Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 1991. Fréttir Tvær rækjuvinnslustöðvar hafa sagt upp öllu starfsfólki: Hætta hver af annarri ef ekkert verður að gert - segir Lárus Jónsson, framkvæmdastjóri samtaka rækjuframleiðenda „Ef markaðurinn hressist ekki og ef ekkert verður að gert þá eru vax- andi líkur á því að rækjuverksmiðj- urnar hætti allri starfsemi. Þeir framleiðendur sem eingöngu eru í rækjuvinnslu og þá einkum þeir sem eru í smárækjunni gefast líklega fyrst upp og síðan fylgja hinir i kjöl- fariö. A undanfórnum 12 mánuðum höfum við þurft að horfast í augu við 22 prósent verðfall án þess að hráefn- ið hafi lækkað svo nokkru nemi. Og í smárækjunni er verðfallið allt að 40 prósent. Það segir sig sjálft að verði ekkert að gert þá blasir hrun við í greininni," segir Lárus Jónsson, framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda. AÚs eru starfandi ríflega 20 rækju- verksmiðjur hér á landi og þegar hafa tvær sagt upp öllum sínum starfsmönnum, Dögun á Sauðár- króki og Særún á Blönduósi. DV hef- ur haft af því fregnir að fleiri verk- smiðjur íhugi nú að gera þaö sama. Að sögn Lárusar er meginástæða þess mikla verðfalls sem orðiö hefur á plokkaðri kaldsjávarrækju stór- aukið framboð frá Norðurlöndum. Hann segir ýmis teikn nú á lofti um að heildarframleiðsla þessara landa muni minnka eitthvað á þessu ári þó svo að framleiðsluaukning verði hér á landi vegna úthiutunar rækjukvóta til loðnuskipa. Því sé veik von um að verðið hækki á ný. Einnig segir hann Bandaríkjamark- að vera að opnast fyrir þessari vöru og það muni bæta stöðuna verulega. Að sögn Lárusar myndi það bæta stöðu rækjuvinnslunnar verulega ef framleiðendur- gætu fengið skuld- breytingu hjá þeim fjárfestingalána- sjóðum og bönkum sem lánað hafi til greinarinnar. Hann segir að skuldbreyting þeirra lána sem nú eru í vanskilum auk þeirra 200 milljóna sem Byggðastofnun var heimilað að taka aö láni og veita til greinarinnar í lánsfjárlögum myndi jafngilda 500 til 600 milljón króna aðstoð. „Svona skuldbreytingarleið ásamt nýju fjármagni myndi bæta stöðuna verulega þó svo að hún geti tæplega bjargað öllum. Fram til þessa hefur þessi leið hins vegar strandað á Byggðastofnun því þar telja menn sig ekki hafa nægjanlega góð veð fyrir nýjum lánveitingum. Þetta er því allt ístrandií bili.“ -kaa Þyrlan hefur sig loks til flugs á ný á Snæfellsjökli. DV-myndir: Guðmundur Oddgeirsson. VeUieppnuð björgunarstörf á SnæfeHsjökli: Þyrlan hóf sig á loft af jöklinum Þyrla varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli, sem skall niður við björg- unarstörf á Snæfellsjökli fyrir rúmri viku, tók sig á loft um hádegi á laug- ardag. Höfðu menn ætlað að fljúga henni mun fyrr en verkið hafði taflst vegna þoku og lélegra veðurskilyrða. Grafið var frá vélinni og allt undir- búið um morguninn en veður var þá hið besta. Síðan voru geröar viðeig- andi prófanir áður en þyrlunni var flogið burt. Hafði vélin verið tæmd til að hún væri sem léttust og fóru flugbjörgunarsveitarmenn niður af jöklinum um eittleytið. Eins og kunnugt er varð vélsleða- slys á jöklinum fyrra laugardag. Hafði þyrlunni verið flogið á svæðið til að aöstoða við björgunarstörf. Niðurstreymi olli því að þyrlan skall niður, laskaðist og komst af þeim sökum ekki á loft á ný. Á miðvikudag kom rannsóknar- nefnd frá Bandaríkjunum ásamt við- gerðarmönnum til aö kanna skemmdir. Flugvirkjar komu næsta dag með varahluti en vegna þoku þurfd að geyma þá við jökulröndina. Voru famar hátt í þrjátíu ferðir nið- ur að rótum jökulsins til að ná í vara- hluti. Vamarliðsmenn unnu síöan aö við- Siðasta hönd lögð á viðgerð þyrlunnar fyrir flugtakið. gerð vélarinnar dag og nótt. Var henni lokið á fóstudaginn. Hálfgert vetrarríki hrelldi björgunarmenn, skafrenningur og kalt um nætur. Meðlimir Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur og björgunarsveitar- menn frá Ólafsvík vora viögerðar- mönnum til aðstoðar. Sáu þeir einnig um að ryðja snjó frá vélinni sem var mikilvægt til aö koma henni á loft. Hafði verið rutt svo vandlega frá henni aö það var sem hún stæði á stultum á jöklinum. Lögreglumenn frá Keflavík voru einnig á staðnum allan timann en þeir héldu til í þyrl- unni. Þegar viögerð var lokið og aðstæö- ur þóttu heppilegar tókst, eins og áður greinir frá, að fljúga þyrlunni á braut. -tlt Guðmundur Malmquist um rækjuverksmiðjumar: Sameining verksmiðja „Rækjuverksmiðjumar fá ekki lánaðar þær 200 milljónir sem Byggðastofnun hefur verið heimilað að lána þeim nema þær fari í fjár- hagslega endurskipulagningu. Það hefur verið rætt um sameiningu verksmiðja og að stærstu kröfuhafar, sem eru bankar, Byggðastofnun og ýmsir sjóðir, fallist á að fella niður lán, vexti og dráttarvexti og að lengja lán. Hins vegar er ekki búið að taka neinar ákvarðanir í þessum málum, þetta er allt á umræðustigi," segir Guömundur Malmquist, fram- kvæmdastjóri Byggðastofnunar. Matthías Bjarnason, formaður stjórnar Byggðastpfnunar, og Guð- mundur gengu á fund Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra í síðustu viku og þar var vandi rækjuverk- smiðjanna til umræðu. Ákveðið hef- ur verið að þessir aðilar auk fjármál- ráðherra hittist aftur í þessari viku. Ekki er búist við að settar verði fram neinar skýrar tillögur um lausn vandans á þeim fundi frekar en þeim fyrri. Sem fyrr segir hefur ekki verið ákveðið hvort 200 milljónirnar verði lánaðar og Guðmundur segir: „Ég skal ekkert um það segja hvort Byggðastofnun lánar þessa peninga. En að mínu viti veröa þessar milljón- ir ekki lánaðar nema þær komi að gagni og komi til með að verða greiddar til baka. Nema það verði gert í gegnum atvinnutryggingar- deild Byggöastofnunar sem er íjár- hagslega á ábyrgð ríkissjóðs." -J.Mar Akureyri: Leitað lyfja í tveimur bátum Gylfi Kriatjánsson, DV, Akureyri: Farið var um borð í tvo báta um helgina en þeir liggja við Torfu- nefsbryggju á Akureyri. Þeir sem þama vora á ferðinni fóru um borð í Sólfell og Eyborgu, bratu upp huröir og rúöur og leituöu greini- lega fyrst og fremstlyfja í lyfjaköss- um bátanna. Ekki er vitað með vissu hversu miklu var stolið. Bátarnir tveir hafa legið við bryggjuna 1 nokkurn tíma, þeim var lagt þama um leið og togarinn Þorsteinn haföi verið fluttur þaðan og er vera bátanna þarna bæjarbú- um lítiö gleðiefni. Atvikið á Ránargötu 1 Grindavik: Líklegra að byssukúla haf i brotið rúðurnar? Fjöldi fólks hefur verið yfirheyrð- ur vegna atviksins sem varð við Rán- argötu í Grindavík'í síðustu viku þegar tvær hliðarrframrúður brotn- uðu í bifreið sem ekið var eftir göt- unni. Enn liggur ekkert fyrir með vissu um hvað þar hafði í raun gerst - hvort skotið var úr byssu eða steinn hafi skotist frá spaða í vélsláttuvél. Ökumaður bílsins gerði sér ekki grein fyrir hvor rúðan brotnaði á undan - þetta gerðist það snöggt. Margir vora úti við í hverfinu á þess- um tíma. Enginn telur sig með vissu hafa heyrt skothvell. Sá möguleiki hefur verið grandskoðaður hvort steinn hafi skotist úr sláttuvél sem kona var að slá grasblett með í ná- lægum garði, nokkum veginn á móts við þann vegkafla sem bifreiðinni var ekið eftir. Starfsmaður vinnueftir- litsins telur hins vegar útilokað að steinn hafi skotist úr vélinni. Konan, sem var að slá, taldi sig ekki hafa heyrt í grjóti skjótast undan véhnni, sem er kraftmikil - spaöinn snýst 1.200 snúninga á mínútu. Vitni, sem voru úti við á Ránargötu á sama augnabliki og bílrúðurnar brotnuðu, segjast hafa heyrt smell, eins og gijót væri að skjótast frá sláttuvél. Hvorki líklegur steinn né skot hafa fundist á vettvangi. Lögreglan í Grindavík hefur gert leit að byssum í nágrenninu en ekk- ert vopn hefur fundist. Nákvæm byssuskrá er fyrir hendi og bendir ekkert í henni til að einhver við Rán- argötu hafi haft slíkt undir höndum. Málið veröur rannsakað áfram. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.