Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1991, Side 19
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1991.
Svidsljós
Þau voru heiðruð fyrir vel unnin störf á sjómannadaginn á Fáskrúðsfirði.
DV-mynd Ægir Kristinsson
Sjómannadagur á Fáskrúðsfirði:
Heiðruð fyrir störf
tengd sjávarútvegi
Ægir Kiistmsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Hátíðahöld sjómannadagsins á Fá-
skrúðsfirði hófust á laugardegi með
undanrásum í kappróðri. Á sunnu-
dag var hópsighng og séra Þorleifur
Kjartan Kristmundsson prófastur
prédikaði í Fáskrúðsfjarðarkirkju.
Fjórar konur, þær Lena Berg, Björg
Magnúsdóttir, Jóna Torfadóttir og
Dagmar Sörensdóttir, voru heiðrað-
ar fyrir áratugastörf í fiskvinnslu.
Einnig var Ástþór Guönason skip-
stjóri heiðraður fyrir sjómannsstörf
og Bergur Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Pólarsíldar, fyrir störf
að sjávarútvegi og fiskvinnslu í tæpa
þrjá áratugi hér á Búðum.
Við messuna á sjómannadaginn
afhentu fermingarbörn, fermd 1961,
Fáskrúðsfjarðarkirkju að gjöf tvö
skammel, fagurlega útskorin af hag-
leiksmanninum Hlyni Halldórssyni í
Miðhúsum. Eftir messu var lagður
blómsveigur að minnisvarða um
látna sjómenn.
Síðar var samkoma á skólalóðinni
og kappróður og plankaslagur við
hafnarbryggjuna. Slysavarnakonur
voru með kaffisölu í félagsheimilinu
og björgunarsveitin Geisli sá um fjöl-
mennan dansleik í Skrúð um kvöld-
ið.
RENAULT TRAFIC
Sendibíll sem skilar arði !
RenaultTraficersendibíll sem skilarþérhagkvæmari rekstri. Það
sem gerir þennan sendibíl hagkvæmari en aðra, er einstaklega lág
hleðsluhæð, rúmgott flutningsrými, mikil burðargeta, frábærir
aksturseiginleikar, hlífðarlistar á öllum hliðum, sparneytni, lítið
viðhald og síðast en ekki sýst mjög hagstætt verð.
Aðeins örfáir bílar
eftir á verði frá kr.
1.079.500.- (án vsk)
3 ára ábyrgð
8 ára ryðvarnarábyrgð
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1 Sími 686633
KYNNIÐ YKKUR BREYTTA SORPHIRÐU
Ný vinnubrögð og nýjar reglur hafa verið teknar upp
í sorphirðu í Reykjavík. Opnir sorphaugar eru aflagðir
og flokkun úrgangs hafin.
Þetta fer á gámastöðvar
en alls ekki í sorptunnuna:
Eigendum atvinnuhúsnæðis er bent á:
Fasteignaskattar af atvinnuhúsnæði voru lækkaðir í byrjun
árs og sorpgjald sem miðastviðfjöldaog stærðílátatekið upp.
Sorpgjald gildir fyrir allt árið.
Sorpgjald er fellt niður eöa lækkað ef ílátum er fækkað eða
fyrirtæki kjósa að nýta sér þjónustu einkaaðila. ílát verða þá
fjarlægð og sorpgjald fellt niður frá og með næstu viku þar á
eftir.
• Málmhlutir
• Grjót og steinefni (smærri farmar,
stærri farmarfara á "tippa”)
• Spilliefni hvers konar (þau má einnig
afhenda í efnamóttöku og á öörum viöur-
kenndum stöðum s.s. lyf hjá apótekum
og rafhlööur á bensínstöðvar)
Þetta er óæskilegt
í sorptunnuna en má afhenda
á gámastöðvum:
Sorppokar, sem eru umfram uppgefin sorpílát, veröa því aðeins
hirtir að þeir séu merktir REYKJAVÍKURBORG.
Pokarnir eru til sölu hjá Birgðastöð borgarstofnana, Skúlatúni 1
og öllum bensínstöðvum. Gjald til SORPU fyrir ráðstöfun sorps
er innifaliö í verði þeirra. Vinsamlegast bindið fyrir pokana, yfir-
fyllið þá ekki og komið þeim fyrir við hlið sorpíláta.
Fjöldi sorpíláta við atvinnuhúsnæði erekki lengurtakmarkaður
ef að öllu leyti erfarið eftir leiöbeiningum um flokkun úrgangs.
Tökum á fyrir hreinni framtíð
• Prentpappír
• Garðaúrgangur sem ekki er notaður
í heimagarði
• Timbur (smærri farma)
Hvervinnustaðurþarf aðtemjasérstraxnauðsynlegar
flokkunaraðferðir ef árangur á
að nást. Við höfum skyldum
að gegna gagnvart lífríkinu
og komandj kynslóöum.
Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík