Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993 11 Pantið Það er ódýrara ^ " listarnir ókeypis Pöntunarsími 52866 Unnið við byggingu Digraneskirkju. Deilt er um kostnað við kirkjubygging- una. Fréttir Enn deilt í Digranessókn, nú um byggingarkostnað: Ekkert athugavert við byggingarkostnaðinn - segir Magnús Bjamason byggingarstjóri Samkvæmt heimildnm DV ríkir enn óánægja einstakra sóknarbama innan Digranessóknar vegna kirkju- byggingar sem nú stendur yfir í sókninni. Deilumar snúast ekki lengur um staösetningu kirkjunnar heldur er deilt á sóknamefndina vegna ákvörðunar hennar um aö bygging kirkjunnar skyldi ekki boð- in út að öliu leyti og þannig leitað hagstæðustu tilboða í 230 milljóna kirkjubyggingu sem nú er unnið að. Til samanburðar má geta þess að nývígð kirkja í Hjallasókn kostaði rúmlega 100 milljónir. „Ég kýs að tjá mig ekki um þetta mál núna. Það er eins og verið sé að vekja upp einhveijar deilur á ný. Spumingar geta ieitt til deilna og sú er undirrót þessara spurninga," sagði Þorbjörg Daníelsdóttir, for- maöur sóknarnefndar Digranes- sóknar í Kópavogi, í samtab við DV. Þorbjörg neitaði því alfarið að deilt hefði verið um kostnað vegna kirkju- byggingarinnar og að byggingin skyldi ekki boðin út í einu lagi en viðurkenndi þó að emhverjar at- hugasemdir hefðu getað komið fram á fyrrnefndum sóknarnefndarfundi. Magnús Bjamason, byggingar- stjóri Digraneskirkju, sagði í samtab við DV að um það bb 85% fram- kvæmdarinnar væru boðin út og hagstæðasta tbboði tekið í hvem verkþátt. Inni í þeim 15% sem ekki vom boðin út er hönnunarkostnaður með tabnn. Ástæðan fyrir því að kirkjubyggingin hefði ekki verið boð- in út í einu lagi væri aðstæður á markaðnum. í dag væri oft hægt að fá hagstæðari tilboð ef emstakir verkþættir væra boðnir út, að auki hefði hebdarútboð í þessu tbviki ekki verið mögibegt þar sem hönnun kirkjunnar væri ekki að fullu lokið. Aðspurð hvort ekki hefði mátt byggja ódýrari kirkju sagði Þorbjörg að þama væri um fúbbúna, vandaða og stóra byggingu að ræða. Kirkju- byggingin yrði auk þess ekki tekin í notkun í einum áfanga. -PP Laugaland í Holtahreppi: Sundlaug byggð í sumar Jón Þóröarsan, DV, Rangárþingi: Bygging sundlaugar hófst á dögun- um á Laugalandi í Holtrnn og verður hún staðsett við íþrótta- og menning- armiðstöð sem reist var fyrir nokkr- um árum. Gert er ráð fyrir að laugin, sem verður 10x16,67 metrar að stærð og steinsteypt, verði fubbúin í haust ásamt rennibraut, vaðlaug og heitum pottum, en búningsaðstaða fyrir laugina er nú þegar fyrir hendi í menningarmiðstöðinni. Nú er nýlega lokið við að grafa fyr- ir lauginni og fyUa undir hana. Ekki Uggur fyrir hver kostnaður við fram- kvæmdina verður þar sem endanleg útboðslýsing liggur ekki fyrir. Unnið að jarðvegsframkvæmdum við sundlauaina að Laugalandi en verk- taki er Grétar Guðmundsson. DV-mynd JÞ með Flugleiðwn og Eimskip til Hamborgar eða Amsterdam Bíllinn þinn fer með Laxfossi eða Brúarfossi til Hamborgar eða Rotterdam. Þú flýgur með Flugleiðum til Hamborgar eða Amsterdam. Síðan geturðu ekið hvert sem þig lystir í Evrópu og verið allt að heilan mánuð í ógleymanlegu ferðalagi fyrir eitt og sama verðið allan tímann. Verð (flug ogflutningsgjöld): • 46.100 kr. á manninn m.v. 2 fullorðna.* • 30.980 kr. á manninn m.v. 2 fullorðna og 2 börnA Leitaðu nánari upplýsinga og hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.) EIMSKIP FLUGLEIDIR Traustur íslenskurferðafélagi Skattar eru innifaldir í verði. Bókunarfyrirvari er 7 dagar, lágmarksdvöl 6 dagar og hántarksdvöl 1 mánuður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.