Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1992, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1992, Page 15
15 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992. «jp •■■■; 3mm\ P II II ■■ 13 J 1 A þessum fyrstu haustdögum eru skólarnir að fyllast á ný af nemendum i leit að menntun og þjálfun sem á að auðvelda þeim að bjarga sér i þjóðfélagi framtíðarinnar. DV-mynd GVA Þegar hjartað slær í Brussel Fyrir þúsundir íslenskra bama og unglinga er áhyggjuleysi margra mánaða sumarleyfis að baki. Á þessum fyrstu haustdögum eru skólamir að fyllast á ný af nemend- um í leit að menntun og þjálfun sem á að auðvelda þeim að bjarga sér í þjóðfélagi framtíöarinnar. í því efni er hlutverk skólanna á næstu ámm í raun og vera tvíþætt. Annars vegar að gera unga fólkið hæft til að mæta á hinu alþjóðlega markaðstorgi - sem mun ná til Is- lands eins og flestra annarra Evr- ópulanda - og keppa þar með góð- um árangri við jafnaldra sína frá öðrum þjóðum; um atvinnu, við- skipti, menntun, rannsóknir, menningarstarf. Hins vegar að rótfesta unga ein- staklinga svo rækilega í hefðum íslenskrar menningar að þeir sveiflist ekki á fullorðinsárum út og suður um úthaf fjölþjóðlegra samskipta eins og reikult þangið. Það era vafalaust skiptar skoðan- ir á því hvemig skólamir eiga að rækja þetta hlutverk sitt - sem verður mikilvægara með hverju árinu. Skólamenn era vissulega ekki hvattir til endumýjunar eða nýhugsunar með þeim samdrætti og niðurskurði sem knúinn er fram ár eftir ár í menntakerflnu á sama tíma og þjóðfélagið þarf að búa sig undir að halda velli og vonandi dafha við gjörbreyttar aðstæður. Erlendir straumar Það er nefnilega mikilvægt að gera sér grein fyrir því að þau böm, sem nú era að hefja skólagöngu, koma sem fulltíða einstaklingar til með að starfa í þjóðfélagi sem verö- ur verulega frábragðið því samfé- lagi sem ríkjandi kynslóð tók í arf fyrir tiltölulega skömmum tíma. íslendingar hafa vissulega færst meira í þjóðbraut erlendra áhrifa en áður var. En í þjóöfélagi fram- tíðarinnar munu erlendir straiun- ar leika um allt. Þar verður ekkert skjól lengur í fjarlægðinni frá meg- inlöndum í austri eða vestri. ísland verður einfaldlega eins og örlítil bláæð sem er beintengd viö blóð- rásarkerfi Evrópubandalagsins. Hjartað mun ekki lengur slá í Reykjavík heldur í Brassel og Bonn og svo auðvitað hjá Bundesbank í Frankfurt. Á þeirri leið er mikilvægasti áfanginn samningurinn um svo- kallað Evrópskt efnahagssvæði (EES) en hann mun væntanlega taka gildi um áramótin. Tengingin við hjartað í Brassel, með þennan samning sem fyrsta risaskrefið, er vilji ráðandi þingmeirihluta sem hefur afgreiðslu málsins í hendi sér. Þessi breyting er því óumflýjan- leg. Margir telja hana einnig hag- kvæma í efnalegu tilliti. Það hlýtur hins vegar aö ráöast af því hvort einstaklingar og fyrir- tæki hér á landi verða í stakk búin til að mæta til leiksins með ein- hveija von um sigur, af og til að minnsta kosti. Margir efast um að svo sé. Á hinu alþjóðlega markaðs- torgi þýðir nefnilega lítið að sýna þá snilldartakta ragls og ráðstjóm- ar sem era á góðri leið með að gera íslendinga fátæka á nýjan leik. Hvað vill þjóðin? Ljóst virðist að ekki verður leitað álits þjóðarinnar á því sérstaklega í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort hún hefur áhuga á þessari breytingu. Kröfunni um að spyrja þjóðina hefur verið vísað frá með þeim smekklegu rökum að landsmenn séu alltof fáfróðir um málið. Sýnir það enn og sannar að grunnt er á forræðishyggj unni, jafnvel hjá þeim stjómmálamönnum sem mest hjala um frelsi og lýðræði. Auðvitað hefur almenningur ekki sett sig inn í smáatriði þessa samnings. En ég þori að fullyrða að það hafa fjölmargir alþingis- menn heldur ekki gert. Hefur þó enginn mér vitanlega gert kröfu til þess að þingmenn fari í þekkingar- próf í EES-fræðunum áður en þeir fá að greiða atkvæði um samning- inn. Allir vita hvers vegna sljómar- liðar era á móti þjóðaratkvæða- greiðslu um beintenginguna við Brassel. Raunverulega ástæðan er óttinn við að landsmenn taki upp á þeim skratta að segja nei. Það er auðvitað sök sér að efna til at- kvæðagreiöslu ef hægt er að ganga út frá hagstæðum úrslitum sem gefnum hlut. En það er einum of langt gengið í þjónustu viö lýðræð- ið að eiga það á hættu að almenn- ingur segi nei við ríkisstjómina. Þessi nýja Evrópa Sjáið bara Dani, segja menn og það má sjá hroll hríslast um þá alla. Forystumenn svo til allra stjóm- málaflokka í Danmörku sameinuð- ust í áróðursherferö sem átti að Laugardags- pistill Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri teija dönsku þjóðinni trú um aö miðstýringarmartröð franska kerf- iskóngsins Delors frá Maastricht væri eftirsóknarvert fagnaðarer- indi um nýja Evrópu. Samt sögðu þeir nei. Þessi þjóð sem margir héldu að kynni ekki að nota það orð í samskiptum við sér fjölmennari ríki. Hvílík slys geta þá ekki hent ís- lendinga sem era alkunnir þver- hausar? Það verður því engin atkvæða- greiðsla. Samningurinn verður samþykktur á Alþingi og tekur gildi um áramótin. íslenska æðin verður beintengd við blóðrásina frá Brassel. Það er því eins gott fyrir framtíð íslensku þjóðarinnar að unga kyn- slóðin hljóti þá menntun og þjálfun sem geri hana hæfa til að nýta sér kosti þessarar beintengingar og veijast áfóllunum. Gamla Evrópa liflr enn Það er alltaf verið að tala um nýja Evrópu eins og íbúar þessa heimshluta hafi skyndilega séð hið eina sanna ljós, frelsast, eða fæðst á ný, eins og sagt er í Ameríku, og verið dýft oní. Mér sýnist nú að sú gamla sé langt í frá dauð. Það fer nefnilega vofa um Evr- ópu, svo vitnað sé til fleygra orða. Vofa haturs, græðgi og mann- vonsku. Og forystumenn þjóðanna era ráðvilltir í stjómarráðum sín- um. ÞeL- tala endalaust en aðhafast ekki. Fyrir þá sem hafa kynnt sér sögu Evrópu á fyrri hluta þessarar ald- ar, og sérstaklega aðdraganda tveggja heimsstyijalda, hljóma fréttir af atburðum og viðbrögðum afar kunnuglega - eins og marg- spiluð plata. Balkanskaginn logar í ófriði - einu sinni enn. Moröingjar og aðrir ódæðismenn fara sínu fram. Það hefur enginn raunverulegan vilja til aö stöðva þá. Hið eina jákvæða i stöðunni er að það virðist Uðin tíð aö vestur- evrópskir ráðamenn látí ófrið á Balkanskaga steypa allri Evrópu í bál og brand. Hvað kann hins vegar að gerast í þeim ríkjum Austur- Evrópu og Ásíu, sem hafa sterk þjóðemisleg eða trúarleg tengsl viö fómarlömb ofbeldis og haturs á Balkanskaga, skal ósagt látið. Þar getur einfaldlega allt gerst. Útlendingahatur En hatriö og ofbeldið er ekki bundið við einhveija evrópska út- kjálka. Hvort tveggja hefur blossað upp með ógnvekjandi hættí í sjálfu stór- veldi meginlandsins, hinu samein- aða Þýskalandi, þar sem útlend- ingahatur fer sem eldur í sinu. „Ungt fólk með hreinar hugsan- ir“ fer enn á ný um landið, ræðst á útlendinga og setur eld að híbýl- um flóttamanna sem lögreglan veitir litla vemd. Og gamlar konur, sem vafalaust muna tímana tvenna, fylgjast með árásarmönn- unum af svölum húsa sinna, klappa þeim lof í lófa og segja með tár í augum við fréttamenn: Það ætti að færa þessum ungu mönnum blóm- vönd í þakklætisskyni. „Deutschland Auslánderfrei!" Það er slagorðið í Rostock og víðar í Þýskalandi um þessar mundir. Því er fylgt eftír með árásum á út- lendinga, íkveikjum og manndráp- um. Meðal almennings virðist í það minnsta þögull stuðningur við þessi ofbeldisverk vera harla út- breiddur. Og ríkisstjómin í Bonn heldur aö sér höndum. Einu við- brögö hennar era aö reyna að ná samkomulagi um að breyta stjóm- arskránni svo auðveldara sé að meina flóttafólki að komast inn í landið. Efasemdir Það er ástæðulaust að hafa glýju í augum þegar litíð er til Evrópu. Þrátt fyrir aukið samstarf á efna- hagssviðinu hefur hún hvorki end- urfæðst né frelsast. Og í ýmsum fjölmennustu ríkjum álfunnar era nú veralegar efa- semdir meðal almennings um hvort fagnaðarerindið frá Maastricht sé rétta leiöin til fram- tíðarinnar. Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunn- ar í Frakklandi síðar í þessum mánuði munu hafa mikil áhrif á framþróunina. Ekki síst ef Frakkar segja nei eins og Danir. Hver sem niðurstaðan verður er augljóst að skoðanir era afar skipt- ar í Evrópu almennt. Efasemdir um aö rétt sé að stíga ný risaskref til evrópsks samstarfs era einfaldlega mjög útbreiddar, ekki bara í Frakk- landi heldur einnig í öörum stærri ríkjum álfunnar. Elias Snæland Jónsson I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.