Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991. Fréttir DV Mildur hæstaréttardómur í refsimáli forsvarsmanna Þýsk-íslenska: Dæmd sekt nam aðeins 22% af skattsvikunum - á núviröi, fangelsisrefsing vægari en í hliöstæöum dómi .jSkýri skattaðili af ásetningi eða stórkostlequ hirðuleysi rangt eða villandi frá einhverju því sem máli skiptir um tekjuskatt hans eða eignarskatt skal hann greiöa sekt allt að tífaldri þeirri skatttjárhæð sem undan var dregin,“ segir meðal annars í 107. grein um tekju- og eignarskatt. Forsvarsmenn Þýsk-íslenska sviku 26 milljónir króna frá rikissjóði á árinu 1984 - núvirði 90 milljóna. Nýlega dæmd sekt Ómars Kristjánssonar aðaleiganda i Hæstarétti nam hins vegar 20 milljónum króna. Það nær ekki einfaldri þeirri upphæð sem svikin var undan - á verðlagi ársins 1984. Samkvæmt dómi Hæstaréttar og Sakadóms Reykjavíkur sviku Ómar Kristjánsson, forstjóri og eigandi Þýsk-íslenska, og Guðmundur Þórð- arson fjármálastjóri röskar 26 millj- ónir króna undan skatti til ríkissjóðs á árinu 1984. Hér er um að ræða um 90 milljónir króna á núvirði. Ómar var einnig sakfelldur fyrir skjalafals upp á samtals 46 miUjónir króna á verðlagi 1984 - bankaskuldir upp á 37 milljónir voru búnar til auk falskra viðskiptamannaskulda til að staða fyrii-tækisins liti út fyrir aö vera verri en hún í raun var. Á nú- virði nemur þessi upphæð tæpum 160 milljónum króna. Guðmundur var sakfelldur fyrir skjalafals upp á 54 milljónir króna, á núviröi um 186 milljónum króna. Guðmundur Þórðarson var ráðinn fjármálastjóri Þýsk-íslenska og gerði skattframtöl fyrir fyrirtækið á þess- um tíma. Áður en það var hafði Guö- mundur verið starfsmaður hjá ríkis- skattstjóraembættinu í á fimmta ár. Héraðsdómurinn mildaður án rökstuðnings Ef litið er á refsingu og sektir þess- ara manna miðað við þaö sem þeir hafa verið sakfeildir fyrir verður að telja dóm Hæstaréttar afar miMan. Ómar var dæmdur í 15 mánaða fang- elsi í Sakadómi Reykjavíkur og til greiöslu sektar upp á 40 milljónir króna. Þar var Guðmundur dæmdur í 5 mánaða fangelsi og til greiðslu 1 milljónar króna í sekt. Refsingar og sektir voru verulega mildaðar í Hæstarétti. Þar var Ómar dæmdur í 12 mánaða fangelsi - en meginhluti refsivistarinnar, 9 mán- uðir, skilorðsbundinn. Sektarfjár- hæðin var lækkuð um helming - nið- ur í 20 milljónir. Þrátt fyrir þetta staðfesti Hæsti- réttur öll ákvæði Sakadóms Reykja- víkur um sakarefni. Refsingarnar og sektirnar voru hins vegar mildaðar verulega - en engin rök færð fyrir því í sjálfum hæstaréttardóminum. Varðandi ákörðun refsingar segir aðeins: „Refsing ákærða Olavs Óm- ars þykir með vísan til forsendna fyrir refsiákvörðun í héraðsdómi hæfilega ákveðin fangelsi í . . .“ Dæmd viðurlög í litlu samræmi við skattalög Eins og að framan greinir námu skattsvik Ómars og Guömundar gagnvart ríkissjóði röskum 26 millj- ónum króna - 90 milljónum króna að núvirði. Hæstiréttur dæmdi Ómar hins vegar til að greiða 20 milljónir króna í sekt. í 107. grein laga um .tekju- og eignarskatt segir meöal annars í 1. málsgi’ein: „Skýri skattaðili af ásetningi eöa stórkostlegu hiröuleysi rangt eða villandi frá einhveiju því sem máh skiptir um tekjuskatt hans eða eign- arskatt skal hann greiða sekt allt að tífaldri þeirri skattfjárhæð sem und- anfradregin . . .Þarsegirennfrem- ur í 6. málsgrein: „Sé brotið ítrekað eða sakir miklar að öðru leyti varðar brot auk sektar varðhaldi eða fang- elsi allt að 6 árum.“ Sé einungis miöað við 26 milljónir króna skattsvik, það er á verðlagi 1984, sem Ómar var sakfelldur fyrir, er ljóst að Hæstiréttur dæmdi hann ekki einu sinni til að greiða einfalda þá upphæð í sekt þrátt fyrir að heim- ild sé til að dæma sakborning til greiðslu á tífaldri upphæð skattsvik- anna. Sé hins vegar miðað við nú- virði, 90 milljónir króna, er ljóst aö Hæstiréttur dæmdi hann aðeins til að greiða tæplega íjórðung, um 22 prósent af hinni undandregnu fjár- hæð. Varðandi refsingarnar er rétt að benda einnig á fjársvikaþáttinn. Þar var stuðst við 158. grein almennra hegningarlaga. Þar segir meðal ann- ars að „tilgreini maður eitthvað ranglega í opinberu skjali eða bók eöa annars konar skjöl- um . . . .varðar það varðahaldi eða fangelsi allt að 3 árum, eða sektum ef málsbætur eru.“ Mun mildari en nýlegur dómur Sé litið til nokkuð hliöstæðs sakar- efnis í dómi sem kveöinn var upp árið 1988 vegna söluskatts og skjala- falsmáls árið er dómur forsvars- manna í Þýsk-íslenska mun mildari en sá dómur. Stjórnarformaður Fréttaljós Óttar Sveinsson og framkvæmdastjóri Landvéla var þá í Hæstarétti dæmdur í 7 mánaða fangelsi en gjaldkerinn í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þeim var gert að greiða 8,3 milljónir króna í sekt. Þó sakargiftir hafi ekki verið nákvæmlega eins og forsvarsmenn Þýsk-íslenska voru dæmdir fyrir, voru þær svipaöar. Forsvarsmenn Landvéla voru þá sakfelldir fyrir að hafa svikið 6,3 milljónir undan sölu- skatti. Til samanburðar var verölag svipað á þeim tíma sem söluskatts- svikin í Landvélum fóru fram og 26 milljón króna undanskot Ómars og Guðmundar áttu sér stað. Er hægt að sitja af sér sekt? í dómsorði Hæstaréttar vegna refsimáls Ómars og Guðmundar seg- ir meðal annars: „Ákærði (Ómar) greiði 20.000.000 í sekt til ríkissjóðs in solidum með Þýsk-íslenska hf. Komi niu mánaða fangelsi í stað sekt- arinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa.“ Sama gilti um Guðmund. Upphæðin er þó lægri í hans tilfelli. 1 milljón í sekt en 3ja mánaða fang- elsi verði hún ekki greidd innan fjög- urra vikna frá birtingu dómsins. En hvað þýðir þetta í raun? Greiði Ómar ekki sektina innan fjögurra vikna, eöa semji um greiðslu innan þess tíma, ber honum að sitja í fang- elsi í 9 mánuði, það telst til lúkningar skuldinni. En það er aðeins vararefs- ingin. Þá á hann eftir að sitja í þriggja mánaöa fangelsi. Brjóti hann síðan aftur af sér innan þriggja ára ber honum að sitja af sér hinn 9 mánaða skilorösbundna fangelsisdóm að auki. Sé dæmið reiknað á þann veg hve hátt dagkaupið er hjá sakborningi við þessar aðstæður er það í þessu tilfelli 74 þúsund krónur. í tilfelli Guðmundar yrði dagkaupið 11 þús- und krónur. Þetta ósamræmi má rekja til þröngra lagaákvæða í þessu efni. 54. grein almennra hegningar- laga er meðal annars á þessa leið: „Dómstólar ákveða í dómi, úrskurði eöa sátt, þar sem sekt er tiltekin, hvort hún skuli afplánuð í varðhaldi eða fangelsi, og um hversu lagnan tíma. . . .Ekki má ákveða styttri tíma til afplánunar sektar en 2 daga, og ekki lengri en 1 ár.“ í tilfelli aðal- eiganda Þýsk-íslenska var sektartími afplánunar ákveðinn % af hámarki, 9 mánuðir. Sé gert ráð fyrir að sektirnar verði greiddar þarf Ómar eigi að síður að afplána 3 mánaða fangelsi. Þar sem sjálfur refsidómurinn var „klofinn" - 3ja mánaða fangelsi og 9 mánuðir skilorðsbundið, fær sakborningur- inn ekki reynslulausn áöur en 3 mánuðir eru liðnir. -ÓTT Síldarverksmiðjur ríkisins: Betra að haf a stæiri einingar en smærri - segir Þorsteinn Gíslason, formaður stjómar Enn hefur ekki verið tekin afstaða til þess hvort Síldarverksmiöjur rík- isins fái 300 milljón króna lán sem heimild er fyrir á lánsfjárlögum þessa árs. Til að fyrirtækiö geti hald- ið áfram rekstri út þetta ár þarf auk þess að skuldbreyta á milli 700 og 800 milljónum króna og forráðamenn fyrirtækisins hafa ýjað aö því í fjöl-, miðlum að loka verði fyrirtækinu á næstunni fari ekkert að þokast í málinu. „Þaö er nauösynlegt að fara að finna lausn á þessu máli og þó fyrr hefði verið. Nú er beðið eftir íjármálaráðherra sem er í fríi erlendis varðandi 300 milljón króna heimildina á lánsíjár- lögum, hvemig hún skuli afgreidd. Það er þeirra mál sem eiga verk- smiðjurnar, sem er ríkissjóður, hvernig verður staðið að þessu máli,“ sagði Þorsteinn Gíslason, formaður stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins. - Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hefur lýst því yfir að hann vilji breyta Síldarverksmiðjunum í hlutafélög, hver er þín afstaða til þess? „Stjómin kemur saman á þriðju- dag og hún hefur ekki verið spurð neitt um það. Við erum bara alþingis- kjömir fulltrúar hinna ýmsu stjóm- málaflokka til að stjórna þessu fyrir- tæki.“ - Telur þú að þessi hugmynd geti leyst vandann að einhverju leyti? „Ég vitna í það að núna er verið að reyna að stækka einingamar en ekki minnka þær. Menn telja að það sé betra að hafa einingar stærri en smærri. - Þúerþáámótiþessarihugmynd? „Það er Alþingis að ákveða þetta. Við vinnum eftir þeim lögum sem okkur er gert að vinna eftir." - Ef þið fáið ekki þessar 300 milljón- ir, hvað gerist þá? „Því get ég ekki svarað. Eigendur fyrirtækisins verða að gera það.“ -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.