Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1993, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1993, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1993 Fréttir Vitni úr íbúðinni þar sem manndráp var framið í samtali við DV í gærkvöldi: Telur af brýðisemi ástæðu manndrápsins - árásarmaðurinn einnig talinn hafa lagt til fyrrverandi sambýliskonu sem var í íbúðinni Maðurinn sem banaði húsráðanda í kjallaraíbúð að Snorrabraut 36 að- faranótt sunnudagsins, Þórður Jó- hann Eyþórsson, hafði mjög stutta viðdvöl í íbúðinni, samkvæmt frá- sögn vitnis sem ræddi við blaðamann DV í gærkvöldi. Vitnið, sem er karl- maður, segir að fyrrverandi sambýl- iskona árásarmannsins haíi einnig verið í íbúðinni ásamt sér og húsráð- anda. Húsráðandi var um það bil að rýma íbúðina sem hann leigði. Búið var að pakka niður munum í kassa og kveðst vitnið nýlega hafa verið búið að fara yfir allar hirslur í íbúðinni - þá hafi hann engan hnif séð. Þegar Þórður kom inn í íbúðina um kvöldið átti hann að sögn vitnisins stutt orða- skipti við húsráðanda sem sagði að „ekkert hefði skeð hér“. Vitnið segir að maðurinn hafi átt við samskipti á milli hans og fyrrum sambýliskonu Þórðar. Eftir þetta heyrðist „smellur" og blót og síðan hafi húsráðandi legið alblóðugur á eldhúsgólfinu. Vitnið telur að árásarmaðurinn hafi einnig Frjálst, óháð dagh ~7? l.TBL.—73.08 V- ÁRG. —MÁNUO&GUR 3.~JA> —Ungur maður hefur játað verknaðinn Maður banaði húsráðanda með hníf í kjallaraíbúð þessa húss við Snorrabraut aðfaranótt sunnudags. Sami mað- ur var dæmdur fyrir manndráp með hníf fyrir tíu árum. DV-mynd Sveinn Frásögn DV af fyrra manndrápinu á nýársdagsmorgun árið 1983. Þórður Jóhann Eyþórsson var þá dæmdur i 14 ára fangelsi en var á reynslulausn. lagt til fyrrverandi sambýliskonu sinnar áður en hann fór út úr íbúð- inni. Maðurinn sem varð vitni að at- burðinum sagði við DV í gærkvöldi að árásarmaðurinn hefði sennilega ekki verið lengur í íbúðinni en í eina minútu frá því aö hann kom og þar til hann hélt á brott. Hann segist ekki hafa séð neinn hníf en kveðst fullviss um að ódæðisverkið hafi árásarmaðurinn framið í afbrýði- semikasti. Vitnið og árásarmaðurinn þekkjast vel og segir fyrmefndi að Þórður hafi aliajafna haldið ró sinni en sé skapbráður inni á milli. Eftir atburðinn var lögreglunni gert viðvart en ekki var beðið um sjúkrabíl fyrr en hún kom á vett- vang. Tilkynningin, sem kom fýrst til lögreglu, var ekki þess eðlis að einhver hefði verið stunginn. Maður- inn, sem lést, var fluttur í neyðar- móttöku Landspítalans þar sem hann lést skömmu síðar af völdum áverkanna, samkvæmtupplýsingum lögreglu. Grunur féll strax á Þórð og var mikill viðbúnaður hafður við að leita hans. Hann gaf sig síðan fram við lögreglu í gærmorgun. Vegna ástands Þórðar var ekki hægt að yfir- heyra hann fyrr en líða tók á daginn í gær. Héraðsdómari úrskurðaði Þórð í gæsluvarðhald í gærkvöldi til 29. september. Fullvist er tahð að hann muni ekki verða látinn laus fyrr en hann hefur afplánað refsingu fýrir manndrápið um helgina. -Ótt Manninum, sem banaði öðrum um helgina, var sleppt út á reynslulausn árið 1990: Stuttar fréttir Var búinn að brjóta skilyrði reynslulausnar - var látinn afplána helming af 14 ára fangelsisrefsingu fyrir gróft manndráp Manninum, sem er í haldi hjá RLR vegna manndráps við Snorrabraut aðfaranótt sunnudagsins, var sleppt út úr fangelsi á reynslulausn árið 1990. Hann heitir Þórður Jóhann Eyþórsson og er 36 ára gamall. Hann var þá búinn að afplána 7 ár af 14 ára fangelsisdómi sem hann hlaut fyrir að hafa banað 28 ára Reykvík- ingi, Óskari Áma Blomsterberg, að morgni nýársdags árið 1983. Þórður stakk þá Oskar fjórum sinnum í bak- ið með hnif í samkvæmi í ibúð á Kleppsvegi 42. Samkvæmt heimildum DV var Þórður þegar búinn að brjóta skil- yrði reynslulausnarinnar áður en manndrápið varð um helgina. Hann var tekinn fyrir ölvunarakstur eflir að honum var sleppt og var það mál síðan sent ríkissaksóknara. Þrátt fyrir þetta var Þórði ekki gert að fara aftur í fangelsi eftir að hann var tek- inn fýrir ölvunaraksturinn - brot sem rýfur skilyrði reynslulausnar- innar sem Þórði var veitt eftir afplán- un á helmingi dæmdrar refsingar. -Ótt/KMH Skipstjórinn á Akureyrinni í samtali viö DV: Vona að vera okkar hér skili veiðiheimildum - flotinn heldur ennþá kyrru fyrir viö veiöar í Barentshafi „Það er lítið héma núna. Þetta var eitthvað fram yfir hádegi í gær (á laugardag) en svo var það búið. Ég hef bara ekki tekið það saman hvað við erum með mikinn afla en ég veit bara að það er lítið,“ sagði Sturla Einarsson, skipsfjóri á Akureyrinni, í samtali við DV í gær. Aðspurður um áform íslensku skipstjóranna í Smugunni um að sigla til Bjamareyjar sagði Sturla að hætt hefði verið við slík áform í bili. Skipsljóramir sendu sjávarútvegs- ráðuneytinu skeyti á laugardag þar sem þeir tilkynntu að þeir hygðust halda til veiða við Bjamarey „vegna vaxandi smáfisks í afla“. „Sjálfsagt er hugur í mönnum að láta reyna á þetta,“ sagði Sturla. „En það kom svar frá ráðuneytinu þar sem skorað var á okkur að fara ekki. Ef við færum værum við á ábyrgð viðkomandi útgerðar. Eftir að við fengum þetta svar er að minnsta kosti enginn togari á leiðinni þang- að.“ Sturla sagði að skipsfjóramir hefðu ekkert ákveðið endanlega með það hvort siglt verði á miðin við Bjamarey: „Við ætlum að sjá til héma. Ég er ekkert á leiðinni út af þessu svæði og hef ekki heyrt í neinum öðrum um slíkt ennþá.“ íslensku og norsku utanríkis- og sjávarútvegsráðherramir munu eiga viðræður í Svíþjóð á morgun vegna deilunnar um Smuguna. Sturla sagði skipsfjórana binda nokkrar vonir við þann fund. „Það eina sem við vonum er að eitt- hvað gagnlegt komi út úr þessum viðræðum - að vera okkar hér skili einhveiju og við fáum veiðiheimldir einhvers staðar héma í norðurhöf- um eða annars staðar." Sturla sagðist telja að ekki komi til greina að „hleypa Norðmönnum inn í okkar landhelgi á móti veiðiheim- ildum“ á alþjóðlegu hafsvæði í Bar- entshafi. -Ótt Fomleifagröftur Fomleifagröftur er hafinn á lóðinni Aðalstræti 12 en þar stóð eitt af Innréttingahúsum Skula Magnússonar. Endurreisa á hus- ið í sama stíl, samkvæmt frétt Morgunblaðsins. 24 f á FuSbright fengið styrki frá Fulbright-stofii- uninni, sem er styrkt af ríkis- stjómum Bandaríkjanna og ís- lands. Samkvæmt úttekt Morgun- blaðsins eru íslensk sjávarút- tæki að hasla sér völl í öfium heimsálfum nema Suðurskauts- landinu. Endurvinnslan hf. tók á móti 27 miUjón flöskum og dósum fyrstu sjö mánuði þessa árs. Skil em orðin um 80% eða meðal þess hæsta sem gerist hjá nágranna- þjóðum. Alþjóðleg ráðstefna um þorsk i norðurhöfum hefst í Reykjavík í dag og stendur út vikuna. Alls verða flutt um 60 erindi. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.