Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Síða 4
Fréttir
MÁNUDAGÚk 1. JÚLf 1991.
Gullfoss tók vel á móti kanslaranum fyrrverandi og drundi ógurlega þar sem hann steyptist ofan i gil Hvítárinnar.
DV-myndir GVA
Samningar um jöröina Flekkuvik á lokastigi:
Metin á hátt í
150 milijónir
„Ég hef haft af því spumir að ég
sé að selja jörðina mína í Flekkuvík
en meira veit ég ekki. Þetta mál er
alfarið í höndum lögfræðings míns.
Ég ætla bara að vona að þeim takist
að semja. Það er alltaf leiðinlegt þeg-
ar hlutirnir fara í hart,“ segir Pétur
Ó. Nikulásson heiidsali en hann er
einn af eigendum Flekkuvíkur þar
sem fyrirhugað er að reisa nýtt álver.
Pétur segist litlar sem engar nytjar
hafa haft af jörð sinni. Einu notin
hafi tengst ánægjunni. Hann segist
hafa átt margar góðar stundir með
börnum sínum þar í sumarbústöðum
sem fjölskyldan átti þar. Hins vegar
hafl verið kveikt í bústöðunum fyrir
um ári og því sé ánægjan nú að mestu
horfin.
„Sjálfsagt fær maður einhverja
peninga fyrir jörðina en ég fæ nú
ekki séð að það sé neitt fréttnæmt.
Þessir menn, sem eru að selja kvóta,
eru að höndla með mun meiri pen-
inga. En maður kemst nú líklega
ekki hjá því að athygli fólks beinist
að þessari sölu. Mér er það lítið til-
hlökkunarefni," segir Pétur.
Hvorki Pétur né aðrir viðmælend-
ur DV vildu að svo stöddu greina frá
áætluðu söluverðmæti Flekkuvíkur.
Málið væri á viðkvæmu stigi en síðar
í vikunni er jafnvel búist við að
Vatnsleysustrandarhreppur kaupi
jörðina. Samkvæmt heimildum DV
mun þó verðið vera áætlað á bilinu
120 til 150 milljónir.
Ekki mun allt söluandvirði Flekku-
víkur renna til Péturs og fjölskyldu
hans því að helmingur jarðarinnar
er í eigu Finns Gíslasonar bygginga-
meistara. Mun því láta nærri að sölu-
andvirðið skiptist til helminga.
-kaa
Willy Brandt heimsótti Gullfoss og Geysi:
Fékk f latkökur, hangikjöt
og íslenskt brennivín
Wiily Brandt, fyrrum kanslara
Vestur-Þýskalands, var boðið upp á
flatkökur, hangikjöt og íslenskt
brennivín þegar hann heimsótti
Gullfoss og Geysi um hgelgina.
Brandt, sem kom til landsins í boði
Germaníu, hélt íjölmennan fyrirlest-
ur á fóstudaginn um framtíð Evrópu.
Að sögn Þorvarðar Alfonssonar,
formanns Germaníu, mættu um 500
manns á fyrirlesturinn og þurftu
margir að standa.
Á laugardag hélt Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra ís-
lands og formaður Alþýðuflokksins,
hádegisverðarboð fyrir Brandt á
Þingvöllum. Þar voru saman komnir
alþýðuflokksmenn til að hlýða á
Brandt en hann er einn helsti for-
Willy Brandt gerði íslenskum flat-
kökum með hangikjöti góð skil og
líkaði vel. Með honum á myndinni
eru, frá vinstri: Pakenstert, sendi-
herra Þýskalands, Hörður Erlings-
son, leiðsögumaður og stjórnar-
maður í Germaníu, Þorvarður Al-
fonsson, formaður Germaníu, og
Þórir Einarsson, prófessor í viö-
skiptafræði og stjórnarmaður í Ger-
maniu.
ystumaður þýskra jafnaðarmanna.
Að því loknu var haldið að Geysi og
Gullfossi þar sem Brandt var boðiö
að snæða íslenskar flatkökur með
hangikjöti og renna því niður með
íslensku brennivíni.
Á laugardagskvöldið voru Brandt-
hiónin heiöursgestir í kvöldfagnaði
sem Germanía hélt í Viðey. Þar voru
sámankomnir um 120 félagsmenn
Germaníu. Willy Brandt flutti ávarp
og Gylfi Þ. Gíslason prófessor talaði
um menningarsamskipti íslands og
Þýskalands.
Alþýðuflokksráðherrar hittu
Brandt í morgunverðarboði í gær-
morgim og að því loknu hélt hann
ásamt foruneyti til Frankfurt.
-BÓl
Arekstur við Borgarfjarðarbrú
Harður árekstur varð skammt
sunnan viö Borgarfjarðarbrú á
níunda tímanum á fóstudagskvöld.
Hjón með 2 böm voru í öðrum bíln-
um og sluppu þau ómeidd. Ökumað-
ur hinnar bifreiðarinnar var fluttur
á slysadeild þar sem gert var að
meiðslum hans.
Tildrög slyssins voru þau að jeppa-
bifreið, sem ekið var í norður, fór
fram úr annarri bifreið. Urðu afleið-
ingamar þær að hún lenti á fólksbíl
sem kom úr gagnstæðri átt.
Að öðra leyti gekk helgin stórslysa-
laust fyrir sig í héraðinu nema hvað
töluvertbaráölvun. -tlt
Hvolsvöllur:
Bíll lenti úti í skurði
Bílslys varð um klukkan hálffjög-
ur á laugardag á Suðurlandsvegi við
Hemlu.
Tildrög slyssins voru þau að bíll
ók fram úr öðrum bíl sem gerði sig
líklegan til að beygja út af veginum.
Lenti annar bílanna' við það úti í
skurði. Eru báðir bílamir óökufærir
en engin slys urðu á mönnum.
-tlt
Tekinn á 146 kílómetra hraða
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ungur ökumaður, sem tekinn var
af lögreglunni á Akureyri á Sval-
barðsstrandarvegi aðfaranótt laug-
ardags, virðist hafa verið að flýta sér
allnokkuð því að lögreglan mældi
hraða bifreiðar hans 146 km og var
imgi maðurinn sviptur ökuleyfi sínu.
Að öðra leyti var helgin stórtíð-
indalítil hjá lögreglunni á Akureyri
þótt erill væri nokkur.
Burt með Búnaðarbankann
Heitar deilur hafa risið vegna
hugmynda nokkurra ráðherra um
aö ríkið selji Búnaðarbankann.
Aðrir segja að leggja eigi bankann
niður eða sameina hann Lands-
bankanum og það era sem sagt
margvíslegar tilögur uppi um það
hvemig losna megi við bankann.
Allar eiga þær það sameiginlegt að
losa ríkið við Búnaðarbankinn og
koma í veg fyrir að ríkissjóður
hagnist á því að eiga bankann.
Eftir því sem best er vitað hefur
Búnaðarbankinn staðið undir sjálf-
um sér og vel það. Hann hefur skil-
að hagnaði og aldrei verið byrði á
ríkissjóði. Það hefur ekki farið mik-
ið fyrir Búnaðarbankanum en eng-
inn hefur tekið eftir öðra en að
Búnaðarbankinn hafl rekið sams
konar bankapólitík og aðrir ríkis-
bankar og einkabankar og þetta
hefur verið heldur notalegur banki
fyrir þá sem hafa átt þar viðskipti.
Ög ekki fyrir neinum.
Því er ekki að neita aö það kemur
Búnaöarbankamönnum nokkuö
óvart hvað þaö mælist illa fyrir aö
bankinn skili hagnaði og þeir vissu
ekki um hvað það kemur sér illa
fyrir eigenduma. Búnaðarbankinn
hefur þjónaö sínum kúnnum vel
og lifað ágætu lífi og satt að segja
hefur enginn verið að amast við
þessum banka, þar til nokkram
stjórnmálamönnum dettur í hug
að seþa beri þennan banka.
En nú er sem sagt búið að finna
það út að ríkissjóður eigi að selja
þennan banka og losa sig við hann
og ekki er annað að heyra en að
þetta sé eitt af helstu stefnumálum
ríkisstjómarinnar. Kannski hún
ætli að bjarga efnahag þjóðarinnar
með andvirði bankans og er þá
ekki ónýtt að eiga svo dýran og
verðmætan banka í fórum sínum?
Svo er einnig á annað að líta. Rík-
issljórnin hefur fengið yfir sig
dembu af gjaldþrota fyrirtækjum,
sem ríkið hefur annað hvort styrkt,
lánað eða keypt sig inn í af illri
nauðsyn. Allt er þetta að hellast
yfir ríkissljómina og hún hefur
tekið upp þá stefnu að reisa at-
vinnulífið úr rúst með því að láta
sem flesta fara á hausinn. Auðvitaö
kosta gjaldþrotin sitt en ríkis-
stjórnin er orðin vön aö fást við
gjaldþrota fyrirtæki og þekkir eig-
inlega ekkert annað. Það er því til
vandræða fyrir ráðherrana að hafa
á vegum ríkisins banka, sem bera
sig og eiga fyrir skuldum og era
jafnvel svo verðmætir aö einhveij-
ir vijji kaupa þá. Það stangast ein-
faldlega á við helstu viðfangsefni
ríkisstjórnarinnar og truflar mun-
strið, að hafa bæði á sinni könnu
fyrirtæki sem tapa og banka sem
græða.
Það er af þessum sökum sem
Búnaðarbankinn veröur settur á
sölulista. Ríkissjóður getur ekki átt
banka sem ber sig. Ríkissjóður hef-
ur yfirleitt ekki neinn áhuga á þvi
að eiga í fyrirtækjum eða stofnun-
um sem skila hagnaði. Það er lífs-
spursmál að selja svoleiðis eignir
og leyfa öðrum að græða á bönkum,
meðan ríkissjóður heldur áfram að
tapa á gjaldþrotunum.
Það hefur reyndar komið til
greina að selja Landsbankann í
leiðinni, en sá banki er í erfiðleik-
um um þessar mundir vegna þess
að gjaldþrotin hafa lent illa á
Landsbankanum og allt eins líklegt
að bankinn eigi alls ekki fyrir
skuldum ef hann yröi gerður upp.
Og meðan Landsbankinn tapar illa,
kemur ekki til álita að selja hann
á meðan. Ríkið verður að eiga í
banka sem tapar.
Þessi stefna nýju ríkisstjómar-
innar er rannin undan riflum
fijálshyggjumannanna og mark-
aðssinnanna, sem komnir era til
valda og segja að ríkið eigi ekki að
vasast í rekstri. Ríkið á að selja
allan rekstur, sérstaklega ef hann
gengur vel.
Það er gott að slíkir menn ráði
yfiur ríkissjóði. Það er styrkur fyr-
ir ríkisvaldið og þjóðina að fá slíkar
ráðleggingar. Það er um að gera að
losa sig við Búnaðarbankann enda
er það góður banki sem þarf á nýj-
um eigendum að halda. Það er gott
að selja góða banka og í staðinn
fyrir að ríkiö græði, sem kemur sér
illa fyrir ríkissjóð á þeim tíma þeg-
ar ríkið vill að sem flestir fari á
hausinn, geta einkaaðilar og pen-
ingamenn keypt bankann til að
annast lánaviðskipti við sjálfan sig.
Þeir gætu áreiðanlega beðið bank-
ann um að lána sér kaupverðið og
þannig getur bankinn keypt sjálfan
sig fyrir þá sem eiga að hagnast á
honum.
Dagfari