Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1991, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991.
5
DV
Ólafur Ragnar Grímsson um atburðina í Sovétríkjunum:
Fréttir
Vesturlönd verða að sýna
f ulla pólitíska hörku
„Þetta eru mjög óhugnanlegar
fréttir. í dag er stóra spurningin
hvort sú klíka, sem hrifsað hefur
völdin, ætlar að brjóta á bak aftur
lýðræðisþróun í landinu og þær efna-
hagslegu umbætur sem þar voru að
bjoja. Ef svo er tel ég að Evrópa öll
og reyndar Vesturlönd í heild sinni
eigi strax að koma sér saman um
efnahagslegar og pólitískar gagnað-
gerðir. Þær geta falist í því að kalla
strax saman utanríkisráðherra
RÖSE-samkomulagsins, það er utan-
ríkisráðherra Evrópuríkjanna,
Bandaríkjanna, Kanada og annarra
ríkja. Þar yrði að álykta alveg skýrt
að forsendan fyrir jákvæðum við-
horfum til efnahagslegrar aðstoðar,
til inngöngu Sovétríkjanna í Alþjóða-
bankann og Alþjóða gjaldeyrissjóð-
inn, sé háð því að hinar pólitísku
umbætur og lýðræðisþróun haldi
áfram. Örlög heimsbyggðarinnar eru
svo mikið undir því komin að þessi
friðsamlega lýðræðisþróun fái að
halda áfram. Ég tel því að strax verði
að sýna fulla pólitíska hörku af hálfu
Evrópu og Vesturlanda," sagði Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, vegna atburða
síðustu sólarhringa í Sovétríkjunum
þar sem Gorbatsjov var steypt af
valdastóli.
„Atburðimir sýna okkur kannski
við hve mikla erfiðleika Gorbatsjov
hefur átt að etja. Mér verður hugsað
til þess er ég var staddur tæpa tvo
sólarhringa í Moskvu í nóvember síð-
astliðnum ásamt íjórum bandarísk-
um þingmönnum. Við áttum þar við-
ræður við Gorbatsjov og ýmsa aðra.
Eftir fundinn lýsti ég því þannig að
mér fyndist eins og byltingarástand í
klassískri merkingu þess orðs væri
þá þegar ríkjandi í landinu, það væri
nánast dag frá degi verið að tefla um
póhtískar umbætur, valdakerflð
sjálft, efnahagskerfið og stjórnskipu-
lagið. Maður gat átt von á þvi að hvað
sem væri gerðist næsta dag. Óvissan
var orðin það mikil að við heimsókn
í þingið skynjaði maður að þar fó'r
ekki fram venjuleg póhtík eins og við
þekkjum hana heldur var tekist á um
alla grundvallarþættina á hverium
degi. Nú er ljóst að þessi valdaklíka
hersins og hörðu aflanna í kommún-
istaflokknum og KGB hefur talið sig
vera að tapa því stríði og því gripið
tilvopnanna." -hlh
Ríkisstjórnin fordæmir valdaránið 1 Sovétríkjunum:
Tryggja verður að af ieiðing-
arnar verði ekki varanlegar
- vestrænríkiverðiíviðbragðsstöðu
„Ríkisstjórn Islands fordæmir
valdarán það sem átti sér stað í Sov-
étríkjunum í nótt. Þjóðir, sem virtust
á leið th lýðræðis, eru snögglega
hnepptar á ný í fjötra afturhalds og
harðstjómar. Mjög áríðandi er að
ríkisstjómir Vesturlanda og ahs hins
frjálsa heims geri aht sem í þeirra
valdi stendur til þess að tryggja að
afleiðingar þessara alvarlegu at-
burða verði ekki varanlegar. Snúi
Sovétríkin af braut lýðræðisþróunar
hljóta samskipti þeirra og Vestur-
landa að gjörbreytast," segir í frétta-
tilkynningu ríkisstjórnarinnar sem
Davíð Oddsson forsætisráðherra
kynnti í ráðherrabústaðnum í gær-
morgun.
Rikisstjórnin vekur athygh á að
Sovétríkin séu sama herveldið og
fyrr og að ró sú sem umbótavilji
Gorbatsjovs skapaði á Vesturlöndum
sé nú rofln. Yrðu vestræn nki að
vera í viöbragðsstöðu og fylgjast
grannt með þróun mála.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra sendi frá sér sérstaka yf-
irlýsingu þar sem segir að hin válegu
tíðindi frá Sovétríkjunum veki ugg
og kvíða um hvort stöðvuð verði sú
þróun í átt til lýðræðis og réttarríkis
sem verið hefur í Sovétríkjunum.
„Einnig er alvarlegt áhyggjuefni
hvað þessir atburðir kunna að þýða
fyrir framtíð þeirra þjóða sem í farar-
broddi hafa staðið í endurheimt sjálf-
stæðis, það er Eystrasaltsríkjanna,"
segir í tilkynningu Jóns. Loks segir
að ísland muni fylgjast grannt með
þróun mála og hafa samráð við ríkis-
stjórnir annarra Norðurlanda og
nágranna Sovétríkjanna í Mið-Evr-
ópu.
-hlh
Krasavin, sendiherra Sovétrikjanna á íslandi, gengur af fundi með Jóni
Baldvini Hannibalssyni utanríkisráðherra um hádegisbil í gær. Jón Baldvin
afhenti sendiherranum yfirlýsingu rikisstjórnarinnar þar sem atburðirnir í
Sovétrikjunum eru fordæmdir. DV-mynd JAK
Slippstööin á Akureyri:
Spurt um Þórunni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það hefur talsvert verið spurst
fyrir um skipið og það eru nokkur
mál í gangi vegna sölu skipsins," seg-
ir Sigurður G. Ringsted, forstjóri
Shppstöðvarinnar á Akureyri, um
sölu á gömlu Þórunni Sveinsdóttur
sem stöðin tók upp í er fyrrverandi
eigendur skipsins fengu afhent nýtt
skip frá stöðinni með sama nafni.
Gamla Þórunn Sveinsdóttir er eitt
mesta afla- og happafley landsins og
á skipinu hafa Sigurjón Óskarsson
og áhöfn hans hvað eftir annað orðið
aflahæstir á vertiðum. Skipið er í
mjög góðu ástandi og má fastlega
búast við að Shppstöðin selji skipið
alveg á næstunni.
Davið Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson kynna viðbrögð ríkisstjórnarinnar við atburðunum í Sovétrikjunum
í gærmorgun. DV-mynd JAK