Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1994, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
5
Fréttir
Loðnan gj örbreytir^atvinnulifinu í Grindavík:
Tveir skólabekkir fengnir
í vinnu við frystingu
Loönan hefur gjörbreytt atvinnu-
lífinu í Grindavík síðustu daga. Mok-
veiði hefur verið og í landi hafa menn
ekki haft undan við að frysta. Síð-
ustu viku bárust um 7 þúsund tonn
að landi í Grindavík og í gær virtist
ekkert lát á. Hefur allur aflinn farið
í frystingu. Hjá Fiskimjöh og lýsi
hefur verið unnið allan sólarhring-
inn. Frystigetan, 29 tonn á sólar-
hring, hefur verið nýtt að fullu. Hef-
ur fólk verið á átta tíma vöktum í
pökkuninni og mikill handagangur í
öskjunni.
Þegar DV heimsótti pökkunarsal-
inn gall flautan og mannskapurinn
tók 7 mínútna pásu. Virtust flestir
hvíldinni fengir. „Maður verður aö
fá að hvíla sig smástund af og til
þegar unnið er 16 tíma á-' sólar-
hring,“ sagði roskin kona og virtist
kafflþyrst.
Vegna anna við frystinguna var
tveimur 10. bekkjum grunnskólans
gefið frí.
„Það er fínt að komast í svona töm.
manni veitir ekki af peningunum.
Ég er að safna mér fyrir frekara námi
svo þetta kemur sér vel,“ sagði Sig-
urður Grétar Viðarsson, 16 ára, sem
hamaðist við að gera öskjurnar klár-
ar fyrir pökkun.
Sjómennska við bryggjuna
Um hádegi var verið að landa úr
Háberginu GK sem fyllti sig á svip-
stimdu ema mílu frá Grindavík og
þurfti ekíd að sigla nema rúmar tíu
mínutur til að geta lagst að bryggju
aftur.
Sunnuberg GK fór út eftir hádegi
og var aftur væntanlegt seinnipart-
inn með um 400 tonn í frystingu.
Hópsnesið GK lá bundið við
bryggju og var notað sem „fiysti-
hús“. Um hádegi var búið að frysta
um 50 tonn um borð. Vora loðnu-
pakkar hífðir niður í frystingu og
gaddferðnir pakkar fluttir jafnharð-
an í frystilestina.
„Þetta er helvíti fín sjómennska
maður, að vera bundinn við bryggju
allan tímann. Við losnum alla vega
við bræluna á meðan og getum farið
heim að sofa á annarri hverri frí-
vakt,“ sögðu skipveijar á Hópsnes-
inu sem voru í kafflpásu. Fryst hafði
verið um borð allan sólarhringinn
frá því á þriðjudag. Þó mikið væri
að gera var frekar þungt í mönnum
undir niðri. Loðnan hyrfi fyrr eða
síðar og lítið væri eftir af þorskkvót-
anum, um 50 tonn, og aðeins eftir af
karfa-, ufsa- og ýsukvóta. Strax í vor
Það var handagangur í öskjunni við pökkun loðnu til frystingar hjá Fiski-
mjöli og lýsi i gær. Unnið var allan sólarhringinn á 8 tima vöktum og svo
mikið að gera að fá þurfti fri fyrir 10. bekkinga grunnskólans til að hafa
undan.
Sigvaldi Þorsteinsson, t.v., og Ægir Gunnlaugsson, skipverjar á Hópsnesi GK, höfðu hröð handtök þegar þeir
skelltu loðnupökkum i frystivélina um borð í Hópsnesinu, þar sem það lá við bryggju i Grindavík í gærdag. Gadd-
freðnir loðnupakkar voru jafnharðan settir í frystilestina en þaðan fara þeir í gáma og áleiðis til Japans. Samtals
var búið að frysta 50 tonn af loðnu um borð frá því á þriðjudag. DV-myndir GVA
áttu menn því von á að fara á Smugu-
veiðar.
Gaman að vera til
Loðnan var á hraðri leið vestur úr
í gær en flestir bátar voru að veiðum
undan Reykjanesi um miðjan dag.
Búist var við að loðnan héídi áfram
í átt aö Snæfellsjökli þar sem Faxa-
flóinn er frekar kaldur.
Loðnubátamir hafa landað hver á
fætur öðrum í plássum á Suðumesj-
um og víðar. Smærri bátar voru á
sífelldri siglingu mih miða og lands
með 3-400 tonn í frystingu meðan
stærri bátar voru lengur að. DV
ræddi við Viðar Karlsson, skipstjóra
á Víkingi frá Akranesi, um miðjan
dag í gær. Hann var þá á leið til
Akraness meö fullfermi, um 1200
tonn, sem fékkst við Reykjanes. Hef-
ur Víkingur annars landað megn-
ingu af loðnuaflanum á Siglufirði.
í Þorlákshöfn hafði borist gríðar-
magn af loðnu á land eins og viðast
hvar á suðvesturhorninu. Á mynd-
inn er verið að sturta loðnu í þró
en ekki virðast allir vera jafn hittnir
og bílstjóri þessa vörubíls.
„Við komum á miðin um áttaleytið
í morgun óg fylltum á tæpum átta
tímum. Það fer hluti af aflanum í
frystingu en hitt í bræðslu. Það er
gaman að vera til núna enda er mað-
ur búinn að bíða í þrjá mánuði eftir
loðnunni," sagði Viðar og bjóst við
að leggja úr höfn aftur í nótt eða
snemma í morgun. Hvar landað yrði
næst vissi hann ekki.
Viðar sagði hættu á að bakslag
kæmi í frystinguna þar sem loðnan
væri orðin vel þroskuð. Þyrfti þá að
fara aftar í gönguna til að fá rétt hlut-
föll í aflann en Japanamir væru
ipjög nákvæmir hvað það varðaði. Á
sama tíma var Heimaey VE á leið til
Eyja með fullfermi, um 400 tonn.
Þórarinn Ingi Ólafsson stýrimaður
sagði loðnima hafa fengist í þremur
köstum undan Reykjanesi. „Það er
aðeins smærri loðna í aflanum núna
en þetta fer væntanlega í frystingu.
Það hefur verið unnið stanslaust all-
an sólarhringinn í landi frá því
loðnuveiðin hófst,“ sagði Þórarinn
ogvirtistglaðhlakkalegur. -hlh
TÆKNI
^//////////////////////////////
16 síðna aukablað um
HLJÓMTÆKI
fylgir DV á morgun.
í blaðinu verða upplýsingar um geislaspilara,
magnara, sérstaklega umhverfismagnara,
ýmsar gerðir hátalara,
heimabíó og mínihljómtækjastæður.
Einnig verður fjallað um hljómtæki í bíla og
samsetningu á hljómtækjasamstæðum.