Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Síða 40
52
MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993
Hægviðri um allt land
Agnes Bragadóttir.
Getspakur
blaðamaður!
„Langlíklegast er að eina breyt-
ingin í ríkisstjórn í sumar verði
sú að Jón Sigurðsson viðskipta-
og iðnaðarráðherra taki við emb-
ætti seðlabankastjóra og Karl
Steinar Guðnason alþingismaður
taki sæti hans í ríkisstjórn,"
skrifaði Agnes Bragadóttir blaða-
maður í Morgunblaðinu þann 14.
maí sl.
Eiður fer hvergi!
„Jafnframt er vitað að Eiður
Guðnason hugsar sér ekki til
hreyfings á miðju kjörtímabilinu
og hyggst sitja sem umhverfis-
ráðherra kjörtímabiliö á enda,“
mátti lesa í sömu grein Agnesar
þann 14. maí.
Á höfuðborgarsvæðinu verður vest-
angola og skýjað í fyrstu en léttir
Veðriö í dag
smám saman til í dag. Hiti verður á
bihnu 7-12 stig.
Á landinu verður hægviðri um allt
land. Víða þokuloft í fyrstu en léttir
víða til í innsveitum í dag. Hiti verð-
ur allt að 16 stig inn til landsins um
hádaginn en annars á bihnu 2-10 stig,
svalast við norður- og austurströnd-
ina.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 6
Egilsstaðir skýjað 5
Galtarviti þokumóða 3
Hjarðarnes skýjað 5
KeflavíkurflugvöUur skýjað 7
Kirkjubæjarklaustur skýjað 6
Raufarhöfn alskýjað 2
Reykjavík alskýjað 7
Vestmannaeyjar skýjað 6
Bergen léttskýjað 8
Helsinki alskýjað 9
Ka upmannahöfn skýjað 15
Ósló skúr 8
Stokkhólmur léttskýjað 10
Þórshöfn alskýjað 6
Amsterdam skýjað 12
Barcelona léttskýjað 16
Berlín skýjað 12
Chicago skruggur 24
Feneyjar skýjað 18
Fraiikfurt alskýjað 14
Glasgow rigning 8
Hamborg skýjað 11
London rigning 12
Lúxemborg þokumóða 11
Malaga léttskýjað 18
MaUorca léttskýjað 16
Montreal heiðskírt 18
New York heiðskirt 18
Nuuk þoka -1
Orlando skýjað 24
París súld 12
Róm þokumóða 19
Valencia heiðskirt 16
Vín skúr 14
Winnipeg léttskýjað 13
'C£v
2°
\ \ < Y
r ^ J , ' <
l
,
Veðrið kl. 6 fmorgun
Ummæli dagsins
Jón Baldvin styður ekki
uppstokkun!
„Frómt frá sagt munu þetta
vera vangaveltur örfárra manna
og ekki njóta nokkurs stuðnings
ipeðal forystumanna Alþýðu-
flokksins, síst formannsins
sjálfs," stóð í sömu grein Agnesar
í Mogganum 14. maí um þann
möguleika að Guðmundur Ámi
Stefánsson og Össur Skarphéð-
insson tækju sæti í ríkisstjórn.
Fækkun ráðherranna!
„Þannig má vel vera að niður-
staða kratanna verði sú aö fækka
ráöherrum sínum um einn í rík-
issljórninni, þannig að ráðuneyti
Jóns verði þá sameinað öðrum
ráðuneytum. Þannig er ekki talið
óhklegt að kratar vildu sameina
umhverfismál og iðnaðarmál og
að formaður flokksins tæki við
viðskiptamálum," stendur í grein
Agnesar Bragadóttur í Morgun-
blaðinu fyrir tíu dögum.
Framtíðin!
„Fæstir viðmælenda minna
telja að þótt Jón Baldvin hafi vart
átt annarra kosta völ en gera
helstu óróaseggi þingflokks Al-
þýöuflokksins að ráðherrum, þá
Össur og Guðmund Árna, og
múlbinda þá þar með að vissu
marki, verði samstarf ráðherra-
flokks Alþýðuflokksins með öllu
andskotalaust á næstu mánuðum
og misserum," segir Agnes í blaði
ahra landsmanna 9. júní sl.
1 Smáauglýsingar
„Þetta hefur farið
stað en við erum með uppákomur
útí um allan bæ. Þetta er annað
árið í röö sem hátíðin er haldin og
núna tengjast henni um 700
manns,“ segir Halldór Auðarson
framkvæmdastjóri Óháðu listahá-
tíðarinnar, Ólétt ’93, sem stendur
yfir þessa dagana.
Maður dagsins
Halldór er hugmyndafræöingur-
inn að Óháðu hstahátíöinni en
nafngiftina, Ólétt ’93, skýrir hann
þannig að ák veðin fæöing sé að eiga
sér stað með þessum uppákomum.
Framkvæmdastjórinn vih ekki
gera upp á mhlí dagskráratriða og
segir að mjög mikil gróska sé í öllu.
Sama hvort um leikhópa, rokk-
hljómsveítir eða eítthvað annað er
að ræða.
„Tilgangurinn með þessari hátíð
er ekki bara að fá hstamennina til
að vinna saman heldur líka að sýna
það að listin er fyrir alla og alls
ekki bara fyrir þá sem fá boöskort-
in send heim í pósti. Við erum lika
aö vekja athygli á þeirri skoðun að
í Iönó eigi að fást aðstaða fyrir
óháða hstastarfsemi. Þar væri
hægur vandi að vera með eitthvað
í gangi nánast á hverju kvöldi allan
ársins hring.“
Halldór telur aö alls kyns nefndir
eigi að hætta að vera með puttana
í þessum málum og honum finnst
lítið koma til fyrirætlana Reykja-
vikurborgar með Korpúlfsstaöi og
segir þær vera ótímabærar og van-
hugsaðar.
Halldór segir að það hafi ekki
verið létt verk að skipuleggja hátíð-
ina en undirbúningurinn stóð
sleitulaust í tvo mánuði og undir
það síðasta fékk framkvæmda-
stjórinnhtinn svefn. En hvað ætlar
hann aö gera þegar hátíöinni lýkur
27.júni nk.? „Ég er óháður og það
kemur bara í ljós. Ég geri það sem
innsæið. segir mér hverju sinni en
það hefur reynst mér ágæOega,"
segir Halldór Auðarson.
Myndgátan
Lausn gátu nr. 644:
Myndgátan hér að ofan iýsir hvorugkynsorði.
Bikar-
keppni
knatt-
spymu
f kvölaerúfiórir leikir á dag-
skrá í bikarkeppni kvemia og
Íþróttiríkvöld
aragnii leilga í yngri flokkunum
lijá strákunum. Leikmenn 1.
deildar karla eru hins vegar í frh
enda er landshðið að undirbúa
sig fyrir leikinn við Ungverja nk.
miövikudag.
Bikarkeppnin:
KR-Valur kl. 20
Haukar-ÍA kl. 20
Reynir S.-Stjaman kl. 20
Þróttur N.-UBK kl. 20
Skák
Hvítur á leik í meðfylgjandi stöðu sem
er frá Najdorf-mótinu í Buenos Aires á
dögunum. Svarta peðið á d6 er í upp-
námi. Má hvítur leika 21. Hxd6 eða er
peðið „eitrað"?
Granda Zuniga hafði hvítt, svartur er
Bent Larsen:
Bent Larsen lagöi lævísa gildru fyrir
andstæðing sinn. Eftir 21. Hxd6? Re6!
áttaði hann sig á því að svarið við 22. Dd2
yrði 22. - Hxd6 23. Dxd6 Hd8! 24. Dxe7
Hxdl+ 25. Bfl Bxe7 og svartur hefur
unnið heilan hrók. Einnig er 22. Hxd8
Rxf4 23. Hxf8+ KxfB 24. gxf4 Dxe4 von-
laust. Hvítur gafst því upp.
Jón L. Árnason
Bridge
í sumarbridge síðastliðið miðvikudags-
kvöld kom þetta spil fyrir. Algengast var
að NS spiluðu tigul- eða laufbút en ein-
staka spUarar í AV fengu að spUa háUta-
samning. AV eiga 9 slagi í háUtasamningi
en NS geta jafnvel fengið 11 slagi í tígul-
samningi þó að slagirnir verði aldrei
nema í mesta lagi 10 í laufsamningi. Flest-
ir spUaranna í NS fengu að halda samn-
ingnum, annaðhvort í lauf- eöa tígul-
samningi. Sagnir gengu þannig á einu
borðanna, vestur gjafari og AV á hættu:
♦ Á97
V G5
♦ 1098763
+ KD
* 10865
V 1073
♦ KD
+ G975
♦ 42
V Á8
♦ ÁG5
+ Á108632
Vestur Noröur Austur Suður
Pass Pass Pass 1+
Pass 1* 1» 2+
2* p/h 3» Pass 3 G
Austur var rólegur að opna ekki í þriðju
hendi með 4-6 skiptingu í háUtum. Sagn-
ir hjá norðri og suðri eru í bjartsýnara
lagi en þeim tókst þó að þræða sig í þtjú
grönd sem er mjög góður samningur á
aðeins 23 punkta samlegu. Samningurinn
byggist á því að laufið liggi ekki verr en
3-2 eða að laufgosi sé einspU ef laufm
Uggja 4-1. Eins og spiUð lá var það óhjá-
kvæmUega niður en sagnhafi slapp með
1 niður því að útspiUð var spaði. Það var
því svekktur sagnhafi sem varð að játa
sig sigraðan og þiggja lélegt skor vegna
þess að fáum hafði hugkvæmst að spUa
þijú grönd á spU NS.
ísak Örn Sigurðsson