Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1993, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1993, Side 18
18 MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1993 Iþróttir Meistarinn gleymdi hálf- um hring Heimsmeistarinn fyrrverandi í tölti og fjórgangi, Andreas Trappe, gerði óskiljanleg mistök í töltinu. Hann átti rétt á því að verja titla sína á stóðhestinum Tý frá Rappenhof en valdi ein- ungis töltið og var dæmdur úr leik. Trappe reið hálfum hring of skammt í hæga töltinu og það þýðir að hann fékk ekki einkunn fyrir sýninguna. „Ég gerði mistök“ „Eg gerði tvenn mistök. Fyrst þegar ég tók þá ákvörðun að vera einungis með í töltinu, en ekki fjórganginum og svo síðar er ég reið vitlaust í töltinu," sagði Andreas Trappe. Týr sinnti 60 merum í sumar og ég hef þjálfað hann örlítið und- anfamar þrjár vikur, en tók hann ekki úr merunum fyrr en fyrir tíu dögum. Ég ætlaði að fara í for- keppnina í tölt og fjórgang og ef ég kæmist í úrsht velja þá í hvor úrsUtin ég færi, því það væri of erfitt fyrir hann að fara í hvort- tveggja. En það er ekki leyfilegt og því valdi ég bara töltið og gerði þar þessi mistök sem ollu því að ég var dæmdur úr leik. Ég spurði dómarana hvaða einkunn ég hefði fengið og skUst að það hefði verið um 8,50 og ég hefði verið efstur,“ segir Andreas Trappe. Þrjár þjóðir með í fyrsta skipti Þijár þjóðir sendu keppendur á heimsmeistaramót í fyrsta skipti. Einn keppandi kom frá hverju landanna: Færeyjum, Lúxem- borg og Slóveníu. Slóvenar hafa ekki énn verið teknir inn í FEIF, (Félag eig- enda/vina íslenska hestsins), en eru á biðUsta. íslendingar í mörgum landsliöum Þá kepptu íslendingar fyrir önnur lönd en ísland. Sigrún Erlingsdóttir keppti á Sælu frá Gauksmýri fyrir Bret- land. GyUl Garðarsson á Hálegg frá Fosse, Sigrún Gísladóttir á Blakk frá FeUi og Aðalsteinn Aðal- steinsson með kynhótahrossin Ringó frá Ringerike og Kaiu frá Frövík sýndu öll fyrir Noreg. ísland og Austurríki skiptu á knöpum. Höskuldur Aðalsteins- son keppti fyrir Austurríki á stóðhestinum SUfurtoppi frá Sig- mundarstöðum í hestaíþróttum en Johannes Hoyos sýndi stóð- hestinn Létti frá Grundarfirði í kynbótasýningunni. Léttir stóð efstur í sínum flokki. Villtust í marga klukkutíma Mörgum íslendingum reyndist erfitt að rata á svæðið. FlestaUir höfðu sögur aö segja þar Sem þeir voru villtir í langan tíma að leita að mótssvæðinu, nokkrir jafnvel klukkustundum saman. Hundurð fslendinga flukktust á mótið og hafa aldei verið fleiri á slíku móti. Þeir studdu vel við bakiö á sínum mönnum og hvöttu þá til dáða all- an tímann. Um það bil 6.000 manns mættu alls, en hefðu sennilega verið fleiri ef ekki hefði hellirignt nánast allan sunnudaginn. Regniö skemmdi mikið fyrir mótshöldurum á aðal- deginum því áhorfendur tindust í skjól. Hundar vandamál Htmdar voru vandamál á mót- inu. Geysilega margar tegundir hunda sáust og voru sumir laus- ir. Hollenska stúlkan Crala van Nunen lenti í vandræðum í for- keppni töltsins. Um leið og hún hóf sýningu kom hvolpur inn í brautina og hóf eftirfór og gó sem mest hann mátti. Þannig elti hann Cörlu alla sýninguna á enda. Henni var boðið að endur- takasýningunaenneitaði. -E.J. Sigurbjörn Bárðarson og Hinrik Bragason fagna fjórum heimsmeistaratitlum í hestaiþróttum. Besti árangur frá upphaf i í hestaíþróttum á HM Sigurreifir íslendingar fognuðu besta árangri í hesta- íþróttum frá upphafi með því að sækja fjögur gull á heimsmeistaramótið í Hollandi. Knapar voru ekki ein- göngu að setja í gull heldur flykktust þeir í úrslit í hin- um ýmsu greinum og juku kraftinn þegar þess var þörf. Uppskeran var fjórir gullpeningar, tveir silfurpening- ar, tveir koparpeningar og auk þess var einn knapi 1 fjórða sæti og Qórir 1 fimmta sæti. Þrettán verðlauna- sæti, mest áður tólf í Roderath í Þýskalandi 1983. Hinrik Bragason varð heimsmeistari í einni grein en Sigurbjörn Bárðarson í þremur. Þar jafnaði hann árang- ur sinn frá því í Larvik í Noregi 1981. -E. j. Úrslitá HM í Hollandi Samanlagður meistari 1. SigurbjörnBárðarson.....8,08 á Höfða (ísland) 2. Jolly Schrenk...........8,00 á Ófeigi (Þýskaland) 3. Magnus Ljungquist.......7,76 á Hrammi (Svíþjóð) 4. Johannes Hoyos..........7,49 á Fjölni (Austurríki) 5. Sandra Feldmann.........7,47 á Glampa (Þýskaland) Tölt 1. Jolly Schrenk...........8,13 á Ófeigi (Þýskaland) 2. Einar O. Magnússon......8,07 á Funa (ísland) 3. Maaike Burggrafer.......7,43 á Braga Djöfli (Holland) 4. BemdVith................8,07 á Röð (Þýskaland) 5. Baldvin A. Guðlaugsson..7,47 á Nökkva (ísland) Fjórgangur 1. Jolly Schrenk...........8,07 á Ófeigi (Þýskaland) 2. SandraFeldmann..........7,53 á Glampa (Þýskaland) 3. Maaike Burggrafer.......6,87 á Braga Djöfli (Holland) 4. Bemd Vith...............7,40 á Röð (Þýskaland) 5. Sigurður V. Matthíasson.6,93 á Þráni (ísland) Fimmgangur 1. SigurbjörnBárðarson.....6,77 á Höfða (ísland) 2. Reynir Aðalsteinsson....6,30 á Skúmi (ísland) 3. Atli Guðmundsson........6,37 á Reyni (ísland) 4. Rosl Rössner............6,60 á Prúð (Þýskaland) 5. Einar Ö. Magnússon......6,37 á Funa (ísland) Gæðingaskeið 1: Sigurbjörn Bárðarson....7,96 á Höfða (ísland) 2. UlfLindgren.............7,33 á Hrafnkatli (Svíþjóð) 3. PietHoyos...............7,25 á Vaski (Austurríki) 4. Jenny Mandal............6,75 á Dropa (Svíþjóð) 5. Hinrik Bragason.........6,63 á Eitli (ísland) 250 metra skeið 1. Hinrik Bragason....22,4 sek. á Eitli (ísland) 2. Vera Reber..............22,7 sék. á Frosta.(Þýskaland) 3. Ulf Lindgren............23,0 sek. á Hrafnkatli (Svíþjóð) 4. Sigurbjöm Báröarson..23,0 sek. á Höfða (ísland) 5. Magnus Lindquist...23,4 sek. á Hrammi (Svíþjóð) Hlýðnikeppni 1. SandraFeldmann...........6,36 á Glampa (Þýskaland) 2. LilianPedersen...........6,13 á Grana (Danmörk) 3. Jolly Schrenk............6,16 á Ófeigi (Þýskaland) 4. Brigitte Karmus..........6,21 á Tridi (Austurríki) 5. SatuPaul.................5,87 á Eitli (Finnland) Slaktauma tölt 1. GerrittSchurl............... á Kóraki (Austurríki) 2. MartinHeller................ á Svip (Sviss) 3. Reynir Aðalsteinsson........ á Skúmi (ísland) 4. Johannes Hoyos.............. á Fjölni (Austurríki) 5. YlvaHagander................ á Mekki (Sviþjóð) Kynbótahross 5 og 6 vetra merar 1. Rúna von Egg............Sviss Byg: 8,17, hæf: 8,28, aðal.: 8,23 F: Hrafn-Krabbi von Sporz M: Hrönn von Sporz 2. Drottning vom Rappenhof .......................Þýskaland Bygg.: 8,03, hæf.: 8,35, aðal.: 8,22 F: Svadi vom Rappenhof M: Hrönn frá Kolkuósi 3. Kaia fra Frövik.......Noregur Bygg.: 7,78, hæf.: 8,01, aðal.: 7,92 F: Spænir frá Efri-Brú M: Katla frá Vikingsstad 7 vetra merar 1. Hrefnafrá Gerðum......ísland Bygg.: 7,64, hæf.: 8,31, aðal.: 8,04 F: Hrafn frá Holtsmúla M: Hera frá Gerðum 2. Askja fra Vikingsstad.Noregur Bygg.: 7,59, hæf.: 7,85, aðal.: 7,75 F: Kulur frá Eyrarbakka M: Nös frá Völlum 3. Stjarnall.........Frakkland Bygg.: 7,91, hæf.: 7,58, aðal.: 7,71 F: Reykur M: Freyja frá Selfossi 5 og 6 vetra stóðhestar 1. Léttir frá Gmndarfirði.ísland Bygg.: 7,88, hæf.: 8,22, aðal.: 8,08 F: Viðar frá Viðvik M: Sunna frá Fáskrúðarbakka 2. Ringó frá Ringerike.Noregur Bygg.: 7,81, hæf.: 8,01, aðal.: 7,93 F: Borgfjörð frá Hvanneyri M: Njála frá Skarði 3. Einar von Roetgen Þýskaland Bygg.: 7,46, hæf.: 8,06, aðal.: 7,82 F: Hervar frá Sauðárkróki M: Harpa frá Ytra-Skörðugili 7 vetra stóðhestar 1. Kári frá Aldenghoor.Holland) Bygg.: 8,22, hæf.: 8,18, aðal.: 8,19 F: Vinur frá Víðidal M: Kempa frá Hólum 2. Fengur von Chur........Sviss Bygg.: 7,80, hæf.: 8,29, aðal.: 8,10 F: Hervar frá Sauðárkróki M: Litla-Fluga frá Sauðárkróki 3. Fylkir vom Bremervörde-Roder- ath..................Þýskaland Bygg.: 7,71, hæf.: 8,26, aðal.: 8,04 F: Fifi von Spenstrup M: Huldumey

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.