Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1991, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991.
Iþróttir
Sport-
stúfar
Suðurlandsmótiö í
golfi fór fram á Sel-
svelli við Flúðir um
helgina. Þátttakendur
á mótinu voru 65 frá fjórum félög-
um og urðu úrslit þannig:
Karlar án forgjafar
1. Magnús Kristleifsson, GV 75
2. Stefán Gunnarsson, GOS..77
3. Kjartan Gunnarsson, GOS.79
Karlar með forgjöf
1. Magnús Kristleifsson, GV.67
2. Stefán Gunnarsson, GOS..67
3. Halldór Guðnason, GF....67
Konur án forgjafar
1. Jakobína Guðlaugsd., GV 86
2. HalldóraHalldórsdóttir, GF.107
3. Guðfinna Ólafsdóttir, GOS...108
Konur með forgjöf
1. Jakobína Guðlaugsdóttir, GV73
2. HalldóraHalldórsdótir, GF....79
3. Guðfinna Ólafsdóttir, GOS.80
• í sveitakeppni sigraði Golf-
klúbbur Selfoss, lék á 402 högg-
um. Golíklúbbur Vestmannaeyja
varð í öðru sæti á 421 höggi og
Golfklúbburinn á Hellu í því
þriðja á 464 höggum.
Tennismót á Víkings-
og Þróttarvöllum
• Dagana 27. ágúst til
1. september verður
haldið tennismót TSÍ
og BM Vallá hf. Keppt
verður á Víkings- og Þróttarvöll-
um í öllum fiokkum. Skráning fer
fram á Víkingsvelli og lýkur
föstudaginn 23. ágúst kl. 18.
Háforgjafarmót
á Strandarvelli
• Opið golfmót, háfor-
gjafarmót, forgjöf 20 og
yfir, fer fram á Strand-
arvelh á vegum Golf-
klúbbs Hellu 24. ágúst nk. Leikn-
ar verða 18 holur með og án for-
gjafar. Aukaverðlaun verða fyrir
næstu holu á öllum 5 par 3 braut-
um. Skráning fer fram í golfskála
klukkan 13-20 í síma 98-78208.
Handknattleiksskóli FH
Handknattleiksdeild
FH verður með nám-
skeið fyrir krakka í
íþróttahúsinu í Kapla-
krika. Námskeiðið hefst á laugar-
daginn og stendur í 8 daga. Yngri
krakkar, 6-10 ára, verða frá
klukkan 10.30 til 12.30 og eldri
krakkarnir, 11-14 ára, frá
12-13.30. Kennarar verða þeir
Geir Hallsteinsson og Theodór
Sigurðsson og ætla þeir að leggja
áherslu á leikræna þáttinn \
kennslunni. Þátttökugjald er
krónur 1.500 og fá allir viður-
kenningarskjöl og haldin verður
grillveisla í lokin. Innritun og
greiðsla verður á fyrstu æfing-
unni.
EM í sundi
hófst í Aþenu I gær
Evrópukeppnin í
sundi hófst í Aþenu í
gær meö keppni í
sundknattleik. Keppni
í almennum sundgreinum hefst á
undanrásum í dag. Sjö íslenskir
keppendur er meðal þátttakenda
á mótinu. Ítalía vann Grikki,
11-4, Ungverjar sigruðu Sovétrík-
in, 15-3, Frakkar unnu Þjóðverja,
8-4, og Hollendingar lið Breta,
20-2, í riðlakeppni kvenna í sund-
knattleik í gær.
Opið golfmót í
Ólafsvík á laugardaginn
Opið golfmót verður
haldið í Ólafsvík á
laugardaginn kemur.
Mótið hefst klukkan
9.30 og verða leiknar 18 holur með
og án forgjafar. Gistiheimilið
Höfði býður 15% afslátt á gistingu
og morgunveröi í tengslum við
mótið. Þess má geta að til Ólafs-
víkur er aðeins tæplega þriggja
tíma akstur frá Reykjavík.
Franc Booker
leikur með Val
- skrifaði undir samning við Hlíðarendafélagið í gær
Valsmenn vel settir
með bakverði
Franc Booker, hinn frábæri banda-
ríski körfuknattleiksmaður sem lék
síðari hluta síðasta vetrar með ÍR-
ingum, skrifaði í gærkvöldi undir
samning við Valsmenn og leikur með
þeim í úrvalsdeildinni á komandi
keppnistímabili,-
„Við sendum honum samning sem
hann er búinn að skrifa undir. Það
er frábært að fá Booker í okkar raðir
og hann var búinn að segja við okkur
strax í vor að sig langaði til að spila
með Magnúsi Matthíassyni - sem
hann telur langbesta miðherjann í
íslenska körfuboltanum," sagði
Rögnvaldur Hreiðarsson hjá körfu-
knattleiksdeild Vals í samtali við DV
í gærkvöldi.
Franc Booker er geysilega snjall
bakvörður og síðasta vetur munaði
litlu að honum tækist að halda ÍR í
úrvalsdeildinni upp á eigin spýtur.
Hann kom til liðsins í vonlausri
stöðu en um voriö munaði engu að
ÍR næði að komast hjá falli og Book-
er skoraði hvað eftir annað um eða
yfir 50 stig í leik.
Valsmenn hafa einnig endurheimt
Tómas Holton sem var í Ungveija-
landi síðasta vetur og þá er Svali
Björgvinsson að byrja á ný eftir slæm
meiðsli sem hann varð fyrir í byrjun
síðasta keppnistímabils. Valsmenn
eru því mun betur settir með bak-
verði en í fyrra en þá voru þeir veiki
hlekkurinn í liði þeirra á meðan nóg
var af stórum mönnum í liðinu.
-VS
• Franc Booker leikur listir sínar í
Vals í vetur. DV-r
Eyjamenn af mesta hættusvæðmu:
Leif ur á
toppinn
- gerði bæði mörk ÍBV gegn Val, 2-1
Berglind Ómarsdóttir, DV, Eyjum;
Eyjamenn eru nánast úr-fallhættu
í 1. deildinni eftir 2-1 sigur á Val í
Eyjum í gærkvöldi en Valsmenn sitja
áfram í æsispennandi botnbarátt-
unni. Það var Leifur Geir Hafsteins-
son sem sá um að afgreiða Vals-
menn, hann skoraði bæði mörk ÍBV
og er nú markahæstur í 1. deild með
11 mörk.
Leikurinn var ekki mikið fyrir aug-
að og má þar kenna vallaraðstæðum
um en Hásteinsvöllurinn var renn-
blautur og þungur. Sennilega verður
ekki leikið meira á honum í ár af
• Leifur Geir Hafsteinsson hefur
gert 11 mörk fyrir ÍBV i 1. deild.
þeim sökum.
Leifur skoraði fljótlega fyrir ÍBV
með skoti eftir hornspymu, Hann
var síðan aftur á ferð í byijun síðari
hálfleiks þegar Hlynur Stefánsson
var felldur í vítateig og dæmd víta-
spyrna sem Leifur skoraði úr, 2-0.
Valsmenn minnkuðu muninn þegar
Jón S. Helgason, nýkominn inn á sem
varamaður fyrir Sævar Jónsson, átti
langa sendingu inn í vítateig ÍBV.
Gunnar Már Másson skallaði bolt-
ann á Gunnar Gunnarsson sem skor-
aði af stuttu færi, 2-1. Litlu munaði
að Leifur gerði sitt þriðja mark í lok-
in þegar hann skallaði yfir mark
Vals úr góðu færi.
Eyjamenn sóttu heldur meira í
leiknum og sýndu meiri baráttu, og
sigur þeirra var nokkuð verðskuld-
aður.
„Það var frábært að vinna, liðs-
heildin var góð og baráttan frábær.
Við unnum sanngjarnan sigur og
hefðum átt að skora fleiri mörk, eins
og á móti KR,“ sagði Heimir Hall-
grímsson, fyrirliði IBV.
„Ég er að sjálfsögðu ósáttur við að
tapa og þar með að komast ekki af
hættusvæðinu. Það er mjög erfitt að
spila við þessar aðstæður og völlur-
ipn er hfeint ekki mönnum bjóð-
andi. Það kemur auðvitað niður á
báöum liðum,“ sagði Steinar Adolfs’-
son, fyrirliði Vals.
Hjá ÍBV var liðsheildin jöfn en þó
voru Hlynur Stefánsson, Bergur Ág-
ústsson og Heimir bestir. Hjá Val
voru Steinar, Einar Páll og Arnaldur
Loftsson bestu menn.
• Atli Eövaldsson skorar annað mark sitt og þriðja mark KR með hörkus
Breiðabliks, og félagar hans, Willum Þórsson, Sigurður Víðisson, Valur Valssor
HáH deildin ei
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Víðismenn féllu í gærkvöldi niður
í 2. deild eftir aðeins eins árs dvöld
í þeirri fyrstu, þegar þeir töpuðu,
1-2, fyrir KA í Garðinum. Sigurinn
var KÁ afar dýrmætur og hann kem-
ur hálfri deildinni í alvarlega fall-
hættu.
„Þetta varö að gerast, sigurinn var
mjög þýðingarmikill. Allir leikir sem
- en Víðismenn eru
eftir eru verða mjög erfiðir, eintómir
úrslitaleikir," sagði Ormarr Örlygs-
son, þjálfari og leikmaður KA, í sam-
tali við DV eftir leikinn.
KA náði forystunni eftir 14 mínút-
ur með frekar ódýru marki sem kom
eins og vatnsgusa framan í Víðis-
menn. Örn Viðar Arnarson skoraði
með skoti utan vítateigs í bláhornið
niöri, 0-1. Eftir markið gerðist fátt
fram að leikhléi og leikurinn fór að
Sport'
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi;
Þórður Ólafsson geröi
sér lítið fyrir í keppni
um Haraldarbikarinn
hjá Golfklúbbnum Leyni
fyrir stuttu og fór holu í höggi.
Jafnframt jafnaði Þórður vailar-
met Ömars Arnar Ragnarssonar,
66 högg. Á þessu sama móti fór
annar ungur Skagamaður, Gylfi
Sigurðsson, holu í höggi.
Víkingur og Stjarnan
leika í kvöld
Síöasti leikurinn í 15.
umferð 1. deildar karla á
íslandsmótinu í kr.att-
spyrnu fer fram í kvöld.
£
Þá eigast við Víkingur og Stjarnan
á Víkingsvelli í Stjörnugróf. Leik-
urinn er þýðingarmikill fyrir bæði
liö. Víkingar eru í öðru sæti og
þurfa á öllum þremur stigunum að
halda til að geta veitt Fram ein-
hveija keppni á toppnum og
Stjömumenn eru 1 mikilli fallhættu
ásamt mörgum öðrum liðum. Leik-
urinn hefst klukkan 19.
• í 1. deild kvenna mætast tvö
þeirra liða sem beijast um íslands-
meistaratitilinn, KR og Valur, og
hefst leikurinn á KR-vellinum
klukkan 19.
Firmakeppni hjá
Aftureldingu
Afturelding heldur firmakeppni í
knattspyrnu á grasvellinum á
Tungubökkum í Mosfellsbæ laug-
ardaginn 24. ágúst. Úrslitakeppní
fer fram þriðjudaginn 27. ágúst.
Skráning er hjá Sveingerði í síma
666662 frá klukkan 9-12 og eftír
klukkan 16.
Bika/úrslit Fram
og IA í 2. fiokki
Bikarúrslitaleikurinn í 2. fiokki
karla í knattspyrnu fer fram á
Varmárvelli í Mosfellsbæ í kvöld
og hefst klukkan 18.15. Þar mætast
Fram og ÍA og má búast við hörku-
leik því margir snjallir raeistara-
flokksmenn era í liðunum. Þar má
nefna Arnar og Bjarka Gunnlaugs-
syni og Þórö Guöjónsson hjá ÍA og
þá Ríkharð Daðason, Ásgeir Ás-
geirsson og Pétur Marteinsson hjá
Fram.