Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1991, Page 23
MÁNUDAQUR ÍO. JÚNÍ 1991.
. 39
Fréttir
Fimm þúsund
egg úr Drangey
ÞórhaJlur Ásmundsson, DV, Sauðárkroki:
Eggjatökumenn í Drangey höföu
um 5 þúsund egg upp úr krafsinu á
þessu vori og er það svipað og síð-
ustu ár. Þetta er þó einungis smá-
ræði miðaö við það þegar eggjataka
var hvað mest í Drangey. Þá náðust
allt upp í 24 þúsund egg í tveimur
sigum á vori.
Níu manna flokkur var í fjóra sól-
arhringa út í eynni í síðustu viku og
nokkuð færri voru búnir að vera við
sig tvo sólarhringa á undan. Jón á
Fagranesi segir að gott sé að ná þús-
und eggjum yfir sólarhringinn. „Ef
menn legðu sig virkilega eftir því
væri hægt að ná hátt í 10 þúsund
eggjum á vori. Nú er bara farið einu
sinni út í sig en hér áður fyrr var
alltaf farið tvisvar og þá liðu ein eða
tvær vikur milh siga,“ sagði Jón.
Jón er byrjaöur í Drangeyjarferð-
unum og býst við íjölda ferða þangað
út í sumar. Auk fjölda útlendinga,
sem fýsir að vitja eyju útlagans
Grettis, hefur aukist áhugi vinnu-
staðahópa og félagasamtaka fyrir
Drangeyjarför.
Stefán frá Gautlöndum með bankabókina og Þór frá Saurbæ með sveins-
bréfið en þeir hafa fundið hina óvæntustu hluti í vegköntunum.
DV-mynd Þórhallur Ásmundsson
Ýmislegt forvitnilegt í vegköntunum:
Næturgagn, sveins-
bréf og bankabók
Þórhailur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
„Hirðusemi fólks er greinilega
mjög upp og ofan. Við fmnum allt
mögulegt í vegkantinum. Meðal þess
sem við höfum fundið er nætm-gagn,
sveinsbréf í vélsmíði og sparisjóðs-
bók,“ sögðu þeir félagar Stefán frá
Gautlöndum og Þór frá Saurbæ sem
hafa þann starfa að þurrka af glit-
merkjum vegstika, skipta um brotn-
ar stikur og hreinsa rusl úr vegkönt-
unum.
Bankabókin hefur að geyma um
1500 krónur. Þó að þaö sé ekki stór
upphæð er í hæsta máta undarlegt
að fleygja því frá sér. Sveinsbréfið
tilheyrir hins vegar ungum vélsmið
frá Sigluflröi sem ekki hefur verið
mjög annt um prófskírteinið sitt. Not
fundust svo fyrir koppinn hjá hús-
móður einni í Óslandshlíðinni en
hann fannst þar um slóðir.
„Við finnum hina óvæntustu hluti
og allt mögulegt þar á milli, svo sem
kosningapésa og klámblöö. En við
höfum nú ekkert verið að lesa það,“
sögðu þeir Stefán og Þór.
Að sögn vegagerðarmanna er mik-
ið rusl meðfram vegum eftir vetur-
inn. Líklegt er að hvassviðrið í febrú-
arbyijun eigi stóra sök á því.
Gallerí Bardús á Hvammstanga
ÞórhaDur Ásmundsson, DV, Sauðárkröki:
Ný starfsemi er hafin í gamla versl-
unarhúsi Sigurðar Pálmasonar á
Hvammstanga sem hlotið hefur
nafnið Gallerí Bardús. Hér er um
nokkurs konar markaö að ræða þar
s'em til sýnis og sölu verða ýmsar
handunnar vörur og listmunir sem
unnir eru í héraðinu.Framkvæmda-
sfjóri er Guðný Sigurðardóttir.
„Við stefnum að því að hafa svolít-
iö líf í þessu. Fá fólk til að vinna að
sínum hugöarefnum á staðnum svo
að gestir og gangandi sjái hlutina í
vinnslu. Einnig verður þarna starf-
rækt upplýsingaþjónusta fyrir ferða-
menn,“ sagði Gísli Einarsson, sem
haft hefur forgöngu um stofnun
markaðarins.
Strandaféð reynist vel
öm Þóiarinssan, DV, njótum:
Sauðburður stendur nú sem hæst
í Fljótum. Hann hófst nú með seinna
móti, enda hafa tvö undanfarin vor
verið með eindæmum seint á ferð-
inni. Sauðburður hefur gengið vel
og er fijósemi mikil, dæmi er um að
yfir 90% af ánum sé tvílembt.
Hjá nokkrum bændum er nú sauð-
burður eftir nokkurt hlé vegna rið-
uniðurskurðar. Þessir aðilar hafa
fengið nýjan fjárstofn úr Stranda-
sýslu undanfarin tvö haust. Bændur
eru almennt ánægðir með þennan
nýja fjárstofn sem virðist vera frjó-
samur, ærnar sérlega góðar mæður
og mjólkurlagnar.
fyrir hendumar
Lactacyd léttsápan styrkir náttúrulegar
varnir húðarinnar. Hún hentar vel til
daglegrar umhirðu og er serstaklega
. góð fyrir þurrar og
|1 sprungnar vinnuhendur ■
Lactacyd léttsápan hefur
lágt pH-gildi (3,5) eins og
húðin sjálf og styrkir því
eðlilegar varnir hennar ■
* riiilaf n . ,4 »•
yWi
Lactacyd lettsapan fæst i helstu
stórmörkuðum og að sjálfsögðu
í næsta apóteki ■
3808?
LÉTTSAPA
QUIREBOYS
20.20-21.20
SVÆÐIÐ OPNAR
KL. 12.00.
SLAUGHTER
19.00-19.50
THUNDER
17.40-18.30
GCD
1 BARN YNGRA
EN 10 ÁRA í
FYLGD MEÐ
FULLORÐNUM
FÆR FRÍTT INN.
VEITINGAR
SELDAR ALLAN
DAGINN
16.20-17.10
BULLET BOYS
15.20-15.50
1
ARTCH
12 TÍMA
SKEMMTUN
FYRIRALLA
FJÖLSKYLDUNA
MIÐAVERÐ KR.
5.500-
14.30-15.00
:
»
IV
1% I
SUNNUDAGINN
KAPLAKRIKA HAFNARFIRÐI
isirilijil
ÁnrntAm l
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA:
Reykjavik: Skifan. Kringlunni, Laugaveqi 33 og Laugavegi 96; Bönus Videó.
Hraunbergi; Bónus Vidoó Sfrandgötu 28, Videóhöllin Þönglabakka 6. Videóhöltin
• Uamraborg 11. Akranes: Bókaskemman, Borgarncs: Kaupfélag Borgfiröinga,
Isafjördun Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfiröinga. Akureyri: KEA.
Neskaupstaður: Tónspil. Ólafsvik: Gistiheimilið Höföi Höfn: KASK.
Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Sclfoss: Ösp. Keflavik: Hljómval.
Allar upplýsingar i sima 91 - 67 49 15.
HÆGT ER AÐ BORGA MIÐANN MEÐ GREIÐSLUKORTI
I SIMA 91-674915 E
TÍMASETNINGAR Á HUÓMSVEITUM GÆTU RASKAST LÍTILLEGA
RÉTTUM STAÐ