Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1993, Page 13
MÁNUDÁGUR 23. ÁGÚST 1993
Fréttir
Sænsk stúlka fékk gamla íslenska mynt:
Bankinn í Svíþjóð ábyrgur
Sænska stúlkan Linda Nordström
varð fyrir miklum vonbrigðum með
heimsókn sína til íslands í sumar.
Vonbrigðin stöfuðu af mistökum
Sparbankans í Staffanstorp í Svíþjóð
sem lét hana hafa ógilda íslenska
peninga í farareyri. Þegar Linda ætl-
aði að versla fyrir peningana á ís-
landi var skelhhlegið að henni og
hún fékk að vita að peningarnir væru
gömul mynt sem varð ógild árið 1983.
DV hafði samband við Lindu eftir að
hún var komin aftur til Svíþjóðar.
„Bekkurinn minn vann fjögurra
daga íslandsferð í keppni um besta
skólablaðið. Ég hafði hiakkað mikiö
til en ferðin snerist upp í vonbrigði
þar sem ég var peningalaus alla ferð-
ina. Ég gat ekki farið út að'skemmta
mér með bekknum mínum. Ég skrif-
aði bankanum en það var brugðist
illa við þegar ég vildi fá ferðina end-
urgreidda. Mér voru boðnar fimmtán
þúsund krónur íslenskar í skaðabæt-
ur eftir að ég fór í blöðin en bankinn
þóttist ekki eiga neina sök á þessu.
Mér fannst samt alveg frábært að
koma til íslands og skemmtilegast
að sjá Gullfoss og Geysi. Verst þótti
mér að geta ekki keypt íslenska ull-
arvettlinga og Hard Rock bol,“ segir
Linda. -em
VILT ÞU GERA HUSIÐ ÞITT
1 Tvær gerðir stallastáls
> Plastisol og PVF2
1 Terra Plegel - Sendin
tveggja laga lakkáferS
> Allir fylgihlutir
Hafíó samband og fáió senda
bæklinga eóa tilboó
VERKVER
Siðumúla 27, 108 Raykiavik
■s 811544 •Fax 811545
DENZEL WASHINGTON
mvnð SPIKE LEE
VIÐ DAGINN I DAG
ÞVÍ MALCOLM X ER MÆTTUR
Á ALLAR HELSTU MYNDBANDALEIGURNAR!
13
6 MÁNAÐA ÁBYRGÐ
36 MÁNAÐA GREIÐSLUKJÖR
Honda Civic AM GL, 1,4, ’88,
sjálfsk., 4 dyra, hvitur, ek.
52.000. Verð 630.000.
Lada station, 1,5, ’89, beinsk.,
5 dyra, rauður, ek. 55.000. Verð
240.000.
MMC Lancer GLXi, 1,5, ’91,
sjálfsk., 5 dyra, rauður, ek.
22.000. Verð 1.020.000.
Toyota Corolla XLi stw, 1,6, ’93,
beinsk., 5 dyra, rauður, ek.
5.000. Verð 1.300.000. Bíllinn
er eins og nýr.
BMW 323i, 1,8, ’85, beinsk., 4
dyra, grár, ek. 140.000. Verð
680.000.
Dodge Ram Van 318, ’87,
sjálfsk., 4 dyra, blár, 11 manna.
Verð 870.000.
OPIÐ:
virka daga frá 9-18,
laugardaga frá 12-16.
SÍMI: 642610
NOTADIRBlLAR
Ath. 6 múnaða ábyrgð nxr aðeins til sérmerktra Jöfursbfla.