Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1991, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON
Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91 >27022 - FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr.
Verð í lausasölu virka daga 105'kr. - Helgarblað 130 kr.
Byggðastefnan
Umræðan sem Davíð Oddsson hratt af stað með yfir-
lýsingum sínum um Byggðastofnun og Framkvæmda-
sjóð getur orðið til gagns. Hún getur orðið að gagni ef
þátttakendur í þeim orðaskiptum láta hjá líða að saka
hver annan um persónulegar ávirðingar. Það hefur ekk-
ert upp á sig að finna út hvor sé meiri sökudólgur, Stein-
grímur eða Davíð, né heldur hvort þessi ríkisstjórn eða
sú fyrri ah meiri önn fyrir landsbyggðinni.
Með því að varpa ljósi á slæma stöðu hinna opinberu
sjóða, hefur forsætisráðherra í rauninni varpað fram
þeirri spurningu, hvernig ríkisvaldinu- beri að haga
stjórn sinni og stefnu gagnvart atvinnuppbyggingu og
jafnvægi í byggð landsins. Er það réttlætanlegt að verja
milljörðum króna til lána og styrkja í atvinnurekstur
sem skilar engum arði? Er það málefnalegt að stjórn-
völd láti almannafé ganga til hallareksturs fyrirtækja,
þar sem hallinn er rakinn til lélegrar og óábyrgrar
stjórnunar, á þeirri forsendu að atvinnulíf staðarins
fari ella í rúst?
í þessu sambandi ættu menn að rifja upp rimmuna
sem stóð um atvinnumál Patreksíjarðar, þegar frysti-
húsinu var lokað og hið öpinbera neitaði að rétta hjálp-
arhönd. Þá var spáð landflótta og auðn á Patreksfirði.
Hvað gerðist? Hver er reynslan af þeim átökum?
í sjálfu sér er ekkert við því að segja ef stjórnmála-
flokkar og stjórnvöld velja þá leið að veita mikið fjár-
magn í sjóðakerfi sem síðan er stýrt og ráðstafað af þar
til kjörnum stjórnmálamönnum. Þetta er pólitísk stefna
út af fyrir sig. Og enginn getur neitað því að þjóðin
hefur mörgum sinnum kallað slíka stjórnarhætti yfir
sig, með því að kjósa þá flokka, sem til að mynda styðja
milljarðar niðurgreiðslur og útflutningsbætur til land-
búnaðargeirans og offramleiðslunnar. Landbúnaðar-
stefnan, sem hér hefur verið ráðandi í þrjá áratugi, er
sennilegasta skýrasta dæmið um þá byggðastefnu sem
nú er verið að deila um. Með sama hætti hafa ráðandi
flokkar á Alþingi allir tekið þátt í því fyrirkomulagi sem
Byggðastofnun og Framkvæmdasjóður byggja á, þ.e. að
úthluta almannafé til skuldum hlaðinna fyrirtækja með
þeim rökum að stuðla beri að atvinnuuppbyggingu.
Þetta er miðstýringarstefnan.
Á hinn bóginn hefur verið bent á að opinber úthlutun
verði ætíð póhtísk og spillingarkennd enda sé affarasæl-
ast að láta hin frjálsu lögmál efnahagslífsins ráða bú-
setu og atvinnu.
Þetta er markaðsstefnan.
Sennilega er hin praktíska lausn einhvers staðar þarna
mitt á milh. Ríkið á að draga sem mest úr afskiptum
sínum af atvinnurekstrinum og pólitíkusar eiga ekki
að vera með puttana í lánveitingum til einstakra fyrir-
tækja. Hins vegar ber stjórnmálaöflunum í landinu að
hta th atvinnuþróunar til lengri tíma og marka skýra
stefnu í byggðamálum og hvernig sú stefna skuli fram-
kvæmd. Það hefur sjaldnast verið gert. Stjórnmálaflokk-
arnir hafa vanrækt þá skyldu sína að bjóða kjósendum
upp á valkosti í þessum efnum. í staðinn eru samþykkt-
ar loðnar ályktanir um að allir verði góðir við alla.
Ágreiningur þeirra Davíðs og Matthíasar Bjarnasonar
er gott dæmi um mismunandi skoðanir innan eins og
sama flokksins.
Ef sú umræða, sem forsætisráðherra hóf um hlutverk
Byggðastofnunar, leiðir til betri skilgreiningar á byggða-
stefnunni og afstöðu ríkisvalds og flokka til hennar, þá
er það af hinu góða.
Ellert B. Schram
Málefni aldraðra:
Ráðhús Reykjavíkur.
engin sjáanleg þörf.
- „Þar sýnist unnið dagiangt að náttlangt. ...
(i
Þó eru engir biðlistar eftir þessu húsi,
Ástandið lang-
verst í Reykjavík
KjaUarinn
Segjum að það tækist að spara
einhverja íjármuni í lyfjaverslun-
inni með því að lækka álagningu
lyfsalanna, til dæmis niður í það
sem tíðkast í grannlöndum okkar.
Sá sparnaður getur hins vegar ekki
gengiö til þess eins að styrkja al-
mennt stöðu ríkissjóðs, sem verður
þó að vera að einhverju leyti. Sá
sparnaöur verður að notast innan
heilbrigöisþjónustunnar líka til að
byggja upp aðra þætti hennar sem
hafa verið vanræktir um árabil. -
Hér er einkum átt við þjónustuna
við aldraða.
Mikil breyting varð í þeim efnum
þegar framkvæmdasjóður aldraðra
var stofnaður. Þá tóku sig saman
þingmenn úr stjórnarandstöðu-
flokkum (Albert Guðmundsson og
Matthías Bjarnason) og studdu til-
lögur þáverandi ríkisstjórnar um
sérstakt gjald í þennan sjóð.
Hrikalegur áfellisdómur
Framkvæmdasjóöur aldraðra
hefur þegar breytt mjög miklu um
vistun aldraðra á íslandi. Byggðar-
lögin hafa þrýst á um fjármuni úr
sjóðnum og staðið sig þar svo vel
að þau byggðarlög sem átt hafa
áhugalausa forystumenn hafa orð-
ið út undan. Eitt þessara byggðar-
laga heitir Reykjavík. Borgarstjóri
Reykjavíkur allan þann tíma sem
liðinn er frá því að Framkvæmda-
sjóður aldraðra hóf að starfa heitir
Davíð Oddsson. Hann er nú sem
kunnugt er forsætisráðherra
landsins.
Hrikalegur áfellisdómur hefur
verið kveðinn upp yfir borgar-
stjórn Reykjavíkur í þjónustumál-
um aldraðra hvað eftir annað á
undanfórnum árum. En skýrasta
dæmið sem ég hef séð um árabil
eru tölur sem birtast í Fréttabréfi
lækna nú á þessu ári í tveimur
greinahlutum eftir þá Sigurbjörn
Björnsson og Þór Halldórsson.
Talin eru 17 rými á hverja 100
einstaklinga 70 ára og eldri í Norð-
urlandskjördæmi vestra, 14 rými
tæplega á hverja 100 aldraða ein-
staklinga á Suðurlandi og á Vest-
fjörðum, 9,5 í Norðurlandi eystra,
en aðeins 8,1 í Reykjavík! - Það er
rétt innan við helmingur þess sem
best gerist á landinu.
444 rými í Reykjavík -
vantar 260
En þar með er ekki öll sagan sögð:
Við nánari athugun kemur í ljós,
að aðeins hluti þessara rýma er á
sjúkradeildum fyrir aldraða eða á
Svavar Gestsson
þingmaður fyrir
Alþýðubandalagið i Reykjavík
og situr í heilbrigðis- og
trygginganefnd Alþingis
hjúkrunarheimilum. í ljós kemur
að eiginleg hjúkrunarrými fyrir
aldraða eru aðeins 444 í Reykjavík
eða 5,4 á hverja 100 íbúa 70 ára og
eldri og eru svonefnd hvíldarrými
þá meðtalin. Það kemur semsé í
ljós að Reykjavík er ekkki hálf-
drættingur á við það sem best ger-
ist í landinu og sé þetta borið sam-
an við þaö sem talið er eðlilegt á
Norðurlöndunum kemur enn í ljós:
Þar er talið að hjúkrunarrýmis-
þörfm sé 7-9 rými á hverja 100 ein-
staklinga 70 ára og eldri. Og er þá
nokkur hissa á því að það sé neyð-
arástand í málefnum aldraðra í
Reykjavík?
Vissulega er rétt að hafa í huga
að ásókn í þessi pláss í Reykjavík
er erfiðari en annars staðar; það
er ein af mörgum afleiðingum
byggðaflóttans. En þá ber þess að
geta á móti að fjöldinn allur af íbú-
um Reykjavíkur er vistaður á
stofnunum utan Reykjavíkur. í því
sambandi má nefna stofnanir í
Kópavogi og í Hafnarfirði og á
Blesastöðum og í Kumbaravogi.
En hvað vantar þá mörg rými
fyrir aldraða í Reykjavík til viðbót-
ar við þau 444 sem nefnd voru í
fyrri greininni í Læknablaöinu?
Því er svarað í síðari greininni í
Læknablaðinu: Þar kemur fram að
samkvæmt könnun, sem gerð var
vikuna 18. - 22. febrúar sl., voru
langdvalarsjúklingar í heimahús-
um 134 talsins. Þá voru aldraðir
langdvalarsjúklingar á meðferðar-
deildum sjúkrahúsanna 128. Sam-
tals vantar því pláss fyrir 262 aldr-
aða í Reykjavík í hjúkrunarrými.
Ef þessi rými væru komin væru
pláss fyrir aldraða í hjúkrunar-
rými í Reykjavík um 700 talsins -
eða samsvamdi 8 rýmum á hverja
100 íbúa 70 ára og eldri. Það er
mjög sambærilegur fjöldi og talinn
er nauðsynlegur í öðrum þjóðfélög-
um sem vilja kalla sig velferðar-
þjóðfélög, læknarnir nefna Noreg
og Kanada í grein sinni.
Greinilega eru til fjármunir
Og nú skal enginn segja að þetta
sé of dýrt vandamál til að unnt sé
að leysa þaö.
í fyrsta lagi er það siðferðileg
skylda okkar að leysa þetta vanda-
mál.
En í öðru lagi eru til peningar.
Hvað um skatta á fjármagnstekjur?
Hvað um skatta á hæstu tekjur?
Og í þriðja lagi: Hvað um aðra
forgangsröð? Fyrir utan gluggann
á skrifstofu minni í Vonarstræti 12
er verið að vinna í húsi. Þar sýnist
unnið daglangt að náttlangt. Þar
er unnið við að breyta Tiörninni
með stórvirkustu vinnuvélum.Þar
er verið að eyða milljörðum króna.
Þó eru engir biðlistar eftir þessu
húsi - engin sjáanleg þörf kallar á
byggingu þess eða notkun. Húsið
er Ráðhús Reykjavíkur. Húsið
kostar álíka upphæð og kostað
hefði að byggja húsnæði fyrir öll
þessi hjúkrunarpláss fyrir aldraða
sem vantar í Reykjavík.
Það er okkur til skammar, ríkum
niðjum gamals fólks, aö búa eins
hraklega að því og raun ber vitni
um. Og þar er Reykjavík verst -
langverst - þó að hún sé ríkust -
langríkasta sveitarfélagið.
Svavar Gestsson
„Þaö er okkur til skammar, ríkum niðj-
um gamals fólks, aö búa eins hraklega
aö því og raun ber vitni um. Og þar er
Reykjavík verst - langverst..