Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1994, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
3
Fréttir
Sólbaðsstofuræninginn og tveir samfangar í réttarhöldum í strokumálinu 1 gær:
Björgvin Þór hugleiddi
að strjúka úr landi
- þetta er nú meiri haugaþvættingurinn, sagði sækjandi um framburð Hans Emis Viðarssonar
Sólbaðsstofuræninginn Björgvin Þór Ríkharðsson við réttarhöldin i Héraðsdómi Suðurlands í gær. Verjandi hans,
Hilmar Ingimundarson, t.h., leggur áherslu á það í vörn sinni að Björgvin Þór hafi ekki verið refsifangi þegar
hann strauk ásamt tveimur föngum síðastliðið sumar, heldur gæslufangi. Af þeim sökum standist ákæran ekki
um sammæli við strok með samföngum.
DV-mynd GVA
„Ég var mjög ósáttur við dóm und-
irréttar og leið mjög illa. Ég átti í til-
finningalegum erfiðleikum og vildi
komast út úr þvinguðu andrúmslofti
og eftir einangrunina í Síðumúla-
fangelsinu. Það er ekki óeðlileg hugs-
un hjá fanga sem er búið er að dæma
í 10 ára fangelsi að stijúka eða fara
úr landi,“ sagði hinn svokallaði sól-
baðsstofuræningi, Björgvin Þór Rík-
harðson, einn þeirra þriggja sem
struku úr fangelsinu á Litla-Hrauni
þann 28. júlí sfðastliðið sumar við
réttarhöld í Héraðsdómi Suðurlands
á Selfossi í gær. Björgvin Þór sagði
í samtafi við blaðamann DV við rétt-
arhöldin í gær að hann hefði hugleitt
að sttjúka til Bandaríkjanna, Spánar
eða ítafiu.
Björgvin Þór, Hans Emir Viöars-
son og Hörður Karlsson eru allir
ákærðir sem fangar fyrir að hafa
sammælst við strok úr fangelsinu.
Við réttarhöldin í gær báru þeir allir
af sé sammæli - skilyrði fyrir því að
hægt sé að dæma menn til refsingar
vegna stroks er einmitt að það sé
sannað að menn sæmmælist um
brotiö.
Karlmaður og kona, sem voru fyrir
utan rimlana þegar atburðimir áttu
sér stað, em einnig ákærð í máfinu
en þeim gefið aö sök að hafa aðstoðað
fangana við flóttann og á meðan þeir
fóm huldu höfði gagnvart lögregl-
unni í Reykjavík. Þau tvö og vitni
verða yfirheyrð fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag. Fangamir þrír,
fangaverðir og vitni frá Eyrarbakka
vom hins vegar yfirheyrð á Selfossi
í gær auk þess sem verjendur, sækj-
andi og dómari fóm í vettvangsskoð-
un í fangelsið á Litla-Hrauni.
Það þýðir ekkert að
spyrja þennan mann
„Nei, það þýðir ekkert að spyrja
þennan mann. Þetta er svoddan
haugaþvættingur í honum miðaö viö
það sem fullt af vitnum hefur sagt.
Það verður enginn vandi að sanna
sök á hann.“
Þetta sagði Björn Helgason sækj-
andi í máfinu þegar Jón Ragnar Þor-
steinsson héraðsómari bauð ákæm-
valdinu að leggja spurningar fyrir
Hans Erni Viðarsson í vitnastúkunni
eftir að dómarinn hafði spurt sak-
borninginn út í sakarefnin.
Fangamir struku út úr klefa Hans
Emis á annarri hæð og sagðist hann
hafa sagað rimil úr glugga til að
hægt væri að komast út. Nokkmm
dögum áður haföi hann tekið verk-
færi af verkstæði, m.a. jámsög. Hans
Ernir kvaðst hafa sagað rimilinn úr
kvöldið sem hann fór og hækkað í
hljómflutningstæki sínu í botn til að
ekki heyrðist til hans við að saga.
Hann sagðist hafa látið sig detta þá
4 eða 5 metra hæð úr glugganum
niður á jörö. Hans Ernir kvaðst ekki
hafa farið út með Björgvini Þór og
Herði og reyndar ekki séö Hörö fyrr
en á Staldrinu í Breiðholti í Reykja-
vík daginn eftir. Hann neitaði að
hafa farið í bfi með Björgvini Þór og
Herði frá Litla-Hrauni eins og þeim
er öllum gefið að sök.
Ég hef nú hoppað hærra
Hörður Karlsson sagðist hafa
vaknað upp í klefa sínum kvöldið
í dómsaJnum
Óttar Sveinsson
sem strokið átti sér stað og farið á
stjá í fangelsinu en þá séð að það var
opið út í klefa Hans Ernis. Hann
hafi notað tækifærið, farið út um
gluggann og stokkið niður. „Þetta
stóð allt opið fyrir mér þegar ég kom
þarna,“ sagði Hörður.
Þegar dómarinn spurði Hörð hvort
hann vissi hve margar mannhæðir
það væm úr glugganum og niður á
jörð sagði Hörður: „Eg hef allavega
hoppað hærra en þetta ef út í það er
farið.“ Hann kvaðst hafa hitt Björg-
vin Þór og Hans Erni á túni fyrir
utan fangelsið. Hörður og Hans Ern-
ir hafa báðir sagt við yfirheyrslur að
þeir hafi „húkkað sér“ far suður til
Reykjavíkur.
Stenst ákæran á hendur
Björgvini Þór?
Hfimar Ingimundarson, verjandi
Björgvins Þórs Ríkharðsonar, leggur
áherslu á það í vöminni fyrir skjól-
stæðing sinn, að hann hafi ekki verið
fangi á Litla-Hrauni þegar hann
strauk, heldur gæslufangi. Á þessu
sé skýr greinarmunur enda hafi
Björgvin Þór veriö að bíða eftir nið-
urstöðu Hæstaréttar í sínu afbrota-
máfi þegar fangamir þrír struku.
í hegningarlögunum em ákvæði
þar sem segir að það varði refsingu
ef fangi í refsivist strýkur. Hilmar
segir Björgvin Þór alls ekki hafa ver-
ið refsifanga þótt hann hafi verið í
gæsluvaröhaldi á Litla-Hrauni síð-
astliðið sumar enda séu allir saklaus-
ir þangað til endanlegur dómur geng-
ur. Björgvin Þór var dæmdur í 12 ára
fangelsi í Hæstarétti í desember síð-
astliðnum en fram að þeim dómi
hafði hann verið vistaður í gæslu-
varðhaldsfangelsinu í Síðumúla en
síðan á Litla-Hrauni.
Björgvin Þór var handtekinn eftir
rán á sólbaðsstofu í nóvember 1992
en fljótlega eftir það fóru böndin að
berast að honum í nauðgunarmáli
sem átti sér staö á Akureyri fyrr á
því ári. Björgvin Þór var sakfelldur
fyrir nauðgunina, m.a. á grundvelli
DNA rannsóknar, aðra nauðgun, sól-
baðsstofuránið og fleiri afbrot.
Vitni sögðu fangana
hafa farið saman
Björgvin Þór var sá eini af föngun-
um sem kvaðst hafa fengið bfifar til
Reykjavíkur með manni sem beið á
bfi fyrir utan fangelsið kvöldið sem
fangarnir sttuku. Hann kvaðst hafa
gefiö manninum fyrirmæli í síma um
að bíða á bfinum þegar klukkan var
rúmlega níu um kvöldið en fangamir
struku um ellefuleytiö.
„Hann var undrandi og hissa þegar
ég kom inn í bfiinn. Ég sagði honum
að keyra af stað og fara í bæinn en
hann var ekki mjög hrifinn af þvi.
Hann átti ekki von á að þessu,“ sagði
Björgvin Þór um viðbrögð bfistjór-
ans.
Tveir menn frá Eyrarbakka báru
vitni í málinu í gær en þeir voru
staddir á bfi skammt frá fangelsinu
þegar þeir sáu þrjá menn fara inn í
bfi sem þeir telja vera þann sem
kunningi Björgvins Þórs var á um-
rætt kvöld. Eins og að framan grein-
ir hafa Hans Ernir og Hörður ekki
viðurkennt að hafa farið saman í
þeim bfi tfi Reykjavíkur um kvöldið.
Björgvin Þór neitaði hins vegar að
svara spurningum um það í gær
hvort aðrir fangar hafi verið í bfin-
um.
Uikuferð 29. mars - 5. apríl.
Víkuferð 12.-19. mars.
Skíöaterð tllWagraln í Austurríki á brunandi verði!
Kynnist tötrum Skotlands um páska, undir öruggri leiðsögn
Líiju Hilmarsdóttur.
13-19. marsáaðeins
Innifalið: Flug, gisting, morgunverður og akstur til og frá Ylugvelli.
Flogið til Salzburg og heim trá Lúxemborg.
Ekki innitalið: Rugvallarskattur og lortallagjald.
Innifalið í verði: 7 nætur á IVIount Royal Hotel, morgunverðarhlaðborð,
íslensk lararstjórn og ferðir til og frá flugvelli.
Ekkí innifalið í verði: Flugvallarskattur, forfallagjald og skoðunarferðir.
Beint leiguflug.
Fjögurra stjörnu hótel í n
15dagaferð30. mars. J (IV J 1^1«
Verð frá W • • t/ö 0 IX1 •
Verð frá 37.987 kr. m.v. hjón og tvö börn 2ja-11ára í stúdíó á Jropicpj
Verð frá 53.720 kr. m.v. tvo fullorðna á Brisa Sol. r~ei
1 higinnla l: siml (*•)') .{(><). illii/imrfin)i: simi 65 66.
i7í) Niiúhlislurii ii. ikiirryri: simi 2 50 00
• °K bJ" ioiiIkhísiiiííiiiiiihi um Imnl nlll-