Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Qupperneq 40
CJi
■NJS
F
ETT A S K O T I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 1991.
Tveir létust
Tveir ungir menn létust aðfara-
nótt sunnudags í bifhjólaslysi á
Reykjanesbrautinni við Hafnarfjörð.
Tilkynnt var um atburðinn klukkan
;^4:30 um nóttina. Annar mannanna
var látinn er að var komið. Hinn lést
á slysadeild skömmu síðar.
Ekki er vitað nákvæmlega hvernig
slysið bar aö þar sem engir aðrir
voru á ferli við slysstað þegar óhapp-
iö varð. Þó er ljóst að mennirnir óku
á bifhjólinu norður Reykjanesbraut,
á leið niður Reykdalsbrekku, á móts
við svokaliað Kinnahverfi. Lentu
þeir á vegriði, sem liggur meðfram
veginum, og köstuðust viö það af
hjólinu. Vélhjólið var mjög illa farið
og talið ónýtt eftir slysið.
Rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði
annast rannsókn á tildrögum bana-
slyssins. Mennirnir voru báðir bú-
settir í Hafnarfirði og voru rúmlega
_ ^vítugir að aldri. -tlt/ÓTT
Slasaðist í Esju
Finnsk kona slasaðist er hún rann
um tuttugu metra niður snjóskafl og
stöðvaðist á steinum í suðurhlíðum
Esju síðdegis í gær. Konan var á ferð
með fleiri ferðamönnum frá Finn-
landi er óhappið varð. Hún missti
fótfestuna og rann með fyrrgreind-
um afleiðingum. Óhappið átti sér
stað talsvert fyrir ofan Mógilsá. -ÓTT
Kona fótbrotnaði 1 Laxárdalsfjalli:
8 ára stúlka
naði i hjalp
»/ •
Kona um fertugt slasaðist illa á
fæti ofarlega í Laxárdalsfjalli í Lax-
árdal í Húnavatnssýslu síðdegjs í
gær. Hún var á ferð með eigin-
manni og 8 ára dóttur við svokall-
aðan niviðrishnjúk þegar konan
steig illa niður á milli steina og fót-
brotnaðí.
Brugðið var á það ráð aö senda
dótturina niöur tíl að kalla á hjálp
á meðan maðurinn yrði eftir hjá
konunni. Slysið áttí sér stað í fjall-
inu um 700 metra yfir sjávarmáli.
Stúlkan gekk alla leið niður að
sumarbústað til ömmu sinnar og
afa. Þaðan var séð um að kalla á
aðstoö. Hjálparbeiðni barst um
klukkan 18.30 tíl lögreglunnar. Að
sögn heimamanna stóð stúlkan sig
afar vel er hún fór alein niður fjall-
ið tíl að tilkynna mn slysið.
Björgunarsveitarmenn fóru strax
á vettvang er kallið barst og á með-
an komu aðrir feröalangar að hjón-
unum í fjallinu og hjálpuðu tíl við
að hlúa að konunni. Um klukkan
sjö var ljóst að þörf væri á aðstoð
þyrlu Landhelgisgæslunnar. Flogið
var frá Reykjavik stuttu eftir að
beiðnin barst og fór læknir með. Á
áttunda tímanum í gærkvöldi seig
læknir niður úr þyrlunni á fjallinu.
Aðstæður þama uppi voru mjög
erfiðar en björgun konunnar tókst
þó vel. Hún var komin um borð i
þyrluna um klukkan átta og var
síðan flogið með hana til höfuð-
borgarinnar, að skýli Landhelgis-
gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli.
Þar beið sjúkrabíll sem fluttí kon-
una á sjúkrahús.
-ÓTT
16 áraökumaður
þungthaldinn
16 ára stúlka liggur þungt haldin á
gjörgæsludeild Borgarspítalans eftir
alvarlegt bifreiðarslys á vegarkafla
við svokallaða Hóla, skammt frá
flugvellinum á Þingeyri. Fernt var í
bílnum og sluppu tveir að mestu
ómeiddir. Stúlkan hlaut hins vegar
mjög alvarlega brjóstholsáverka og
var hún flutt ásamt öðrum flugleiðis
til Reykjavíkur.
Fólksbíllinn er af gerðinni Toyota.
Var honum ekiö frá Þingeyri þegar
slysið áttí sér stað og stúlkan missti
stjórnáhonum. -tlt
Suöurlandsvegur:
Umferðaröngþveiti
Þriggja bíla árekstur varð við
Hólmsá á Suðurlandsvegi um kvöld-
matarleytíð í gærkvöldi. Gífurleg
bílaröð myndaðist á Suðurlandsveg-
inum og á Hellisheiðinni um þetta
leyti og náði hún tuga kílómetra
lengd. A tímabili var óslitin bílaröðin
frá gatnamótunum við Þrengslaveg
og alla leið til Reykjavíkur. Þetta var
einmitt á þeim tíma sem íbúar höfuð-
borgarsvæðisins voru að snúa til
baka eftir sumarbústaðaferðir og
önnur ferðalög helgarinnar.
-ÓTT
„Sherlock Holmes“ í íslandsheimsókn:
Leikhúsið er órjúfan>
legur hluti lífs míns
- segir Sherlock Holmes-leikarinn Jeremy Brett
Sherlock Holmes með Trappe-börnunum. Með öðrum orðum; Jeremy Brett leikari með yngstu leikurum Söngva-
seiðs i hófi sem haldið var að lokinni síöustu sýningu verksins í gærkvöldi. DV-mynd GVA
Jeremy Brett, sem betur er þekkt-
ur í hlutverki leynilögreglumanns-
ins Sherlock Holmes, kom til lands-
ins á laugardag. Er hann hér staddur
í boði gamals vinar síns og skólafé-
laga, Benedikts Árnasonar leik-
stjóra. „Við höfum ekki sést í 37 ár
og mér datt í hug að þetta gæti orðið
skemmtilegt," sagði Brett við DV.
Framleiðsla þáttanna um Sherlock
Holmes hófst árið 1983 og eru sýndir
í tugum landa. „Það er næstum
ómögulegt að leika hann,“ sagði
Brett, „hann er einungis hugmynd
og það þarf að fylla upp í tómið. Um
leið og ég held að ég hafi náð tökum
á honum gleymi ég persónunni aftur
og þarf að byrja upp á nýtt. Mér
fmnst erfitt að klæðast fótum
Sherlock Holmes. Ég veit ekki hvern-
ig mér ber að leika hann.“
Um leikhúsið sagði hann: „Fínleiki
skapar töfra en áleitni gerir sköpun-
armáttínn að engu. Það er eitt af
þeim meginþáttum sem verður að
hafa í huga í leikhúsinu. Ég ann leik-
húsinu. Það er órjúfanlegur hlutí lífs
míns.“
Brett hefur farið með mörg hlut-
verk og á 21 kvikmynd að baki. Hann
hefur starfað með fremstu leikstjór-
um heims. í fjögur ár vann hann hjá
Þjóðleikhúsi þeirra Englendinga og
lék meðal annars undir handleiðslu
Lawrence Olivier.
Hann var viðstaddur síðustu sýn-
ingu Söngvaseiðs sem slegið hefur
öll aðsóknarmet undanfarið. „Þetta
var yndisleg sýning og greinilega
mjög vel að henni staðið.“
Brett sagðist strax hafa orðið mjög
snortinn af fegurð landsins. Honum
þótti það einstök reynsla að sjá sólina
enn á lofti klukkan ellefu að kvöldi
en slíkt hafði hann ekki upplifað áð-
ur í sínu lífi.
Á næstu dögum mun hann dvelja
hér í boði Benedikts. Ætla þeir meðal
annars að bregða sér á hestbak en
Brett hefur dálæti á hestum. Átti
hann þann draum á sínum yngri
árum að gerast knapi og sigra á veð-
reiöum. Hann mun einnig skoða
helstu staði á Suðurlandi áður en
hann heldur heim á miðvikudag.
-tlt
LOKI
Álverið hækkar heldur bet-
urverð hvers steins í
Flekkuvík!
Veðrið á morgun:
Skýjað og súld
vestanlands
Á morgun verður vestlæg átt
og víðast gola. Skýjað verður og
dálítíl súld vestanlands en víðast
verður léttskýjað á Noröur- og
Austurlandi. Hiti verður 10-20
stig að deginum, hlýjast austan-
lands.
4
4
4
4
4
4
i
^O'01 L A S