Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1994, Blaðsíða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglysingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð i lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Rússland 1 - Nató 0
Hemám Rússa á hæðunum umhverfis Sarajevo er
gott fyrir fólkið í borginni. Það fær nú loksins frið fyrir
árásum Serba á óbreytta borgara. Það er miklu skárra
að hafa Rússa á hæðunum, því að þeir munu ekki stunda
stríðsglæpi á borð við bandamenn sína, Serba.
Hemám Rússa er líka gott fyrir Serba. Þeir geta flutt
hemaðartæki sín til annarra staða í Bosníu, þar sem
þeir halda andstæðingum sínum í herkví. Hernám Rússa
á Sarajevo-hæðum eykur möguleika Serba á að ná hern-
aðarlegum árangri á öðrum stöðum 1 Bosníu.
Serbar hafa tekið hemámsbði Rússa sem englum af
himnum ofan. Horfin er hættan af Nató, sem hafði til-
hneigingu til að styðja fórndardýr Serba, en í staðinn er
komið rússneskt herhð, sem htur á sig sem bandamann
Serba frá fomu fari. Sigurinn er Serba og Rússa.
Þetta em sömu rússnesku hermennimir og áður vom
í Króatíu og gengu þar fram fyrir skjöldu til að gæta
hagsmuna Serba í ágreiningi þeirra við Króata. Enginn
vafi er á, að hið sama mun gerast á hæðunum umhverf-
is Sarajevo. Bosníumenn munu engan aðgang fá að þeim.
Eðlilegt framhald af snihdarbragði Rússa við Sarajevo
er, að þeir gangi á sama hátt á milli á öðrum stöðum,
þar sem Bosníumenn sæta grimmdarlegu umsátri Serba.
Þannig verða núverandi landvinningar Serba treystir og
Rússar verða að hemámshði í landinu í heild.
Þetta líkar landvinningamönnum Serba. Þeir þurfa
ekki að gefa eftir tæpan þriðjung af landvinningum sínum
samkvæmt tihlögum sáttasemjara, heldur geta þeir hald-
ið öhu sínu í skjóh þess, að þeir séu hættir að drepa fólk.
Og rússneskir hermenn varðveita landvinninga þeirra.
Mál þetta sýnir, að ekkert samhengi er milh efnahags-
legs og hemaðarlegs valds. Serbía er margfaldlega gjald-
þrota ríki, en heldur samt áfram að vera til og þenjast
út. Rússland er um það bU að verða gjaldþrota, en eykur
samt hemaðaráhrif sín í flestum nágrannaríkjunum.
Bandaríkin og Nató vaða í peningum, en hafa hins
vegar htil sem engin hemaðarleg áhrif í heiminum. Þess-
ir aðUar minna á Zhírínovskí að því leyti, að þeir gelta
mikið, en bíta ekki. SífeUdar hótaiúr misserum saman í
garð Serba hafa smám saman leitt þetta í ljós.
Tindátar heimsins hafa tekið vel eftir þessu. Aidid í
Sómalíu og Cédras á Haiti gefa Bandaríkjunum langt
nef. Saddam í írak færir sig að nýju upp á skaftið og Kim
II Sung í Norður-Kóreu safiiar áhyggjiUítið í atómsprengj-
una sína. Þeir vita allir, að gelthundar bíta ekki.
Að baki hótana af hálfu Bandaríkjanna og Nató er
ekkert nema tómið. Alhr vissu, að ekki stóð frekar til
að standa við síðustu hótunina gagnvart Serbum en allar
hinar fyrri. Rússland skauzt inn í valdaeyðuna, sem
myndaðist, og er nú orðið ráðandi veldi á Balkanskaga.
Margir bera ábyrgð á þessu. Brezk og frönsk stjóm-
völd stóðu fyrir endurteknum töfum á íhlutun í Bosníu,
þegar hún var auðveldari en nú. Bandarísk stjórnvöld
em flækt í bamslegri oftrú á Jeltsín Rússlandsforseta
sem bandamann í bandarísk-rússneskum heimsfriði.
Nató hefur glatað upprunalegu hlutverki sínu og hefur
ekki tekizt að útvega sér nýtt. Það geltir bara og geltir
án þess að nokkur taki eftir því. Það þykist eins og Banda-
ríkjastjóm vera málsaðUi að hemámi Rússa í Bosníu,
en er það engan veginn. Nató er orðið að elhheimih.
Þetta er engan veginn alvont. Friður í Sarajevo er
mikUs virði. En það er ekki Nató-ftiður eða bandarískur
friður. Það er rússnesk-serbneskur friður í Sarajevo.
Jónas Kristjánsson
• *
Landbúnaðarnefnd að störfum. Deilur um lagatexta. - „Þær snerta ekki meginstefnuna heldur hugsanlegar
ákvarðanir íslenskra stjórnvalda", segir m.a. i grein Björns.
Að halda áttum
Hvarvetna eiga menn fullt í fangi
með að halda áttum í umbyltingu
þjóðfélaga, heimshluta og raunar
veraldarinnar allrar. Breytingarn-
ar eru misjafnlega sársaukafullar
og koma ekki eins við alla. Þær
snerta í senn efnalega hagsmuni
sem andlega. Fram fer hugmynda-
fræðilegt uppgjör og boðaðar eru
nýjar leiðir fyrir einstaklinga til að
lifa hamingjusömu lífi.
Á slíkum tímum er mikilvægara
en ella að kunna að greina á milli
þess sem telja verður varanleg við-
fangsefni og hins sem eru dægur-
mál, verkefni líðandi stundar. Síð-
ari málaflokkurinn setur mestan
svip á stjómmálaumræður. Hann
brýst til dæmis fram í ágreiningi
um stað fyrir nýjar opinberar bygg-
ingar eða í deilum um orðalag laga-
texta. Við höfum orðið vitni að
hvoru tveggja undanfarið. Þungi í
málflutningi getur verið mikill.
Frelsi og valdmörk
Um langt árabil hefur verið bar-
ist fyrir því hér á landi sem annars
staðar í heiminum að auka frelsi í
alþjóðlegum viðskiptum meö land-
búnaðarvörur. Verulegur ávinn-
ingur hefur náðst í þessu efni á
undanfómum ámm. Við íslending-
ar höfum orðið varir við það á fisk-
mörkuðum erlendis en í alþjóðleg-
um viðskiptasamningum er fiskur
flokkaður undir landbúnaðarvör-
ur.
í samningaviðræðum um evr-
ópska efnahagssvæðið (EES) og
frelsi í heimsviöskiptum (GÁTT)
hefur verið tekist á um búvörar.
Um tíma var talið að GATT-viðræð-
umar myndu stranda vegna krafna
franskra bænda á hendur stjórn-
völdum í París. Fram hjá því skeri
var siglt. Frelsi í búvöruviðskipt-
um verður þó enn verulega tak-
markað á alþjóðavettvangi.
Bæði innan EES og GATT er gert
KjaUarinn
Björn Bjarnason
alþingismaður
ráð fyrir því að unnt sé að grípa til
fjárhagslegra aðgerða á vegum rík-
isstjórna til að hafa stjórn á inn-
flutningi á búvöram. Hér hafa orö-
ið miklar pólitískar deilur um það
hvemig með þetta fjárhagslega
vald skuli farið. Þetta era deilur
um valdmörk ráðuneyta sem ekki
á að gera að póiitísku bitbeini.
Mætti til dæmis ráða af þeim að
fjármálaráðuneytið væri neyt-
endavænna ráðuneyti en landbún-
aðarráðuneytið. Hver treystir sér
til aö færa sönnur á það?
Alþingi hefur samþykkt þá mála-
miðlun að þrjú ráðuneyti, landbún-
aöar-, fjármála- og viöskiptaráðu-
neyti, skuli eiga fulltrúa í nefnd
sem taki þessar fjárhagslegu
ákvarðanir fyrir ríkið. Verði nefnd-
in ekki sammála kemur máhð fyrir
ríkisstjóm.
Hverra hagur?
Þeir sem bundu vonir við að hin-
ir alþjóðlegu viðskiptasamningar
hefðu í för með sér meira frjáls-
ræði í búvöruviðskiptum hafa rétt-
mætar ástæður fyrir gagnrýni á þá.
Hvaða skoðun sem menn hafa á
samningsniðurstöðunni hljóta þeir
að viðurkenna rétt stjórnvalda til
að starfa í samræmi við hana.
Er það hagur þeirra sem stóðu
að gerð þessara samninga fyrir ís-
lands hönd að stofna til stórdeilna
um framkvæmd þeirra? Hefur ís-
lenska ríkið hag af því að láta líta
svo út sem með þessum samning-
um sé því, eða einu ráðuneyti (!),
gefið vald til að ganga hömlulaust
á rétt neytenda með fjárhagslegum
byrðum?
Þessum spurningum er ástæða til
aö varpa fram vegna þeirra deilna
um lagatexta sem sprottið hafa
vegna hins aukna frjálsræðis í inn-
flutningi á búvöram. Þær snerta
ekki meginstefnuna heldur hugs-
anlegar ákvarðanir íslenskra
stjómvalda.
Björn Bjarnason
„Hér hafa orðið miklar pólitískar deil-
ur um það hvernig með þetta fjárhags-
lega vald skuli farið. Þetta eru deilur
um valdmörk ráðuneyta sem ekki á að
gera að pólitísku bitbeini.“
Skoðanir annarra
Ekki bakkað með SVR
„Aö mínu mati er sú umræða algjörlega út í hött
að bakka út. Það era forsendur fyrir þessari breyt-.
ingu sem standa alveg fyrir sínu. Forsendurnar eru
þær að þama var stofnun sem var orðin talsvert
stöðnuð og það vantaði í hana þjónustulund. Það var
því verið að leita leiöa til að útbúa rekstrarform sem
drægi betur fram þann þátt. Og niðurstaðan varð
hlutafélagaformið.“
Árni Sigfússon borgarfulltr. í Eintaki 17. febr.
Lóðamál Hæstaréttar
og atvinnumótmælendur
„Einhverjar mestu „sjálfskipuðu hetjur þjóðfé-
lagsins“ í dag era án efa þeir, sem safna undirskrift-
um og atvinnumótmælendur, sem oft eru haldnir
neikvæðri afstöðu gegn hvers konar framforam ef
ekki gallsúrri öfund... Þaö er gjörsamlega ómögu-
legt að sjá, að lóðin taki sig betur út alla daga fullset-
in bifreiöum en með glæsilegri byggingu. Spurst
hefur að hræðsla viö að bílaplanið hverfi hafi verið
aðal ástæða fyrir uppáskrift margra leikara. Auðvit-
að eiga bifreiðimar heima í bílageymslu á móti Þjóð-
leikhúsinu, sem stendur nánast ónotuð alla daga.“
Gunnlaugur Þórðarson hrl. í Mbl. 19. febr.
Hin eitruðu búvörumál
„Ef ágreiningsefni koma upp enn einu sinni á
milli stjórnarílokkanna um landbúnaðarmálin hlýt-
ur að vera hægt að fjalla um þau og leysa án þess
aö þaö sé nánast gert í beinni útsendingu... En
haldi stjórnarflokkarnir áfram að skemmta skratt-
anum á þann hátt, sem þeir virðast gera nánast í
hvert sinn, sem landbúnaðarmál ber á góma, er það
vísasti vegurinn til þess að auðvelda öðrum stjórn-
málaöflum aö ná landsstjórinni í sínar hendur.“
Úr forystugrein Mbl. 18. febrúar.