Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1993, Blaðsíða 30
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1993
42
Afmæli
Guðrún Andersen
Guörún Andersen gjaldkeri, Árstíg
1, Seyðisfirði, varð sextug í gær.
Starfsferill
Guörún fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp. Hún vann lengstum
við afgreiðslustörf í Vestmannaeyj-
um og sem skrifstofustúlka hjá
Sjúkrasamlagi Vestmannaeyja frá
1964-70. Síðan fluttí hún til Seyðis-
fiarðar vorið 1971. Hún hóf störf hjá
Fiskiðjunni á Seyðisfirði 1974, vann
þar í um eitt ár og fór síðan að vinna
hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Seyðis-
firði. Þar vann Guörún til 1987 er
hún var ráðin gjaldkeri tíl sýslu-
mannsins á Seyðisfirði þar sem hún
vinnur í dag. Guðrún útskrifaðist
frá Húsmæðraskólanum á Hall-
ormsstað vorið 1950. Hún var í fram-
boði til bæjarstjómar á Seyðisfirði
fyrir Sjáifstæðisflokkinn 3 kjörtíma-
bil, var í ýmsum nefndum á vegum
bæjarins og sat í bæjarstjórn hluta
af einu kjörtímabili. Hún rak mynd-
bandaleiguna Hofsvídeó ásamt dótt-
ur sinni og Kaffistofuna Við Lónið
og naut hjálpar dætranna og stjúp-
dóttur við þann rekstur á Seyðis-
firði.
Fjölskylda
Guðrún giftist, 17.4.1954, Borgþóri
Ámasyni, f. 27.9.1932, sjómanni frá
Vestmannaeyjum, en þau slitu sam-
vistum 1962. Guðrún giftist aftur
Finnboga Finnbogasyni, f. 10.5.1936,
sjómanni frá Seyðisfirði. Foreldrar
Borgþórs: Árni Finnbogason og Að-
alheiður Sigurðardóttir. Foreldrar
Finnboga: Finnbogi Laxdal Sigurðs-
son og Kapitóla Sveinsdóttír.
Börn Guðrúnar og Borgþórs: Ág-
úst Heiðar. f. 3.4.1952, búsettur í
Vestmannaeyjum, kvæntur Þóru
Friðriksdóttur og eiga þau 4 börn,
Borgþór Friðrik, Guðrúnu Ágústu,
Sigfús Gunnar og Auroru Önnu;
Hrafnhildur, f. 23.6.1953, búsett í
Reykjavík og á hún 2 syni, Rúnar
Þór og Jón Kristín; Aðalheiður Lóa,
f. 1.7.1958, búsett á Seyðisfirði, gift
Sigfmni Mikaelssyni og eiga þau’3
börn, Björt, Jón og Jafet; Guðrún
Vilborg, f. 11.10.1961, búsett á Seyð-
isfiröi, gift Ólafi Mikaelssyni og eiga
þau 3 börn, Símon, Sonju og Söndru.
Barn Guðrúnar og Finnboga:
LOja, f. 30.8.1970, búsett á Seyðis-
firði og á hún einn son. Viktor.
Guörún á tvær stjúpdætur. Þær
era: Þorbjörg Finnbogadóttir, f. 19.1.
1960, í sambúö með Sveinbirni
Magnússyni og eiga þau 4 börn,
Magnús Frey, Laufeyju Anniku,
Stefán Reyr og Fannar Halldór;
Vera Kapitóla Fimibogadóttir. f. 2.2.
1961, búsett á Seyðisfirði, í sambúð
með Jóni Hilmari Jónssyni og eigá
þau 3 börn, Jón Ármann, Öldu Diljá
og Vigdísi Eir. Bamabörn Guörúnar
eru 22 og 2 langömmubörn.
Systkini Guðrúnar: Jóhanna, f.
9.2.1938, verkakona í Vestmanna-
eyjum, og á hún 2 syni, Helga Þór
og Halldór Jörgen; Ágústa Þyrí, f.
20.8.1941, vinnur í landbúnaðar-
ráðuneytínu, gift Þór Guðmunds-
syni og eiga þau Willum Þór, Val
og Örn; Willum Pétur, f. 29.12.1944.
sjómaður i Vestmannaeyjum, giftur
Sigríöi Ingólfsdóttur og eiga þau
Þóranni. Ingu Hönnu, Pétur og Will-
um; Halla Júha, f. 1.4.1953, kennari
í Vestmannaeyjum, gift Baldvini
Kristjánssyni og eiga þau Erlu, Lóu
ogArnar.
Foreldrar Guðrúnar: Willum
Jörgen Andersen, f. 3.9.1910, d. 17.7.
1988, útgerðarmaður, og Guðrún
Ágústa Ágústsdóttír. f. 2.11.1909,
búsett í Vestmannaeyjum.
Guðrún Andersen.
Ætt
Foreldrar Willums vora Pétur And-
ersen og Jóhanna Guðjónsdóttir.
Foreldrar Guörúnar voru Ágúst
Benediktsson og Guðrún Hafiiða-
dóttir.
Guðrún verður á Mallorca á af-
mælisdaginn.
Sigríöur B. Ruesch
Sigríður Bílddal Ruesch, námsráð-
gjafi og kennari, Heiðarbóli 19,
Keflavik, er fertug í dag.
Starfsferill
Sigríður er fædd í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk stúdents-
prófi frá Verslunarskóla Íslánds
1974 og BA-prófi í uppeldisfræði frá
Háskóla íslands 1987. Sigríður
stundaöi nám í uppeldis- og
kennslufræði við Háskóla íslands
1978 og í námsráðgjöf við sömu
stofnunáþessuári.
Sigriður var kennari við Gagn-
fræðaskólann í Keflavík 1974-76 og
við Fjölbrautaskóla Suöurlands frá
1976 og hefur einnig verið námsráð-
gjafi við síðamefnda skólann frá
1989.
Sigríður var formaður skólamála-
nefndar HÍK árin 1989-91.
Fjölskylda
Maöur Sigríðar er Stefán Þröstur
Halldórsson, f. 6.4.1951, stýrimaöur.
F oreldrar hans: Halldór Jónatans-
son og Anna Stefánsdóttir, bændur
í Auðsholti IV í Hranamanna-
hreppi.
Systkini Sigríðar: Anna Jorgen-
sen, búsett í Danmörku og á tvö
böm; Jóna Larsen, búsett í Dan-
mörku og á tvö börn; Svana Tolf,
gift Ronald Tolf, búsett í Flórída í
Bandaríkjunum og eiga tvö börn;
Júlíus Þór Sigurjónsson.
Foreldrar Sigríðar: Sigurjón Jóns-
son, f. 9.4.1926, d. 24.6.1991, verk-
stjóri, ogLovísa B. Ruesch, f. 15.12.
1935. Lovísa er búsett í Orlando í
Sigriður B. Ruesch
Bandaríkjunum ásamt Robert K.
Ruesch, f. 5.12.1939, þau eru með
eigin rekstur. Robert K. Ruesch ætt-
leiddi Sigríöi árið 1967.
Sviðsljós
La la la la la, ævintýri enn gerast“ sungu þau Andrea Gylfadóttir, Helgi Björnsson og Eyþór Arnalds.
DV-myndir HMR
Til hamingju með daginn, 23. agust
85 ára 50ára
Agústa Guðmundsdóttir, Hringbraut 101, Reykjavík. Þórunn Kolbeinsdóttir, Kolgerði 2, Akureyri. Gunnhildur Helga Eldjórnsdóttir, Hábrekku 6, Ólafsvik. Ingibjörg Jónasdóttir, Stjörnusteinum 12, Stokkseyri.
80 ára
Margrét Tómasdóttir, Sólvallagötu 22, Keflavík. Ingibjörg Helgadóttir, Borgarbraut 65, Borgarnesi. Helga Sigurbjörnsdóttir, Skagfirðingabraut39, SauðárkrókL Brynhildur Ósk Sigurðardóttir, Suðurvangi 13, Hafnarfiröi.
40 ára
75 ára
Hannes Jónsson,
Margrét Þorleifsdóttir, Austurbyggö 21, Akureyri. Áslaug Sólbjört Jensdóttir, Núpi, Mýrarhreppi. Heiðbjört Halldórsdóttir, Mýrarbraut 9, Blönduósi. Guðmundur Kristinn Ólafsson, Brimhólabraut 13, Vestmannaeyj- um. Þorsteinn Þorsteinsson, Kirkjuvegi le, Keflavík. Holtsgötu 41, Reykjavik. Ragnar Snær Karlsson, Faxabraut35c, Keflavík. Heimut Helgi Hinrichsen, ReykjafeUi, Mosfellsbæ. Sigurbjörn S. Jónsson, . Vesturbergi 100, Reykjavík. Elin Edda Árnadóttir, Langholtsvegi 90, Reykjavík. Linda Hrönn Sigurðardóttir, Blönduhlíð 3, Reykjavík. Ragnheiður Hrafnkelsdóttir, Hverfisgötu 39, Reykjavik. Kristbjörg Gunnarsdóttir, Arnarhrauni 37, Hafnarfirði.
70 ára
Sigríður Vilhelmsdóttir, Smáratúni7,Keflavík. ' Ágústa Sigurdórsdóttir, Götu, Hrunamannahreppi. Vigfús Lýðsson, Dalatanga 20, Mosfellsbæ. Magnús Svavar Emilsson, Kriuhólum 2, Reykjavík. Teitur Bergþórsson, Mariubakka 22, Reykjavík. Lilja Friðriksdóttir, Heiðargarði 2, Keflavík. Gísli Gíslason, Seilugranda 1, Reykjavík. Bjarni Már Jensson, Bylgjubyggð 5, Ólafsfirði.
60 ára
Kristín Jónsdóttir, Bölum 4, Patreksfiröi. Jón Þór Kristjónsson, Starrahólum 3, Reykjavík. Jón verður að heiman á afmælis-
daginn.
Ævintýri hjá SSSól
og Todmobile
Fyrir stuttu komu hljómsveitimar
SSSól og Todmobile saman í hljóðver
til að taka upp gamla lagið Ævintýri
í nýjum búningi. Þessar tvær sveitir
era þó ekki gengnar í eina sæng,
heldur eru ætlunin að kynna tón-
leika sem þær standa að í Kaplakrika
í Hafnarfirði þann 10. september nk.
undir nafninu „Ævintýri í Kapla-
krika“.
Hugmyndin kviknaði eftír að þær
spiluðu saman á þjóðhátíð í Eyjum
fýrr í sumar. Þar sem engir stórtón-
leikar voru fyrirhugaöir en þau
höfðu áhuga á að endurtaka leikinn
ákváöu þær sjálf að standa að tón-
leikum. Auk þeirra koma fram
hljómsveitirnar Jet Black Joe, Pís of
Keik og Bone China.
Af Todmobile er annars það að
frétta að með haustinu kemur út ný
breiðskífa og koma gestir í Kapla-
krika til meö að heyra eitthvert efni
af henni. SSSól ætlar ekki að koma
með plötu fyrir jólin en þess í stað
kemur út myndband með bestu lög-
um hennar.
-HMR
Todmobile og SSSói saman i hljóðveri, en þann 10. september koma sveit-
irnar ásamt þremur öðrum hljómsveitum fram á stórtónleikum I Kaplakrika.