Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1993, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
Fólk í fréttum
Kjartan Guðbrandsson
Kjartan Guðbrandsson líkamsrækt-
arþjálfari, til heimilis að Furugrund
66, Kópavogi, varð á fóstudags-
kvöldið íslandsmeistari í vaxtar-
rækt í flokki karla yfir níutíu kíló
og í opnum flokki. Þetta kom fram
íDV-fréttígær.
Starfsferill
Kjartan fæddist í Reykjavík 11.10.
1966 og ólst upp í foreldrahúsum,
fyrstu tvö árin í Reykjavík en síðan
víða á landsbyggðinni þar sem faðir
hansvarlæknir.
Kjartan stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla í tvö ár en hefur síðan
stundað þjálfun í almennri líkams-
rækt.
Kjartan stundaði júdó og keppti í
þeirri grein á árunum 1982-85 og
æfði og keppti í hestaíþróttum en
hann vann til verðlauna í bama- og
unglingaflokkum og í kappreiðum.
Hann hefur æft lyftingar frá 1982,
er íslandsmeistari í kraftlyftingum,
nú annað árið í röð og á íslandsmet
í bekkpressu í sínum þyngdarflokki.
Fjölskylda
Unnusta Kjartans er Linda Ein-
arsdóttir, f. 23.7.1969, umsjónar-
maður unghngastarfs í Garðabæ.
Hún er dóttir Einars Sigurðssonar
verkfræðings og Drafnar Guð-
mundsdóttur kennara.
Alsystir Kjartans er Eydís Gréta,
f. 7.2.1970, húsmóðir í Reykjavík,
gift Kjartani Einarssyni verka-
manni og eiga þau eina dóttur auk
þess sem Eydís á son frá því áður.
Hálfbræður Kjartans eru Sveinn
Kragh, f. 14.1.1959, barþjónn í
Reykjavík og á hann einn son; Þor-
stein Kragh, f. 9.5.1961, umb'oös-
maður í Reykjavík, og á hann eina
dóttur.
Foreldrar Kjartans: Guðbrandur
Þórir Kjartansson, f. 22.9.1941,
læknir á Vífilsstöðum, og Lína
Kragh, f. 26.8.1938, d. 16.10.1992,
tannsmiður og kaupkona í Reykja-
vík.
Ætt
Guðbrandur er sonur Kjartans,
flugmanns í Reykjavík, Guðbrands-
sonar, forstjóra ÁTVR, Magnússon-
ar, b. í Vestdal og á Fossi í Seyðis-
firði, Sigurðssonar. Móðir Guð-
brands var Hallfríöur Brandsdóttir.
Móðir Kjartans var Matthildur
Kjartansdótttir, hreppstjóra og org-
anista á Búðum í Staðarsveit, bróð-
ur Jóns, afa Jóns Sólnes alþingis-
manns, fóður Júlíusar, fyrrv. ráð-
herra. Annar bróðir Kjartans var
Guðbrandur, afi Gunnars Guð-
bjartssonar, fyrrv. framkvæmda-
stjóra Framleiðsluráðs landbúnað-
arins. Þriðji bróðir Kjartans var dr.
Jón yngri, þjóðskjalavörður, afi
Loga Guðbrandssonar, forstjóra
Landakotsspítala. Kjartan var son-
ur Þorkels, prófasts á Staðastað,
Eyjólfssonar, prests í Garpsdal,
Gíslasonar, prests á Breiðabólstað,
Ólafssonar, biskups í Skálholti.
Móðir Þorkels var Guðrún Jóns-
dóttir, prests og skálds á Bægisá,
Þorkelssonar. Móðir Kjartans var
Ragnheiður Pálsdóttir í Hörgsdal,
Pálssonar, langafa Guðrúnar, móð-
ur Péturs Sigurgeirssonar biskups.
Eydís er dóttir Hans Víum,
múrara í Reykjavik, Bjarnasonar,
b. í Hruna í Hörgslandi, Ólafssonar.
Móðir Hans Víum var Guðrún
Hansvíumdóttir, b. á Keldunúpi á
Síðu, Jónssonar, b. á Uppsölum í
Landbroti, Pálssonar, b. á Seljalandi
í Fljótshverfi, Eiríkssonar, b. á
Hnappavöllum í Öræfum, Jónsson-
ar. Eiríkur var bróðir Einars, skóla-
meistara í Skálholti, langafa
Guðnýjar Klængsdóttiur, ömmu
Halldórs Laxness. Móðir Guðrúnar
Hansvíumdóttur var Guðrún Magn-
úsdóttir, b. á Hólmi, Jónssonar og
Guðrúnar Gissurardóttur.
Lína Kragh var dóttir Sveins
Kragh, fyrrv. stöðvarstjóra raf-
stöðvarinnar við EUiðaár, bróður
Hans Kragh sem var þekktur knatt-
spyrnumaður á árum áður. Systir
Sveins er Agnes, móðir Hans Kragh,
forstjóra og fyrrv. trommuleikara
með Lúdó sextett og Stefáni. Sveinn
er sonur Hans Kragh, símvirkja af
dönskum ættum. Móðir Sveins var
Kristólína, hárgreiðslumeistari við
Þjóðleikhúsið, Guðmundsdóttir,
verslunarmanns í Reykjavík, Odds-
Kjartan Guðbrandsson.
sonar, b. í Hvammi í Holtum, Guð-
mundssonar. Móðir Kristólínu var
Elin Ámadóttir, b. í Ártúnum,
Magnússonar, b. þar Árnasonar,
prests í Steinsholti Presta-Högna-
sonar.
Móöir Línu er Sigríður Þorsteins-
dóttir, farmanns í Hafnarfirði, frá
Kotströnd í Ölfusi, og Ingibjargar
Ólafsdóttur.
Afmæli
Þorfinna Stefánsdóttir
Þorfinna Stefánsdóttir, starfsstúlka
við elli- og hjúkrunarheimilið Hom-
brekku, Bylgjubyggð 37a Ólafsfirði,
ersextugídag.
Starfsferill
Þorfinna fæddist í Ólafsfirði og
ólst þar upp til tólf ára aldurs. Þá
fluttist hún með fósturforeldrum
sínum til Akureyrar og lauk þar
bamaskóla.
Þorfinna starfaði hjá Skógerð J.S.
Kvaran um tveggja ára skeið og var
í síld á Siglufirði og á Raufarhöfn í
samtals íjögur sumur.
Að þvi loknu fór hún til Reykja-
víkur og réð sig í vist hjá Stefáni
Elíssyni einkabifreiðastjóra og Að-
alheiði Guðmundsdóttur húsmóður
en þar starfaði hún í tæpt ár.
Þá fluttist Þorfinna til systur sinn-
ar á Eskifirði og dvaldi hjá henni í
nokkra mánuði, eða þar til hún réð
sig ráðskonu í Keflavík einn vetur.
Þorfinna starfaði einnig í frystihúsi
í Njarðvíkum í einn vetur en fluttist
áriö 1954 til Ólafsfjarðar þar sem
hún hefur búið síðan.
í Ólafsfirði hefur Þorfinna unnið
alla almenna vinnu en síðasthðin
ellefu ár hefur hún starfað við að-
hlynningu aldraðra á elh- og hjúkr-
unarheimilinu Hombrekku.
Þorfinna hefur einnig verið virk í
félagsmálum. Hún var einn af stofn-
endum Leikfélags Ólafsfjarðar árið
1962 og starfaði með því í nokkur
ár. Hún hefur ennfremur verið virk-
ur félagi í Kvenfélaginu Æskunni í
Ólafsfirði frá tvítugsaldri til dagsins
ídag.
Fjölskylda
Þorfinna giftist 13.10.1956 Ólafi
Víglundssyni, f. 17.7.1927, verka-
manni. Foreldrar hans voru Víg-
lundur Nikulásson kennari og
verkamaður og Sigurlaug Magnús-
dóttir húsmóðir og verkakona. Þau
erubæöilátin.
Þorfinna og Ólafur eiga þrjú böm,
þau em: Guölaug Jörgína, f. 28.1.
1955, húsmóðir í Ólafsfirði, gift
Rögnvaldi Ingólfssyni húsverði í
Tjamarbrekku og eiga þau fjögur
börn; Þröstur, f. 16.2.1958, bifvéla-
virki í Ólafsfirði, kvæntur Brynju
Júhusdóttur verslunarmanni og
eiga þau tvö böm; og Sigurlaug, f.
9.1.1959, verkakona og á hún eina
dóttur.
Þorfinna átti níu systkin en á nú
þijá bræður á lífi ogfjórar systur.
Systkinin em: Gíshna Kristín, hús-
móðir á Grenivik; Kristinn Eiríkur,
nú látinn; Ólafur Steingrímur, sjó-
Myndir með afmælis-
tilkynningum
Við hvetjum þá sem eiga stórafmæli á næstunni til að
senda okkur myndir til birtingar með afmælistilkynn-
ingum blaðsins. Myndimar verða síðan endursendar.
Þeir sem ekki hafa myndir tiltækar geta fengið teknar
af sér myndir í þessu skyni á ritstjóm DV, Þverholti 11.
Ættfræðideild
maður í Ólafsfirði; Guðlaug Krist-
björg, húsmóðir á Eskifirði; Jón-
mundur, verkamaöur í Ólafsfirði;
Sigurjón Þór, dó ungur; Magnús,
rafvirkjameistari í Ölafsfirði; Sigur-
veig, starfsstúlka á bamaheimih,
búsett í Ólafsfirði; og Margrét Sigur-
helga, starfar á sjúkrahúsi Siglu-
fjarðar og býr á Siglufirði.
Foreldrar Þorfinnu voru Stefán
Hafliði Steingrímsson, f. 9.5.1892 d.
19.2.1972, verkamaður í Ólafsfirði
og Jónína Kristín Gísladóttir, f. 24.8.
1895 d. 3.12.1979, húsmóðir. Þau
bjuggu ahan sinn búskap í Ólafs-
firði.
Fósturfaðir Þorfinnu var Jörund-
ur Jpnsson sjómaður en hann er nú
látinn. Fósturmóðir Þorfinnu, og
jafnframt móðursystir hennar, er
Guðlaug Jónína Gísladóttir hús- Þorfinna verður að heiman á af-
móðir sem nú býr í Reykjavík. mælisdaginn.
Til hamingju með afmælið 28. apríl
arhreppi.
Svanfríður Kjartansdóttir,
frá Flateyri,
Hegranesi 34, Garðabæ.
Svanfríður tekur á móti gestum aö
heimili sínu kl. 20 á afmælisdaginn.
Sigfus Jónasson,
Giísbakkavegi 9, Altureyri.
80 ára
Þóra Kristjénsdóttir,
Iitluhhð 2g, Akureyri.
75ára
Þorfinna Stefánsdóttir.
Hallgrímur Jónasson,
Ásgerði 5, Reyöarfirði.
70 ára
Jón Stefánsson,
Hólavegi26, Sauðárkróki.
Jón Vaidimar Sævaldsson,
Álfaskeiði 100, HafnarfirðL
60 ára
Guðbjörg Hannesdóttir,
Skólabraut l, Seltjarnamesí.
50 ára
Jón EarnestHensley,
Njálsgötu 92, Reykjavik.
Ingólfur Guðmundsson,
Laugartúni 19g, Svalbarðsstrand-
40 ára
Árni Aðalbjarnarson,
Engjavegí 10, ísafirði.
Guðmundur Óiafsson,
Stórólfshvoh 2, Hvolsvehi.
Björn F.I. Sigurbjömsson,
Vallarbraut 14, Hvolsvelli.
Einar Ottó Högnason,
Foldahrauni 40a, Vestmannaeyj-
um.
Hrafnhildur Eyþórsdóttir,
Laugarvatni, Mörk, Laugardals-
hreppi.
Sjöfn Ólafsdóttir,
Leirubakka 6, Reykjavík.
Anna Maria Guðmundsdóttir,
Rafnkelsstaðavegi 5, Garði.
Þórunn M. Garðarsdóttir,
Birkihvammi 16, Kópavogi.
Hjálmar Björgólfsson,
Fagralýaha 21, Vopnafirði.
Þorkeh Jóhannsson,
Löngumýri53, Garöabæ.