Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1994, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
11
Menning
Krafa Quiuju (Gong Li) um afsökunarbeiðni stillir henni upp á móti kerfinu,
Háskólabíó - Sagan af Quiju: ★ ★ V*
Bóndakona í
leit að réttlæti
Sagan af Qiuju er fjórða mynd kínverska leikstjór-
ans Zhang Yimou sem hlotið hefur heimsdreifingu og
hafa þær allar komið hingað í bíó, sem þykir nú ansi
gott á okkar amerískmettaða kvikmyndamarkaði.
Sagan af Quiju er eins konar dæmisaga, um bónda-
konu sem kærir embættismann þorps síns fyrir að
hafa sparkað í klofið á manni sínum. Lögregla staðar-
ins reynir á ná sáttum en Quiju sættir sig ekki við
neitt nema afsökunarbeiðni, sem hinn jafn þrjóski
þorpsformaður er ekki á því áð gefa. Quiju fer lengra
með málið þótt það kosti hana erfiðar ferðir til næstu
bæja og borga. Quiju vill bara réttlæti og treystir á
kerfið en órar ekki fyrir hvaða afleiðingar þetta gæti
haft.
Þessi nýjasta mynd Yimou er stílbreyting frá því sem
áður var, bæði hvað varðar söguna og tæknilegu hlið-
ina. Ólíkt fyrri myndum hans, gerist Sagan af Quiju
í nútímanum og er ekki eins gagnrýnin á einstaka
þætti í þjóðfélaginu heldur hefur bæði samúð með ein-
staklingunum og kerfinu. Þetta er ekki dæmigerð
Hollywoodsaga að hætti Frank Capra um litia maim-
inn/konuna sem berst við vonda kerfið.
Þessi jafnhliöa frásögn er virðingarverð en rænir
söguna aðeins dramatíkinni. Hún bætir þó fyrir það
með því aö verða æ kaldhæönari þegar Uður á hana
og málsóknin tekur að stækka upp úr öllu valdi.
Myndræna hliðin er ekki alveg eins glæsileg og í
fyrri myndum Yimou, sem er fyrrverandi kvikmynda-
tökumaður. Hann hefur skipt yfir í súper 16 mm filmu,
þannig að myndatakan er ekki eins skýr og skörp.
Yimou hefur líka gefið vélinni meira frelsi, en fyrri
myndir hans eru mjög uppstilltar. í borgaratriðunum
hefur hann falið myndavélina og sendir leikarana út
í mannþröngina. Myndin gæti næstum verið í heimild-
armyndastíl, nema hvað heimildarmyndir eru aldrei
svona fallega lýstar.
Allar myndir frá framandi löndum græða því hvað
umhverfið er óllkt okkar og jafnvel smæstu atburðir
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
í daglegu lífi fólksins verða aldrei leiðinlegir vegna
nýbreytninnar. Sagan af Quiju sýnir miklu meira af
hinu alvöru Kína en fyrri myndir Yimou enda gerist
hún í nútímanum og berst sagan frá þorpi til bæjar,
borgar og stórborgar.
Gong Li leikur aðalhlutverkið eins og venjulega, en
Yimou gerir ekki eins mikið út á fegurð hennar eins
og áöur. Li er kasólétt, í sveitó fótum og fær lítið sem
ekkert af nærmyndum. Þetta er í samræmi við stefnu
hans í myndinni að halda ákveðinni fjarægð frá per-
sónunum til þess að áhorfandinn eigi erfiðara með að
halda með þeim.
Raise the Red Lantem er ennþá besta mynd Zhang
Yimou, en með dæmisögunni um Quiju sýnir hann
aukna fjölhæfni.
Qiuju da guansi (Kina/Hong Kong-1992) 99 min.
Handrit: Liu Heng (Ju Dou) eftir bók Chen Yuanbin „Wan jia
susong" (The Wan Family’s Lawsuit).
Leikstjórn: Zhang Yimou (Red Sorghum, Ju Dou).
Leikarar: Gong Li, Lei Kesheng, Ge Zhijun, Liu Peiqi, Yang
Liuchun.
Sviðsljós
í hringiðu helgarinnar
Á árshátíð Flugleiða, sem haldin var um helgina,
mættu bæði fyrrverandi og núverandi starfsmenn. Á
myndinni em þau Sigurlaug Halldórsdóttir, sem er
núverandi starfsmaður flugleiða, Haraldur Helgason,
sem hefur starfað við flugið síðan 1946 en heftur nú
látið af störfum, og Jóhanna Helgadóttir.
Starfsfólk heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisms
gerði sér glaðán dag á árshátíð ráðuneytisins sem
haldin var í Hraunholti á föstudagskvöld. Þar sannað-
ist það að þó danstónlistin breytist ört þá dettur gamli
góði „kokkurinn" aldrei úr tísku.
LAXÁ Á REFASVEIT
Til sölu veiðileyfi í Laxá á Refa-
sveit. Nýtt hús, mjög góð aðstaða.
Upplýsingar í síma 91-658839 á milli
kl. 13 og 14 alla virka daga.
V J
Gott atvinnuhúsnæði til leigu
að Höfðabakka 3, Reykjavík (austasta bil, núna
BARR hf.), 260 ferm á tveim hæðum. Leigist frá 1.
mars nk. Mjög snyrtilegt og skemmtilegt húsnæði
sem hentar vel til ýmiss konar starfsemi, ekki síst í
verslun og iðnaði.
Nánari upplýsingar í símum 681860 og
681255 á skrifstofutíma.
Hörður Sveinsson & Co hf.
Uppboð á lausafjármunum
Að kröfu sýslumannsins á Blönduósi og ýmissa lögmanna verða eftirtaldar
bifreiðar boðnar upp við lögreglustöðina á Blönduósi föstudaginn 4. mars
1994 kl. 17.00.
ND-314 HZ-661 KC-921 EG-427 FS-294 FU-428 BF-177
JJ-131 IA-686 JA-769 JN-600 KC-353 IC-378 GI-709
GÞ-111 LA-974 GFS-282 IE-593 JA-805 GV-883 GH-883
IZ-704 HA-382 H-2990 FÖ-798 DD-239 HM-674 GR-913
GU-019 DI-514 GT-217 MC-136 JR-076 IB-027
Einnig bifhjól IT-783, malan/agn OA-257, fjórhjól ÞE-235, vélsleði ÞE-063
og plastbátur, frambyggður, 6 m langur.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Styrkir til námsefnisgerð-
ar á framhaldsskólastigi
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsókn-
um um styrki til námsefnisgerðar í bóklegum
og verklegum greinum á framhaldsskólastigi.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyt-
inu, námsefnisnefnd, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir 11. mars nk. á þar til gerðum
eyðublöðum sem hægt er að fá í ráðuneytinu.
Vikutilboð
21.-28. febrúar
Þýsk og amerísk
hágæðavara
á frábæru verði, t.d.:
Reykskynjarar kr. 740,-
Duftslökkvitæki, 2 kg kr. 4.500,-
Duftslökkvitæki, 6 kg kr. 6.300,-
Sérverslun með eldvarnarvörur
Eldverk hf.
Sími 81 24 66
Ármúla 36, Reykjavík