Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 36
48
MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993
Veiðivon
Veiðin hefur glæðst
verulega í Þverá
- mjög fáir laxar 1 mörgum veiðiám
Það er langt frá því að byijunin í
laxveiðinni sé nokkuð til að hrópa
húrra fyrir, fáir laxar hafa sést í þeim
veiðiám sem hafa verið opnaðar fyrir
* veiöimönnum. Ami Baldursson,
leigutaki Laxár í Kjós, segir lítið af
iaxi í ánni og veiðimenn, sem voru
við veiðar í Kjarrá fyrir tveimur dög-
um, urðu lítið varir við fisk. Reyndar
var Kjarrá lituð næstum allan tím-
ann en hreinsaði sig síðasta daginn.
í fyrradag fór reyndar að veiðast í
Þverá og í gærkveldi hafði hollið þar
veitt á einum og hálfum degi 20 laxa.
Þverá hefur
gefið 33 laxa
„Þaö eru komnir 33 laxar og hollið,
sem hefur veriö hjá okkur í einn og
hálfan dag, hefur fengið 20 laxa,“
sagði Ólafur Hrútfjörð, kokkur í
-veiðihúsinu við Þverá, í gærkvöldi.
„Ég held að það sé dagaspursmál
hvenær veiðin byijar fyrir alvöru.
Veiðin er öll að koma til í Þverá,
stærsti laxinn á land ennþá er 14,5
pund,“ sagði Ólafur ennfremur.
Veiðin í Kjarrá hefur verið treg síð-
an áin var opnuð, komnir 7 laxar.
Síðasta holl veiddi einn 14 punda lax.
Það eru flugumenn þar efra þessa
dagana.
Flóðastrengur gaf
* þrjá laxa í opnuninni
„Það veiddust 6 laxar, frá 9 til 11
pund,“ sagði Óskar Hrafn Ólafsson,
skipstjóri á Akraborginni, en hann
opnaði Laxá í Leirársveit ásamt fleir-
um í gærmorgun.
„Við fengum þrjá laxa í Flóða-
streng, tvo í Grettisstreng og einn í
Vaðstreng. Laxarnir veiddust allir á
maðk en við misstum tvo. Við sáum
ekki mikið af laxi enda mikið vatn í
ánni. Það er eitthvað af fiski í Lax-
fossi en hann tekur illa,“ sagði Óskar
Hrafn ennfremur.
13laxar hafa
veiðst í Laxá í Kjós
5 „Veiðin gengur rólega eins og er,
það eru komnir 13 laxar og hann er
11 punda sá stærsti,“ sagði Árni
Baldursson í gærkveldi er við spurð-
um um Laxá í Kjós.
„Opnunarhollið veiddi 9 laxa og sjö
Kristján Snæbjörnsson veiddi sjötta laxinn í Kjarrá um helgina og við vor-
um á bakkanum þegar þessi 14 punda fiskur kom á land. Meö Kristjáni
er Ágúst Pétursson. DV-mynd G. Bender
þeirra veiddust á maðk en tveir á
flugu. Það hefur sést lítið af laxi enn-
þá í ánni en við bíðum eftir næstu
straumum," sagði Árni sem hefur
veitt tvo laxa á tímabilinu.
14punda veiddist
í Myrkhyl í Norðurá
„Það eru komnir 60 laxar á land
og hann er 14 pund sá stærsti, hann
veiddist í Myrkhylnum og það var
Jón Hilmarsson sem veiddi hann,“
sagði Guðjón, kokkur í veiðihúsinu
við Norðurá í Borgarfirði, í gær-
kveldi.
„Síðasta holl veiddi yfir 20 laxa en
það eru Laxavinir sem eru að veiða
hérna núna og þeir friða mest lax-
inn,“ sagði Guðjón í lokin.
-G. Bender
TiBcyimingar
broti um líf og starf hollenska listmálar-
ans Van Goghs.
Sýningar Brúðubílsins
Þriðjudagirm 15. júní verður Brúðubíll-
inn í Ljósheimum kl. 10 og Malarási kl. 14.
Vinningshafar í ferðagetraun
Nýrra eftirlætisrétta
Dregið hefur verið í ferðagetraun Nýrra
eflirlætisrétta, matreiðsluklúbbs Vöku-
Helgafells. Vilborg Jóhannsdóttir á Höfn
í Homarfirði hlaut aðalvinninginn, ferð
fyrir tvo til Parísar á vegum Úrvals-
Utsýnar. Að auki voru dregin út nöfn tíu
stofnfélaga sem fá bók að gjöf frá Vöku-
j Helgafelli. Það er listaverkabók í stóru
Sjóvá-Almennar tryggingar
hf. styrkja kvennahlaup ISI
íþróttasamband íslands hefur falið lands-
samtökunum íþróttir fyrir alla (ÍFA)
skipulagningu og yflrumsjón Kvenna-
hlaups 1993 og er það stefna samtakanna
að gera kvennahlaupið að staersta
hlaupaviðburði ársins. Markmiðið með
kvennahlaupinu er sem fyrr að leggja
áherslu á íþróttaiðkun kvenna og holla
lífshætti sem konur öðlast meö aukinni
þátttöku í íþróttum ásamt skemmtilegum
félagsskap og samveru. Sjóvá-Almennar
eru aðalstyrktaraðili kvennahlaupsins í
ár.
Allt í veiðiferðina
BYRJAÐ AÐ BÓKA í HAFNARÁ
OG EYSTRI-RANGA.
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751
Nýr gítarskóli
Gítarinn hf. hefur nýverið stofnað gítar-
skóla sem ætlað er að taka á öllum hlið-
um gítarleiks. Þar verður kennt á raf-
magnsgítar, kassagítar og bassa. Anton
Kröyer, eigandi verslunarinn Gítarsins,
er kennari að mennt og hefúr starfað sem
slíkur um áraskeiö. Magnús Þór Ásgeirs-
son er ungur og efnilegur gítarleikari
sem einnig mun annast kennslu við skól-
ann. Skólinn er til húsa á annarri hæð
að Laugavegi 45 (í sama húsi og verslun
Gítarsins).
Kreppan flutt
Antikverslunin Kreppan hefur flutt
starfsemi sína í rúmbetra húsnæði að
Hverfisgötu 64, Reykjavík. Verslunin
kaupir antikhúsgögn og safnaramuni
innanlands og erlendis og selur. Opið er
mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laug-
ardaga kl. 12-14. Verslunin var áður til
húsa að Austurstræti 8, Reykjavik.
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Frjáls
spilamennska.
Fyrirlestrar
Grieg frá sjónarhóli
nútímatónskálds
Þriðjudaginn 15. júní eru 150 ár liðin frá
fæðingu norska tónskáldsins Edvards
Grieg. í tilefni af þvi heldur heldur Ath
Heimir Sveinsson tónskáld fyrirlestur í
Norræna húsinu. Fyrirlesturinn nefnir
hann: Grieg frá sjónarhóh nútímaskálds.
Hann mun segja frá verkum Griegs, leika
á píanó og spha tóndæmi af hljómplötum.
Fyrirlesturinn er á íslensku og er um 40
min. að lengd. Allir eru velkomnir og er
aögangur ókeypis.
Tóiúeikar
Grieg-tónleikar
í tílefni þess að 150 ár eru hðin frá fæð-
ingu norska tónskáldsins Edvards Grieg
efnir Listasafn Siguijóns Ólafssonar th
sérstakra Grieg-tónleika þriðjudaginn 15.
júni kl. 20.30, sem er afmæhsdagur tón-
skáldsins. Signý Sæmundsdóttir mun
syngja úrval laga efhr tónskáldiö við
píanóundirleik Þóru Fríðu Sæmunds-
dóttur og Hlíf Siguijónsdóttir fiðluleikari
og Kristinn Öm Kristinsson píanóleikari
leika sónötu í c-moU ópus 45 fyrir fiðlu
og píanó.
Námskeið
Námskeið í ung-
barnanuddi
Námskeiðið er ætlað foreldrum ung-
bama á aldrinum 1-10 mán. Ungbama-
nuddið er byggt á aldagamalli indverskri
hefð. Móðirin eða faðirinn nuddar barnið
á sérstakan hátt. Nuddið veitir bömun-
um velhðan bæði líkamlega og tilfmn-
ingalega. Ungbamanudd hefur í mörgum
thvikum reynst hjálpa kveisubömum.
Nýtt námskeið hefst þriðjud. 22. júni og
stendur dagana 24. og 29. júní og 1. júh.
Kennari er Ragnheiður Þormar sem hef-
ur réttindi frá „Intemational Association
of Infant Massage Instmctors". AUar
frekari upplýsingar em veittar í síma
91-41734 eftir kl. 19.
Leiksmiðja - námskeið
í Kramhúsinu 14.-24. júní. Um er að ræða
mjög krefjandi námskeið sem byggist
meðal annars á kenningum Lee Stras-
berg og Stanislavski. Námskeiðið er opið
almenningi. Unnið verður út frá að efla
næmi fyrir: Umhverfi og aðstæðum,
vinnu leikarans, eigin tilfmningum og
ímyndunarafli. Leiðbeinendur em Guð-
mundur Haraldsson (Drama Center Lon-
don) og Þorsteinn Bachmann (Leiklistar-
skóli íslands).
Aukablað
Ferðablað
um innanlandsferðir
Miðvikudaginn 23. júní nk. mun aukablað um
ferðalög innanlands fylgja DV.
Blaðið er hugsað sem nokkurs konar handbók
fyrir ferðalanginn og þar verður fjallað um ýmis-
legt tengt ferðalögum, t.d. hollráð varðandi
veiðiferðir, gönguferðir, tjald- og húsvagna o.fl.
íslandskort (vegakort) í litþar sem merktireru
inn á ailir helstu gistimöguleikar o.fl. Kort með
upplýsingum um golfvelli, auk umQöllunar um
þá möguleika sem þeir bjóða.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa
i þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband
við Sonju Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV,
hið fyrsta í síma 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur aug-
lýsinga er miðvikudagurinn 16. júni.
ATH.i Bréfasimi okkar er 63 27 27.