Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1992, Side 7
LAUGARDAGUR 21. MARS 1992.
7
Fréttir
Bama- og imglingageðdeild Landspítalans:
Deildinni lokað
í þrjá mánuði
Bama- og unglingageðdeild Land-
spítalans verður lokað í júní, júlí og
ágúst. Á deildinni dvelja nú sex börn.
Eitt þeirra er ungur drengur sem
þarf á lengri meðferð að halda.
Að sögn forsvarsmanna deildar-
innar búa auk þess tvö þessara sex
barna við erfiðar heimilisaðstæður
en þau verða samt sem áður að fara
tíl síns heima þar sem ekki er hægt
að finna þeim annan samastað.
Fjögur börn bíða nú meðferðar á
deildinni en ekki verður hægt að
veita þeim viðeigandi læknishjálp
fyrr en í haust vegna lokunarinnar.
„Lokunin kemur harðast niður á
börnunum sem eru á biðlista. Við
höfum oft útskrifað börn á vorin og
tekið þau aftur inn á haustin. Sumar-
ið höfum við notað til að taka böm
inn til rannsókna því það getur verið
erfitt að leggja þau inn á meðan þau
eru í skólanum. En í sumar munum
við ekki geta sinnt þessari þjón-
ustu,“ segir HaUa Þorbjömsdóttir,
læknir á barna- og unglingageðdeild
Landspítalans.
„Það var lokað á unghngageðdeild-
inni í fyrra og það reyndist mjög illa
því að það tók langan tíma að koma
starfsemi deildarinnar í fyrra horf
eftir að hún var opnuð á nýjan leik.
Það er því mjög óheppilegt að loka
svona lengi.“
Að sögn Höllu hefur starfsfólk
deildarinnar mótmælt lokuninni við
heilbrigðisráðherra en talað fyrir
daufum eyrum. -J.Mar
Kaupfélag Svalbarðseyrar:
Bændurnir kraf ðir
um 60 milljónir
Gylfi Krisljáiissan, DV, Akureyii:
„Nú á að fara að ganga að okkur,
annað vil ég ekki segja um málið á
þessu stigi,“ segir einn fjögurra
bænda sem á sínum tíma gengust í
fjárhagslegar ábyrgðir fyrir Kaupfé-
lag Svalbarðseyrar í Eyjafirði en
Kaupfélagið varð síðar gjaldþrota.
Þetta mál hefur árum saman verið
að velkjast í kerflnu og einn hluti
þess er m.a. til meðferðar fyrir
Hæstarétti. Heildarupphæðin sem
bændunum fjórum er gert að greiða
íslandsbanka sem á kröfurnar á þá,
nemur um 60 milljónum króna.
A bíla- og búvélasýningu okkar í Borgarnesi eru nokkrar
gerðir BTB yfírbygginga og hinar þekktu ZEPRO vörulyftur
á MAN og MERCEDES BENZ flutningabílum.
jinn 21 .mars kl. 13.00 -17.00
og~sunnudaginn 22.mars kl. 10.00 -17.00 í Brákarey.
Peugeot 106 ber höfundum sínum fagurt vitni,
listasmiðunum sem lögðu alla hæfileika sína,
metnað og hugvit í að gera þennan glæsilega
bíl sem fullkomnastan.
Hnitmiðuð hönnun gerir Peugeot 106
lipran, lifandi og rúmgóðan borgarbíl.
íslendingar gera þá kröfu til bíla að þeir standist
erfiða prófraun á misjöfnum vegum. Meistara-
smiðir Peugeot höfðu að leiðarljósi að finna
sem næst fullkomið samræmi milli stærðar
hans og þyngdar og þess hversu kraftmikill
bíllinn er. Niðurstaðan er sú að Peugeot 106
hefur reynst afbragðs vel úti á vegum og með
eindæmum sparneytinn. Peugeot 106 er ekki
stór bíll, en hann hefur marga stóra kosti.
Verð frá 672.500 kr.
JÖFUR
NYBÝLAVEGI 2 . SÍMI 42600