Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Side 8
8
MÁNUDAGUR.l. JÚLÍ1991,
Utlönd
Júgóslavía:
Friðaráætlun EB samþykkt
- fyrrum forsætisráðherra Króatíu verður næsti forseti landsins
Þrír utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsins, sem fóru til Júgóslavíu
til að reyna að stilla til friðar milli
sambandsstjómarinnar og lýðveld-
anna Slóveníu og Króatíu, tilkynntu
í morgun eftir næturlanga fundi með
leiðtogum deiluaðila að þeim hefði
tekist að knýja fram skriflegt sam-
komulag sem gæti komið á friði í
landinu.
Ráðherrarnir þrír komu af fundum
í Belgrad og Zagreb og sögðu að þeir
heföu lagt gmndvöllinn að frekari
viðleitni til að leysa vandamál Júgó-
slavíu á friðsaman hátt.
„Það hefur verið stigið skref fram
á við til að koma í veg fyrir frekara
blóðbað og komast að friösamlegri
lausn," sagði Hans van den Broek,
utanríkisráðherra Hollands, við
fréttamenn í Zagreb áður en þre-
menningarnir flugu aftur til síns
heima eftir tíu klukkustunda heim-
sókn.
Aðspurður hvort allir deiluaðilar
hefðu samþykkt skriflega þriggja liða
friðaráætlun, sem Evrópubandalagið
lagði til á fóstudag, sagði van den
Broek að svo væri. Svar hans gaf til
kynna að Slóvenía og Króatía, sem
lýstu yfir sjálfstæði sínu í fyrri viku,
hefðu samþykkt lokalið friðaráætl-
unarinnar, nefnilega að fresta gildis-
töku sjálfstæöisyfirlýsinganna um
þrjá mánuði. Frestunin á að gefa
stjórnmálamönnum færi á að vinna
að nýjum stjórnarskrárbreytingum
milli lýðvelda Júgóslavíu.
Samkomulag náðist um hina liðina
tvo nokkrum klukkustundum áður
þegar Króatinn Stipe Mesic var kjör-
inn forseti Júgóslavíu og þegar sam-
þykkt var að sambandsherinn mundi
kalla hersveitir sínar í Slóveníu aftur
til búða sinna.
Utanríkisráðherrarnir þrír frá
Evrópubandalaginu, sá hollenski og
starfsbræður hans frá Ítalíu og Lúx-
Liðsmaður slóvensku varnarsveitanna kíkir ofan í hertekinn skriðdreka frá
upp úr skurðinum.
júgóslavneska sambandshernum og óbreyttir borgarar reyna að grafa hann
Simamynd Reuter
emborg, sátu fund forsetaráðs Júgó-
slavíu þegar Mesic var valinn sem
nýr þjóðarleiötogi. Mesic er fyrrum
forsætisráðherra Króatíu og fyrsti
þjóðarleiðtogi Júgóslavíu sem ekki
er kommúnisti frá því eftir heims-
styijöldina síðari. Mesic gerði strax
ljóst að hann mundi slaka á miðstýr-
ingunni í landinu.
„Öryggi okkar verður ekki tryggt
nema við verðum samband fullvalda
og jafnrétthárra ríkja,“ sagði hann
við fréttamenn.
Leiðtogar Serbíu, stærsta lýðveldis
AUGLÝSING
UM VAXTAHÆKKUN
Hinn 1. júlí 1991 hækka vextir í 4,9% á lánum,
sem veitt hafa verið úr Byggingarsjóði ríkisins frá og
með 1. júlí 1984 og borið hafa 3,5% og 4,5% vexti.
Undanskilin eru lán vegna greiðsluerfiðleika og til
byggingar almennra kaupleiguíbúða.
Pessi Vaxtabreyting kemur fram á gjalddaganum
1. ágúst 1991. Á þeim gjalddaga verða
reiknaðir meðalvextir, þar eð vaxtabreytingin tekur
gildi milli gjalddaga.
Reykjavík, 24. júní 1991.
eRi húsnæðisstofnun ríkisins
Lj SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
Júgóslavíu, höfðu frá því í maímán-
uði komið í veg fyrir að Mesic yrði
kjörinn þjóðarleiðtogi þar sem þeir
sögðu að hann mundi leysa upp
ríkjasambandið.
íbúar Zagreh önduðu léttara þegar
þeir heyrðu fréttirnar af samkomu-
laginu. „Guði sé lof,“ sagði einn mað-
ur og signdi sig. „Þetta er dásamlegt,
það besta sem hægt var að hugsa
sér,“ sagði Rea Ivanic, 16 ára.
Utanríkisráðherrarnir þrír fóru
fyrst til Júgóslavíu á föstudag til að
reyna að stilla til friðar og sneru
þangað aftur í gærkvöldi þegar allt
útlit var fyrir að friðarviðleitni
þeirra mundi ekki bera neinn árang-
ur.
Sjónvarpið í Belgrad skýrði frá því
í morgun að til harðra átaka hefði
komið í þorpinu Borovo Selo í Norð-
austur-Króatíu þar sem íbúar til-
heyra serbneska minnihlutanum.
Það sagði að króatískir lögreglu-
menn og vopnaðir óbreyttir borgarar
hefðu ráðist á þorpið þar sem júgó-
slavneski herinn hefur verið fjöl-
mennur frá því til átaka kom þar í
byrjun maí. Átökin stóðu í meira en
eina klukkustund en ekki höfðu birst
neinar fréttir um mannfall.
Erlendir ferðamenn, sem komust
hvorki lönd né strönd vegna átak-
anna í Júgóslavíu, komust úr landi
í gær í sérstakri járnbrautarlest sem
austurríska ríkisstjórnin sá um að
fengin yrði til flutninganna.
„Þetta var alveg hræðilegt. Sem
ferðamaður er maður mállaus og
hefur engin tök á að skilja hvað er
að gerast," sagði 33 ára gamall sviss-
neskur ferðalangur þar sem hann
beið á járnbrautarstöðinni í Ljublj-
ana eftir því að koma bílnum sínum
um borð í lestina til Austurríkis.
Reuter
Þrir utanríkisráðherrar Evrópubandalagsins raeða við júgóslavneska ráða-
menn til að reyna að koma á friði í landinu. Símamynd Reuter
Indland:
Fjórum rænt
Fjórum indverskum embættis-
mönnum var rænt í Assam-héraði á
Indlandi í dag. Grunur leikur á að
skæruliðar, sem kenna sig við Mao
og beijast fyrir sjálfstæöi Assam,
beri ábyrgð á ránunum.
Embættismönnunum var rænt á
mismunandi stöðum víða um hérað-
ið. Þessi mannrán koma í kjölfar
fjölda aðgerða í öðru indversku hér-
aði, Kasmír, þar sem uppreisn gegn
yfirráðum Indverja var gerö í janúar
1990.
Reuter