Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1993, Síða 40
48
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1993
Sviðsljós
f hringiðu helgarinnar
í Vestmannaeyjum er fólk oft
þekktara undir gælunöfnum, en
sínu fulla nafni, svo er aUavega
með þau Jón mílu, sem hlaut nafn-
giftina vegna þess hversu hávaxinn
hann er, Beggó og Sigrúnu, en þau
voru ásamt mörgum öðrum Vest-
mannaeyingum, sem búsettir eru á
fastalandinu, á Rauða ljóninu á
föstudagskvöld.
Herrafyrirsæta Suðurnesja var valin í annað sinn með pompi og prakt á
veitingahúsinu Þotunni um helgina. Sá sem hlaut titilinn í ár heitir Jón
Ingi Jónsson, en annað sætið skipaði Guðmundur Oddsson og í því þriðja
varð Bjarki Sigurðsson.
Þegar Ingólfstorg var formlega opnað á laugardag var buðu Reykjavíkur-
borg og Miðbæjarfélagið upp á íjölbreytta skemmtidagskrá. Hér fylgjast
þau Hlynur, Sveinn, Jóhanna, Erla Sif og Hrefna Björg með því sem fram
fer á sviðinu.
Skólasysturnar Kristin Ástgeirs-
dóttir og Birna Ólafsdóttir voru
ásamt öðrum Vestmannaeyingum
á Rauða ljóninu á föstudagskvöld
þar sem kannað var hvort grund-
völlur væri fyrir stofnun átthagafé-
lags Vestmannaeyinga. Það reynd-
ist heldur betur vera, svo nú stytt-
ist í stofnfundinn hjá þeim.
Sveinbjöm Björnsson, rektor Há-
skóla Islands, stendur hér á milli
þeirra Sigmundar Guðbjarnason-
ar, fyrrv. rektors, og eiginkonu
hans, Margrétar Þorvaldsdóttur.
Þau voru stödd í Skólabæ þar sem
Margrét Guðnadóttir fékk fyrst
kvenna afhent Ásuverðlaunin sem
eru heiðurverðlaun úr verðlauna-
sjóöi Ásu Guðmundsdóttur Wright.
Kolbrún Hauksdóttir er hér ásamt
eiginmanni sínum, Gunnari A.
Þorlákssyni, skrifstofustjóra Fé-
lagsmálastofnunar Reykjavíkur-
borgar, sem varð fimmtugur á
laugardag.
Þeir Ólafur Skúlason, biskup ís-
lands, og séra Þorbergur Kristjáns-
son, sóknarprestur í Digranes-
prestakalli, höföu ástæðu til að
brosa breitt á laugardag en þá var
haldið reisugildi í hinni nýju Digra-
neskirkju sem áætlað er aö verði
vígð í september á næsta ári.
I Perlunm voru um helgina samankomin u.þ.b. eitt þúsund böm í 27 kórum á umfangsmiklu kóramóti sem verður fram haldið næstu tvær helgar.
Hér getur að líta hluta af barnakór Varmárskóla, en kórarnir voru af öllum stærðum og gerðum. í þeim minnstu voru 18 nemendur en í þeim stærsta 100.
Um hveija helgi fram að jólum geta gestir við jólahlaðborð Fjörukrárinn-
ar notið skemmtilegrar söngdagskrár Fjörukvartettsins sem skipaður er
þeim EUnu Ósk Óskarsdóttur, Guðrúnu Ásbjörnsdóttur, Sigurði Braga-
syni og Kjartani Ólafssyni. Þeim til aðstoðar eru 25 litlir jólasveinar sem
koma úr Kór Tónbstarskóla Hafnarfjarðar. Eins og venja er á Fjöru-
kránni er sótt í gamlar íslenskar hefðir í fatavali og þ.a.l. era það gömlu
íslensku jólasveinamir sem era fyrirmyndimar.
íslensk tónlistarútgáfa er viðamikil um þessi jól. Ekki er annað að segja
en að íslendingar taki íslenskri tónlist vel því fyrsta gullplatan var af-
hent nú um helgina. Það var Bubbi Morthens sem var fyrstur til að ná
fimm þúsund eintaka markinu með plötu sinni Lífið er ljúft. Auk hans
fengu þeir Eyþór Gunnarsson upptökustjóri, Óskar Páll Sveinsson, sem
sá um upptökur og hljóðblöndun, og Þorvaldur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Skífunnar, afhent eintök.
Kauphallarmót Bridgesambands íslands var haldið
um helgina. í upphafi móts gátu menn „keypt“ þátttak-
endur á uppboði sem Halldór Blöndal stjóraaði. Hér
getur að líta þá „verðmætustu", þá Sævar Þorbjörns-
son og Jón Baldursson, sem seldust á 75 þúsund krón-
ur, og Þorlák Jónsson og Guðmund Pál Amarsson en
í þá vora boðnar 85 þúsund krónur. Þeir síðamefndu
enduðu í öðra sæti en í þvi fyrsta urðu þau Hjördís
Eyþórsdóttir og Ásmundur Pálsson sem seldust á 40
þúsund krónur.
Jólasýning Árbæjarsafns hófst á
sunnudag. Þar er hægt að sjá
hvemig hefðbundinn jólaundir-
búningur fór fram á baðstofuloft-
inu. Það er hætt við að mörg börn
eigi erfitt með aö ímynda sér jól
með jólatré eins og hún Sigríður
Ólafsdóttir var að vefja úr blöndu
af sortu-, krækibeija- og beitilyngi
á sunnudag.
Dr. Sturla Friðriksson afhendir hér Margréti Guðna-
dóttur Ásuverðlaunin. Það eru heiðursverðlaun sem
veitt era úr sjóöi sem stofnaöur var af frú Ásu Guð-
mundsdóttur Wright fyrir 25 árum. Margrét fékk verð-
launin fyrir rannsóknir sínar á sviði veirufræði en
hún er fyrsta konan til að hljóta þennan heiður.
liAc'-