hf. SkaUagríms.