Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991.
FYLLIN G AREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýmun, frostþoliö og þjappast
vel.
Ennfremur höfum viö fyririiggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
m&émwww mw*
Sævarhöfða 13 - sími 681833
Hefurðu séð sumarblaðið?
Húsfreyjan, 2. tbl. 1991, er komin út. Að
þessu sinni eru umhverfismálin i brenni-
depli.
Meðal efnis eru greinar um trjárækt við
sumarbústaði, um jarðarberjarækt, kynning
á starfsemi „grænna fjölskyldna", um líf-
ræna ræktun o.m.fl. Uppskriftir að lystugu
ferðanesti og snið af strandsloppum í
barna- og fullorðinsstærð.
Áskriftarsími 91-17044
Nýir áskrifendur <á 2 tbl. irá fyrra ári í kaupbæti.
í GIFTINGARHUGLEIÐINGUM?
Fyrirtæki, sem er að undirbúa markaðsátak, óskar
eftir að komast í samband við ungt par sem ætlar
að stofna heimili og ganga í hjónaband í september
1991. Þarf að vera fólk sem á eftir að verða sér úti
um meginhluta búslóðar.
Mjög góð laun eru í boði, eða 200 þúsund krónur.
Þau sem hafa áhuga á að kynna sér þetta tilboð
nánar og uppfylla framangreind skilyrði sendi bréf,
merkt „Markaðsátak“, til auglýsingadeildar DV fyrir
1. júlí nk. Æskilegt að mynd fylgi.
------------------
Utboð
Arnarnesvegur, Bæjarbraut
- Reykjanesbraut
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd vegarkafla 1,1 km, fylling og
burðarlag 37.000 m3, skering 25.000 m3 og
malbiksslitlag 12.700 m2.
Vegurinn skal opnaður til umferðar 15. október
1991 og verkinu að fullu lokið 15. júní 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 5 (aðalgjaldkera), Reykjavík, frá og
með 1. júlí 1991. Skila skal tilboðum á sama
stað fyrir kl. 14.00 þann 15. júlí 1991.
Vegamálastjóri
____________________________
Ea^
n« . _i *t
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðir sem hafa skemmst í
umferðaróhöppum.
Daihatsu Feroza 1990
MMCPajero 1988
MMCColt 1988
Daihatsu Cuore 1987
Lada 1500, st. . 1986
Subaru 1800, st. 1985
Subaru 1800 pickup 1982
FiatRitmo 1982
Toyota Corolla 1986
CitroénAxel 1986
Lada 1500, st. 1986
Opel Ascona 1984
MMCColtGLX 1981
Subaru 4x4 1986
Bifreiðirnar verða til sýnis mánudaginn 1. júlí í Skipholti 35 (kjall-
ara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 16.00 sama dag
til bifreiðadeildar Tryggingar hf., Laugavegi 178, Reykjavík, sími
621110.
VERNDGE8N VA
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI 621110
Matgædingur vikunnar
Matgæðingur vikunnar:
Karríréttur
húsbóndans
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það var mikill óleikur sem Kristján Kristjánsson
gerði mér í síðustu viku með því að skora á mig í þenn-
an matardálk. Ég er rétt fluttur heim til íslands eftir
tæplega fimm ára dvöl í Skotlandi og allt mitt dót er
enn úti á reginhafi, þar á meðal kokkabækurnar. Mér
er því ómögulegt aö leita til þeirra kennivalda, sem
ég nota í eldhúsinu. Svo er minnið fremur brigðult á
uppskriftir. Lesendur verða því að taka viljann fyrir
verkiö í þetta sinn.
Ég ætla að lýsa uppskrift að karrírétti sem hefur
reynst vinsæll á mínu heimili. Hann er einfaldur og
fyrirhafnarlítill," segir Guðmundur Heiðar Frímanns-
son, matgæðingur vikunnar, og við snúum okkur beint
að uppskriftinni.
Hráefni
1 kg nautahakk
4 vænir laukar
3 geirar af hvítlauk
1 msk. karrí (eða 2 msk. af karrísósu)
1 tsk. anís
1 tsk. garam masala
4 msk. sojasósa
8 msk. tómatsósa
Einnig er sjálfsagt að nota rjóma og kókoshnetu-
kjarna í þennan rétt ef karríið verður of sterkt. Það
mýkir og mildar bragðið.
Aðferð
Byijað er á að steikja laukinn og hvítlaukinn sem
má þó ekkiLrenna. Síðan er kjötinu bætt út í og látið
brúnast. Þegar kjötið er vel steikt, er öllu'öðru bætt út
í og látiö sjóða í hálftíma til 45 mínútur.
Ef hægt er að ná í karrísósu í dós er allt í lagi að
nota allt úr dósinni. Það fer svo eftir styrk karrísins
hvort notaður er kókoshnetukjarni og rjómi. Berið
fram með hrísgrjónum og brauði.
Það á viö um þessa uppskrift eins og aðrár að hana
ber að taka meö hæfilegum fyrirvara. Það verður hver
Guðmundur Heiðar Frímannsson. DV-mynd gk
að laga hana að sínum smekk.
Eftirréttur
4 bananar
5 msk. dökkur púðursykur
3 negulnaglar
1 tsk. kanill
2 msk. vatn
Bananarnir eru skornir í tvennt. Sósan er blönduð
og hellt yfir bananana. Þeir eru síðan steiktir í ofni á
220 gráðum í 10-15 mínútur. Borið fram með þeyttum
ijóma eða vanilluís.
Mér hefur reynst þetta ljúffengur eftirréttur."
Guðmundur skorar á Gunnar Helga Kristinsson lekt-
or við Háskóla íslands að sjá um næstu uppskrift.
Hinhliðin____________________________
Jón Stefánsson flatbökumeistari:
Vii hafa það notalegt
Jón Stefánsson er flatbökugerð-
armaður en flatbökur vilja hann
og félagar hans kalla hinar ítölsk-
ættuðu pizzur sem njóta vaxandi
vinsælda. Jón á og rekur ásamt 4
öðrum fyrirtækið Jón Bakan sem
sérhæfir sig í flatbökugerð. Þeir
félagar reka ekki veitingastað en
bjóða fólki að sækja til sín flatbök-
urnar eða senda þeim þær heim
ókeypis. Umsvifin vaxa hægt og
rólega og nú eru komin eldhús á
þremur stööum, í Hafnarfirði,
Kópavogi og á Ártúnshöfða. Jón
flatbökumeistari sýnir á sér hina
hliðina.
Fullt nafn: Jón Hannes Stefánsson.
Fæðingardagur og ár: 27. septemb-
er 1963.
Maki: Þórunn Óskarsdóttir.
Börn: Grímur Ari, 3ja ára.
Bifreið: Mazda 323, árgerð 1986.
Starf: Framkvæmdastjóri.
Laun: Já, ég hef laun.
Áhugamál: Fyrst og fremst starfið,
flatbökugerð og fleira.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég fékk einu sinni
3 réttar og hafði röskan hundrað-
kall upp úr krafsinu en spila ann-
ars mjög sjaldan.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að hafa það notalegt, hggja
uppi í sófa með góða bók.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vera strand á biluðum bíl
úti í umferðinni.
Jón Stefánsson flatbökumeistari.
Uppáhaldsmatur: Um þessar
mundir flatbökur, nánar tiltekið
sterkar með miklu af pepperoni
pylsu.
Uppáhaldsdrykkur: Sódavatn frá
Agli.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? íslenska
landsliðið í bridge hefur staðið sig
firnavel.
Uppáhaldstimarit: Ég les eiginlega
aldrei tímarit.
Hver er fallegasta köna sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Texas-
stúlka sem ég sá nýlega í Louisiana
í Ameríku.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Marlon Brando.
Uppáhaldsleikari: Marlon Brando.
Uppáhaldsleikkona: Laureen Bac-
all.
Uppáhaldssöngvari: Luciano Pava-
rotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Al-
bert Guðmundsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Jenni, músin sem er helmingurinn
af Tomma og Jenna.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fræðslu-
þættir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég er
hlynntur henni.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Mér flnnst engin skara þar
fram úr.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sennilega meira á Stöð
2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig-
mundur Ernir Rúnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Lauga-
vegur 22.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Valur,
ég er harður Valsari.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að hafa það sérstak-
lega notalegt.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór í ferðalag um Bandaríkin.
-Pá