Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1994, Side 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
17
fþróttir
Lillehammer’94
Úrslitin í
LiileHammer
4x5 km boógangakvenna
1. Rússland........... 57:12,5
2. Noregur............ 57:42,6
3. Ítalía............. 58:42,6
4. Finnland........... 59:15,9
5. Sviss.............1:00,05,1
6. Svíþjóð...........1:00,05,8
7. Slóvakía..........1:00,00,2
8. Pólland...........1:01,13,2
Tvikeppni kvenna - brun/svig
1. Pemilla Wiberg, Sviþjóð ...3:05,16
2. Vreni Schneider, Sviss.3:05,29
3. Alenka Dovzan, Slóven.3.06,64
4. Morena Gallizio, Ítalíu..3:06,71
5. MartinaErtl, Þýskal...3:08,78
1500 m skautahl. kvenna
1. E. Hunyady, Austurr.2:02,19
2. S. Fedotkina.Rússl..2:02,69
3. Gunda Nieman, Þýskal .....2:03,41
4. BonneBlair, Bandar..2:03,44
5. A.Thomas.Holl.......2:03,70
íshokki
B-riðill:
Kanada ~ Svíþjóð...........3-2
Slóvakía - Frakkland.......6-2
Bandarikin - ítalia....... 7-1
Lokastaðan:
Slóvakía.....5 3 2 0 26-14 8
Kanada.......5 3 l l 17-11 7
Svíþjóö......5 3 1 1 23-13 7
Bandaríkin...5 1 3 121-17 5
Ítalía.......5 1 0 4 15-31 2
Frakkland....5 0 l 4 11-27 1
í 8-liða úrslitum leika saman Sló-
vakía og Rússland, Kanada og
Tékkland, Svíþjóð og Þýskaland
og Finnland og Bandaríkin.
ísdans - parakeppni
1. Gritstsjuk/Platov, Rússlandi.
2. Usova/Zhulin, Rússlandi.
3. TorviU/Dean, Bretlandi.
4. Rahkamo/Koko, Finnlandi.
5. Moniotte/Lavanchy, Frakkl.
Jegorova hættir
Hin 27 ára gamla skíðagöngu-
drottning, Ljubov Jegorova, hef-
ur í hyggju aö leggja skíðin á hill-
una og ætlar ekki að keppa á
íleiri ólympíuleikum. Hún ætlar
nú að einbeita sér að því að klára
kennaranám sem hún er í og fara
út í barneignir.
Torvill og Dean hætta
Skautasnillingarnir Jayne Tor-
vill og Christopher Dean eru líka
aö hætta keppni á ný. Þau taka
þátt í heimsmeistaramótinu í
næsta mánuði og snúa sér síðan
aftur að atvinnumennsku sem
felst fyrst og fremst í ferðalögum
og sýningum.
Satan skorar grimntt
Slóvakar tryggðu sér t gær sig-
ur í B-riöli íshokkfkeppninnar og
hafa staðið sig vonum framar til
þessa. Þeirra helsti markaskorari
heitir því kynduga naíhi Satan
og Frakkar gátu bölvað honum í
gær því Satan skoraði þrjú af
mörkum Slóvaka i 6-2 sígri.
AgiáÞjóðverfana
Þýsku íshokkíleikmennimir
eru sagðir hafa fagnað fullhressi-
lega eftir óvæntan sigur á Rúss-
um á fóstudagskvöldið. Þjálfar-
inn þeirra, sem er Tékki, ætlar
héðan í frá að halda töflufundi
áöur en leikmennirnir ganga til
hvílu tíl að tryggja að um frekara
skemmtanahald veröi ekki að
ræða hjá þeim! -VS
Iþróttir
Jegorova rakar saman gullinu
- fékk sín 6. gullverðlaiin á ólympíuleikum og jafnaði þar með met
Sveit Rússa sigraöi 1 4x5 kílómetra
boðgöngu kvenna á ólympíuleikunum í
Lillehammer í gær. Norska sveitin hafn-
aði í öðru sætí og sú ítalska í því þriðja.
Þaö var engin önnur en Ljubov Jeg-
orova sem tryggði rússnesku sveitinni
sigurinn en hún gekk fjóröa og síöasta
sprett Rússanna. Þegar hún lagði af stað
var hún nokkrum sekúndubrotum á eft-
ir norsku stúlkunni Anitu Moen en Jeg-
orova sýndi hvers hún er megnug og
kom í mark tæpri hálfri mínútu á undan
þeirri norsku. Þar með vann Jegorova
sín þriðju gullverðlaun á leikunum og
um leið sín sjöttu gullverðlaun á ólymp-
íuleikum frá upphafi og hún jafnaöi þar
með met Lydiu Skoblivkovu skauta-
hlaupara sem vann sex gullverðlaun á
vetrarólympíuleikunum á sjötta ára-
tugnum. Jegorova getur svo sett nýtt
met vinni hún sigur í 30 km göngunni á
fimmtudag. „Þaö var frábær upplifun
að koma inn á leikvanginn og vissulega
er góð tilhugsun að vera sú besta en
þessi sigur var rússnesku sveitarinnar
allrar," sagöi Jegorova nýkomin í mark.
Norsku stúlkurnar geta vel við unað
en þær höfðu forystu meira og minna í
þremur fyrstu sprettunum. ítahr, sem
margir höfðu reiknað með að yrðu í öðru
sæti, tryggðu sér bronsverðlaunin á síð-
asta sprettinum og geta þakkað hinni
frábæru göngukonu Stefaniu Belmondu
þaö. Fyrir síðasta sprettinn voru Finnar
með 24 sekúndna forskot á ítali en Belm-
ondo bretti upp ermarnar og vann þenn-
an mun og meira en þaö því hún kom í
mark tæpri hálfri mínútu á undan
finnskustúlkunni. -GH
Ólympíuleikamir í Lillehammer:
Svíarnir loks
komnir á blað
- þegar Pemilla Wiberg varð hlutskörpust í alpatvikeppni
Loksins tókst Svíum að krækja í
verðlaun á ólympíuleikunum í Lille-
hammer þegar Pemilla Wiberg varð
hlutskörpust í alpatvíkeppni en þar
er lagður saman árangur í bruni og
í svigi. Wiberg sigraði í svigkeppn-
inni í gær en áður hafði hún hafnað
í fimmta sæti í bruni. Svissneska
stúlkan Vreni Schneider varð í öðru
sæti og Alenka Dovzan frá Slóveníu
hafnaði í þriðja sæti. Hún er aðeins
18 ára gömul og vann þar með fyrstu
verðlaun Slóvena á ólympíuleikum.
Karl Gústaf Svíakonungur og Syl-
vía Svíadrottning voru mætt til Lille-
hammer og þau uröu ekki fyrir von-
brigöum meö Wiberg sem vann sín
önnur gullverðlaun á ólympíuleik-
um en á leikunum í Albertville sigr-
aði hún 1 svigi.
„Ég vissi að konungurinn og
drottningin voru mætt til að fylgjsat
með mér og það gaf mér aukinn
kraft. Ef einhver hefði sagt við mig
fyrir ári síðan að ég mundi vinna
tvíkeppnina hefði ég hlegið," sagði
Wiberg eftir sigurinn.
Þýska stúlkan Katja Seizinger, sem
sigraði í brunkeppninni, féll í fyrri
umferð svigkeppninnar og þar með
var draumur hennar úti um að vinna
tvíkeppnina. Bandaríska stúlkan
Picabbo Street sem varð önnur í
bruninu náði sér ekki á strik í svig-
inu og varð að láta sér lynda 10. sæt-
iö. -GH
Pernille Wiberg kom Svíum loksins á blað á vetrarólympíuleikunum i Lillehammer i
gær þegar hún hlaut gullverölaun i alpatvíkeppni kvenna. Símamynd/Reuter
Fyrsti ósigur hjá Dean
og Torvill síðan 1980
Önnur verðlaun
Emese Hunyady
- þegar hún sigraöi 11500 skautahlaupi
Emese Hunyady frá Austurríki sigraði
í 1500 metra skautahlaupi í Víkingaskip-
inu í Hamar í gær. Önnur varð rússneska
stúlkan Svetlana Fedotkina sem bætti
sinn persónulega árangur um tæpar 2 sek-
úndur og í þriðja sæti varð þýska stúlkan
Gunda Niemann. Þetta voru mikil von-
brigði fyrir Niemann sem ætlaði sér sigur
en hún féll í 3000 metra hlaupinu í síðustu
viku.
Rússar hafa hlotið flest gullverö-
laun á vetrarólympíuleikunum í
Lillehammer, níu talsins, eftir tvö-
faldan sigur í listhlaupi para á skaut-
um í gærkvöldi.
Oksana Gritstsjuk og Evgeni
Platov sigruðu en heimsmeistararnir
Maja Usova og Alexander Zhulin
máttu sætta sig við annað sætið.
Bronsið hrepptu síðan Jayne Torvill
og Christopher Dean, bresku þjóð-
sagnapersónumar sem sigruöu svo
eftirminnilega í Sarajevo fyrir tíu
áram.
„Vil skauta eins
og þau í framtíðinm“
Þaö fyrsta sem Gritstsjuk og Platov
ræddu um eftir sigurinn var frammi-
staöan hjá Torvill og Dean. „Ég skil
ekki hvernig þau hafa farið að því
að halda sér í svona góðu formi í
þessi tíu ár. Þegar ég var lítil fannst
mér þau ótrúlegt og yndislegt
skautafólk. Nú vil ég geta skautaö
eins og þau í framtíðinni,'1 sagði Oks-
ana Gritstsjuk um Bretana.
Torvill og Dean gerðust atvinnu-
menn eftir sigurinn í Sarajevo á sín-
um tíma, en hófu á ný keppni í vet-
ur. Ósigurinn í gærkvöldi var þeirra
fyrsti síðan árið 1980.
„Tilfinningin ekki
eins góð í fyrramálið“
„Okkur fannst þetta vera einhver
okkar besta frammistaða frá upp-
hafi. Viö vorum ánægö og fannst
áhorfendur vera það líka. Okkur líö-
ur vel en sennilega verður tilfinning-
in ekki eins góð í fyrramálið," sagði
Torvill, sem er 36 ára og Dean er 35
ára. -VS
Emese Hunyady kemur í mark á besta
tíma. Simamynd/Reuter
Æfði listhlaup
til12áraaldurs
Hunyady, sem æfði listhlaup á skautum
fram til 12 ára aldurs, skautaði vegalengd-
ina á 2:2,19 mínútum en heimsmetið í
greininni á Þjóöverjinn Karin Kania,
1:59,30, sett fyrir átta árum. Þetta voru
önnur verðlaun austurrísku stúlkunnar
en hún vann til silfurverðlauna í 3000
metra hlaupinu og á leikunum í Albert-
ville varð hún í þriðja sæti.
Bonnie Blair, ólympíumeistari 1 500
metra hlaupinu, varð í fjórða sæti en hún
bætti sinn árangur í þessari grein um
hálfa sekúndu og kom í mark á 2:03,44
mínútum.
-GH
Oksana Gritstsjuk og Yevgeny Platov unnu sigur i isdansinum i gærkvöldi
og þar með skutust Rússar upp fyrir Norðmenn I skiptingu verðlauna á
leikunum. Símamynd/Reuter
Skipting verðlauna í Lillehammer
Þjóð Gull Silfur Brons
Rússland 9 6 3
Noregur 8 6 2
Bandaríkin 4 3 0
Þýskaland 4 2 5
Itaiia 3 3 8
Kanada 21 2 2
Sviss 1 2 0
Svíþjóð 1 0 0
Austurriki 0 2 2
Kazakhstan 0 2 0
Holland 0 1 3
Frakkland 0 1 2
Japan 0 1 1
Hvíta-Rússland 0 1 0
Finnland 0 0 2
Bretland 0 0 1
Slóvenía 0 0 1
Atburðarásin á fundi sendinefndar HSI og IHF:
;,Skelfileg
Insreynsla"
- segir Ólafur B. Schram, formaður HSÍ, um kynni sín af forystu IHF
För flögurra manna sendinefnd-
ar HSÍ tii Austurríkis vegna fundar
framkvæmdastjómar IHF á laug-
ardaginn var sannkölluð frægðar-
fór. Eins og komið hefur fram í DV
væru íslendingar nú hættir að
hugsa um heimsmeistarakeppnina
á næsta ári ef íslenska sendinefnd-
in hefði ekki verið til staðar í Vín
og barist þar með kjafti og klóm.
Forysta IHF, oft nefnd IHF-mafían,
hafði úthiutað Spánveijum og
Frökkum keþpninni. Harðfylgi
HSÍ-manna, sem mættu til Vínar
með fullar töskur af rökum, beygði
æðstu menn IHF á lokastundu. IHF
stóð frammi fyrir mönnum sem
unnið höfðu sína heimavinnu.
Einu skýru svörin sem sendinefnd
HSÍ fékk voru skætingur og dóna-
skapur frá forystu IHF. Þar skáru
Erwin Lanc frá Austurriki, forseti
IHF.
sig úr þeir Raymond Hahn, fransk-
ur framkvæmdastjóri IHF, og for-
seti IHF, Erwin Lanc frá Austur-
ríki.
Atburðarásin um síðustu helgi
var hreint ótrúleg eins og fram
kemur hér á eftir hjá Ólafi B.
Schram, formanni HSÍ:
„Upphaf málsins er aö ég hringdi
út sl. miðvikudag til IHF og bað um
að við fengjum að tala við fram-
kvæmdanefnd IHF um helgina. Ég
sagði einnig að við myndum verða
viðstaddir fundinn. Munnlegt svar
kom til baka þar sem sagt var að
það væri ástæðulaust. Á fóstudag-
inn sendi ég út skeyti þar sem sagöi
aö viö kæmum fjórir og enn bað
ég um leyfi til að fá að tala við þessa
menn. Skeyti kom til baka klukkan
sex á föstudaginn frá IHF. Þar sagöi
aö laugardagurinn væri fundar-
dagur framkvæmdanefndar og all-
ur stíft bókaöur. Þeir sögðust þó
vilja tala við okkur á laugardags-
kvöldið klukkan átta. Með þetta
fórum við út.“
„Já, en þá á ég að
vera farinn héðan“
Ólafur heldur áfram: „Við höfðum
meðferðis gögn sem voru 50 síður.
Þegar ég kom til Vínar hitti ég strax
Svíann Staffan Holmquist, for-
mann Evrópusambandsins, og Pet-
er Buhning, fqrmann bandaríska
sambandsins. Ég lét þá hafa gögnin
og dreifðí þeim einnig á herbergis-
númerin hjá hinum fundarmönn-
unum sem ekki voru mættir. Ég
sagði Staffan að viö ættum fund
með framkvæmdanefndinni
klukkan átta kvöldið eftir, á laug-
ardagskvöldiö. Þá sagði Svfinn: „Já
það var og, en þá eigum við að vera
farnir héðan!" Staffan hló að þessu
skipulagsleysi en sagðist skyldu
reyna að koma okkur á fund fram-
kvæmdanefndarinnar í hádeginu á
laugardag. „Þið eruð með skothelt
mál í höndunum og félagar mínir
í nefndinni geta ekki annað en
hlustað á ykkur," sagöi Staffan.
Fyrirlitning og dónaskapur
við morgunverðarborðið
„Þá er komið að morgunverðinum
á laugardagsmorguninn. Fundur
nefndarinar átti að byija klukkan
níu og við vorum mættir í morgun-
verð klukkan átta. Þegar við mætt-
Raymond Hahn frá Frakklandi,
framkvæmdastjóri IHF.
um sátu þar flestalhr nefndar-
mennirnir nema forsetinn, Erwin
Lanc. Rétt fyrir niu mætti Lanc.
Hann hefisaði strax félögum sínum
hjá IHF en sá okkur ekki, virti okk-
ur ekki viðlits þrátt fyrir að innan
við metri væri á milli okkar borðs
og borös IHF. Hann gekk síðan
nokkra metra frá borðunum með
Raymond Hahn og þeir töluðu sam-
an. Um hvað veit ég ekki. Ég og
Kjartan Steinbach ákváðum þá að
standa upp, ganga til þeirra og
heUsa. Þegar við nálguðumst
skiptu þeir snarlega úr þýsku og
yfir í frönsku. Þeir sneru sér síðan
undan og gengu í burtu, famir. Við
gengum aftur í okkar sæti eftir
misheppnaða tilraun til að heUsa
foringjunum. Viö töluðum síðan
við Staffan þama í borðsalnum og
hann sagði þetta algjört hneyksh,
svona gætu menn ekki hagað sér.
Egypski fuUtrúinn tók af sér gler-
augun og sagöi að forsetann hefði
eflaust vantað ein slík. Hann bætti
því við að líklega hefði Lanc ekki
séð okkur því við værum gerðir úr
ís og því gegnsæir. Fljótlega fórum
við síðan niður í anddyri hótelsins
og þar hittum við lögfræðing Evr-
ópusambandsins, Karl Giintzel.
Hann sagði við okkur: „Þið eruð
með allt með ykkur. Lögin, réttinn
og aUt saman."
Stuttu seinna kom Frank Birke-
feld, þýskur ritari IHF, niður og
sagði við okkur: „Þið eigið að vera
klárir klukkan tólf. Þá verður gert
fundarhlé og þá verður talað við
ykkur."
„Gerið boð fyrir
islendingana“
„Þetta gaf okkur vonir í málinu.
Þegar við svo komum, voru til við-
ræðu við okkur nokkrir nefndar-
manna, þar á meðai Lanc og Hahn
og tveir aðrir nefndarmenn. Staff-
an og formaður bandaríska sam-
bandsins, aðalstuðningsmenn okk-
ar í máhnu, voru ekki til staðar.
Ég hitti Staffan og spurði af hveiju
hann væri ekki á fundinum með
okkur. Hann sagði að þessir fjór-
menningar hefðu haft mest með
máhð aö gera og ákveöið hefði ver-
ið að gera okkur tilboð.
Síðar komst ég að því að á fundin-
um fyrr um morguninn hafði Lanc
sagt að ísland uppfyUti ekki skU-
yrði og að keppnin færi fram á
Spáni og í Frakklandi. Staffan
Staffan Holmquist frá Svíþjóð,
formaður Evrópusambandsins.
Holmquist barði þá hraustlega í
borðið. Hann sagði að viö værum
mættir með 50 síðna skýrslu og
sagðist gera kröfu til þess að hún
yrði lesin og farið yrði í gegnum
rök íslendinga í málinu. „Þeir eru
með rök og þeir hafa málstað,"
sagöi Staffan. Buhning, formaður
bandaríska sambandsins, studdi
þetta. Síðan fór framkvæmda-
nefndin yfir okkar rök og Lanc
hefur væntanlega séð að þetta var
allt rétt hjá okkur. Þegar hér var
komiö sögu stóðu þeir Hahn og
Lanc upp frá fundarborðinu, fóru
fram á gang og réðu ráðum sínum.
Skömmu síðar komu þeir aftur inn
og sögðu: „Gerið boð fyrir íslend-
ingana. Við tölum við þá klukkan
tólf."
„Við erum með tilboð og
það er lokatilboð"
Ólafur B. Schram heldur áfram:
„Þá komum viö aftur aö fundinum
okkar klukkan tólf. Lanc kaus að
fara aftur til ársins 1987 og sagði:
„Það eru miklar mannabreytingar
hjá HSÍ. Þið eruð búnir að skipta
um framkvæmdastjóra. Þið eruð
búnir að skipta um formann og svo
skiptuð þið aftur um formann."
Lanc óð síðan úr einu í annað og
talaði í stundarfjórðung. Síðan
sagði hann: „Við erum með tilboð
og það er lokatilboð. Um það verður
ekki rætt frekar. Þetta er tilboð frá
IHF og þið getið svarað því, já eða
nei.“
Þetta var eins og að rökræöa við
hátalarakerfi."
Lanc stóð þá upp
og gekk á dyr
„Þegar hér var komið sögu sat ég
eins og lítill skólastrákur sem dreg-
inn hafði verið fyrir skólameist-
ara,“ sagði Ólafur og hélt áfram:
„Ég sagði síðan við Lanc: Erum við
hér til að ræða málin eöa til að
hlusta? Er þetta eintal eins manns
eða samtal tveggja aðila? Við tók-
umst síðan nokkuð á. Ég spurði
hvort hann gæti sagt mér hvað orð-
ið „transmission" þýddi. Lanc
svaraði með sjö mínútna ræðu.
Eftir hana sagði ég: Fyrirgefðu, en
ég fékk ekki svar við minni spurn-
ingu. Hvað þýðir orðið „transmissi-
on?“ Þá kom fjögurra mínútna
ræða hjá Lanc og ekkert svar við
spurningu minni frekar en áður.
Þá sagði ég við hann: Fyrirgeföu
Ólafur B. Schram, formaður Hand-
knattleikssambands íslands.
herra Lanc, en enskukunnátta mín
er ekki betri en þaö að ég heyrði
ekki svarið við minni spurningu.
Þá stóð Lanc upp og sagði: „Ég vil
ekki að orð mín séu dregin í efa.
Þakka þér fyrir, fundi okkar er lok-
ið. Ég vil ekki ræða þetta frekar
og alls ekki smáatriði málsins."
Við frusum allir. Lanc var greini-
lega gallharður og keppnin á þess-
ari stundu jafnvel farin út úr hönd-
unum á okkur. Lanc stóð síðan upp
og gekk á dyr án þess að kveðja.
Ég spurði gjaldkera IHF, sem var
á þessum fundi, hvort þetta tilboð
IHF stæði og hvort við fengjum
frest til mánaðamóta til að svara
því. Hann kvað svo vera. Ég sagði
gjaldkeranum þá að við myndum
skoða máhð en gaf honum ekkert
svar."
„Svakaleg lífsreynsla“
Ólafur heldur áfram: „Ég var
kannski svolítið prakkaralegur en
ég hef bara aldrei kynnst þessu
apparati fyrr. Þetta var skelfileg
lífsreynsla. Þegar við fórum síðan
aö skoða málið betur sáum við að
þetta var í raun það eina sem Lanc
gat gert. Við vorum búnir aö koma
honum út í horn. Hann var alger-
lega rökþrota í máhnu. Hann gat
ekkert annað gert en að sparka frá
sér. Lanc getur aldrei sagt opinber-
lega: „Ég gerði mistök." Það er ekki
til í hans orðabók," sagði Ólafur
B. Schram.
-SK