Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1992, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 21. MARS 1992.
Útlönd
Úkraínskir þjóöernissinnar kröfðust þess í Kiev í gær að Úkraína segði sig úr Samveldi sjálfstæðra ríkja. Leiðtog-
ar Samveldisins funduðu i borginni um ágreining sinn og varð litt ágengt. Simamynd Reuter
Samveldið er á
barmi hengif lugs
Lítiö þokaöist í samkomulagsátt í
deilu fyrrum Sovétlýðvelda um her-
mál og efnahagsmál á leiðtogafundi
Samveldis sjálfstæöra ríkja í Kiev,
höfuöborg Úkraínu, í gær þrátt fyrir
viövaranir Leoníds Kravtsjúks
Úkraínuforseta um að Samveldið
stæði á barmi hengiflugs.
Úti á götu hrópuöu mótmælendur
ókvæðisorð og kröfðust þess að
Úkraína segöi sig úr Samveldinu.
Þeir lýstu því sem leifum „heims-
veldis hins illa“ sem féll í desember
þegar Sovétríkin voru leyst upp.
Embættismenn sögðu fréttamönn-
um að eftir flögurra klukkustunda
ítalirrannsaka
franskakossa
itölsk stjómvöld ætla að láta
fara fram rannsókn á frönskum
kossum.
Sett hefur verið á fót sérstök
rannsóknamefnd sera á að skera
úr um þaö hvort einhver tengsl
séu á milli eyðnismits og djúpra
tungukossa og hvort vara eigi
fólk við þeim.
Nefndin mun rannsaka kossa-
viövaranir í öðrum löndum áöur
en hún skilar áliti, væntanlega i
maí.
EFTAogTékkó-
slóvakíataka
uppfríverslun
Tékkóslóvakía varð í gær fyrst
fyrrverandi kommúnistarikja í
Austur-Evrópu til að undirrita
fríverslunarsamning við Frí-
verslunarsamtök Evrópu, EFTA.
„Þetta er mikilvægt skref í átt
að fullri þátttöku Tékkóslóvakíu
i víðtæku efnahagssamstarfi inn-
an Evrópu," sagöi Eiður Guðna-
son umhverfisráðherra, starf-
andi formaöur ráöherranefndar
EFTA, að undirskrift lokinni í
Prag.
Jozef Baksay, utanríkisvið-
skiptaráðherra Tékkóslóvakíu,
sagði að samkomulagið væri
mjög þýðingarmikið og bæri vott
um stuðning viö efnahagsumbæt-
ur tékkneskra sflómvalda.
Gert er ráð fyrir að samningur-
inn gangi í gildi 1. júlí og þá munu
aðildarlönd EFTA aflétta öllum
tollum á tékkneskar vörur. Tékk-
ar fá hins vegar tíu ára umþótt-
unartíma til aö gera slikt hið
sama. Reuter
fundahöld hefði umræðum og
ákvörðunum um þrætuepli, eins og
skiptingu Svartahafsflotans, ýmist
verið slegið á frest eða menn hafi
beinlínis forðast þær. Og þótt sam-
komulag hefði náðst um ýmis hern-
aðarleg málefni var óljóst hvort allir
leiðtogarnir mundu skrifa undir.
Varnarmálaráðherra Úkraínu
sagði að land sitt væri ekki með í
sameiginlegum herafla sem gert
væri ráð fyrir í samkomulaginu og
mundi ekki undirrita þaö.
Kravtsjúk gaf tóninn þegar hann
setti fundinn og sagði að Samveldið
hefði ekki megnað að stöðva blóðbað-
ið í Nagorno-Karabakh sem Azerar
og Armenar deila um, né heldur leyst
önnur aðkallandi mál.
Á sama tíma og ráðstefnan hófst
gekk í gildi vopnahlé sem íranar
höfðu milligöngu um í Nagorno-
Karabakh. Afskipti írana undir-
strika getuleysi leiðtoga Samveldis-
ins í að miðla málum í deOunni.
Cyrus Vance, sérlegur sáttasemjari
Sameinuðu þjóðanna, kom til Nag-
orno-Karabakh í gær í brynvörðum
bíl. Þegar hann hafði farið í skoðun-
arferð um Stepanakert, höfuðborg
héraðsins, sagði hann að ekki yrði
auðvelt að koma á friði. Reuter
Hertogaynjan af Jórvík og dóttir hennar, Beatrice prinsessa, yfirgefa heim-
ili fjölskyldunnar í Sunningdale. Símamynd Reuter
Konungshöllin biður
Fergie afsökunar
Blaðafulltrúi Elísabetar Breta- þar sé svolítil fyrirlitning í bland.
drottningar, Charles Anson, hefur Slúðurblöð meginlandsins hafa þó
beðið hertogaynjuna af Jórvík afsök-
unar vegna orða sem hann lét falla
um hana við blaðamenn í Bucking-
hamhöll á fimmtudag. Þar veittist
hann harkalega að Fergie og gerði
það ljóst að hún væri talin ábyrg fyr-
ir því að hjónabandi hennar og
Andrews prins væri lokið.
Tónninn á fundinum með blaða-
mönnum við hirðina varð til þess að
flölmiðlar voru óvenju hliðhollir
hertogayrflunni í umflöllun sinni um
skilnað hennar og Andrews prins.
„Ég harma það mjög að flölmiðlar
hafi túlkað það sem ég sagði sem last
um hertogaynjuna af Jórvík. Ég hef
beðiö hana persónulega afsökunar.
Ég hef einnig beðið drottninguna af-
sökunar," sagði í yfirlýsingu frá An-
son.
Evrópskir nggrannar Breta fylgjast
með skilnaði hertogahjónanna af
miklum áhuga og ekki laust við að
ekki látið sitt eftir liggja og segja fra
skilnaðinum með risafyrirsögnum.
Hið víðlesna blað France-Soir í
Frakklandi lagði hálfa forsíðu sína á
fimmtudag undir mynd af Fergie. Og
í fyrirsögn sagði að Sara hefði ekki
þolaö lengur við.
Eins og í Bretlandi tóku nokkur
slúðurblaðanna þó upp hanskann
fyrir hertogaynjuna og bentu á
stormasamt samband hennar við
konungsflölskylduna.
„Hertogaynjan er þreytt á þessari
leiðinlegu ensku' konungsflöl-
skyldu," sagði í fyrsögn Ekstra-
bladed í Kaupmannahöfn.
Paul Theodoulou, dálkahöfundur
blaðsins Cyprus Mail á Kýpur var
harðorður í garð drottningarinnar
og konungsflölskyldunnar allrar og
komst að þeirri niðurstöðu að kon-
ungdæmið á Englandi væri tíma-
Skekkja. Reuter
Noregur skatta-
paradísfyrir
útgerðarfélög
Eftir nýlegar skattabreytingar,
sem gerðar voru í Noregi, er land-
ið orðið að skattaparadís fyrir
alþjóðleg útgerðarfélög, segir í
siglingablaðinu TradeWinds. En
að sögn skattasérfræðingsins
Einars Brasks hafa útgerðar-
menn enn ekki áttað sig á því.
Brask heldur því fram að nýju
reglurnar, sem emi eru ekki
gengnar í gildi, geri þaö að verk-
um að norskir og erlendir útgerð-
armenn geti gert út skip í samein-
ingu frá Noregi án þess að borga
nokkra skatta.
Hann tekur sem dæmi Norð-
mann og útlending sem skrá fyr-
irtæki í landi þar sem skattar eru
lágir. Ef Norðmaðurinn á 34 pró-
sent en útlendingurinn 66 prósent
getur fyrirtækið gert út skip frá
skrifstofum í Noregi og sloppið
við skatta. ntb
DV
Fer Texasmilli
fram gegn Bush
og Clinton?
Svo kann að fara að George Bush
og Bill Clinton fái óvæntan keppi-
naut í forsetakosningunum í haust,
nefnilega margmilljónarann Ross
Perot frá Texas.
Perot hefur ekki enn lýst því yfir
að hann ætli að fara fram sem óháð-
ur frambjóðandi en eftir að Paul
Tsongas ákvað að draga sig í hlé
hafa líkumar á því aukist.
Upphaf alls þessa má rekja til við-
tals við Perot á CNN fyrir nokkru
þar sem hann gaf til kynna að hann
hefði áhuga á framboði. Síðan þá
hefur síminn hjá honum ekki þagnað
og þúsundir manna hafa hvatt hann
til að bjóða sig fram.
Möguleikar Perots byggjast á því
að kjósendur vilji hvorki fá Bush né
Clinton í Hvíta húsið og að sögn er
óttinn við millann mestur í herbúð-
um forsetans. ntb
Peningainarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN ÓVERÐTRYGGÐ
Sparisjóðsbækur óbundnar 1-2 Landsbanki
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 1,25-3 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 2,25-4 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir- 0,5 Allir
Sértékkareikningar 1-2 Landsbanki
vísitölubundnir reikningar
6 mánaða uppsögn 2,75-3 Landsbanki
1 5-24 mánaða 6,75-7,25 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5-5,5 Allir nema Islb.
Gengisbundnir reikningar í SDR 6-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsb.Jslb.
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3-3,5 Landsbanki
Óverðtryggð kjör, hreyfðir 4,5-5,25 Landsbanki
sérstakarverðbætur (innantímabils)
Vísitölubundnir reikningar 1,75-3 Landsb.
Gengisbundir reikningar 1,75-3 Landsb.
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6-6,5 Búnaðarbanki
Óverðtryggð kjör 6-6,5 Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 2,75-3,0 Allir nema Islb.
Sterlingspund 8,25-8,7 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7,5-8,2 Sparisjóðirnir
Danskar krónur 8,0-8,4 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
OTLÁN óverðtryggð **
Almennir víxlar (forvextir) 12,25-13,75 Búnaðarbanki
Viöskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi
Almenn skuldabréf B-flokkur 13-14,25 Búnaðarbanki
Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir.
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 1 5-1 5,75 Islb.
ÚTLÁNVERÐTRYGGÐ
Almenn skuldabréf B-flokkur 9,75-10 Búnb.,Sparisj.
AFURÐALÁN
Islenskar krónur 12,5-14,25 islb.
SDR 8,25-8,75 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,0-6,75 Sparisjóðir
Sterlingspund 11,9-1 2,75 Sparisjóðir
Þýsk mörk 11,25-11,5 Búnðarbanki
Húsnœðislán 4,9
Lifeyrissjóðsián 6 9
Dráftarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf mars 14,3
Verðtryggð lán mars 10,0
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala febrúar 31 98 stig
Lánskjaravísitala mars 31 98 stig
Byggingavísitala mars 598 stig
Byggingavísitala mars 187,1 stig
Framfærsluvísitala mars 1 60,6 stig'
Húsaleiguvísitala 1,1% lækkun 1. janúar
VERÐ8RÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF
Sölugengl bréfa verðbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfn un:
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,135 Sjóvá-Almennar hf. 5,05 5,65
Einingabréf 2 3,260 Ármannsfell hf. 1,90 2,1 5
Einingabréf 3 4,030 Eimskip 4,77 5,14
Skammtímabréf 2,041 Flugleiðir 1,90 2,10
Kjarabréf 5,770 Hampiðjan 1,30 1,63
Markbréf 3,103 Haraldur Böðvarsson 2,85 3 10
Tekjubréf 2,143 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 1J0
Skyndibréf 1,784 Hlutabréfasjóðurinn 1,60 1,68
Sjóðsbréf 1 2,941 fslandsbanki hf. 1,61 1,74
Sjóðsbréf 2 1,925 Eignfél. Alþýðub. 1,58 1,71
Sjóðsbréf 3 2,031 Eignfél. Iðnaðarb. 2,12 2,29
Sjóðsbréf 4 1,735 Eignfél. Verslb. 1,41 1,53
Sjóðsbréf 5 1,222 Grandi hf. 2,60 2,80
Vaxtarbréf 2,0722 Olíufélagið hf. 4,40 4,90
Valbréf 1,9422 Olís 1,78 2,00
Islandsbréf 1,291 Skeljungur hf. 4,80 5Í45
Fjórðungsbréf 1,1 52 ' Skagstrendingur hf. 4,65 5,05
Þingbréf 1,287 Sæplast 3,24 3,44
Öndvegisbréf 1,267 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09
Sýslubréf 1,312 Otgerðarfélag Ak. 4,25 4,60
Reiðubréf 1,245 Fjárfestingarfélagið 1,18 1,35
Launabréf 1,026 Almenni hlutabréfasj. . 1,10 1,15
Heimsbréf 1,164 Auðlindarbréf 1,04 1,09
Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 3,50
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
K = Kaupþing, V = VlB, L= Landsbréf, F= Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam-
vinnubanka
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum.