Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1992, Blaðsíða 10
KLWfliBHA^ttU AMIVUUK1« W»UKJ.UUiH
II 1» \ HOJi «»U \ ITM* nHWMIW
f&isjrrv
ST&jrr
★ 72
DIAMÓND
SKULLS
I @
AMANDA
DONOHOt
k OABHIEL
Privilege protected them
írom everything £ , f
Afbrýðisemi
DIAMOND SKULLS
Útgefandl: Háskólabió.
Lelkstjórl: Nicholas Ðroomfield.
Aðalhlutverk: Amanda Donohue, Gabri-
el Byrne og Michael Hordern.
Bresk, 1990 - sýningartimi 83 min.
Bönnuó börnum innan 16 ára.
Diamond Skulls er virkílega vel
gerö kvikmynd, tæknilega séö, góð-
ar sviðmyndir, oft á tíðum glæsileg
kvikmyndataka og vel klippt, en
hún er einnig ótrúlega leiðinleg
kvikmynd um leiðinlegt fólk.
Gabriel Byme leikur enskan lord
sem er sjúklega afbrýöisamur en
hann á kynþokkafuUa eiginkonu
og sér elskhuga í hverju homi.
Þegar Gabriel er drukkinn kvöld
eitt að aka félögum sínum keyrir
hann yfir unga stúlku og drepur
hana. Félagamir sverja þess eið að
minnast ekki á neitt og hverfa af
slysstað. Einn þeirra fær þó sam-
viskubit og þegar hann fer að gruna
að lordinn hafi keyrt viljandi yfir
stúlkuna, þar sem hann hafi haldið
að hún sé eiginkona hans, getur
hann ekki orða bundist. En getur
hann eitthvað aöhafst gagnvart
peningum og völdum?
Hvergi örlar á lífi í söguþræðin-
um og leikur er einnig allur þving-
aður og meira aö segja dapurlegur
endir snerti mann lítíð.
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992.
Myndbönd
DV-myndbandalistinn
Engar nýjar myndir koma inn á listann þessa víkuna en tvær koma
inn aftur en gera sjáKsagt stuttan stans. í elleíta sætl aðra vikuna i
röð er Fourth Story og á myndínní eru aðalaleikaranir í þeirrl mynd,
Mimi Rogers og Mark Harmon.
1 (2) Freejack
2(5) StoneCold
3 (10) Dead again
4(1) What about Bob?
5 (3) Split Second
6(4) Kuffs
7 (6) Frankie & Johnnie
8 (7) Taking of Beverly Hiils
9 (9) Another You
10 (8) Curiy Sue
11 (11) Fourth Story
12 (14) Double Impact Oscar
13 (*) Book of Love
14 (-) Problem Child
15 (13) Thelma and Louise
★★★
Týnd fortíð
FALSE IDENTITY
Útgefandi: Myndform.
Leikstjóri: James Keach.
Aðalhlutverk: Stacy Keach, Genevieve
Bujold og Veronica Cartwrlght.
Bandar isk, 1990 - sýningartfmi 93 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
í False Identíty leikur Genevieve
Bujold dagskrárgerðarmann sem
fjallar um þekkta einstaklinga. Eitt
sinn þegar hún er á bílskúrssölu
rekur hún augun í oröu sem aðeins
er veitt þeim sem sýna mikiö hug-
rekki. Hún fær áhuga á hver hafi
fengið orðuna og kemst að því að
þaö er bróðir ríkasta mannsins í
bænum. En þegar hún reynir að
grafast fyrir um hvarf hans eru
henni allar dyr lokaðar. Á sama
tíma er Ben Driscoll sleppt úr fang-
elsi en hann man lítið úr fortíð
sinni og ákveður að komast að því
hver hann er í raun og veru.
í False Identity er sögð efnismikil
saga en eins og hún kemur fyrir
sjónir er hún ipjög gloppótt og laus-
ir endar hér og þar. Hef ég grun
um aö upprunalega hafi myndin
verið mun lengri. Þó er margt
ágætlega gert og Stacy Keach er
ávallt traustur þótt oft hafi hann
verið betri.
Persónur í fortíð og nútíð
DEAD AGAIN
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Kenneth Brannagh.
Aóalhlutverk: Kenneth Brannagh, Andy
Garcia, Derek Jacobi og Emma Thomp-
son.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi 103 mín.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
Dead again er önnur kvikmynd
hins unga breska snillings, Kenn-
eth Brannagh, og allt öðruvísi en
fyrsta kvikmynd hans, Henry V,
sem hann gerði eftir klassísku
verki Shakespeares og hlaut frægö
fyrir. Eins og í Henry V leikstýrir
Brannagh og leikur aðalhlutverkiö
í Dead again og kemur örugglega
aðdáendum sínum á óvart því varla
er hægt að þekkja hann sem sama
leikara er túlkaði kónginn svo eft-
irminnilega í Henry V.
Þaö er margt sem gerir Dead
Again aö sérstakri kvikmynd.
Byrjunin er klassískur þrillersögu-
þráöur. Ung stúlka leitar hælis í
kaþólskum drengjaskóla. Hún man
ekki hver hún er eða hvaöan hún
kom. Skólastjórinn fær einkalögg-
una Mike Church til aö komast að
því hver stúlkan er. Þaö ber lítinn
árangur fyrr en hann hittir fornsal-
ann Franklyn Madspn sem býðst
til að dáleiða hana. í dáleiðslunni
fer stúlkan aftur í tímann og fer
óvænt að rifja upp líf hjónanna
Romans og Margaret Strauss sem
voru þekktír listamenn á fimmta
áratugnum. Samband þeirra end-
aði með því að Roman drap eigin-
konu sína og var hann dæmdur til
dauða. Dávaldurinn telur að
Kenneth Brannagh og Emma Thompson eru í tvöföldum hlutverkum i
Dead again.
martraðir stúlkunnar og minnis-
leysi tengist þessum atburði og í
fyrra lífi hafi hún verið Margaret
Strauss.
Kenneth Brannagh og Emma
Thompson leika bæði tvö hlutverk
og komast þau sérlega vel frá sínu
svo er einnig um aðra leikara. Dead
again er fyrst og fremst góð
skemmtun, vel skrifuð og vel leikin
mynd, með sérlega athyglisverðan
söguþráð. Hvort sem menn eru
sannfærðir um að endurholdgun
eigi sér stað eða ekki þá hafa örugg-
lega allir gaman af. -HK
★★
Eiginmaðurhverfur
FOURTH STORY
Útgefandi: Sam-myndbönd.
Leikstjóri: Ivan Passer.
Aóalhlutverk: Mark Harmon, Mimi Ro-
gers og Paul Gleason.
Bandarisk, 1991 - sýningartími 95 mln.
Bönnuð börnum Innan 12 ára.
í Fourth Story leikur Mark
Harmon einkalögguna David Shep-
ard, svalan náunga sem fátt bítur
á. Hann verður þó fyrir miklum
áhrifum frá Valerie McCoughlin
(Mimi Rogers) þegar hún leitar
ásjár hans en eiginmaður hennar
hafði horfið sporlaust morgun einn
að loknum morgunverði.
Shepard er í fyrstu sama sinnis
og lögreglan um að eiginmaðurinn
hafi veriö búinn að fá nóg af eigin-
konunni og byrjað nýtt líf með
nýrri konu en þessi kenning hans
verður fljótt að engu þegar hann
fer í þjóðskrána og uppgötvar að
eiginmaður Valerie hefur aldrei
verið til. Við nánari rannsókn kem-
ur í ljós að hiö rétta nafn eigin-
mannsins er Peter Kilgore og þá
fyrst fær Shepard mikinn áhuga á
að finna manninn af ástæðum sem
ekki verður farið út í nánar hér.
Fourth Story er nokkuð flókinn
og skemmtilegur þriller allt fram
yfir miðja mynd. Þá tekur sögu-
þráðurinn óvænta stefnu og marg-
ar ótrúlegar tilviljanir ráða ferð-
inni og þrátt fyrir spennandi endi
hefur sagan þá tapað mestum
sjarmanum. Mark Harmon og
Mimi Rogers standa sig ágætlega í
hefðbundnum hlutverkum og
hjálpa til að gera Fourth Story að
sæmilegri afþreyingu. -HK
★★72
Á faraldsfæti
DELUSION
Útgefandl: Skifan.
Leikstjóri: Carl Colpaert.
Aðalhlutverk: Jennifer Rubin, Jim
Metzier og Kyle Secon.
Bandarfsk, 1991 -sýningartfml 93 mfn.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
IMikið hefur verið skrifað og rætt
um svokallaðar vegamyndir. Er þá
átt við myndir um fólk á faralds-
fæti, oft fólk með mikinn uppreisn-
aranda 1 sér sem æðir á vit örlag-
anna. Tvær nýlegar og þekktar
kvikmyndir, Thelma and Louise og
Böm náttúmnnar, em ágæt dæmi
um slíkar myndir þótt ólíkar séu
og Delusion fyllir þennan flokk
rækilega því að hún gerist nánast
á þjóðvegum í Bandaríkjunum.
Jim Metzer leikur kaupsýslu-
manninn George sem stolið hefur
miklu fé úr fyrirtæki sínu rétt áður
en það rúllaði. Er hann nú á flótta.
Hann setur stefnuna á Reno á fína
Volvoinum sínum.
Þar sem hann keyrir og hugsar
um allan peningana í skottinu
verður hann vitni að því þegar bfll
ekur út af og hvolfir. Út úr honum
skríöa tvö ungmenni sem biðja um
far með honum stuttan spöl.
George á eftir aö iörast þess aö
hafa tekið þau upp í því nú fyrst
fær hann að kynnast erfiðleikum
og áður en hann veit af er hann í
mikflli lífshættu.
Delusion er ágætlega gerö kvik-
mynd. Hlutverkin í myndinni em
vel skrifuö. Áhorfandinn finnur
aldrei til neinnar meðaumkunar
með persónunum enda eiga þær
það varla skilið og í lokin er manni
nokkuð sama um örlög þeirra. Það
er helst stúlkan sem manni finnst
aö eigi að fá annaö tækifæri í lífinu.
-HK