Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1991, Side 18
18
MÁNUDAGUE 10.) JÚNÍ 1991.
wc kr. 12.900,-
Handlaug kr. 3.000,-
Baðkar kr. 9.000,-
Sturtubotn kr. 7.000,-
Allt á kr. 31.900,-
Árrnúla 36 • Sfml 31810
Toyota LandCruiser '88, disil, sjálfsk.,
32" dekk + krómfelg., ek. 50.000 km,
v. 2.900.000, skipti ath.
MMC L 300 ’88, 30" dekk + White
spoke fylgir, annar dekkjagangur +
felgur, ek. 56.000 km, v. 1.320.000, skipti
ath.
M. Benz 280 SE '86, sjólfsk., álfelgur,
4 höfuöp., litaö gler, ek. 111.000, v.
2.200.000, skipti ath.
BMW 316 '88, 5 gíra, rauöur, toppl., 4
höfuöp., ek. 55.000 km, v. 1.100.000,
skipti ath.
Honda Civic GT '88, hvitur, sjálfsk. (4
gira), vökvast, ek. 27.000 km, v.
890.000, skipti ath.
M. Benz 230 E '84, grœnn, sjóffsk.,
topplúga, álfelgur, ek. 115.000 km, v.
990.000, skipti ath.
MMC Golt '87-88, svartir, sóllúga, ál-
felgur, góöar græjur, v. 730-880.000,
skipti ath,.
Toyota Corolla 16 v. GTi '88, svartur
ek. 53.000 km, v. 950.000, skipti ath.
MMC Colt '87, grár, 5 gira, 1500, ek.
48.000, v. 540.000.
Chevrolet Astro van '87, hvitur ek.
37.000 milur, innréttaöur meö stólum,
v. 1.740.000, skipti ath.
Höfum kaupendur aö Honda Accord
'90, Civiv '89-’90, MMC Colt ’80-’90,
Cherokee og Pajero ’88-’90. Mikil sala
i ódýrari bilum.
672277
NYJA BILAHÖLLIN
FUNAHÖFÐa 1 -112- FMk.- FAX 673983
Memiing
Vinnustofa myndlistarmanna í Straumi:
Stórir skúlptúrar búnir
til í opinni vinnustof u
- fjórtán skúlptúrar uppistaðan
Magnús Kjartansson myndlistarmaður vinnur hér við lokafrágang á verki
sínu sem síðar meir mun prýöa nýjan höggmyndagarð í Hafnarfirði.
DV-mynd BG
Um næstu helgi verður opnuð ein-
hver allra mesta skúlptúrsýning sem
sett hefur verið upp hér á landi. Sýn-
ing þessi, sem er í tengslum við Lista-
hátíð í Hafnartirði og verður fyrst
fyrir augum almennings á Strand-
götu, við Hafnarborg, á Thorsplani
og við Fjarðargötu. Á höggmynda-
sýningu þessari verða fjórtán stór
; verk eftir innlenda og erlenda Usta-
1 menn og eru öll unnin hér á landi.
Listamennirnir, sem eiga verkin, eru
jafnmargir og eru þar á meðal heims-
frægir Ustamenn sem koma frá öUum
heimshornum og er taUð að mark-
aðsverð Ustaverkanna sé um það bU
250 mUljónir króna.
Listaverkin munu þó aldrei koma
tíl með að fara úr landi því að þau
verða uppistaðan í nýjum högg-
myndagarði i Hafnarfiröi sem verður
fyrir almenning. Garðurinn veröur á
útivistarsvæðinu í kringum Víði-
staðakirkju. Erlendu Ustamennirnar
hafa aUir ákveðið að gefa Hafnar-
fjarðarbæ verk sín.
Hér á landi eru aðeins þrír högg-
myndagarðar og eru þeir aUir í
tengslum við Listasöfn og í hveijum
garði eru aðeins verk eftir einn Usta-
mann. Höggmyndagarðurinn í Hafn-
arfirði verður þvi frábrugðinn þeim
aö því leyti að þar verða nútimalista-
verk og eftir marga listamenn.
Höggmyndagarðar eru mjög vin-
sæUr erlendis og þeim er gjaman
komið fyrir í fógru landslagi og þar
sem fólk getur notið útivistar. Högg-
myndagarðurinn í Hafnarfirði er
skipulagður af Jóhannesi Kjarval
skipulagsstjóra Hafnarfjarðar í sam-
vinnu við Sverri Ólafsson Ustamann.
Sverrir mun búa tíl verk þar sem
alUr gefendurnir rafsjóða nöfn sín á
jámplötu á vígsludaginn.
Það var í byrjun maí sem fyrstu
líkönin fóm að berast. Þá var hafist
handa við að mæla verkin og gera
vinnuteikningar og panta efni.
Reiknað er með að 60 tonn af stáU
þurfi samtals í öU verkin. Fimm járn-
smiðir starfa í fuliri vinnu við smíð-
ina, auk þess sem margir sjáltboðal-
iðar em tíl aðstoðar. Listamennimir
munu svo sjálfir ljúka við að mála
þau eins og þeir kjósa. Vinna við
myndverkin hefur farið fram fyrir
opnum dyrum og hefur almenningi
verið boðið að fylgjast meö.
Listamennirnir hafa sjálfir haft yf-
immsjón með smíði verka sinna,
enda sum verkin flókin og erfið.
Áætlað hefur verið að kostnaður við
smíði hvers verks sé 500 þúsund
krónur. Að sögn Hafsteins Ólafsson-
ar jámsmiðs er þetta mjög skemmti-
legt og jafnframt erfitt verkefni og
ólíkt flestu sem jámsmiðir fást við
að jafnaði.
-HK
Christo á Kjarvalsstöðum:
Storkar hefðbundnum
hugmyndum um list
*
Josy Kraft heitir sá sem setti sýninguna á verkum Christo upp á Kjarvals-
stööum. Sést hann hér vera að ganga frá Ijósmynd af einu risaiistaverki
Christo. DV-mynd BG
Vafðir stigagangar, líkamar eða
brýr. Efni sem teygist yfir dalverpi
eða flýtur umhverfis ellefu eyjar.
Sólhlífar á stærð við tveggja hæða
hús staðsettar í dölum Kaliforníu og
Japan. Þetta er list Christo. í stað
þess að skapa ný „iistaverk" notar
hann það sem þegar er til, hvort sem
það er hluti landsins eða hversdags-
legur hlutur og gerir einfalda breyt-
ingu sem skapar eitthvaö sem hæði
er kunnuglegt og framandi fyrir okk-
ur.
Þessa dagana er sýning á verkum
Christo á Kjarvalsstöðum. Má þar sjá
yfirlit yfir listsköpun hans frá 1985-
1989. Verkin em öll úr safni Torsten
Lilja, sænsks milljónamærings sem
sagður er eiga 150 verk eftir Christo.
Christo hefur í gegnum tíðina'
storkað hefðbundnum hugmyndum
um listina. Menn hafa viljað setja
spumingarmerki við þessi Ustaverk
sem lifa oft aðeins skamman tíma og
em síðan varðveitt í skissum og ljós-
myndum.
Sjálfsagt lýsir engin betur list
Chíisto en hann sjálfur: „Það ætti í
öllum tilvikum að líta á verk mín sem
tímabundin listaverk. Hið tíma-
bundna er einnig fagurfræðilegur
eðliskostur, ekki bara vegna þess aö
verkin em aðeins til í takmarkaðan
tíma heldur einnig vegna þeirra við-
kvæmu efniseiginleika sem mjög
auðvelt er að spilla. Efnið og höfuö-
skepnumar gefa verkefnunum þenn-
an farandblæ hirðingjalífsins. Um
leið em verkefnin alltaf hönnuð til
að varpa fram spumingum og efha
til umræðna um: Hvað er list? Er list
eilíf? Er hægt að kaupa, safna, borga
fyrir og stjóma list? Tíáning hvers
verkefnis samsvarar sínum tiltekna
tíma mjög náið. Verkefnin em gerð
með það í huga að vera einstök á
þann hátt. Þau em einstök. Ekki
þannig að þau hrindi öðmm frá sér
heldur á þann hátt að þau verða að-
eins einu sinni til, líkt og æskan eða
okkar eigið æviskeið, og er því aldrei
hægt að endurtaka, flylja eða setja
annað í staðinn. Og auðvitað er þetta
flókið samband: Þetta em ekki hlut-
ir, heldur listaverk sem venjulega fá
lánað ákveðið rými sem venjulega
tilheyrir ekki höggmynd eða mál-
verki. Þau fá lánað rými uppi í sveit,
í borg eða úthverfum. Þetta rými er
samofið listaverkinu. Hins vegar eiga
undirbúningsteikningamar sína
sjálfstæðu tilvem sem listaverk."
Christo hefur alfarið staðið sjálfur
straum af kostnaði við gerð hinna
stóm list-verkefna sinna, hafnar að
njóta stuðnings á nokkum hátt. Með
sölu á undirbúningsteikningum og
skissum aflar hann fjármagns til
verkefnanna.
BJstasýning sett
upp í Akraborg
Siguröar Sverrisson, D V, Akranesi:
Akraborgin kemur til með að
verða vettvangur óvæntrar uppá-
komu síðar í þessum mánuði.
Þann 29. júni nk. er áformað að
opna þar í fyrsta sinn myndlistar-
sýningu með verkum a.m.k. 20
listamanna, allt frá Akranesi til
Kína. Guðmundur Rúnar Lúð-
víksson myndiistarmaður er einn
helsti hvatamaðurinn að þessari
uppákomu. Hann sagöi í stuttu
samtali við DV að sett yrðu upp
i skipinu verk eftir listamenn
viða 'að. Listamennimir tóku sér
far meö Akraborginni fyrir stuttu
til þess að kanna hvar hentugast
væri aö koma fyrir myndverkum.
Fyrstu verðlaun
tilSjónvarpsins
_ Fréttamynd Sjónvarpsins,
Útskúfað úr sæluríkinu, fékk
fyrstu verðlaun í flokki heimild-
armynda um hjálparstarf á kvik-
myndhátíð- búlgarska Rauða
krossins í Varna. Myndin Útskúf-
að úr sæluríkinu var gerð í
Rúmeníu í febrúar og mars í fyrra
og keppti hún við 38 myndir frá
16 löndum. Ámi Snævarr frétta-
maður gerði myndina ásamt
Bimu Bjömsdóttur upptöku-
stjóra og Þóri Ægissyni kvik-
myndatökumanni. Þau héldu ut-
an þegar fréttir fóru að berast um
þá eymd sem þreifst í Rúmeníu í
stjómartíð Ceausescus eftir fall
ríkisstjórnar hans. Var myndin
gerð í samvinnu við Rauða kross
Islands. Þess má geta að Útskúfað
úr sæluríkinu var einnig valin
meðal bestu mynda á sjónvarps-
myndahátíð í Póllandi í desemb-
er.
Tríótönleikar
íListasafni
Beth Levin píanóleikari, sem
búsett er og starfar í New York,
Richard Talkovsky, sellóleikari í
Sinfóníuhljómsveit íslands, og
Einar Jóhannesson, fyrsti klarí-
nettuleikari í sömu hljómsveit,
halda tónleika í Listasafni Sigur-
jóns á þriöjudagskvöld. Em þetta
sömu tónleikar og tríóið hélt á
ísafirði og Akureyri um helgina.
Á efhisskránni eru verk eftir Be-
ethoven, Glinka, Þorkel Sigur-
bjömsson og Brahms. Tríóið var
stofnað fyrr á þessu ári með tón-
leikahald á íslandi og Spáni í
huga. í júlí munu þremenning-
amir ferðast um Katalóníuhémð
Spánar og leika þar á tónlistarhá-
tíöum. Á næsta ári em áformaðar
tónleikaferöir til Norður- og Suð-
ur-Ameríku. Beth Levin og Ric-
hard Talkowski em útskrifúð frá
Bandaríkjunum og hefur Levin
geöð sér mjög gott orð sem ein-
leikari og fékk verölaun í alþjóð-
legu píanókeppninni í Leeds 1978.
Talkowski hefur tekið þátt í
mörgum tónlistarhátíöum og
starfað m.a. á Spáni ogEquador.
Söngferðum
Norðurlönd
Þórh. Aamundsson, DV, Sauðárkróid:
Tæplega eitt hundrað manna
hópur söngmanna og maka úr
kariakórnum Heimi leggur upp í
vikunni í hálfsmánaðarsöngför
um Noröurlönd. i ferðinni, sem
verður um Noreg, Danmörku og
Svíþjóð, mun kórinn meðal ann-
ars syngja á hátíðarskemmtun
Islendingafélagsins í Danmörku
17. júní og halda söngskemmtanir
í vinabæjum Sauðárkróks í lönd-
unum þremur. Skipulagningu
ferðarinnar um Ðanmörku og
Svíþjóð hefur Matthías Viktors-
son annast en Noreg Sven Arne
Korshamn, fyrrverandi stjóm-
andi Heimis.