Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Side 11
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 1991.
i' I ' I '■ ' ,
11
Utlönd
Stuðningsmenn Walesa Póllandsforseta ætla að stofna breiðfyikingu til að
berjast gegn spillingu fyrrum kommúnista í landinu. Símamynd Reuter
Pólland:
Stuðningsmenn Walesa
berjast gegn spillingu
Stuðningsmenn Lechs Walesa, for-
seta Póllands, saka fyrrum kommún-
ista í landinu um gífurlega spillingu
og sögðu á sunnudag að þeir mundu
stofna breiðfylkingu til að sigra í
fyrstu frjálsu þingkosningunum í
landinu sem eiga að fara fram í októ-
ber.
„Pólverjar mundu aldrei fyrirgefa
okkur ef við leyfðum fyrrum komm-
únistum að sigra í kosningunum,"
sagði Jan Olszewski, leiðtogi Miðju-
einingarflokksins sem fylgir Walesa
að málum á fundi flokksmanna.
Á fundi flokksins var ákveðið að
hann myndaði samfylkingu með Ein-
ingu og öðrum stuðningsmönnum
forsetans. Walesa sendi bréf á fund-
inn þar sem hann sagði að þörf væri
fyrir samfylkinguna til að berjast við
spilbngu sem hefði aldrei verið meiri
í sögu Póllands og væri skipulögð af
fyrrum kommúnistaleiðtógum
landsins.
„Ég held að fundur ykkar megi
verða til þess að stofnuð verði borg-
arahreyfing sem sameini hópa og
einstaklinga sem vilja koma reglu á
ríkið og styðja umbætur," sagði Wal-
esa.
Pólverjar eru að verða æ eirðar-
lausari eftir átján mánaða harkaleg-
ar efnahagsaðgerðir og Walesa virð-
ist vera að reyna að dreifa athygli
almennings frá vandamálum hvers-
dagsins.
„Barátta hans beinist að óánægða
meirihlutanum," sagði dagblaðið
Zycie Warszawy. „Þessir óánægðu
og ringluðu kjósendur geta auðveld-
lega orðið fyrrum kommúnistahóp-
um að bráð. Og það er þetta fólk sem
forsetinn vill vinna á sitt band.“
Fundurinn var haldinn tveimur
dögum eftir að þingið, þar sem fyrr-
um kommúnistar eru í meirihluta,
neyddi Walesa til að undirrita kosn-
ingalög sem hann haföi áður neitað
að skrifa undir. Lögin, sem Walesa
segir að séu ávísun upp á klofið og
veikt þing,- munu skipuleggja kosn-
ingarnaríoktóber. Reuter
Varsjárbandalagið
formlega leyst upp
Varsjárbandalagið verður form-
lega leyst upp á fundi með ráðgjafa-
nefnd bandalagsins í Prag í dag. For-
seti Tékkóslóvakíu, Vaclav Havel,
stjómar fundinum. Havel'hefur lýst
því yflr að endalok Varsjárbanda-
lagsins eftir 36 ára tilveru sé skref í
átt að nýju skipulagi í Evrópu.
„Varsjárbandalagið var persónu-
gerving ójafnræðisins sem ríkti milh
Sovétríkjanna annars vegar pg svo
annarra austantjaldslanda. Ég hef
ahtaf áhtið bandalagið lýsa einræði
herveldis Sovétríkjanna yfir öðrum
bandalagslöndum. Það er táknrænt
að Tékkóslóvakía, sem varð fyrir
innrás bandalagsins og hersetu 1968,
skuh núna vera leiðandi í þessum
lokaáfanga í því að leysa bandalagið
upp,“ sagði Havel
Havel, sem átti í útistöðum við hina
kommúnísku yfirstjórn Tékkóslóv-
akíu og sat í fangelsi fyrir skoðanir
sínar, sagði það vera draumi líkast
að stjórna þessum lokafundi banda-
lagsins. „Þetta verður hinsta kveðja
til uppskiptrar Evrópu og kalda
stríðsins og mun marka byijunina á
nýju söguskeiði," sagði Havel.
Reuter
Forseti Tékkóslóvakíu, Vaclav Havel, heilsar varaforseta Sovétrikjanna,
Gennady Yannayev, i Prag þar sem síðasti fundur Varsjárbandalagsins er
haldinn. Simamynd Reuter
Við hjá ISELCO höfum hafið sölu á DIAMIG raf-
suðuvélum frá DIAMIG ApS í Danmörku. DIAMIG
ApS hefur meira en 30 ára reynslu og þekkingu á fram-
leiðslu og sölu á plasmaskurðarvélum og rafsuðuvél-
um. Yfir 80% af framleiðslu DIAMIG ApS er seld
til annarra Evrópulanda þar sem DIAMIG plasma-
skurðarvélar eru mjög hátt skrifaðar.
, Þær vélar, sem við bjóðum nú á sérstöku kynningarverði, eru:
DIAMIG STARFIRE 60 plasmaskurðarvél
DIAMIG STARFIRE 120 plasmaskurðarvél
DIAMIG 185 X
DIÁMIG 200
DIAMIG 250
DIAMIG 315
DIAMIG PLASMA koperingarvél
DIAMIG hleðslutæki 80amp
kr. 141.847,00
kr. 269.343,00
kr. 74.663,00
kr. 75.651,00
kr. 87.307,00
kr. 108.625,00
kr. 186.820,00
kr. 35.736,00
SKEIFUNNI 11, SÍMI 686466
VIÐSKIPTI V
^»ár«C-
VerðmeðVSK
S T A Ð G R E
Ð S L A
Persónuafsláttur
hækkar 1. júlí
Mánaðarlegur persónuafsláttur hækkar í23.922 kr.
Sjómannaafsláttur 6 dag hækkar í 660 kr.
Þann 1. júlí hækkar persónu-
afsláttur og sjómannaafsiáttur
um 4,78%. Hækkunin nær ekki
til launagreiðslna fyrir júní og
hefur ekki í för með sér að ný
skattkort verði gefin út.
Vakin er athygli launagreið-
enda á þvi að þeir eiga ekki að
breyta fjárhæð persónuafslátt-
ar þega'r um er að ræða:
• Persónuafslátt samkvæmt
námsmannaskattkorti 1991.
• Persónuafslátt samkvæmt
skattkorti með uppsöfnuð-
um persónuafslætti 1991.
Ónýttur uppsafnaður persónu-
afsláttur sem myndast hefur á
tímabilinu 1. janúar - 30. júní
1991 og verður millifærður
síðar hækkar ekki.
Á sama hátt gildir hækkun sjó-
mannaafsláttar ekki um milli-
færslu á ónýttum uppsöfnuð-
um sjómannaafslætti sem
myndast hefur á tímabilinu
1. janúar - 30. júní 1991.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI