Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Blaðsíða 32
44
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991.
Helgaipopp
DV
f slenskt tónlistarsumar:
Hápunktur Húnaver '91
Þjóðhátíðardaginn 17. júní blésu ís-
lenskir tónlistarmenn og útgefendur
í herlúðra í viðleitni sinni að auka
veg innlendrar tónlistar í samkeppni
við þá útlendu. Hljómplötuútgáfa
verður með mesta möti í sumar og
um verslunarmannahelgina bjóða
'nokkrar af helstu hljómsveitum
landsins til rokkveislu í Húnaveri.
Tónlistarhátíð
Hefð hefur skapast fyrir tónleika-
hátíð í Húnaveri undangengnar
verslunarmannahelgar þar sem inn-
lend tónlist hefur setið í öndvegi.
Smátt og smátt hefur verið byggð upp
fullkomin aðstaða fyrir hátíðargestí
í Húnaveri og er nú svo komið að
aðbúnaöur þar getur talist fyrsta
flokks, bæði fyrir hljómsveitir og
tónlistarunnendur.
Með Húnavershátíðunum hefur
verið gerð tilraun til að búa til ís-
lenska tónleikahátíð á borð viö þær
sem þekkjast í Evrópu yfir sumar-
mánuðina. í Húnaveri hefur gagn-
stætt útlendum hátíðum ekki verið
leitað út fyrir landssteina eftir flytj-
endum heldur hefur verið lögð
áhersla á innlenda krafta. Og þeir
verða ekki af verri endanum í ár.
Þegar augum er rennt yfir gestalist-
ann kemur í ljós að flóra íslenskrar
Umsjón
Snorri Már Skúlason
tónhstar verður skönnuð þá þrjá
daga sem hátíðin varir. Síðan skein
Sól, Sáhn hans Jóns míns og Todmo-
bile eru allt hljómsveitir sem hafa
sannað sig á undanfórnum árum og
notíð lýðhylli umfram aðrar. Dans-
og gleðisveitin Stuðmenn treöur upp
í fyrsta og eina skipti á sumrinu í
Húnaveri. Rokksveitin Bless verður
verðugur fuhtrúi nýbylgjunnar og
Blúskompaníið mun taka í takt og
trega fyrir blúsáhugamenn. Auk
þessa munu nýliðar á borð við Fríðu
sársauka og Blauta dropa koma
fram. Fulltrúi úr metal geiranum
verður einnig á staðnum en þegar
þetta er ritað er enn óvíst hver sá
verður.
Hljómsveitakeppni
Óþekktar hljómsveitir, bílskúrs-
böndin svokölluðu, fá tækifæri tíl að
láta ljós sín skína á Húnavershátíð-
inni en þar verður haldin hljómsvei-
takeppni. Er þar á ferð tilraun til
þess að hlúa að vaxtarbroddinum í
tónhstinni og gera heyrinkunnug
bönd sem eiga erindi við landslýð.
Verðlaun í slíkum keppnum hafa í
gegnum tíðina einskorðast við
nokkra tugi stúdíótíma í misgóðum
hljóðverum en í þetta skiptiö á að
reyna að gera betur. Nú er nefnilega
róið að því öllum árum að sigur-
hljómsveitin fari utan í haust og spili
á Copenhagen Music Seminar. Er þar
á ferð tónlistarráðstefna þar sem út-
gefendur og tónlistarmenn úr gjör-
vallri Evrópu safnast saman og setj-
ast á rökstóla. Upptroðsla á slíkri
samkundu gæti opnað efnilegri
hljómsveit ýmsar dyr í framtíðinni.
Sálin á kreik
- Stefán Hilmarsson opnar skjóðuna
Það hefur veriö fremur hljótt um
Sáhna hans Jóns míns undanfarin
misseri eða frá því að fyrsta stóra
plata hljómsveitarinnar, Hvar er
draumurinn?, kom á markað fyrir
jólin 1989. Tvö lög sendi sveitín þó frá
sér sl. sumar á plötunni Bandalög 2
og önnur tvö eru nú komin á Banda-
lögum 4. Fyrir átta mánuðum setti
Sálina hins vegar hljóða og það er
' vekki fyrr en nú í júnímánuði að
hljómsveitin hóf leik að nýju. Popp-
síðunni lék forvitni á að heyra af
högum Sálarinnar og fékk Stefán
Hilmarsson söngvara til að opna sér
og lesendum skjóðuna góðu.
Hvíldin kemur
til góða
Hvaða ástæður voru fyrir því að
jafnung hljómsveit tók sér hvíld eftir
fyrstu plötu?
„Það var einfaldlega.komin þreyta
í okkur.-Ég og Guðmundur Jónsson
vorum búnir að vera í þessu á fullu
frá árinu 1987 er Sálin var stofnuð.
■* Við spiluðum linnulaust frá þeim
tíma og fram yfir útkomu stóru plöt-
unnar, fram á haust 1990. Það var
því kominn tími til að hvíla okkur
og ekki síður landsmenn. Fríið hefur
hins vegar verið vel nýtt, menn fóru
hver í sína áttina og lögðu rækt við
eigin hugðarefni. Þannig viðuðum
við að okkur reynslu og sömdum
nýtt efni auk þess sem mannabreyt-
ingar urðu í hljómsveitinni. Strengir
voru stilltir og ég held að þegar öllu
er á botninn hvolft þá komum við
sterkari tíl baka. Ferskir og frískir.
Nýju mennimir hafa styrkt bandið
tónlistarlega, Birgir Baldursson
trymbill og Atli Örvarsson hljóm-
borðs- og trompettleikari auka á
víddina í bandinu. Á því leikur eng-
inn vafi. Tvímenningamir og þá sér-
staklega brassið gerir það að verkum
að áherslur í tónlist Sálarinnar hafa
breyst nokkuð, við höfum horfið aft-
ur til upphafsins í soul- og fónktón-
Sálin hans Jóns míns er komin á kreik.
listina án þess þó að þær breytingar
verði ríkjandi á næstu plötu. Þær
flæða meira inn bakdyramegin.“
Spilum ný lög
kinnroðalaust
á tónleikum
Ný plata?
„Já, hún er í vinnslu þessa dagana
en kemur ekki út fyrr en í byrjun
vetrar. Upphaflega var ætlunin að
gera plötuna nú í vor og gefa hana út
í sumar en Guðmundur gítarleikari
varð fyrir slysi og lamaðist tíma-
bundið á hendi. Þau meiðsl gerðu það
að verkum að verkinu var frestað
þar til nú.
Það ber til tíðinda á væntanlegri
plötu að lagasmíðar dreifast á fleiri
hendur en fyrr. Laga- og textasmíðar
höfðu áður einskorðast við okkur
Guðmund en nú ber svo við að Jens
Hansson saxafónleikari semur tvö
lög og Friðrik Sturluson bassi á tvo
texta á nýju plötunni. Þessi þróun
er af hinu góða.
Talandi um útgáfu þá má geta þess
að það stendur tíl að gefa Hvar er
draumurinn? frá 1989 út í Skandinav-
íu í haust í enskri útgáfu en sú plata
hefur öh verið hljóðblönduð upp á
nýtt af því tilefni. Við höfum auk
þess skipt út tveimur lögum, Gefðu
mér og Tóm tilvUjun, sem við vorum
ekki fylhlega sáttír við en inn komu
lögin Getur verið og Neistínn. Það
er stórt skandinavískt útgáfufyrir-
tæki, Sonet, sem sér um útgáfuna en
það hefur höfuðstöðvar i Svíþjóð og
öflugt dreifingarkerfi um öll Norður-
lönd. Við erum hins vegar jarð-
bundnir og gerum okkur ekki háar
vonir um frægð og frama í útlöndum.
Maður hefur séð of marga verða fyr-
ir vonbrigðum í slíkum málum. Okk-
ar markaður er ísland og að honum
einbeitum við okkur. Við förum um
landið þvert og endilangt í sumar og
reynum þannig að nálgast okkar
hlustendahóp. Viö höfum keyrt tals-
vert á nýju efni á þessum tónleikum.
Ég held það sé hoht fyrir hljómsveit-
ir að spUa ný lög á tónleikum í ein-
hvern tíma. Þannig slípast þau til
áður en haldið er með þau í hljóðver
og við fáum viðbrögð frá áheyrend-
um. Þannig forðast maður filabeins-
turninn en það getur einmitt haft
úrslitaáhrif á það hvort lag fer á
plötu hvemig viðtökur það fær hjá
fólkinu. Hljómsveitin kynnist lögun-
um betur með þessu móti, fær tæki-
færi tU að sníða af agnúa og eftir
standa heUsteyptari lagasmíöar. Við
höfðum ekki þennan háttinn á með
vinnslu fyrri plötunnar. Þá var allt
efni unnið á hlaupum. Lag samið,
stokkið með það í hljóðver og það
tekið upp í einum grænum. Nú er
yfirvegunin meiri sem vonandi skU-
ar sér í betri plötu í vetrarbyrjun.
Mfnningartónlelkar verða um Kari Slghvatsson 4. júlf.
Ems og tónlistaráhugamönnum er kunnugt fólnaði inu fimmtudaginn 4. júlí.' Þar munu stíga á sviö hljóm-
eitt sérstæðasta blómið í flóru íslenskra tónlistar- sveitir sem tengdust Karli á einn eða annan hátt. Þær
manna í byijun júnímánaðar er hljómborðsleikarinn eru: Mezzoforte, Þursaflokkurinn, Trúbrot. Síðan
Karl Sighvatsson féU frá á svipiegan liátt. Nú hafa skein sól, Ný dönsk og Mannakom. Kynnir og sá sem
vinir Karls heitins tekið sig saman og ætla að heiðra hefur veg og vanda af minningartónleikunuro er Jakob
minningu góðs félaga með tónleUcahaldi í Þjóðleikhús- Frímann Magnússon.