Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1994, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
Útlönd
Leiðtogar Evrópu Yilja hóta loftárásum viðar í Bosníu:
Rússar vilja amríska
hermenn til Sarajevo
- SÞ ætla að opna flugvöllinn í Tuzla 1 næsta manuði
Leiðtogar Vesturlanda lýstu yfir
þeirri von sinni að þáttaskil hefðu
orðið í styijöldinni í Bosníu við hót-
anir Atlantshafsbandalagsins,
NATO, um loftárásir á stöövar Serba
við Sarajevo.
„Sameinuðu þjóöimar og Atlants-
hafsbandalagið hafa náð fyrsta
áfangasigrinum en meginhluti
verksins er enn ógerður, það má ekki
draga úr þrýstingnum," sagði Alain
Juppé, utanríkisráðherra Frakk-
lands, í útvarpsviðtah.
Flugvélar NATO fóm í eftirlitsflug
yfir Sarajevo í gær eftir að hótunun-
um um loftárásir á Serba haföi verið
aflétt. En þótt kyrrt væri í höfuðborg-
inni eftir að Serbar fluttu þungavopn
Alain Juppé, utanríkisráðherra
Frakklands.
sín á brott var ekki sömu sögu að
segja annars staðar í landinu þar sem
fréttir af bardögum bárast víðs vegar
að.
Frakkar og aðrar Evrópuþjóðir
hafa lagst á Bill Clinton Bandaríkja-
forseta um að víkka út úrslitakosti
NATO til annarra borga og bæja í
Bosníu sem setið er um. Clinton og
helstu aöstoðarmenn hans era hins
vegar tregir til en hafa þó lofaö að
athuga máhð. John Shalikashvih,
yfirmaður bandaríska herráðsins,
sagöi að fyrst væri nauðsynlegt að
tryggja að sprengjukasti inn í
Sarajevo væri endanlega lokið.
Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu í
gær að ætlunin væri að opna flug-
völlinn í Tuzla, norðan við Sarajevo,
þann 7. mars næstkomandi. Loftá-
rásir flugvéla NATO gætu þá reynst
nauðsynlegar ef ráðist yrði á friðar-
gæsluliðana.
SÞ vilja opna flugvöllinn svo að
hægt verði að flytja þangað hjálpar-
gögn fyrir hundruö þúsunda flótta-
manna sem hafast viö á svæðinu sem
er undir stjórn múslíma.
Favel Gratsjev, varnarmálaráð-
herra Rússlands, stakk upp á því í
símtali við bandarískan starfsbróður
sinn, William Perry, aö Bandaríkin
sendu hermenn til friðargæslu í
Sarajevo. Perry mun hafa vísað
þeirri hugmynd á bug.
Reuter
Rússneskir friðargæsluliðar bera teppi úr væntanlegum bækistöðvum sínum í Sarajevo. Þeir eru í óðaönn að
gera hreint og koma sér fyrir. Símamynd Reuter
Rússneskur hermaður við friðargæslu í Sarajevo:
Vont að þurf a að standa
milli tveggja fylkinga
Fallhlifarhermenn úr rússneskum
úrvalssveitum óku inn í hið um-
deflda Grbavica-hverfi, sem Serbar
ráða yfir, í Sarajevo í gær en þeir
sýndu þó engan brennandi áhuga á
hlutverki sínu sem friðargæsluhðar
Sameinuðu þjóðanna í fremstu vig-
línu. Annars vegar voru Serbar sem
fógnuðu komu þeirra en hins vegar
bosnísk stjómvöld sem fordæmdu
nærvera þeirra.
„Það er slæmt að þurfa að standa
milli tveggja fylkinga í þessu landi
en þetta era fyrirskipanimar,“ sagði
einn fallhlífarhermannanna þegar
hann tók sér hvíld frá því að hreinsa
til í herbergi þar sem hann vonast
tfl að hola niður beddanum sínum.
Rússnesku hermennimir hafa
komið sér fyrir í fyrrum lögreglustöð
í aðeins þrjú hundrað metra fjarlægð
frá víglinunni. Þar er allt í niður-
níðslu, rúður brotnar og hurðir af
hjöranum en allt fuht af serbneskum
táknum og slagoröum.
Serbar náðu Grbavica-hverfinu á
sitt vald þegar á fyrstu mánuðum
borgarastríðsins. Það nær frá hern-
aðarlega mikilvægum hæðum í suðri
inn í hjarta Sarajevo. Serbar hafa
varið það með kjafti og klóm.
Bosníustjóm, sem lýtur forastu
múshma, segir að nærvera Rússafiha
muni styrkja málstað Serba og lýsir
henni sem ögrun. Embættismenn SÞ
segja að rússnesku hermennimir
verði hlutlausir.
Aðspurður hvað honum fyndist um
Serba svaraði einn rússnesku her-
mannanna: „Þeir erú bræður okk-
ar.“ Og þegar hann var spurður um
múslíma hló hann og sagði: „Þeir eru
bræður okkar hka.“
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í sjón-
varpi vestra í gærkvöldi að rúss-
nesku friðargæsluliöamir mundu
haga sér eins og atvinnumenn og
þeir yrðu þarna ekki lengi.
Reuter
Eitruðum þung-
málmumvarpað
í Norðursjóinn
Olíuíyrirtæki losa á hveiju ári
eitt þúsund tonn af eitruðum
þungmálmum út í Noröursjó.
Þungmálmar þessir eru úr berg-
grunninum og koma upp meö
vatni af hafsbotni. Mengunar-
varnir norska ríkisins ætla aö
skoða málið nánar.
Óttast er að magn þungmálm-
anna sem fara í sjóinn muni auk-
ast upp í þrjú tfl fjögur þúsund
tonn á ári.
„Þungmálmar eru eitt erfiöasta
umhverfisvandamáhð sem við
ghmum við. Það era fyrst og
fremst iönfyrirtæki sem losa
slíka málma i friði og ró,“ segir
Harald Rensvik, forstjóri meng-
unarvarnanna.
Gonzalezekki
aðhugsaum
stöðu Delors
Fehpe Gonz-
alez, forsætis-
ráðherra Spán-
ar, hefur ekki í
hyggjuaðbjóða
sig fram sem
eförmann
Jacques Delors
í framkvæmda-
stjórastarfi Evrópubandalagsins,
aö því er talsmaöur ráðherrans
sagði í gær.
Fjölmiðlar á Spáni höfðu haft
uppi vangaveltur um að hægt
yrði að telja Gonzalez á að sækja
um þar sem hann væri sannfærð-
ur Evrópusinni.
Finnskirbændur
mótmæla EB
meðsnjókasti
Finnskir bændur kröfðust þess
í gær að þeir fengju sérmeðferö
þegar Finnland gengju í Evrópu-
bandalagið og til aö leggja
áherslu á kröfur sínar losuöu
þeir snjó fyrir utan skrifstofur
EB í Helsinki og rifu niður fána
bandalagsins.
Um eitt þúsund bændur tóku
þátt í mótmælunum sem fóru
fram á sama tíma og lokasprettur
aðildarviðræðnanna.
N'l'B, Reuter
Stuttarfréttir
Bóksali myrtur
Heittrúaðir múshmar myrtu
franskan bóksala í Algeirsborg í
gær.
Neyðariögáfram
Þjóðaröryggisráð Tyrklands
mæhr með áframhaldandi neyð-
arlögum í suðausturhluta lands-
ins vegna Kúrda.
Nýefnahagsáættun
Helmut Kohl
Þýskalands-
kanslari og
flokkur hans
samþykktu
nýja efna-
hagsáætlun á
landsþingi
flokksins í gær
þar sem áherslan er lögð á há-
tækniiðnað.
Viðunnum
Stjórnarandstaðan í Tógó sagð-
ist hafa sigrað í fyrstu fjölflokka-
kosningum landsins.
Meðkjamæfni
Rússneska lögreglan handtók
mann með geislavirka ísótópa í
lest en sá reyndist vera í löglegum
erindum.
Ráðherra skotinn
Ráðherra í stjóm Rúanda var
skotinn tfl bana fyrír utan heim-
fli sitt.
Ekki með í kosningum
Hvíti hægri hluti S-Afríku ætlar
ekki að taka þátt í kosningunum
þar sem enghi trygging er fyrir
heímalandi hvítra.
Sarajevo undir stjórn SÞ
Francois
Mitterand
Frakklandsfor-
seti hefurbeðið
Öryggisráö
Sameinuðu
þjóðanna um
að höfuðborg
Bosníu,
Sarajevo, verði undir stjórn SÞ.
Ræða ekki við N-Kóreu
Bandarikjamenn ræða ekki við
Noröur-Kóreu nema eftirlits-
raenn fái að kanna kjamorku-
svæði eins og lofað hafði verið.
Hommarog aldur
Bretar hafa samþykkt að ald-
urstakmörk homma sem vilja
stunda kynlif verði lækkuö úr 21
árs í 18 ár.
Moka aurogleðju
íbúar Mahbu moka aur og leðju
úr húsum sínum eftir óveðrið
sem reiö yfir á sunnudag.
Eyðnilyf
Eyðnflyfið ATZ dregur úr lík-
um á að fóstur smitist af eyðni í
móðurkviði.
Tuttugu drukknuðu
Óttast er að 20 Haitíbúar hafi
drakknaö þegar fleki þeirra
brotnaði er þeir voru að flýja til
Flórída.
Bandaríkja-
menn hafa vax-
andi eíasemdir
um umbótaá-
ætlun Clintons
forseta í hefl-
brigöismálum
en þeir styðja
þó lykilatriði
um heilsutryggingar fyrir alla.
Gögnumstolið
Ljósritum af sönnunargögnum
í Bjugnmálinu í Noregi hefur ver-
ið stoliö.
Rcutcr, NTB