Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Síða 38
50 MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993 Fólk í fréttum T Guðmundur Ámi Stefánsson Guömundur Arni Stefánsson, bæj- arstjóri í Hafnarfiröi, Stekkjar- hvammi 62, Hafnarfirði, tekur við embætti heilbrigðisráðherra á rík- isráðsfundi á Bessastöðum í dag. Starfsferill Guðmundur Ámi fæddist í Hafn- arfirði 31.10.1955, lauk stúdents- prófi frá Flensborgarskóla 1975 og stundaði nám í stjómmálafræöi við HÍ1978-60. Hann var blaðamaður við Al- þýðublaðið 1975-76, lögreglumaður í Reykjavík 1976-79, blaðamaður við Helgarpóstinn 1979-81, rit- stjómarfulltrúi hjá Alþýðublaðinu 1981-82, ritstjóri þar 1982-85, stund- aði fjölmiðlaráðgjöf1985-86, hafði stundað þáttagerði í útvarp frá 1974, ritstjóri blaðs fangahjálpar- innar Vemdar 1980-85 og bæjar- stjóri í Hafnarfirði frá 1986. Guðmundur Árni sat í æskulýðs- ráði Hafnarfjarðar 1978-82, hefur setið í stjóm fangahjálparinnar Vemdar frá 1980, í flokksstjórn Al- þýðuflokksins frá 1980, í stjórn SUJ á Norðurlöndum 1980-86, bæjar- fuUtrúi í Hafnarfirði frá 1982, í stj óm Sparisj óös Hafnarfj arðar 1982-86, stjómarformaður Bruna- málastofnunar ríkisins frá 1990 og varaþingmaður í Reykjaneskjör- dæmifrál991. Fjölskylda Kona Guðmundar Áma er Jóna Dóra Karlsdóttir, f. 1.1.1956, húsmóð- ir. Hún er dóttir Karls Finnbogason- ar, plötu- og ketilsmiðs, og Ragnhild- ar Jónsdóttur verslunarmanns. Böm Guðmundar Áma og Jónu Dóm: Fannar Karl, f. 14.12.1976, d. 16.2.1985; Brynjar Freyr, f. 14.3. 1980, d. 16.2.1985; Margrét Hildur, f. 12.11.1981; Heimir Snær, f. 13.6. 1984; Fannar Freyr, f. 24.5.1986; Brynjar Ásgeir, f. 22.6.1992. Systkini Guðmundar Árna: Snjó- laug Guðrún, f. 25.5.1951, uppeldis- fulltrúi; Gunnlaugur, f. 17.5.1952, alþingismaður; Ásgeir Gunnar, f. 11.11.1969, háskólanemi. Hálfbróð- ir Guðmundar Árna, samfeðra, er Finnur Torfi, f. 20.3.1947, tónskáld oglögmaður. Foreldrar Guömundar Árna era Stefán Gunnlaugsson, f. 16.12.1925, skrifstofustjóri og fyrrv. bæjar- stjóri í Hafnarfirði, og Margrét Guömundsdóttir, f. 18.7.1927, dóm- ritari. Ætt Stefán er bróðir Árna, fyrrv. bæj- arfulltrúa í Hafnarfirði. Stefán er sonur Gunnlaugs, kaupmanns í Hafnarfirði, bróður Ásgeirs, fram- kvæmdastjóra BÚH. Gunnlaugur var sonur Stefáns, trésmiðs í Hafn- arfirði, Sigurðssonar, bróður Sig- urðar, afa Salóme Þorkelsdóttur aiþingisforseta. Móðir Stefáns var Þorbjörg Jóelsdóttir, b. í Saurbæ, bróður Sigurlaugar, langömmu Kristínar, ömmu Friðriks Sophus- sonar fjármálaráöherra. Móðir Gunnlaugs var Sólveig Gunnlaugs- dóttir. Móðir Stefáns var Spj ólaug Áma- dóttir, prófasts í Görðum, Björns- sonar, bróður Sigurðar bruna- málastjóra, fóður Siguijóns, fyrrv. lögreglustjóra í Reykjavík og afa Magnúsar Magnússonar hjá BBC. Móðir Snjólaugar var Líney, systir Jóhanns skálds og Jóhannesar Baldvins, afa Benedikts Ámasonar leikstjóra. Líney var dóttir Sigur- jóns, b. á Laxamýri, Jóhannesson- ar, ættfóður Laxamýrarættarinn- ar, Kristjánssonar. Margrét er dóttir Guðmundar, útgerðarmanns í Reykjavík, Magn- ússonar, b. í Kálfavík, Bárðarson- ar. Móðir Magnúsar var Steinunn Guðmundsdóttir af Amardalsætt. f|| ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í verkið „Stofnlögn í Kópavogsdal -2. áfangi". Verkið felst í lagningu einangrað'rar pípu, DN 350/500 mm, u.þ.b. 1.000 m að lengd. Auk þess skal byggja steinsteypt tengihús, 17 m2, við enda lagnarinnar. Verkinu skal lokið 1. október 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykja- vík, gegn 15.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 23. júní 1993 kl. 15.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 ÓDÝRIR GÁMAR EIIWÍGRAÐIR GÁMAR Afmæli Guðmundur Árni Stefánsson. Móðir Guðmundar útgerðarmanns var Margrét, systir Halldóru, móð- ur Jóns Baldvinssonar, formanns Alþýðuflokksins. Bróðir Margrétar var Gunnar á Eyri, afi Sverris Her- mannssonar bankastjóra. Margrét var dóttir Sigurðar, b. í Hörgshlíð, bróður Rósinkrans, íangafa Sól- veigar, móður Jóns Baldvins, form- anns Alþýðuflokksins. Sigurður var sonur Hafliða, b. á Skarði, bróður Jóhannesar, langafa Hannibals Valdimarssonar, form- anns Alþýðuflokksins. Hafliði var sonur Guðmundar sterka á Kleif- um, Sigurðssonar. Móðir Margrét- ar var Kristín Halldórsdóttir frá Hvítanesi, af Arnardalsætt, systir Jóns, föður Magnúsar, bæjarfógeta í Hafnarfirði. Móðir Margrétar var Guðrún, systir Ólafs, hreppstjóra á Eyri í Ingólfsfirði. Guðrún var dóttir Guðmundar, b. á Eyri, Amgríms- sonar og Guðrúnar Jónsdóttur frá Eyri. Höfum fengið til sölu takmarkað magn af notuðum einangruðum fiskigámum, sem við seljum næstu daga Á MJÖG HAG- STÆÐU VERÐI. Eigum einnig venjulega gáma, 20 og 40 feta, og ffystigáma. » HAFNARBAKKI Tœkjadeild Höfðabakka 1, 112 Reykjavík S. 676855, fax 673240 Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Asparfell 12, íb. 04-02, þingl. eig. Stefán Pétur Þorbergsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Landsbanki íslands, Lífeyrissj. Dagsbrúnar og Framsóknar, Sameinaði lífeyrissjóð- urinn, Vátiyggingafélag íslands og Ólafur Helgi Ulfarsson, 18. júní 1993 kl. 14.00. Dúfhahólar 2, hl. 0203, þingl. eig. Hlöðver Kristinsson, gerðarbeiðendur Bifi-eiðaverkstæði Jöfiirs hf., Bygging- arsjóður ríkisins, Búnaðarbanki Is- lands, Gjaldheimtan í Reykjavík, Húsasmiðjan hf., Landsbanki íslands og íslandsbanki hf>, 18. juni 1993 kl. 15.30.______________________________ Efstaland 24, hluti, þingl. eig. Birgir Öm Birgisson og Aldís G. Einarsdóth ir, gerðarbeiðendur Guðrún Magnús- dóttir, húsbréfadeild Húsnæðisst. rík- isins og Landsbanki íslands, 18. júní 1993 kl. 14.30.____________________ Seiðakvísl 7, þingl. eig. Matthildur Þorláksdóttir, gerðarbeiðendur Gjald- heimtan í Reykjavík, Kaupfélag Ár- nesinga, Kaupþing hf., Landsbanki Islands, Málflutningsstofan sf. og ís- landsbanki hf., 18. júní 1993 kl. 13.30. Suðurhlíð 35, hl. 0001, þingl. eig. Magnús Siguijónsson, gerðarbeiðend- ur Gjaldheimtan í Reykjavík og toll- stjórinn í Reykjavík, 18. júní 1993 kl. 16.45.________________________. Suðurhlíð 35, hl. 0002, þingl. eig. Magnús Siguijónsson, gerðarbeiðend- ur Gjaldheimtan í Reykjavík og toll- stjórinn í Reykjavík, 18. júní 1993 kl. 17.00._______________________________ Suðurhlíð 35, hl. 0102, þingl. eig. Magnús Siguijónsson, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, 18. júní 1993 kl, 16.30._____________________ Trönuhólar 12, þingl. eig. Fjárfesting- arfélag íslands hf., gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, 18. júní 1993 kl. 15.45.______________________ Unufell 36, þingl. eig. Elín Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Fjárfestingafélagið- Skandia hf. Gjaldheimtan í Reykjavík, Herdís Kristjánsdóttir, Samvinnulíf- eyrissjóðurinn, Sjóvá-Almennar hf., Sparisjóður Kópavogs og Öm Óskars- son, 18. júní 1993 kl. 13.45. Völvufell 15, þingl. eig. Sigurður Bjamason, gerðarbeiðandi Gjald- heimtan í Reykjavík, 18. júní 1993 kl. 15.15._______________________________ Æsufell 4, 6. hæð F, þingl. eig. Jón Már Ólason og Bjöig Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, 18. júní 1993 kl. 14.45. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Páll Helgason Páll Helgason ferðafrömuöur, Hólagötu 16, Vestmannaeyjum, er sextugurídag. Starfsferill Páll er fæddur og uppalinn í Vest- mannaeyjum. Hann tók búfræði- próf frá Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal 1951. Vélstjóraréttindi hlaut hann frá Vélskóla Vestmanna- eyja 1952. Hann rak kúabú Helga Benedikts- sonar, föður síns, 1950-54 og var svo verslunarmaöur næstu ár, til 1972. Helgi hefur verið umboðsmaður ferðaskrifstofanna Sunnu og Útsýn- ar og hefur starfað að ferðaþjónustu frá 1973. PáU hlaut heiðursmerki Slysa- varnafélags íslands fyrir að bjarga tveimur drengjum frá drukknun í Vestmannaeyjahöfn 1. nóv. 1952. Þá var Páll kosinn ferðafrömuður árs- ins af tímaritinu Farvís 1990. Fjölskylda Páll kvæntist 9.5.1953 Evu Bryndísi Karlsdóttur, f. 12.5.1935, d. 28.4.1987, hótelstjóra. Hún var dóttir Karls Kristjánssonar, verkstjóra í Hafnar- firði, og Stefaníu M. Jónsdóttur hús- móður. Böm Páls og Evu eru fjögur. Þau eru: Guðmundur, f. 20.6.1954, bif- vélavirki, kvæntur Sigurbjörgu Vil- hjálmsdóttur og eiga þau eina dótt- ur; Ástþór Rafn, f. 26.10.1956, hótel- stjóri, kvæntur Brynhildi Brynjúlfs- dóttur, eiga þau tvo syni; Páll, f. 25.2.1966, skipstjóri, kvæntur Önnu Eiríksdóttur og eiga þau einn son; Karl, f. 28.3.1968, kvæntur Öldu Gunnarsdóttur og eiga þau einn son. Systkini Páls era Sigtryggur, for- stjóri Brimborgar í Reykjavík; Stef- án, ökukennari í Vestmannaeyjum; Gísh, tónlistarmaður; Guðrún, ræstingastjóri á Hótel Sögu; Arnþór, formaður Öryrkjabandalagsins. Foreldrar Páls: Helgi Benedikts- son, f. 3.12.1899, d. 8,4.1971, útgerð- armaður og kaupmaður í Vest- mannaeyjum, og kona hans, Guð- rún Stefánsdóttir, f. 30.6.1908, hús- móðir. Ætt Helgi var sonur Benedikts, oddvita á Þverá, bróður Jónasar læknis, afa Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra DV. Benedikt var sonur Kristjáns, b. á Snæringsstöðum, Kristjánsson- ar, b. í Stóradal, Jónssonar, b. á Snæringsstöðum, Jónssonar, b. á Páll Helgason. Herjólfsstöðum, Jónssonar, b. á Mörk, Jónssonar, ættfóöur Harða- bóndaættarinnar. Móðir Helga var Jóhanna Jónsdóttir, b. á Höskulds- stöðum, Kristjánssonar. Móðir Jóns var Jóhanna Jónsdóttir, b. í Kast- hvammi, Ásmundssonar, bróður Helga á Skútustöðum, ættfóður Skútustaðaættarinnar. Guðrún er dóttir Stefáns, útgerð- armanns í Skuld í Vestmannaeyj- um, Björnssonar, b. á Bryggjum 1 Landeyjum, Tyrfmgssonar. Móðir Guðrúnar var Margrét, systir Guð- jóns, fóður Guömundar söngvara. Margrét var dóttir Jóns í Búð í Þykkvabæ, Ólafssonar. Móðir Margrétar var Guðfinna Eggerts- dóttir, b. í Hákoti í Þykkvabæ, bróð- ur Gísla, langafa Eggerts G. Þor- steinssonar, forstjóra Trygginga- stofnimarríkisins. Til hamingju með afmælið 14. júní 85 ára 148 a Þorkelsdóttir, Reykjahlíð 10, Reykjavík. Kristín Oavíðsdóttir, HBfðagÖtu 4, Stykkishólmi. 80 ára Guðrún Stefánsdóttlr, Eyjabakka 30, Reykjavík. 75 ára Reynir B. Þúrhallsson, Njálsgötu 102, Reykjavik. Fríörikka Þorbjarnardóttir, Foldahrauni 42 E, Vestraannaeyjum. Árni Björnsson, Blátúni 4, Bessastaöahreppi. Sigríður Þórðardóttir, Urðarteigi 1, Neskaupstaö. Ragnhildur Guðmundadóttir, Miötúni 58, Reykjavík. Kristín Jónsdóttir, Nökkvavogi 28, Reykjavík. 60 ára Gestur Karl Karisson, Eyrargötu 28, Eyrarbakka. Guðlaug Jóna Sigurðardóttlr, Kirkjuvegi 6, Hvammstangahreppi. Guðlaug Sæmundsdóttir, Gnoðavogi 14, Reykjavik. Vigdis Böðvarsdóttir, Haaleiti 36, Keflavík. Vigdis verður að heiman. Máifríður Stelnsdóttir, Frostafold 55, Reykjavík. Þórður Guðmundsson, Mýrargötu 41, Neskaupstað. Þorgeir ísfeld Jónsson, Vesturbergi 140, Reykjavík. Þördis Einársson, Yrsufelli 4, Reykjavík. 50 ára 70 ára Hákon Salvarsson, Reykjarflrði, Reykjarfiarðarhreppi. Guðrún Skúladóttir, Lindarflöt 5, Garðabæ. Eiginmaður Guðrúnar er Gunndór Sig- urðsson. Guöfmnur Einarsson, Lönguflt 16, Garðabæ. Heiga Magnea Harðardóttir, Lækjargötu 6, Siglufirði. Sveinbjörn Pálsson, Skerjavöilum 10, Skaftárhreppi. Gunnar Elías Gunnarsson, Hásteinsvegx 22, Stokkseyri. Ómar Sævar Árnason, Miðstræti 16, Neskaupstað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.