Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1994, Qupperneq 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
Merming
Menningarverðlaun DV:
Sex tilnefningar í leiklist
KVIKMYNDIN VÆNTANLEG
Á MYNDBANDALEIGUR
FIMMTUDAGINN
24. FEBRÚAR.
A NÆSTA SOLUSTAÐ OG á
KOSTAR AÐEINS 895,- *
OG ENNÞÁ MINNA ítKHM
ÁSKRIFT í SÍMA 91-632 700
í hringiðu helgarinnar
Senn líður að afhendingu Menn-
ingarverðlauna DV, en þau verða
afhent í næstkomandi fimmtudag.
Undanfarið hafa verið birtar tilnefn-
ingar frá dómnefndum og er nú kom-
ið að leiklistinni. Dómnefndina skipa
Auður Eydal, leiklistargagnrýnandi
DV, Signý Pálsdóttir, fyrrverandi
leikhússtjóri og Gunnar Gunnars-
son, rithöfundur. Hér á eftir fer
greinargerð nefndarinnar með til-
nefningunum:
„Kristbjörg Kjeld leikkona:
Kristbjörg Kjeld er tilnefnd fyrir
túlkun sína á Kate Keller, móðurinni
í leikriti Arthurs Miller, Allir synir
mínir, sem Þjóðleikhúsið sýnir.
Kristbjörg er mikilhæf og marg-
reynd leikkona, sem sífellt kemur á
óvart og er skemmst að minnast
frammistöðu hennar í Stræti þar sem
hún hellti sér út óvissuna og sýndi á
sér nýjar hliðar með ógleymanlegum
árangri.
í hlutverki Kate vinnur hún eftir-
minnilegan leiksigur og sýnir ásamt
mótleikara sínum, Róbert Amfinn-
syni, hvemig mikilhæf dramatísk
túlkun getur verið drifkraftur heillar
sýningar. Hún þróar persónuna
sannfærandi og vinnur trúveruglega
úr sálarangist og sjálfsblekkingu sem
tvinnast saman í viðleitninni við að
ríghalda í tálmyndina sem er undir-
staða tilverunnar hjá Kate.
Mávurinn, sýning Þjóðleikhússins:
Sýning Þjóðleikhússins á Mávinum
er einstæð leikhúsupplifun, þar sem
allir þættir vinna saman og áhorf-
andinn getur notið hverrar mínútu.
í leikhúsinu mætast allar listgreinar
og þegar best tekst til fléttast þær
saman í eina órofa heild eins og ger-
ist hér.
Listamennirnir þrír, sem bára hit-
ann og þungann af uppsetningunni
komu frá Litháen. Rimas Tuminas
var leikstjóri, Faustas Latenas, höf-
undur tónlistar og Vytautas Narbut-
as, hönnuður leikmyndar og bún-
inga. Þeir fluttu með sér nýjan hugs-
unarhátt og tókst að virkja listamenn
hússins til óvenjulegar innkomu í
verkið. Með glöggu gestsauga tókst
þeim líka að laða fram nýja og
óvænta takta hjá hinum reyndustu
leikurum. Vinna þeirra byggðist á
inngróinnni þekkingu á verkinu og
aldalangri leikhúshefð. Útkoman var
heildstæð og spennandi sýning.
Siguijón Jóhannsson, leikmynda-
hönnuður:
Sigurjón Jóhannsson er tilnefndur
til leikfistarverðlauna fyrir leik-
myndina í Þrettándu krossferðinni,
sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu í
haust.
Verk hans byggðist á margræðum
Mikil stemning nkti a Islandsmeistarakeppm unglinga í freestyle í
Tónabæ á fóstudagskvöldið og skemmtu áhorfendur sér konunglega.
Áhorfendur komu víða af landinu og átti hver keppandi sinn stuðnings-
hóp í salnum.
Þráinn Karlsson fær tilnefningu fyrur
hlutverk fangavarðarins í Leður-
blökunni.
Sigurjón Jóhannsson leikmyndahönnuður er tilnefndur
til leiklistarverðlauna fyrir leikmyndina i Þrettándu
krossferðinni.
Þórunn Elisabet Sveinsdóttir búningahönnuðu er til-
nefnd fyri búninga og leikgervi i ærslaleiknum Tartuffe.
Á árshátíð Flugleiða, sem haldin
var í Perlunni á fóstudagskvöld,
var veislustjórn í höndum tveggja
starfsmanna, þeima Guðnýjar Ól-
afíu Pálsdóttur í innanlandsdeild
og Jóhanns Þ. Jóhannssonar flug-
manns.
Már Gunnarsson, starfsmanna-
stjóri Flugleiða, er hér umkringdur
glæsilegum konum sem eru þær
Brynja Nordquist, eiginkona hans
Steinunn Hreinsdóttir og Jóna Lár-
usdóttir.
Kristbjörg Kjeld i hlutverki móður-
innar í leikriti Arthurs Miller, Allir
synir mínir.
formum, sem vom undirstaða mjög
sjónrænnar sýningar, þar sem tón-
fist, ljós og mýnd mnnu saman og
mynduðu sterka heild. Leikmyndin
var listaverk út af fyrir sig en þó aldr-
ei yfirþyrmandi. Útfærslan rímaði
við inntak textans og þjónaöi sýning-
unni vel.
Sveinn Einarsson leikstjóri:
Sveinn Einarsson stýrði sýningu
Leikfélags Akureyrar á Aftur-
göngum eftir Henrik Ibsen. Vinna
hans einkenndist af styrkri persónu-
leikstjórn og vönduðum vinnubrögð-
um sem skiluðu sér í skýrt mótaðri
og mannlegri sýningu.
Áhersla var lögð á að láta hveija
persónu fyrir sig öðlast sín eigin ein-
kenni um leið og hún gengi upp í
heildarsamhenginu innan verksins.
Sýningin var „heit“ og tilfinningarík,
lifandi túlkun á sígildu verki, þar
Sveinn Einarsson er tilnefndur fyrir leikstjórn sína á
sýningu Leikfélags Akureyrar á Afturgöngum eftir Hen-
rik Ibsen.
Mávurinn, uppfærsla Þjóðleikhússins.
sem inntakið fær að njóta sín á eigin
forsendum.
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir bún-
ingahönnuður:
I sýningu Leikfélags Reykjavíkur á
ærslaleiknum Tartuffe vöktu hug-
vitssamlega hannaðir búningar og
leikgervi sérstaka athygfi.
Þórann EUsabet Sveinsdóttir skap-
aði einstaklega skemmtilega bún-
ingaflóru í þessu verki þar sem
áhersla var lögð á hvert smáatriði
„allt frá hatti oní skó“. Búningar
voru litríkir og efnismiklir og gáfu
sýningunni kátlegt yfirbragð.
Þráinn Karlsson leikari:
Þráinn Karlsson hefur sýnt mikla
breidd í túlkun á hinum ólíkustu
hlutverkum í gegnum árin og hefur
þá spannað allt sviðið frá dýpsta
harmi til hinna mestu ærsla.
í hlutverki fangavarðarins í Leður-
blökunni, sem Leikfélag Akureyrar
sýndi, fékk hann kjörið tækifæri til
að kitla hláturtaugar áhorfenda. Þar
sýndi Þráinn fimagóða útfærslu,
gamanleik eins og hann gerist best-
ur. Það er aðeins á færi hinna bestu
leikara að dansa á línunni án þess
að yfirkeyra en það tókst Þráni með
eftirminnilegum hætti í þessu hlut-
verki.“
Sviðsljós_____________________DV