Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1993, Page 28
36
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1993
Sviðsljós
í hringiðu helgarinnar
Harpa Jóhannsdóttir, Sigríður Vigfúsdóttir, Þórdís Þórðardóttir og Jó-
hanna Þórðardóttir voru ljósberar fyrir Kvennakór Reykjavíkur sem
hélt aðventutónleika fyrir fullu húsi í Hallgrímskirkju á sunnudag.
Kvennakór Reykjavíkur var stofnaður í janúar sl. og eru í honum eitt
hundrað konur en auk þess sungu með konur úr Kórskóla kvennakórsins.
Það voru margir sem samfognuðu Róbert Amflnnssyni leikara á laugar-
dag þegar ævisaga hans, Róbert - ævisaga listamanns, kom út. Þar á
meðal voru þau Laufey Þorbjarnardóttir, Helga Bachmann, Helgi Skúla-
son og Jón Sigurðsson.
HUSGOGN
, FAXAFENI5
SIMAR 674080 / Ó8ÓÓ75
Merming
Hulduveröld hraunsins
- Halldór Ásgeirsson í Listasafni ASI
Átómatismi er hugtak sem súrrealistar notuðu eitt
sinn yfir virkjun hins sjálfsprottna sköpunarkrafts
undirvitundarinnar. Aðferðirnar voru margar til að
virkja þennan sköpunarkraft, þ. á m. ósjálfráð teikning
og reyking („fumage"). Halldór Ásgeirsson er sá hér-
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
lendur myndlistarmaður sem unnið hefur hvað mest
út frá þessum forsendum. Teikningar hans og málverk
hafa löngum byggst á dularfullum sjálfsprottnum
táknum sem hafa einna helst minnt á frumbyggjalist
ýmissa indíánaættflokka í Ameríku. Síðustu árin hef-
ur Halldór þó að mestu haldið sig að óhefðbundnari
aðferðum eins og reykingu. Fyrir tveimur árum sýndi
hann t.a.m. efnisstranga í Galleríi einum einum sem
hann hafði meðhöndlað með kerti. Á þeirri sýningu,
sem Halldór hefur nú opnað í Listasafni ASÍ, tengir
hann í fyrsta sinn hinar óhefðbundnu þreifíngar sínar
við sjálfsprottna sköpun málverkinu og ósjálfráðum
táknmyndum þess.
Logsoðið hraungrýti
Á sýningu Halldórs eru þrettán verk sem flest byggj-
ast á hraungrýti sem listamaðurinn hefur logsoðið við
1200-1400 gráður svo hrauniö drýpur og ummyndast
því sem næst í gler. Kólnunin er svo snögg að hraun-
ið harðnar á miðri leið sé það látið drjúpa og er merki-
legt að sjá hvernig Halldór hefur náð á þennan hátt
að töfra fram hárfína svarta þræði úr hrauninu. Að
sögn listamannsins eru hraunmolarnir flestir úr
Krýsuvík, en þar er hraunið tiltölulega ungt og lausara
í sér og auðveldara í meðfórum en t.d. Hekluhraun.
Hina logsoðnu hraunmola hefur hann ýmist fest á
plexiplastplötur á veggjunum („Ferð“, nr. 1-3), fest þá
á brennda tréplötu („Grænka", nr. 8) eða sett þá í til-
raunaglös og krúsir með mislitum vökva („Frjóvg-
un“, nr. 10). Sköpunarferlinu er þó ekki þar með lokið
því að Halldór teiknar hinn logsoðna og ummyndaða
hraunmola eftir meðhöndlun og er sá þáttur sýningar-
innar ekki síður eftirtektarverður. Þarna birtast hinar
torkennilegustu verur sem eiga í senn uppruna sinn
Ein af myndum Halldórs á sýning-
unni.
í náttúrunni og logsuðuáráttu listamannsins - sem
má reyndar líta á sem náttúrulega eldvirkni.
Sköpunarkraftur náttúrunnar
Listamenn á borð við Jóhann Eyfells hafa notað
áþekkar aðferðir við að láta hinn sjálfsprottna sköpun-
arkraft náttúrunnar móta verk sín, en með teikning-
unum færir Halldór slíkar rannsóknir á eðli sköpunar
skrefi lengra. Tvöfóld meðhöndlun efnisins leiðir fram
á sjónarsviðið litríka hulduveröld sem margir hafa
hingað til eignað Kjarval einum. En með verkum sín-
um bendir Halldór á að hraunið hefur jafn margar
ásjonur og möguleika og hugarflugið leyfir. Spurning
er hvort Halldór fer næst með trönurnar á Þingvelli
eða tappar hrauninu á fleiri tilraunaglös.
Sýningin stendur til 19. desember.
Hörpusláttur
Tónleikar voru í Hafnarborg í Hafnarfirði í gær-
kvöldi á vegum Tríós Reykjavíkur. Með tríóinu léku
að þessu sinni Elísabet Waage hörpuleikari og Guðrún
Birgisdóttir flautuleikari. Tríóið skipa eins og kunnugt
er þau Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Halldór
Haraldsson píanóleikari og Gunnar Kvaran sellóleik-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
ari. Á efnisskránni voru verk eftir Jaques Ibert, Gabri-
el Fauré, Marius Flothuis, Maurice Ravle, Thomas
Rawhngs, Joaquin Turina og Claude Debussy.
Það var í rauninni harpan sem flest snerist um á
þessum tónleikum og voru verkefnin mjög valin með
það fyrir augum að hún fengi að njóta sín. Þannig var
harpan með í öllum verkunum á efnisskránni en hin
hljóðfærin skiptust á að vera með. Fyrsta verkiö, tríó
fyrir fiðlu, selló og hörpu eftir Ibert, var hressilegt og
kraftmikið þótt spilamennskan hafi ekki alltaf verið
nógu hrein. Stíllinn er impressionískur með róman-
tísku ívafi og verkið er prýðilega unnið. Impromptu
í Haf narborg
eftir Fauré er einleiksverk fyrir hörpu og mjög vel
skrifaö fyrir hljóðfærið. Elísabet Waage lék verkið af
hreinni snilld. Þrjár nocturnur eftir Flothuis voru hins
vegar heldur léttvægar tónsmíðar og með töluverðum
áhugamannsbrag. Það verður hins vegar ekki sagt um
Pavane eftir Ravel sem næst kom. Þar er einfaldleik-
inn vafinn þeirri hugkvæmni sem ríður baggamuninn
auk þess sem ekkert verður fundiö að handbragðinu.
Tvö tilbrigðaverk komu fyrst eftir hlé. Annað í klass-
ískum stíl eftir Rawlings, byggt á velsku þjóðlagi. Hitt
var í impressionískum stíl eftir Turina. Bæði eru fyrir
píanó og hörpu og verður það að teljast óvenjuleg sam-
setning. Það hljómaði samt býsna vel og bæði verkin
komu áheyrilega út. Undirritaður gat því miður ekki
verið viðstaddur flutning síðasta verksins sem var
sónata fyrir flautu, víólu og hörpu eftir Debussy.
Yfirleitt var hljóðfæraleikur góður á þessum tónleik-
um. Einkum var þó ástæða til þess að hrífast af hörpu-
leikaranum. Leikur Elísabetar var frábærlega skýr og
greinilegur hvað sem leikið var. Öll blæbrigði lita og
styrks voru útfærð af mikilli nákvæmni og smekkvísi
og yfirvegað öryggi hvíldi yfir öllu sem gert var. Þarna
er greinilega á ferðinni mikil tónhstarkona sem gaman
væri að heyrðist oftar í hér heima.
á íslenskuátak Apple-umboðsins og D\( sem birtist 19. nóv., 24. náv. og 1. des. s.l.
Sendið Apple-umboðinu, Skipholti 21,105 Reykjavík, lausnirnar fyrir 8. desember, merkt:
Islenskuátak Apple-umboðsins og DV El<l(i er nauðsynlegt að safna öllum þremur textunum saman
en séu þeir allir sendir aukast möguleikarnir til vinnings. 1. verðlaun eru Macintosh LCIII-tölva með
4 Mb vinnsluminni, 80 Mb harðdiski, 14" litaskjá, mús, hnappaborði og að sjálfsögðu Ritvelli.
2, til 11. verðlaun eru pakkar með íslenskuforritinu Ritvelli.
Appie-umooðið
Skipholti 21, sími 91-624800