Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1992, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 21. MARS 1992.
Skák
DV
Byrjun Hafnarborg-
armótsins lofar góðu
Af fyrstu umferöum alþjóðlega
skákmótsins í Hafnarfirði að dæma
virðist baráttan ætla að verða síst
minni en á Apple-mótinu á dögun-
um. Ljóst er að erlendu keppend-
urnir munu ekki sækja gull í greip-
ar íslendinga sem hafa byijað vel.
Þröstur ÞórhaUsson og Hannes
Hlífar Stefánsson eiga raunhæfa
möguleika á áfanga að stórmeist-
aratitli og þá vakti sigur Hafnfirð-
ingsins Björns Freys Bjömssonar
á enska alþjóðameistaranum Jon-
athan Levitt í þriðju umferð mikla
athygh
Meðalstig mótsins eru heldur
lægri en á Apple-mótinu en áUta-
mál er hvort mótið nær 8. styrk-
leikaflokki FIDE. Meðalstigin eru
Umsjón:
Jón L. Árnason
2425,42 en þyrftu að vera 2426 til
að ná 8. flokki. Samkvæmt 8. styrk-
leikaflokki þarf 8 vinninga fll að
ná stórmeistaraáfanga en 6 vinn-
inga í áfanga að aiþjóðlegum meist-
aratitU. Teljist mótið einungis tíl
7. flokks þarf hálfum vinningi
meira tíl hvors áfanga. Þegar svo
mjótt er á munum hefur nefnd sú
á vegum FIDE, sem hefur með titU-
umsóknir að gera, gjarnan taUð
gott og gUt ef einhver nær áfanga
miöað við 8. styrkleikaflokk - að
því tílskUdu að hinir áfangamir
séu yfir mörkum.
Englendingamir Jonathan Le-
vitt, James HoweU og Stuart
Conquest tefla í Hafnarborg en sá
síðastnefndi var einnig meðal
keppenda á Apple-mótinu. Þar
gerði hann ekkert jafntefli í eUefu
skákum og í Hafnarfirði er hann
enn við sama heygarðshomið!
Sá erlendu keppendanna, sem
mesta athygU hefur vakið til þessa
fyrir fmmlega og skemmtílega tafl-
mennsku, er skoski alþjóðameist-
arinn Poul Motwani. Hann er 29
ára gamaU og varð heimsmeistari
sveina 1978, ári á eftir þeim er þetta
ritar. Raunar benti einn áhorfenda
á það að þrír fyrrverandi heims-
meistarar væm meðal keppenda í
Hafnarborg - Hannes Hlífar náði
titlinum 1987.
Motwani er þrefaldur skoskur
meistari, hefur náð tveimur stór-
meistaraáföngum á ólympíumót-
um - í Dubai 1986 og Þessalóniku
1988 - í bæði skiptin án þess að tapa
skák. Hann er kennari en ákvað
að helga sig skákinni fyrir tveimur
árum í þeirri von að krækja sér í
stórmeistaratitU. Titillinn hefur
enn látið bíða eftir sér en hefur oft
verið innan seiUngar.
Skák Motwanis við Björgvin
Jónsson i 3. umferð var afar vel
tefld af hálfu Skotans og raunar
tefldi Björgvin vömina einnig vel
en varð þó að játa sig sigraðan að
lokum. Eftir óvæntar fómir Mot-
wanis í 14. og 15. leik er erfitt að
sjá hvar Björgvin hefði getað bætt
um betur.
Besta skák mótsins tíl þessa:
Hvítt: Poul Motwani
Svart: Björgvin Jónsson
Vínartafl
1. e4 e5 2. Rc3 Rf6 3. g3 d5 4. exd5
Rxd5 5. Bg2 Rxc3 6. bxc3 Bd6 7. Rf3
0-6 8. 0-0 Rd7
Þetta er viðurkennd leikaðferð en
vera má að 8. - Rc6, eða 8. - Bg4 -
sem em virkari leikir - gefi svört-
- Hannes og Þröstur stefna á stórmeistaraáfanga
Enski stórmeistarinn Stuart Conquest gerði ekkert jafntefli á Apple-mótinu á dögunum og er enn við sama heygarðshornið á alþjóðamótinu í
Hafnarfirði. DV-mynd GVA
um meiri von um tafljöfnun.
9. Hel!?
Ef strax 9. d4 exd4 10. cxd4 Rb6
náði svartur góðu tafh í skák Short
og Nunn fyrir nokkrum árum.
Leikur Motwanis er skynsamlegur.
Hrókurinn stendur vel á e-línunni
og svartur á engan nýtilegan bið-
leik.
9. - c6 10. d4 exd4 11. cxd4 Rb6?!
Virðist rökrétt aö reyna að nýta
sér vefluna á c4 en nú er kóngs-
vængurinn óvarinn. Stinga má upp
á 11. - Rf6!?, því að textaleikurinn
virðist undirrótin að erfiðleikum
svarts.
12. Dd3 h6
Ef 12. - Be7, til að hindra 13. Rg5,
ætlaði Motwani að leika 13. Hxe7!
Dxe7 14. Ba3 Dd8 15. BxfB Dxf8 16.
Rg5 með góðu tafli á hvítt.
13. c4 Be6
Hvað annað? Ef t.d. 13. - Df6 14.
c5! Bxc515. dxc5 Dxal 16. cxb6 með
yfirburðum á hvítt.
14. Hxe6! fxe6 15. Bxh6!
Tveir þmmuleikir! Hvítur fær
biskup og peð fyrir hrókinn og
mjög sterka stöðu. Seinni fómina
má ekki þiggja. Ef 15. - gxh6 16.
Dg6+ Kh8 17. Dxh6+ Kg8 18. Bh3!
með banvænum hótunum.
15. - Hxf3!
Björgvin finnur bestu vörnina.
Aðrir leikir duga skammt. T.d. 15.
- Be7 16. Dg6 Bf6 17. Rg5 og óverj-
andi mát. Eða 15. - Df6 16. Bg5 og
c4-c5 vofir yfir.
16. Bxf3 DfB 17. Bd2 Hf8 18. Bg2!
Dxf2+ 19. Khl c5
Ef 19. - Rxc4 20. Dxc4 Dxd2 21.
Dxe6+ og síðan feUur biskupinn á
d6 - aUt smeUur saman.
20. Be3 Df6 21. Hel! cxd4 22. Bxd4
e5 23. Be3 De7
ABCDEFGH
24. Ddl!!
LítUl en magnaður drottningar-
leikur. Hótunin er 25. Bxb6 axb6
26. Bd5+ Kh7 27. Dh5 mát. Engu
breytir 24. - Bc5 25. Bd5+ og 24. -
g6 25. Dg4 er einnig glataö.
24. - Bb4 25. c5! Bxel 26. cxb6 e4
Eftir 26. - Hd8 27. Bd5 + KfB hafði
Skotinn faUegan leik í huga, 28.
Bc5!! Dxc5 29. DÍ3+ Ke7 30. Df7+
Kd6 31. De6 mát!
27. bxa7 Db4 28. Dd5+ Kh8 29. Bxe4
Da5 30. Dxa5
Og Björgvin gafst upp. Eftir 30. -
Bxa5 31. Bxb7 verður svartur að
láta hrókinn fyrir a-peðið og hvítur
vinnur létt.
Við látum skák Skotans við Helga
Áss í fyrstu umferð einnig fljóta
með. Motwani dustaði þar rykið af
fomri útgáfu kóngsbragðs og kom
Helga þar rækUega á óvart. í 4.
leik(!) leikur Helgi af sér og lendir
í óyfirstíganlegum erfiðleikum.
Hvítt: Poul Motwani
Svart: Helgi Áss Grétarsson
Kóngsbragð.
1. e4 e5 2. Rc3 Rc6 3. f4!? exf4 4.
Rf3d6?
Byijunarafbrigði hvíts hefur ekki
hlotið náð fyrir augum fræði-
manna, því að eftir 4. - g5 er hann
nauðbeygður tíl að fóma manni;
annaðhvort með 5. h4 g4 6. Rg5 h6
7. Rxf7, eða 5. d4 g4 6. Bc4 gxf3 7.
0-0 en það er aUsendist óvíst að
hann hafi nægar bætur. Eftir leik
Helga nær hvitur stöðuyfirburðum
á einfaldan hátt.
5. d4 g5 6. d5! Re5 7. Bb5+ Bd7 8.
Bxd7+ Rxd7
Eða 8. - Kxd7 9. h4! og hvítur á
mun betra tafl.
9. Dd4 f6 10. h4!
Ekki 10. Rxg5? fxg511. Dxh8 Rdf6
og drottningin lokast inni í hom-
inu.
10. - g4 11. Rg5! Rc5 12. Re6 Rxe613.
dxe6 c6 14. Bxf4 De7 15. Dc4 Bh6 16.
Bg3 Dc7 17. 0-0 Be3+ 18. Kh2 0-tM)
19. Hadl a6 20. Dd3 Ba7 21. Bxd6 Dg7
22. e5 Dh6 23. Dg3 f5 24. e7 He8 25.
Hxf5 Rxe7 26. Hf7 De6 27. HfB Dc4
28. b3 Dg8 29. e6 Rg6 30. Ra4 h5
31. Bb8!
Laglegur vinningsleikur. Helgi
gafst upp, því að 31. - Bxb8 32. Rb6
er mát.
Skákmótfyrir
eldri kynslóðina
Nk. miðvikudag, 25. mars, hefst
nýstárlegt skákmót á vegum Tafl-
félags Reykjavíkur, sem ætlað er
„skákmönnum á besta aldri“ - 40
ára og eldri. Teflt verður einu sinni
í viku, á miðvikudagskvöldum frá
kl. 19.30, 7 umferðir eftir Monrad-
kerfi. Mót þetta er nýlunda í starf-
semi Taflfélags Reykjavíkur og er
nánari upplýsingar að fá í síma fé-
lagsins.
Þá er vert að minna á marshrað-
skákmót TR, sem fram fer sunnu-
daginn 29. mars kl. 20. Helmingur
þátttökugjalda (kr. 500 á manri)
rennur í vasa sigurvegarans eh auk
þess verða veitt þrenn verðlaun.
-JLÁ