Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1991, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1991, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991. T-bolir, kr. 680.00 Háskólabolir, kr. 1.290.00 HENSON - VERSLUN SKIPHOLTI 37, SÍMAR 31515 OG 31516 "skápar, sófar, boró og bekkir, Utlönd Moskvubúar reistu götuvígi til að hindra ferð skriðdreka að rússneska þinghúsinu. Simamynd Reuter betri kaup þú varla þekkir. LeitaÓu ei um hæðir og hóla, heldur skaltu á okkur....... DV smAauglýsingar SÍMI 27022 Moskvubúar reisa götuvígi Óbreyttir Moskvubúar tóku frétt- unum um að Míkhaíl Gorbatsjov hefði verið steypt af stóli með sam- blandi vantrúar, sinnuleysis og reiði. Þó svo að flestir þeirra hafi bara rápað búð úr búð í leit að mat eins og venjulega urðu skriðdrekamir á götunum til þess að nokkrir hófu að reisa götuvígi og búa sig undir að veita mótþróa. „Þá byijar baOið aftur, þeir eru að þessu í þágu fólksins," sagði Igor, 30 ára gamall slátrari. „En það spurði enginn fólkið ráða.“ „Þetta er það sorglegasta og hræði- legasta sem hefði getað gerst í landi okkar,“ sagði Sergei Ivanov ellilíf- eyrisþegi. „Ég er viss um að líf mitt mun ekkert skána, né heldur lif barna minna." En til voru þeir sem létu pólitiskt upplausnarástand víkja fyrir nær- tækari áhyggjum. „Hverju máh skiptir þetta mig? Stígvél kosta 60 rúblur og ég fæ 300 rúblur í kaup á mánuöi,“ hreytti miöaldra byggingaverkamaður út úr sér. Á sama tima og flestir borgarar Sovétríkjanna fognuðu pólitískum umbótum Gorbatsjovs- kenna líka margir honum um snarversnandi lífskjör frá því hann hóf að feta sig í átt til markaðsbúskapar frá mið- stýrðu efnahagskerfi. „Hann var kannski ekki sá allra besti en þeir sem nú eru komnir til valda eru sannarlega ekki hæfari en hann til að glíma við ástandið,“ voru dæmigerð viðbrögð frá hinum 26 ára gamla Vladislav. „Þeir eru að hrækja á sálir okkar.“ Aðspurður sagði Vladislav að ekk- ert væri hægt að gera. En nokkur hundruð ungmenni voru á öðru máli og eyddu deginum í að reisa götuvígi til að verja þing Rússlands, höfuð- stöðvar Borisar Jeltsíns, forseta rússneska lýðveldisins. „Jeltsín er eina von okkar,“ sagði hin 60 ára Zoya Bonch og tóku marg- ir undir það. En fáir bjuggust við að hann gæti nokkuð gert. Reuter Bros leit Ljósmyndasamkeppni DV og Tannlæknafélags fslands DV og Tannlæknafélag íslands hafa ákveðið að halda ljósmyndasam- keppni sem hlotið hefur nafnið Breiðasta brosið. Leitað er að einhverri fallegri sumarmynd af breiðu og fallegu brosi eða brosum. Vegleg verðlaun eru í boði og er heildarverðmæti vinninga 60.000 kr. Canon Eos 1000 myndavcl frá Hans Pcterscn, að verðmæti 35.000 kr. 15.000 kr. vöruúttckt í cinhverri áf sjö vcrslunum Hans Pctcrscn. 10.000 kr. vöruúttckt í einhvcrri af sjö vcrslunum Hans Petersen. Hverjum þátttakanda er frjálst að senda inn fleiri en eina mynd. Myndina ásamt nafni, heimilisfangi og síma þátttak- arida skal senda í umslagi til DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík, merkt Breiðasta brosið. Skilafrestur er til 6. september. Þá er bara að muna eftir myndavélinni í útileguna, í grillveisluna og í bíltúrinn því að það er aldrei að vita hvenær verðlaunabrosið læðist fram í munnvikin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.