Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993
Fréttir
Þórarinn Þórarinsson sem fann latneska áletrun á Spönginni á Þingvöllum:
Ekki minna en dags-
verk að gera þetta
„Áletrunin er á sléttri klöpp, rétt
þar sem gengið er.út á Spöngina þar
sem hún er einna mjóst. Hraunyhr-
borðið hefur verið sléttað og síðan
er þessi áletrun ofan á. Þetta eru
þijár línur og letrið er mjög máð. Það
virðist enginn hafa tekið eftir þessu
þó það sé beint undir fótum manna.
Letrið var uppljómað að kvöldi dags
þegar sólin var lágt á lofti. í þeirri
birtu kom það vel fram,“ segir Þórar-
inn Þórarinsson arkitekt sem fann
latneska áletrun á Spönginni á Þing-
völlum.
Þórarinn álítur að áletrunin sé
mjög gömul. Það séu skófir vaxnar
yfir letrið og styðji það þá kenningu.
„Ég veit náttúrlega ekki hversu hratt
svpna klöpp máist.“
Áletrunin er greinilegust í kvöld-
sólinni en Þórarinn fann hana ein-
mitt við þær aðstæður og tók mynd
af henni.
Getgátur
„Ég hef veriö að skoða landnám
Ingólfs sem teygir sig alla leið til
Þingvalla. Síðasta ár hef ég verið að
skoða skipulag Þingvalla. Það vill
svo til að ég var búinn að reikna út
að það væru tengsl milli Spangarinn-
ar og Lögbergs. Ef þetta letur er eitt-
hvað tengt Lögréttunni gömlu þá er
það á stað sem er mjög óaðgengilegur
og hefur trúlega verið lokaður al-
menningi," segir Þórarimi við DV.
Hann bætir því við að þarna sé að
mestu leyti um getgátur að ræða.
Búið er að slétta u.þ.b. hálfan fer-
metra af yfirborði klapparinnar og á
því var letrið greipt í klöppina. „Það
hefur verið mikil vinna og þurft mjög
einbeittan vilja til þess að gera það.
Ég giska á að þetta sé ekki minna en
dagsverk að gera þetta. Sá sem geröi
þetta hefur þurft að vera mjög ein-
beittur og ákveðinn að klappa þama
í klöppina. Mér finnst það eldd benda
til þess aö einhver feröamaður hafi
Selfoss:
Ölvunum
helgina
Töluverö ðlvun var í miðbæ
Selfoss aðfaranótt sunnudags. Að
sögn lögreglu á Selfossi var ölv-
unin þó ekki meiri en gerist yfir
sumartímann þegar íbúar og
ferðafólk er að skemmta sér.
Tveir voru teknir grunaöir um
ölvun við akstur aðfaranótt
sunnudags, annar á tjaldstæðinu
á Þingvöllum og hinn í miðbæ
Selfoss.
Mitóð var af ferðafólki i Árnes-
sýslu um þessa helgi enda stór
sumarbústaðalönd höfuðborg-
arbúa í sýslunni. Átta lögreglu-
menn voru á vakt um nóttina en
svæði lögreglunnar á Selfossi
tekur yfir alla Ámessýslu. -JJ
Bilvelta í Þor-
steinshjalla
Bílvelta varð á veginum í Þor-
steinshjalla milli Patreksflarðar
og Tálknaíjarðar i gærmorgun.
Billinn valt eina veltu ofan við
veginn. Lítils háttar meiösl urðu
á fólki en bfllinn er mikið
skemmdur ef ekki ónýtur.
Að sögn lögreglu fór betur en ó
horföist því hinum megin við
veginn er mjög brött brekka niö-
ur. Gmnur leikur á ölvun. -JJ
Þessa mynd tók Þórarinn Þórarinsson, arkitekt, af latnesku áletruninni sem hann fann á Þingvöllium. Ekki ber
öllum saman um hvað hún eigi að tákna.
lagt svona mikið á sig,“ segir Þórar-
inn.
Frá miðöldum?
„Ég get lítið sagt um áletrunina
ennþá því mér hefur ektó tekist að
ráða hana. Klöppin hefur sennilega
verið sléttuð til þess að rista í hana
þannig að þetta er ektó gert í neinni
fljótfæmi. Það bendir ekkert til þess
að fólk hafi verið að leika sér að því
að rista þetta," segir Guðvarður Már
Gunnlaugsson hjá Stofnun Áma
Magnússonar við blaðamann DV, en
hann hefur skoðað áletmnina.
„Mér virtist hún vera mjög gömul.
Ef áletrunin væri yngri, frá 18. eða
19. öld, þá hefði maður haldið aö hún
væri mitóð skýrari. Sennilega hefði
hennar einnig veriö getið í yngri
heimildum. Svo er einnig sá mögu-
leitó að hún sé það ný að seinni tíma
menn hafi ekki séð neina ástæðu til
að geta hennar í heimildum.
Latneska áletrunin er orðin mjög
máð enda hefur hún veðrast og þús-
undir manna hafa gengið yfir hana,“
segir Guðvarður.
-em
Bjöm Th. Bjömsson telur áletrunlna ekki eldri en 100 ára:
Ekkert annað en nöf n
finnskra ferðamanna
„Þessi fundur breytir ektó íslands-
sögunni eða sögu Þingvalla. Þetta er
ekkert annað en nöfn skandinav-
ískra túrista sem hafa skihð þau eft-
ir á klöppinni. Letrið er alls ekki
eldra en hundrað ára gamalt. Skand-
inavístór túristar vora ektó famir
að koma neitt að ráði til Þingvalla
fyrr en upp úr 1870. Nöfnin á klöpp-
inni em Gulin og Blomkvist sem
bendir til þess að þetta séu sænstór
Finnar," segir Bjöm Th. Björnsson í
samtali við DV en hann brá sér til
Þingvalla til þess að skoöa letrið og
reyna að lesa úr því.
Bjöm segir að fólk hafi ritað nöfn
sín út um allt land og að þetta breyti
ekki íslandssögunni vitund.
„Ég er náttúrlega ektó búinn að
finna þessa menn og ektó er einu
sinni víst að það sé hægt. Þetta er
sennilega frá þeim tíma þegar Spöng-
in var tahn Lögberg. Það var í kring-
um 1870 sem menn fóm að færa Lög-
bergið til. Það skrítna er að menn
skuh ekki hafa fundið þetta fyrr,“
segirBjömTh.Björnsson. -em
Skoðanakönnun um sorpeyðingarstöð á ísafirði:
Meirihlutinn sat heima
„Mér finnast þetta skýr skilaboö
til bæjarstjórnar um að bæjarbúar
em óánægðir með þá kosti sem þeir
fengu að velja um. Það eru fleiri val-
kostir í boði sem bæjarbúar fengu
ektó að segja áht sitt á,“ sagði Kol-
brún Hahdórsdóttir, bæjarfuhtrúi í
minnihluta bæjarstjómar ísafiarðar,
í gær eftir að ljóst var að einungis
13,4% atkvæðisbærra ísfirðinga tóku
þátt í skoðanakönnun um hvort
sorpeyðingarstöð ætti að vera á Suð-
urtanga eða 1 Dagverðardal.
Niöurstaða skoðanakönnunarinn-
ar var á þá leið að 118 vom fylgjandi
sorpeyðingarstöð í Dagverðardal en
68 á Suðurtanga. 126 atkvæðaseðlar
vom auðir eða ógildir og samkvæmt
heimildum DV vom á fjölda þeirra
nefndir aörir staðir fyrir sorpeyðing-
arstöðina en kosið var um.
Úlfar S. Ágústsson, formaður yfir-
kjörstjómar, sagði þaö mjög alvar-
lega niðurstöðu þegar bæjarstjóm
leitaði til bæjarbúa eftir skoðun
þeirra og útkoman væri þessi.
Kristinn Jón Jónsson, einn af full-
trúum meirihlutans í bæjarstjóm,
telur að niöurstaða könnunarinnar
sé ektó marktæk þar sem svo fáir
bæjarbúar mættu á kjörstað og telur
það einungis gefa til kynna hlutleysi
bæjarbúa. -pp
Stuttarfréttir
Tvær stofRbrautir
Frarakvæmdir era hafnar við
tvær stofiibrautir er tengja munu
saman Suðurlandsveg og Vestur-
landsvegannars vegar ogVcstur-
landsveg og Breiðholtsbraut hins
vegar.
Össurihaffnað
Össur Skarphéðinsson, verð-
andi umhverfisráöherraj náði
ekki kosningu í stjórn SÁÁ þegar
12 manns vora kosnir í 36 manna
stjórn. Hlutu ahir aðrir sem
framkvæmdastjórn gerði tihögu
irm kosningu.
Könnun . Sambands íslenskra
lífeyrissjóða á lífeyrissjóöslánum
sýnir að sjóðir tengdir hinu opin-
bera era með ódýrastu lánin.
Nefhd samgönguráðherra legg-
ur til að stofnuð verði íslensk
skipaskrá fyrir kaupskip, felldir
möur eða lækkaðir skattar af far-
mönnum tíl aö bæta samkeppnis-
stöðu íslenskra sjómanna.
Hertir refsidómar
Meö nýlegri reglugerð um
fullnustu refsidóma haía verið
skertir vemlega möguleikar sí-
brotamanna á að hljóta reynslu-
lausn hvaö eftir annað.
Eimskipbýðurbest
Eímskip var með lægsta tilboð-
ið, 230 milljónir, í flutninga fyrir
varnarhðið á Keflavíkurflugvelh.
Samskip var með flutningana
áður.
Framsóknarflokkurinn er
stærsti flokkurinn samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Gallups.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við
sig og Alþýðubandalagið tapar en
Kvennahsti eykur fylgi sitt mest.
Minkur hækkar
Verð á íslenskum minkaskinn-
um hækkaöi um 6% á uppboði
sem stendur yfir í Kaupmanna-
höfn.
Miðstjón Alþýðubandalagsins
féllst ekki á það i gær að banna
skuh framsal veiðikvóta ogvísaði
tillögu þess efnis til þingflokks
eftir harkalegar deilur.
Konurviljasfjðma
Kvennalistakonur telja brýnt
að komast í neestu ritóssfjórn.
Þetta kom fram á vorþingi sam-
takanna nú um helgina.
Um eitt hundaö ungmenni frá
Reykjavík, á aldrinum 17 til 22
ára, eru í vinnu á Þingvöllum í
sumar viö aö endurgera og bæta
göngustíga
Meiri veiði
Ráðherra leggur samkvæmt
frétt Stöövar tvö til meiri veiði á
fiskistofnum en fiskifræðingar
mæla með af fimm tegundum,
þorstó, karfa, grálúða, ufsa og
loðnu.
7000 færri störf
Störfum á íslandi hefur fækkað
um 7000 á sex árum. Atvinnuleysi
veröur að mæta meö launalækk-
unum, segja OECD-menn.
Gömulbein
Fomleifafræöingar grófu upp
bein tveggja manna á Arnamesi
viðDjúpumhelgina. Þau virðast
mjög gömul, hugsanlega úr
heiðnumsið. -Ari