Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1993, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1993 15 Dæmdir úr leik „Og menn eiga ekki margra kosta völ - eins þótt þeir lesi og hugsi svo brakar í heilafrumum." Fyrir nokkru var í útvarpsþætti verið að tala um grimmar tiltektir hjá bandarísku stórfyrirtæki, Gen- eral Electric. Þær skiluðu bæði aukinni framleiðni og aröi til hlut- hafa en kostuðu uppsagnir 120 þús- und starfsmanna. í framhaldi af þessu var um það spurt, sem ekki er oft .gert, hver útkoman veröur fyrir samfélagið í heild þegar öll fyrirtæki standa í því samtímis að skera niður hjá sér störf í nafni hagræðingar og betri samkeppnisstöðu. Svarið er einfalt: atvinnuleysi hlýtur að vaxa. En sú staðreynd var orðuð nokkuð sér- kennilega í útvarpsþættinum fyrr- nefnda. Þar var sagt að samfélagið mundi skiptast í tvo hluta: annars vegar þá sem „hugsa, lesa og mennta sig“ (og hafa þá vinnu), hins vegar þá „sem eru dæmdir til að vera afgangsstærð". Sjálfskaparvíti? Þessi tvískipting er svo sannar- lega að verða til en formúlan fyrir henni er röng og niðrandi fyrir þá sem eru nú „dæmdir til að vera afgangs" (þ.e.a.s. til atvinnuleysis) í iðnríkjum heims. Formúlan gerir ráð fyrir því að þeir sem hugsa, lesa og mennta sig séu hólpnir - og þá er um leið látið að þvi liggja að það gerist fyrir þeirra eigin verðleika. í sömu formúlu er inn- byggð sú ásökun í garð þeirra sem ýtt er úr störfum og út af vinnu- markaði að það sé þeim sjálfum að kenna: eða nenna mannfjandarnir ekki að hugsa og mennta sig? Nú er það augljóst að þeir sem hugsa sitt ráð og hafa þá þjálfun við lausn verkefna sem menntun veitir standa betur að vígi í slag KjaHaiirm Árni Bergmann rithöfundur allra gegn öllum á vinnumarkaði - betur en þeir sem t.d. koma úr stór- borgaslömmum þar sem menn eru dæmdir til að verða „afgangs" um leið og þeir fæðast - og svo betur en þeir sem ólust upp við skaplegar aðstæður en nýttu aldrei mögu- leika sína til að „lesa og mennta sig“. En þar með er aðeins hálf sag- an sögð. Api kastar pílum Hið nýja atvinnuleysi lætur eng- an óhultan. Tækniþróunin slátrar margs konar ágætri starfsmenntun hraðar en nokkurt skóla- eða nám- skeiðakerfi getur við brugðist. Hagræðingarkröfurnar vísa frá þeim sem ungir eru og hafa ekki „reynslu“ þótt þeir geti vel haft bæði hugsun og menntun. Þær vísa líka frá störfum, um leið og eitt- hvað á bjátar, þeim sem komnir eru yfir fimmtugt (og gætu því átt von á fleiri kvillum og sjúkdómum en þeir sem yngri eru). Þær vísa frá konum sem líklegar eru til að verða þungaðar (nema þeim sem hægt er aö ráða í stað karla fyrir minna kaup). Þeir sem eru á akkúrat réttum aldri (25-45 ára), með alveg pass- andi menntun og „rétta“ hugsun - þeir eru heldur ekki óhultir fyrir ásókn atvinnuleysisvofunnar. Kannski verður einmitt útibú fyr- irtækisins í þeirra borg lagt niður; kannski verður starfsemin flutt fyrirvaralaust til láglaunasvæðis í fátækara landi. Allt í nafni hagræðingar, arðsemi og samkeppnisstöðu. Og menn eiga ekki margra kosta völ - eins þótt þeir lesi og hugsi svo brakar í heilafrumum. Málið er ekki í þeirra höndum nema að litlu leyti. Hin ósýnilega hönd markað- arins slær þá með ósvífni tilviljun- arinnar - þeirri sömu ósvífni sem á dögunum sýndi fram á það við tilraun í Danmörku að api, sem kastar pílu á verðbréfadálka, nær mun betri árangri í fjárfestingum en tveir menn sem sannarlega hafa ekki annað gert en lesa og hugsa stíft um verðbréfafræði. Árni Bergmann Evrópusmokkurinn í vor gaf stofnun Adams Smith út ritið „Europe at Risk“ eöa „Evr- ópa í uppnámi" eftir Russel Lewis og Timothy Evans. í ritinu fjalla þeir félagar um hvernig skrifræði Evrópubandalagsins hefur kaffært upphaflegu hugmyndina um frjáls viðskipti innan bandalagsins og gefa ótrúleg dæmi um afskiptasemi framkvæmdanefndar bandalagsins af viðskiptum einstaklinga. Rómarsáttmálinn sniðgenginn í inngangi sínum segja þeir að kerfiskarlamir í Brussel hafi huns- að hugmyndina að baki Rómarsátt- málanum um frjáls viðskipti og þar með séu hagsmunir neytenda í Evrópu í hættu. Framkvæmdanefndin hefur ráð- ist. inn á ólíklegustu svið. Orðrétt segir í ritinu: „I stað þess að hafa traust á frjálsum viðskiptum og einstaklingsfrelsi virðast menn halda að til þess að ná fram gæðum og öryggi í framleiðslu og verslun þurfi að miðstýra öflu. Til að fólk fari sér ekki að voða þurfi aö leið- beina því í smáatriðum." Geggjaðar hugmyndir Hefst svo upptalning á sýnis- hornum af hinum 18000 reglugerð- um, tilskipunum og ályktunum sem 13000 skriffinnar í 36 bygging- KjaUarinn Glúmur Jón Björnsson efnafræðinemi af hvers kyns öryggi á vinnustöð- um og er það mat höfunda að með reglugerðum hafi þeir lagt hrika- legan kostnað á smáfyrirtæki, sem jafnvel eru í heimahúsum, og stofni rekstri þeirra í hættu. Framleiðslu á heilsufæði hefur nýlega verið ógnað með hugmynd- um frá bandalaginu um að aflt nið- ur í smæstu skammta af vítamín- um og steinefnum verði skilgreint sem lyf en lyf þurfa að fara í gegn- um áralangar prófanir áður en setja má þau á markað. Einungis stærstu fyrirtækin í þessari fram- leiðslu myndu lifa slíkt af og kost- um neytenda myndi fækka. Neytendur í löndum Evrópu- bandalagsins mega einnig eiga von á mikilli hækkun á þjónustu sem spannar allt frá hárgreiðslu til bíla- ráð fyrir að neytendur geti kært fyrirtæki fyrir gallaða vöru eða þjónustu á kostnað fyrirtækjanna þar til sakleysi þeirra væri sannað! Þetta gengur auðvitað þvert á þá viðteknu venju að menn séu sak- lausir uns annað sannast og myndi án efa hækka verð á vöru og þjón- ustu þar sem framleiðendur þyrftu sífellt að binda fé í málaferlum. Kynlíf og kerfiskarlar Mörg dæmin, sem þeir félagar taka í riti sínu, eru tilefni til sér- stakra greina enda svipar þeim til hugmynda sem íslenskir vinstri menn hafa flaggað. Eitt dæmi að lokum. Til aö forða fólki frá lélegu gúmmíi ákvað fram- kvæmdanefndin að hefja fram- leiðslu á Evrópusmokki og aðrar verjur þurfa svo að hafa sömu eig- inieika og hann. Frönsk neytenda- samtök hafa hins vegar reynt að sýna kerfiskörlunum fram á að ekki sé hægt að mæla allar kröfur fólks á rannsóknarstofum, hvorki til stæröar, lyktar, lögunar né áferðar. Sennilega er þetta_ dæmi það skýrasta um hve litla virðingu skrifblækurnar bera fyrir einstakl- ingnum og frelsi hans ög um leið hve hættulegt vald þeirra er. Glúmur Jón Björnsson „Neytendur 1 löndum Evrópubanda- lagsins mega einnig eiga von á mikilli verðhækkun á þjónustu sem spannar allt frá hárgreiðslu til bílaviðgerða ef önnur hugmynd um svonefnda „neyt- endalöggjöf ‘ nær fram að ganga.“ um bandalagsins í Brussel fram- leiða á ári hverju. Embættismenn- irnir virðast hafa miklar áhyggjur viðgerða ef önnur hugmynd um svonefnda „neytendalöggjöf1 nær fram að ganga. í lögunum er gert Meðog ámóti Aðstoðarmenn í embættis- störf Ekkiafsalá mannréttindum „í lögum um stjórnar- ráð íslands er ráðherraveitt heimild til að ráða mann utan ráöu- neytis sér til aðstoðar. Þar segír ekkert um að þessi aðstoðarmað- ur eigi að vera pólitískur aðstoð- armaður ráðherrans. Hann getur allt eins verið sérfræöingur, fag- maður úr öðrum stjómmála- flokki en ráðherrann. I lögunum segir einnig að maður, sem ráð- inn er meö þessum hætti, skuli ekki starfa sem aðstoðarmaöur lengur en ráöherrann, sem réð hann, gegnir embætti. Það er hins vegar fráleitt að halda því frám að maður, sem ræður sig sem aðstoðarmann ráðherra, missi um leið embættisgengi til ann- arra starfa, en það er einmitt það sem menn hafa veriö að segja þegar verið er að gagnrýna þaö þegar aðstoðarmenn ráðherra hafa tekið viö öðrum störfum. Það felst ekkert afsal á mannrétt- indum í því að taka við starfi aðstoðarmanns ráðherra sam- kvæmt 14. grein Stjórnarráðslag- anna en það er í rauninni það sem Ólafur Ragnar Grímsson, form- aður Alþýðubandalagsins, hefur • veriö að segja. Hann vill svipta þessa menn mannréttindum, það er réttinum til að sækja um og vera skipaöur í önnur störf í stjómkeiifinu.“ Pólitískir gæðingar „Nú hafa þeir alþýðu- flokksmenn gengiö einum of langt S að planta sínum mönnum í stjómkerfmu og það er spuming hvort ein- hverjir kratar eru eftir í þjóðfélaginu sem ekki hafa komist í feitt að undanfornu. Það er eðlilegt að menn leiti ráða hjá pólitískum félögum sínum en að þeir ráði menn i embætti. án þess að auglýsa heföi einhvern tímann þótt siðlaust hjá alþýðu- fiokksmönnum. Maður spyr sig: hverjir eiga ísland. Að þessu spurði Jón Baldvin fyrir nokkr- um árum en það er ekki spuming í dag því alþýöuflokksmenn era að eigna sér það. Það sem vantar hjá alþýðuflokksmönnum er að meta menn eftir hæfíleikum og fýrri störfum en ekki eingöngu eftir flokkslSnum. Margir þessara manna, sem hafa fengið embætti á þennan veg, eru eflaust ágætir menn og hæfir en það gifda bara vissar reglur S þjóðfélaginu -og þær reglur eiga einmg að gilda fyrir alþýöuflokksmenn. Þessar síðustu ráöningar era komiö sem fyllti mælinn en kannski er fólk hætt aö kippa sér upp við þetta. Gott dæmi er nú þegar rætt er um nýjan forstjóra Trygginga- stofnunar. Ekki er farið eftir fag- legri umfjöllun heldur stendur vaflð mifli tveggja alþýðuflokks- manna. Hvernig eiga menn að geta unnið sig upp í störfum ef pólitískir gæðingar koma og era teknir fram yfir alla aðra?“ -bm Ingibjörg Pálma- dóttir, þingkona Framsóknarflokks • : .nm:,,i; Eiður Guðnason, þingmaður Alþýðu- flokks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.