Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1991, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1991, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991. 9 Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, og Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherra boðuðu til blaðamannafundar þar sem þeir ræddu ástandið í Sovétríkjunum. Kohl sagði að hann hefði lagt hart að nýjum valdhöfum i Moskvu að tryggja öryggi Gorbatsjovs. Simamynd Reuter Fall Gorbatsjovs veldur óhug í Þýskalandi: Hefðum getað stutt Gorbatsjov betur - sagði Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherra Hans-Dietrich Genscher, utanrík- isráðherra Þýskalands, segir að vest- ræn lýðræðisríki hefðu getað gengiö lengra í stuðningi viö Míkhaíl Gorba- tsjov og forðað honum þannig frá falli. Þýska ríkistjórnin gekk lengra en aðrir stjórnir á Vesturlöndum í stuðningi við Gorbatsjov og um- bótaáætlanir hans. Gorbatsjov naut gríðarlegra vinsælda í Þýskalandi og margir þökkuðu honum öðrum fremur að Þýskaland var sameinað. Genscher sagði í sjónvarpsumræð- um að hann væri ekki viss um að meiri fjárhagsaðstoð við Sovétríkin hefði komið í veg fyrir að harðlínu- menn hrektu Gorbatsjov frá völdum. Hann sagði að það heföi þó óneitan- lega treyst Gorbatsjov í sessi ef ríki á Vesturlöndum hefðu gengið lengra í stuðningi við hann og ekki látið við orðin ein sitja. Genscher sagði að það réðist af framvindunni næstu daga hver við- brögð Þjóðverja yrðu við atburðun- um í Sovétríkjunum. Hann sagðist hafa reynt ítrekað að ná sambandi við Alexander Bessmertnjik utanrík- isráöherra en án árangurs. Utanrík- isráðherrann hefði þó ekki verið sett- ur af. Helmut Hokl kanslari hefur lýst þungum áhyggjum vegna valdaráns- ins í Sovétríkjunum. Hann var náinn vinur Gorbatsjovs og átti raunar frama sinn í stjórnmálunum á síð- asta ári Gorbatsjov að verulegu leyti að þakka. Kohl sagði í gær að sér hefði borist bréf frá Gennadíj Janajev, forseta Sovétríkjanna, þess efnis að Gorbátsjov hefði ekki sakað við umskiptin í gær. Að öðru leyti kom ekkert fram um hvar Gorba- tsjov væri niðurkominn. Kohl var í sumarleyfi í Ölpunum þegar tíðindin bárust frá Moskvu. Hann hraðaði sér heim og boðaði rík- isstjórnina til fundar ásamt leiðtog- um stjórnarandstöðunnar. Á fundin- um varð samkomulag um að ekki væri mögulegt aö halda áfram aðstoð við Sovétríkin nema hinir nýju leið- togar hvikuðu hvergi frá fyrri um- bótaáætlunum og virtu almenn mannréttindi. Reuter Olíuverkamenn ekki í verkfall Verkamenn í hinum risastóru Tyumen-olíulindum, einni helstu gjaldeyrisuppsprettu Sovétríkjanna, ætla að virða að vettugi hvatningu til allsherjarverkfalls í mótmæla- skyni við brottrekstur Míkhaíls Gorbatsjovs, að því er leiðtogi verka- lýðsfélags þeirra sagði. Nikolai Trifonov sagði í símaviðtali við Reuters-fréttastofuna frá síber- ísku borginni Tyumen að meirihluti olíuvérkamannanna styddi Boris Jeltsín, forseta rússneska lýðveldis- ins, þegar hann fordæmdi hina hægrisinnuðu neyðamefnd komm- únista sem hrifsaði völdin í gær. Hann sagði þó að stuðningi þeirra sleppti þegar að verkfalli kæmi. „Ef olíuverkamenn færu í verkfall mundi koma ójafnvægi á efnahagslíf- ið. Við mundum flýta fyrir átökum og þar af leiðandi borgarastyrjöld," sagði hann. Olíulindirnar í Tyumen aíla 60 pró- sent gjaldeyristekna Sovétríkjanna fyrir ohusölu. Reuter Margir leiðtogar arabaríkja fagna falli Gorbatsjovs: Þetta eru stórkostleg tíðindi - sagði Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbíu Andstæðingar Vesturlanda í hópi arabískra leiðtoga hafa fagnað fahi Míkhaíls Gorbatsjovs og segja tíöind- in áfah fyrir George Bush Banda- ríkjaforseta. Meðal þeirra sem taka þennan pól í hæðina era Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbíu, Palestinumenn, ríkis- stjóm íraks og stuðningsmenn íraka í löndum araba. Gaddafi sagði að tíð- indin frá Moskvu væru stórkostleg. „Fyrri stjóm í Sovétríkjunum fylgdi utanríkisstefnu sem hafði mjög slæm áhrif á stöðu alþjóðamála og þá sérstaklega stöðu ríkja þriðja heimsins eins og íraks,“ sagði tals- maður Saddams Hussein, forseta ír- aks, eftir að leiðtoginn hafði rætt stöðuna í Sovétríkjunum við sam- starfsmenn sína. Talsmaðurinn sagði að írakar litu á Sovétmenn sem vini sína og myndu því gera aht th að koma á góðum samskiptum við Sovétríkin eins og var áður en Gorbatsjov komst th valda. Áhrifamenn í írak sögðu að Gorba- tsjov hefði svikið íraka með því að ganga th hðs við Bandaríkjamenn í ofsóknum þeirra á hendur írökum í Persaflóastríðinu. „Þetta eru góðar fréttir fyrir íraka,“ sagði einn þeirra. í röðum Palestínumanna var fahi Gorbatsjovs einnig fagnað í gær. Þar sögðu menn að ef samstaða Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna rofnaði myndu áhrif Israelsmanna rýrna. Palestínumenn hefðu áður átt vísan stuðning stjómarinnar í Moskvu en síðari árin á valdaferh Gorbatsjovs hefði hann ekki verið annað en tagl- hnýtingur Bandaríkjamanna í al- þjóðamálum. í ísrael sagði Shimon Peres, leiðtogi Verkamannaflokksins, á hinn bóg- inn að hann gerði ráð fyrir að óvem- legar breytingar yrðu á stefnu Sovét- stjórnarinnar í utanríkismálum þrátt fyrir að Gorbatsjov væri ekki lengur við völd. í utanríkisráðuneyti landsins var þó sagt að enn væri allt óljóst um afstöðu Sovétmanna þegar að friöarráðstefnunni um málefni Mið-Austurlanda kæmi. Útlönd Kína lætur sem ekkert sé Haröhnuleiðtogar Kína gáfu tíl kynna í morgun aö engin breyting yrði á samskiptunum við Sovétríkin eftir aö nýir valdhafar tóku þar viö stjórn- artaumunum. Á sama tíma þorðu fáir á götum Peking að tjá sig um fall Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta. „Ég heyrði fréttirnar en ég hef enga skoðun á málinu,“ sagði afgreiðslu- maður í ríkisverslun. „Þetta kemur mér ekki við.“ Fyi-stu opinberu viöbrögð Kina við valdaráninu voru á hefðbundinn hátt þar sem sagt var að kinversk stjórnvöld væru andvíg afskiptum utan- aðkomandi aðila að innanríkismálum einnar þjóðar. í yfirlýsingu frá kín- verska utanríkisráðuneytinu sagði aö samskipti Kína og Sovétríkjanna yrðu söm við sig. „Við vonum og höfum hka þá trú að sovéska þjóðin muni sigrast á erfið- leikum sinum, leysa eigin vandamál sjálf, viðhalda pólitískum stöðugleika og ná efnahagslegum bata,“ sagði í yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins í morgun. Gamla kommúnistaklíkan í Kína fyrirskipaði hersveitum og skriödrek- um að berja niður lýðræðishreyfmgu í landinu fyrir tveimur árum og losaði sig við þáverandi leiðtoga kommúnistaílokksms. Mittevrand varar Sovétleiðtoga við Mitterrand Frakklandsforseti sagði nýjum Sovétleiðtogum að sanna fljótt að þeir ætiuðu að halda umbótum áfram. Símamynd Reuter Francois Mitterrand Frakklandsforseti var hvassyrtur í garð nýrra leiðtoga Sovétríkjanna í gær og sagði þeim að sanna fljótt að þeir ætluðu að halda áífam þeirri umbótastefnu sem Míkhaíl Gorbatsjov hóf. Mitterrand sagði að of snemmt væri að ræða um að refsa nýjum valdhöf- um með viðskiptaþvingunum eða með því að stöðva alla vestræna aðstoð sem átti að miða að því að hressa upp á efnahag Sovétríkjanna. En franski forsetinn varaði við því að brottvikning Gorbatsjovs gæti gert að engu batnandi samskipti austurs og vesturs á undanförnum sex árum og sagði að valdaránið gæti „áöur en varði orðið að kaldastríösað- gerð“. „Þeir mega engan tíma missa ef þeir æfia að sýna að þeir fari sömu leið og Gorbatsjov í átt th endurbóta og lýðræðis og bættu ástandi í alþjóðamál- um,“ sagði Mitterrand í viðtali við ffanska sjónvarpið. Franski forsetinn sagði það vera góða hugmynd að leiðtogar Evrópu- bandalagsins héldu neyðarfund th aö ræða brottrekstur Gorbatsjovs og valdatöku átta manna nefndar harðlínumanna sem tók við af honum. Reuter VERSLUNARFERÐ TIL ÍRLANDS 19.900,- AÐEINS ÞÉTTA EINA TÆKIFÆRI AÐEINS KR. Cork er þriðja stærsta borg írlands og sú fegursta, með heillandi blöndu af gamla og nýja tímanum og hér getur þú notið hins besta í ffábærum verslunum með nýjustu hausttískunni. Qist er á afbragðsgóðu hóteli í miðbænum, Metropole, þar sem verslanir og veitingastaðir eru við hóteldymar. Brottför 6. september Brottför kl. 8.00 6. sept., komiö heim á miðnætti þann 7. september. * Innifalið í verði er flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli og ís- lensk fararstjórn. 11III111S11111 AUSTURSTRÆTI 17 - SlMI 622200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.