Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1991, Page 36
52
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1991.
Menning__________________________________________________
Regnboginn: Með sólsting: */2
Pabbi er að deyja,
hver fær arfinn?
Robert Downey er frekar þekktur neöanjarðarleik-
stjóri í Bandaríkjunum og enn þekktari fyrir aö hafa
feðrað grínistann Robert Downey jr. Hér mætast þeir
í annað sinn á tjaldinu en í fyrsta skiptið sem við fáum
að sjá í einni furðulegustu kvikmynd sem ég hef séð
lengi. Því miður vöktu furðulegheitin sjaldan kátínu.
Sagan er á þessa leið: Moldríkur pabbi er að segja
skilið við jarðlífið. Hans eina eftirsjá er að sonur hans
og dóttir reyndust bæði kynhverf og hinir mestu iðju-
leysingjar. Bíræfinn guðsmaður fær (neyðir) hann til
að breyta erfðaskránni þannig að þau fá ekki neitt
nema að eignast að minnsta kosti eitt barn innan 12
mánaða. Meðan sonurinn (Eric Idle) lætur sig hafa
það að finna barnsmóður reynir dóttirin (Andrea
Martin) að hafa uppi á löngu glötuðum syni sem hún
hafði hingað til haldið leyndum. Hann er reyndar
Ralph Macchio og á í fasteignabraski með félaga sín-
um, Downey jr. Þeir sjá sér gróðaleik á borði meðan
presturinn reynir að leggja stein í götu þeirra.
Ég labbaði hvumsa út af myndinni. Hún var langt
frá því að vera dæmigerð gamanmynd, enda hlaut leik-
stjórinn takmarkaða frægð fyrir framúrstefnulegt grín
á sjötta og sjöunda áratugnum. Hér virðist allt hafa
farið forgörðum og myndin kemst nærri því að vera
svo léleg að hún sé þess virði að sjá. Fíflalætin í leik-
hópnum eru pínlega ófyndin og leikurinn eins og hjá
áhugmönnum. Siðferðiskenndinni er ofboðið sí og æ
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
og ákveðnum minnihlutahópi lítill greiði gerður. Ein-
staka atriði eru svo fáránleg að þau ná að vera fyndin
en mestallt er marflatt. Eric Idle, Macchio og Downey
jr. leika persónur sem eru langt fyrir neðan þeirra
virðingu og sú eina sem kemst ósködduð úr myndinni
er Andrea Martin sem leikur dótturina. Gæti höfðað
til þeirra sem vilja sjá eitthvað öðruvísi, hvað sem er.
Too Much Sun (Band. 1990)
Leikstjóri: Robert Downey (Rented Lips, Up the Academy).
Leikarar: Robert Downey jr. (Air America, Less than Zero),
Eric Idle (Baron Munchausen, Nuns on the Run), Ralph Macc-
hio (Karate Kids), Laura Ernst, Andrea Martin (Worth Winn-
ing, Rude Awakening), Leo Rossi (Accused).
Andlát
Jóhanna Kristjánsdóttir, fyrrum
húsmóðir á Eystri-Loftstöðum, and-
aðist á sjúkrahúsi Selfoss 6. júní.
Guðmundur Bjarnason frá Innri-
Lambadal í Dýrafirði, til heimilis að
Hvassaleiti 58, Reykjavík, andaðist á
heimili sínu að kvöldi 5. júní.
Karl Ásgrímur Ágústsson, Litla
Garði, Akureyri, lést 6. júní.
Hansina Jónsdóttir, Kambsvegi 33,
Reykjavík, lést af slysfórum fimmtu-
daginn 6. júní.
Stefán Björnsson.fyrrum bóndi á
Grund í Svarfaðardal, lést 7. júní sl.
Þorlákur Eyjólfsson, Hryggjarseli 11,
áður Bragagötu 23, andaðist í Landa-
kotsspítala fimmtudaginn 6. júní.
Yngvi Markússon, Oddsparti, lést í
Sjúkrahúsi Suðurlands þann 5. júní.
Þórunn Gunnlaugsdóttir, Hjarðar-
túni 3, Ólafsvík, andaðist 6. júní í St.
Franziskussjúkrahúsinu í Stykkis-
hólmi.
Tónleikar
Tónleikar í Norræna húsinu
í dag, 10. júní, munu þau Kathleen Beard-
en fiðluleikari og Snorri Sigfús Birgisson
píanóleikari halda tónleika í Norræna
húsinu. Á efnisskránni eru partita í h-
moll eftir J.S. Bach, Fantasía eftir Arnold
Schönberg, Caprice Viennois eftir F.
Kreisler, Sónata nr. 4 eftir Charles Ives
og Sónata eftir Claude Debussy. Katleen
er fædd í St. Louis í Bandaríkjunum en
hún hefur verið búsett á íslandi síðan
1983. Framhaldsnám í fiðluleik stundaði
hún í Manhattan School of Music undir
handleiðslu Caroll Glenn. Kathleen hefur
undanfarin ár tekið þátt í fjölda tónleika
og starfaö m.a. sem kennari. Eftir að
Snorri lauk námi árið 1979 hefur hann
starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanó-
leikari og kennari. Hann hefur leikið
kammertónlist á fjölda tónleika, meðal
annars með Kathleen Bearden. Tónleik-
amir í Norræna húsinu hefjast kl. 20.30.
Sýningar
Myndlistarsýning á Café Splitt
Helgi Valgeirsson myndlistarmaður er
með sýningu þessa dagana á Café Splitt
við Klapparstíg þar sem hann sýnir 5
olíumálverk sem unnin voru á seinni
hluta sl. árs og fyrstu mánuðum þessa
árs. Sýningin stendur til 1. júlí og er Café
Splitt opið til kl. 23.30 alla daga nema
fóstudaga til sunnudaga til kl. 19. Öll
verkin á sýningunni eru til sölu. Helgi
nam í Myndlista- og handíðaskóla islands
og útskrifaðist þaðan 1986 og hefur starf-
að að myndlist síðan. Hann hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum.
Handritasýning í stofnun
Árna Magnússonar
Stofnun Árna Magnússonar opnaði
handritasýningu í Árnagarði viö Suður-
götu 5. júní sl. Sýningin verður opin kl.
14-16 aÚa virka daga í sumar fram til 1.
september. Á sunnudögum verður lokað.
Tilkyimingar
Bókasöluskrá Bóka-
vörðunnar komin út
59. bókasöluskrá Bókavörðunnar er
komin út. í þessari skrá eru tæplega 1800
bækur og rit af ýmsu tagi: Ævisögur ís-
lendinga og erlendra manna, héraðslýs-
ingar, ættfræði, byggðasaga, landlýsing-
ar, hagskýrslur, manntöl, skáldsögur ísl.
og erlendra höfunda, stjórnmál, dómsöfn,
kaþólsk fræði, hagnýt efni, kvæði, leik-
rit, Ijóð og margir ileiri efnisflokkar.
Þessar skrár eru gefnar út af og til - eft-
ir efnum og aðstæðum og eru þær sendar
ókeypis til allra sem þess óska utan Stór-
Reykjavíkursvæðisins.
Menntaskólanum á Egils-
stöðum slitið
Menntaskólanum á Egilsstöðum var slit-
ið í tólfta sinn á hvítasunnudag 19. maí
sl. Jafnframt voru útskrifaðir 35 stúdent-
ar. Viðurkenningar fyrir góðan námsár-
angur hlutu Sigurlaug Gunnarsdóttir og
Aðalsteinn Hjartarson af málabraut,
Hreinn Halldórsson af hagfræðibraut,
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir af félags-
fræðibraut, Páll Þórðarson af náttúru-
fræðibraut og Óli Grétar Sveinsson og
Daniel Ásgeirsson af eðlisfræðibraut. Óli
Grétar og Daniel luku eðlisfræðibraut á
þremur árum sem er óvenjulegt. Fulltrúi
10 ára stúdenta afhenti skólanum að gjöf
málverk af Vilþjálmi Einarssyni skóla-
meistara. Um 210 nemendur stunduðu
reglulegt dagskólanám við ME sl. skólaár
en utanskólanemendur voru 30. Rúmlega
150 nemendur stunduðu nám í öldunga-
deild ME á Egilsstöðum, Vopnafirði og
Reyðarfirði og einnig í fjarkennslu. Fjar-
kennsla er nýjung í starfi ME, kenndir
LITLIR KRANAR
SEM LÉTTA STÖRFIN
Á bíiinn, bryggjuna, í bátinn...
• Mjög léttir. Þyngd með fæti og vökvadælu
153 til 600 kg.
• Stórt vinnusvæði -2,1til6,0m.
• Mikil lyftigeta -1 til 4,1 tonnmetrar.
• Fjölmargar gerðir m.a. sérstök
tæringarvarin sjóútfærsla.
• Með eða án fótar til festingar á bíla og
bryggjur, I báta.
VDVÉlAfíHF
SfrflÐJUVEGI 66, KÓPAVOGI. SlMI: 76600
Myndgáta
■w-
■w
--*—EÍÞÓR—
Myndgátan hér að ofan
lýsir athöfn.
Lausn gátu nr. 48:
Oftveltir
lítil þúfa
þungu hlassi.
©099
hausti komanda verður væntanlega
starfrækt sérstök skógræktarbraut við
ME. Námsframboö miöast við skólanem-
endur og einnig skógarbændur og annað
áhugafólk um skógrækt. Starfandi skóla-
meistari Menntaskólans á Egilsstöðum
er Helgi Ómar Bragason.
voru þrir áfangar sl. vorönn og komust
færri að en vildu. Notað er sérstakt
kennsluefni og var um að ræða tilraun
sem styrkt var af fjarkennslunefnd
menntamálaráðuneytisins. Tilraun þessi
gafst mjög vel og verður haldið áfram
með þessa starfsemi næsta haust. Á
Tomboia
Nýlega héldu þessir þrír krakkar úr
Kópavogi sem heita Ríkarður Leó, Sigur-
laug Helga og Bryndís tombólu til styrkt-
ar Rauða krossi Islands. AUs söfnuðu þau
1.480 krónum.
T ombóla úsdóttir tombólu tíl styrktar hjálparsjóði
Nýlega héldu þessar stúlkur sem heita Rauða krossins. AUs söfnuðu þær 230
Anna Eir Einarsdóttir og Jóhanna Magn- krónum.