Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1992, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 21. MARS 1992.
11
Myndasöguhetjan Modesty:
Fæddist í seinni
i
Dag einn, í 45 gráðu hita, voru
O’Donnel og félagar að fá sér að eta.
Þeir áðu undir steini við tæra berg-
vatnsá. Þegar þeir voru að hita vatn
i teið sitt komu þeir auga á litla telpu
rétt hjá. Hún virtist 11-12 ára. Hún
var brúnleit á hörund, með dökkt hár
sem bundið var í tagl. Hún var klædd
í eitthvað sem líktist kjól en voru í
raun larfar sem héngu á henni. Hún
hélt á samanvöðluðu teppi eða poka
sem hafði að öllum’ líkindum að
geyma allar eigur hennar. Hún var
berfætt og stoppaði þegar hún kom
auga á hermennina.
Hún settist og fór að maula eitthvað
úr malnum. O’Donnel ætlaði að færa
henni mat á disk og tebolla. Þegar
hann nálgaðist hana spratt hún
snöggt á fætur og bjóst til varnar
með bambusstaf sem hún hafði með-
ferðis. O’Donnel setti þá diskinn og
bollann á stein og gerði henni skilj-
anlegt með handahreyfingum aö hún
mætti eiga matinn. Hún nálgaðist
matinn hægt og varfæmislega en
fyrr en varði var hún farin að háma
hann í sig. Að því loknu lagðist hún
í skugga og hvildist.
Þegar telpan bjóst til ferðar spurði
hún með handahreyfingum hvort
hún mætti eiga diskinn. Það var í
lagi. Hún tók saman foggur sínar og
gekk sem leið lá niður með ánni og
hvarf án þess að hta einu sinni til
baka.
„Ég vissi ekkert um íjölskyldu
þessarar stúlku eða fortíð hennar.
Hún var alein á þessum hættuslóð-
um. Þjóðverjarnir voru um allt en
hún var alls óhrædd. Hún virtist full
af einhverjum innri styrk og gekk
burt hnarreist eins og prinsessar“
segir O’Donnell um minningar sínar.
20 árum seinna var O’Donnel beð-
inn um að gera myndaseríu fyrir
bresku Express-blöðin. Telpan í eyði-
mörkinni kom strax upp í hugann
og Modesty Blaise var til. Hann gerði
sögu um telpuna í eyðimörkinni, um
það sem á daga hennar dreif eftir að
hún kvaddi herflokk O’Donnels.
Hún rannsakaði þá hátt og lágt um
stund og komst síðan að því að henni
stafaði ekki ógn af þeim. Telpan gekk
niður að ánni, þvoði larfana og lagði
þá til þerris. Því næst þvoði hún
sjálfri sér. O’Donnel bað menn sína
að gæta velsæmis og glápa ekki mik-
ið á hana á meðan.
ipp i þig
ir þú
Jgheld
ég gangi heim"
Eftir einn -ei aki neinn
Myndasöguhetjan Modesty Blaise
hefur átt fasta aðdáendur meðal les-
enda DV, þar áður Vísis, um margra
ára skeið. Myndasagan um stúlkuna
Modesty og ævintýri hennar hófu að
birtast í breskum dagblöðum árið
1962. Höfundur hennar, Peter
O’Donnel, var á ferð á myndasögu-
messu í Svíþjóð fyrr í vetur og við
það tækifæri sagði hann eilítið frá
því hvernig hugmyndin að Modesty
Blaise varð til. Við það tækifæri lýsti
hann reyndar yfir enn og aftur að
hann væri mjög ósáttur við kvik-
myndina sm gerð var etir sögunum
um Modesty Blaise. Sú Modesty sem
þar sæist ætti ekkert skylt við Mod-
sesty myndasagna DV.
O’Donnel starfaði sem loftskeyta-
maður með breska hernum í seinni
heimsstyrjöldinni. Árið 1942 var lítill
herflokkur sem O’Donnel tilheyrði
staddur í Kákasus. Þýskar hersveitir
sóttu stíft fram og ætluðu sér að ná
yfirráðum yfir olíulindunum í
Kákasus. Mikið var um hópa flótta-
manna á ferð í steikjandi hitanum í
eyðimörkinni og töluverð ringulreiö
ríkjandi.
O’Donnelssegistafogtilhugsaum „Ég vona bara að hún hafi öðlast
hvað orðið hafi um telpuna litlu, líf í samræmi við það hugrekki og
hvort hún sé á lífi í dag og hvers lags þá dirfsku sem hún sýndi í eyðimörk-
lífi hún lifi. inni forðum.“ -hlh Myndasagan um Modesty Blaise birtist meðal margra annarra i DV.
ÞAÐ ER VISSARA
AÐ SPENNA SIG VEL NIÐUR
ÁÐUR EN FLETT ER LENGRA...
heimsstyrj öldinni