Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1993, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
3
Fréttir
Topparmr bjoða
hver öðrum í lax
Frétt DV um veiöitúr yfirmanna
Landsbankans I Þverá í Borgar-
firði, sem kostar tvær milljónir,
hefur vakið feiknalega athygli og
hörð viðbrögð í bankanum þar sem
nú fer fram undirskriftasöfnun
meðal starfsmanna þar sem skorað
er á yfirmenn að hætta við ferðina.
Bankaráðsmemi og bankastjórar
fara hins vegar ekki aðeins í einn
veiðitúr sem ríkisbankinn borgar
heldur tvo. Fyrir utan aðrar veiði-
feröir sem þeim kann að vera boðið
í en mörg stærstu fyrirtækin í land-
inu hafa þann siö að bjóða banka-
monnum og
laxveiðar.
stjómmálamönnum i
Bankaráðsmenn og
bankastjórar Landsbankans fara
bæði í Þverá í Borgarfirði og í Viði-
dalsá í Húnavatnssýslu í sumar á
kostnað bankans.
Bankastjórar og bankaráðsmenn
Landsbankans, ásamt gestum, hafa
síðastliðin ár farið einu sinni á
sumri í lax i Þverá og dótturfyrir-
tæki Landsbankans, Landsbréf hf.,
hefur farið síðastliðin þrjú sumur
í Víöidalsá. Venjulega eru fiórir til
fimm útlendingar með í ferð Lands-
bréfa, svo og ýmsir yfirmenn i
Landsbankanum.
Landsbréf býður sem sagt yfir-
mönnum í Landsbankanum í Víði-
dalsá og Landsbankinn býður svo
yfirmönnum Landsbrófa, ásamt
ýmsum öðrum gestum, í Þverá í
Borgarfirði.
„Við bjóðum erlendum viðskipta-
aðilum til laxveiöa og förum í því
skyni eina ferð á ári. Markmiðið
með þessum boðum er aö hagnast
á þeim. Við teljum að það skili sér
i betri samskiptum og fyrirgreiðslu
til okkar og viðskiptavina okkar ef
hægt er að veita þessum erlendu
viðskiptaaðilum eftirsóknarverða
hluti eins og laxveiðar á íslandi
vissulega eru. Þetta er aðferð sem
er alþekkt erlendis í stórviðskipt-
um í einu eða öðru formi,“ segir
Gunnar Helgi Hálfdánarson, for-
stjóri Landsbréfa.
-G. Bender/-Ari
Uno
jno
i;l iíc;
-fyrir norðlœgar slóðir
" 687.000
ITALSKIR BILAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sími (91)677620
Beggja vegna malarfjörunnar, sem prammann rak upp í, eru klappir.
DV-mynd Árni Geir
Pramiriinn náöist á flot:
Mildi að ekki fór verr
Á hádegi 1 gær tókst að ná á flot
malarflutningaprammanum sem rak
upp í fjöru á Skagaströnd.
Tvær gröfur ýttu á prammann og
björgunarbátur Skagstrendinga,
Þórdís, dró hann á flot. Að sögn Vil-
hjálms Skaftasonar, hafnarvarðar á
Skagaströnd, eru skemmdir á
prammanum óverulegur. Einhveijar
suður hafa þó gefið sig og var
pramminn dreginn í slipp á Skaga-
strönd síðdegis í gær.
Vilhjálmur segir að aðeins hafi lið-
ið örfáar mínútur frá því að þeim
barst hjálparkall frá prammanum og
því hafi enginn tími gefist til að
bjarga honum.,Mikil mildi hafi verið
að ekki fór verr því að beggja vegna
við malarfjöruna, sem prammann
rak upp í, séu klappir og í gær hafi
verið mikið brim á þessum slóðum
og pramminn komið á talsverðri ferð
upp í fjöruna.
-PP
Landsbankinn þarf sjálfur aö greiða atvinnuleysisbætur:
Fjöldauppsagnir geta
verið hæpinn sparnaður
- óánægja og óvissa meðal starfsmanna
Engin ákvörðun hefur verið tekin
um hversu margir fá uppsagnarbréf
hjá Landsbankanum en stefnt er að
því að fækka stöðugildum um 130 á
þessu ári. Mikil óánægja og óvissa
er ríkjandi meðal starfsmanna bank-
ans vegna þessa, aö sögn Helgu Jóns-
dóttur, formanns starfsmannafélags-
ins. í bankanum hefur meðal annars
farið fram undirskriftasöfnun til að
skora á æðstu stjómendur bankans
að hætta við fyrirhugaðan laxveiði-
túr í Þverá í sumar sem kostar um
tvær milljónir króna og DV greindi
frá fyrir skemmstu.
Helga segist ekki búast við að upp-
sagnarbréfin kæmu um þessi mán-
aðamót, fyrst henni heföi ekki verið
tilkynnt hvað væntanlegar aðgerðir
fælu í sér. í lögum um opinberar
stofnanir sé ennfremur kveðiö á um
að tilkynna verði verkalýðsfélögum
opinberra starfsmanna með tveggja
mánaða fyrirvara þegar um íjölda-
uppsagnir sé að ræða.
Það mun einnig halda aftur af for-
ráðamönnum Landsbankans að
bankinn verður að borga sjálfur at-
vinnuleysisbætur. í kjarasamning-
um bankamanna er þeim tryggður
sambærilegur réttur og hjá Atvinnu-
leysistryggingasjóði. Bankarnir
greiddu ekki í sjóðinn til skamms
tíma og hafa ekki enn fengið aðgang
aö honum.
-Ari
wmm
Öflug litatölva fyrir þig!
Macintosh Colour Classic er öflug tölva sem
hentar öllum, hvort sem er á heimilinu, í skól-
anum eða á vinnustaðnum. Hún er með 4 Mb
vinnsluminni og 40 Mb harðdisk, Trinitron-
litaskjá með hágæðaupplausn, hnappaborði
og mús og að sjálfsögðu íslenskt stýrikerfi með
handbókum á íslensku. Colour Classic-tölvunni
fylgja ýmis forrit, svo sem ritvinnsluforritið öfl-
uga: MacWrite II og margir skemmtilegir leikir.
Samanburbur á vinnsluhraba
Macintosh Plus og SE
Macintosh Classic
Macintosh LC
Macintosh Colour Classic
Macintosh SE/30
Verðið er óviðjafnanlegt, aðeins 103.579,- kr. eða 98.400 J~ stgr.
Greiðslukjörin eru margvísleg:
Eurocard eða Samkort til 11 mánaða: Jafngreiðslur 10.513,- kr. á mánuði í 11 mánuði.
Visa til 18 mánaða: Að meðaltali 6.490,- kr. Fyrsta greiðsla u.þ.b. 7.000,- kr.
Munafán til 30 mánaða: 25.895,- kr. út og síðan 3.185,- kr. á mánuði í 30 mánuði.
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími: (91) 624800