Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993 Fréttir___________________________________________ Slökkvilið vamarliðsins: Vann til verðlauna í brunavörnum Ægir Mar Kárascai, DV, Suöumesjum; Slökkvilið vamarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, sem skipað er íslensk- um starfsmönnum, vann nýlega til mikilla verðlauna í samkeppni milii allra slökkviliða bandaríska flotans og landgönguliðsins um brunavarn- ir. Þetta er þriðja árið í röð sem þeir vinna til þessara verðlauna. Þátttakendur í samkeppninni skipta hundruðum og keppt er um besta viðbúnað og árangur í bruna- vömum mannvirkja í flotastöðvum og á skipsfjöl. Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli annast brunavamir allra fasteigna á varnarsvæðunum, að meðtalinni Flugstöð Leifs Eiríkssonar, svo og allra flugvéla sem leið eiga um flug- völlinn. Auk þess sjá þeir um hreins- un hættulegra efna, fermingu og af- fermingu herflutningaflugvéla, ísvarnir og snjóruðning á öllum at- hafnasvæðum flugvéla á vellinum. Slökkvilið varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli á æfingu. DV-mynd ÆMK. Þokkalegar horf ur með atvinnu unglinga Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirði: Atvinnumálanefnd lét nýlega kanna horfur með atvinnu unglinga á aldrinum 16-20 ára á Ólafsflrði nú í sumar. Könnunin náði til 80 unglinga og svöruöu 73. Af þeim eru 21 þegar í fastri vinnu frá því í vetur, þ.e. era sem sagt komnir út á vinnumarkað- inn. 21 unglingur er skráður í ungl- ingavinnuna og 20 höfðu loforð um vinnu í sumar hjá öðrum atvinnu- rekendum. Þá era alls 11 af þessum 73 sem ekki hafa fengið loforð um vinnu. Könnun á meðal atvinnurekenda var einnig gerð og kom þá í Ijós að þeir ætla aö ráða 33-36 einstaklinga í sumar. Vinna hjá unglingum á Ólafsfirði hófst 3. júní sl. Atvinnuleysistryggingasjóöur hefur samþykkt umsókn Ólafs- fjarðarbæjar um 30 störf en bær- inn sótti reyndar um 36 störf. Sjóðurinn samþykkti 26 störf vegna umhverfismála og 4 til ferðamála. Þessi sarnþykkt bygg- skráning var í Olafsfirði í mai Alls eru 500 milljónir króna í sjóðnum sem sveitarfélög leggja til, þar á meðal Ólafsfjörður, og síðan geta sveitarfélögin sótt um. Tekjuhækkun langtumfram landsmeðaltal Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði: Samband íslenskra sveitarfé- laga hefur gert könnun á stað- greiðslu og launum fyrir fyrstu þrjá mánuði þessa árs og í fyrra. Staðgreiðsiuhluti sveitarfélaga yfir allt iandið lækkaöi um 3,71% fyrstu þrjá mánuöi á þessu ári miðað við fyrstu þrjá mánuði í fyrra. Á sama tímabili hækkaöi staðgreiösluhluti Ólafsfjarðar um 6,53%, þ.e. hækkaði ur 15,4 milfjónum króna í 16,5 milljónir. Þá hefur Samband: íslenskra sveitarfélaga kannað tekjur fólks fyrir sama tímabil. Laun yfir allt landið lækkuðu um 1,98% en á Ólafsfirði hækkuöu þau á sama tímabili um 12,63%. Latmin hækkuðu sem sagt úr 206 milij ón- um króna í 232 mílljónir. ÓDÝRAR PYLSUR EIGA EKKI AÐ KOSTA MIKIÐ Þrátt fyrir gylliboð annarra á ódýrum pylsum eru Búrfellspylsur á sumartilboði langódýrastar. Verðið er aðeins 599 kr./kg, sem er 10% lægra verð en á næstódýrustu pylsunum. Þegar þú færð þér ódýrar pylsur skaltu fá þér Búrfellspylsur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.