Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Síða 2
Fréttir
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1994
Þeim fækkar sem greiða áskrift að Stöð 2:
Um f imm þúsund aðilar
nota sjóræningjalykla
- nýi myndlykillinn hefur einnig verið „brotinn“
Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflaö sér munu allt aö fimm
þúsund sjóræningjamyndlyklar vera
í notkun í landinu sem þýðir aö
heimilisfólk á jafn mörgum heimil-
um horfir frítt á dagskrá Stöövar 2.
Við bætist að áskrifendum hefur
fækkaö verulega en tahð er að um
og yfir 10 þúsund myndlyklar séu
ekki í áskrift.
Hluti þessara myndlykla er bilaöur
en eigendur hafa ekki talið svara
kostnaði að eyða 5-6 þúsund krónum
í viðgerð þegar skipta á myndlykla-
kerfmu út á þessu og næsta ári. Þá
hefur samdráttur í tekjum heimil-
anna áhrif í þá átt að fólk sleppir
áskrift að Stöð 2.
Þá mun vera mun algengara en
áður að fólk samnýtir myndlykla
þannig að tvær eða fleiri Qölskyldur
eru um sama lykil án þess að hafa
samið um þaö við Stöð 2.
Síðast en ekki síst hefur færst mjög
í vöxt að fólk láti sérfróða menn eiga
við myndlyklana, gera úr þeim svo-
kallaöa sjóræningjalykla. Samanlagt
þýðir þetta verulegt tekjutap fyrir
Islenska útvarpsfélagið en sjóræn-
ingjalyklarnir einir geta þýtt tekju-
tap sem nemur hátt í 200 milljónum
á ári.
Inni í myndlyklunum eru
tölvukubbar en þaðan er lykilnúm-
erinu stjómað. Nokkrir rafeinda-
virkjar hafa af þvi tekjur að opna
afruglarana, láta tölvu „lesa“ kubb-
inn og búa síðan til marga eins kubba
sem settir era í aðra afraglara. Þessi
aðgerð fer fram meðan beðið er. Þetta
þýðir að margir aöilar, hver á sínum
stað á landinu, geta notað sama lykil-
númerið og sameinast um að greiða
áskriftina eða horft frítt.
Þaö era ekki til nein lög sem banna
fólki að eiga við lyklana, svo framar-
lega sem þeir era í eigu þess, era
ekki „lánslykar" í eigu íslenska út-
varpsfélagsins.
En myndlyklasérfræðingar í bíl-
skúram og bakherbergjum láta ekki
staðar numið við gömlu lyklana. DV
hefur öraggar heimildir fyrir því að
nýi lykillinn, sem Stöð 2 hefur þegar
flutt inn í eitt þúsund eintökum, hafi
þegar verið „brotinn" sem þýðir að
gera má sjóræningjalykla úr honum
líka. Það mun hafa verið töluvert
erfiðara að „brjóta“ nýja lykilinn en
þann gamla. Þessir lyklar era hins
vegar í eigu Stöðvar 2 og því eru
menn ekki réttu megin laga og reglna
eigi þeir við þá.
-hlh
Sinfóniuhljómsveit íslands lék í gær fjögur lög inn á hljóðsnældu á skólatón-
leikum í Digranesskóla. Snældan verður fjölfölduð og send í alla skóla lands-
ins. Þjóðhátíðarnefnd vonast til þess að tónmenntakennarar og almennir
kennarar æfi lögin og Ijóðin með nemendum sínum fyrir þjóðhátíðina á
Þingvöllum en hugmyndin er að mynda kór með þátttöku um 1000 barna
frá öllum landshlutum sem myndi syngja á hátíðinni við undirleik Sinfóníu-
hljómsveitarinnar. DV-mynd Brýnjar Gauti
Framkvæmdastjóri Nord Morue 1 Frakklandi:
Þetta er hálfgerður
skotgrafarhernaður
„Þetta er hálfgerður skotgrafar-
hemaður. Við eram með lið í því að
prófa hinar ýmsu leiðir að koma fiski
í gegn. Helst reynum við að fá heil-
brigðisskoöun einhvers staðar í Evr-
ópu og láta tollafgreiða fiskinn á hin-
um ýmsu stöðum í Frakklandi. Þetta
hefur gefið bestan árangur. Við eram
í nánu sambandi við flutningsaðila
og fleiri og með því náum við vör-
unni í gegn án þess aö verða fyrir
skakkafóllum," sagði Birgir Jó-
hannsson hjá Nord Morue í Frakk-
landi í samtali við DV.
Nord Morue, sem er dótturfyrir-
tæki SÍF, fékk undanþágu sl. fimmtu-
dag til aö geyma allan fisk í geymsl-
um fyrirtældsins á meðan sýnataka
fer fram í stað þess að lesta fiskinn
í tollstöð. Birgir sagði þetta skipta
miklu máli. Nord Morue náði ís-
lenskúm og norskum fiski í gegn á
tveimur vörubílum í gærmorgun og
um helgina má vænta 6 bíla með salt-
fisk til Frakklands. Eftir he^gina á
síðan að koma fryst.um fiski í gegn.
Segja má að Nord Morae sé með
ákveðið tak á Frökkiun og þar með
betri stöðu en dótturfyrirtæki SH og
íslenskra sjávarafurða í Frakklandi.
Nord Morae starfrækir fiskvinnslu í
Bordeaux sem um 160 Frakkar starfa
við. „Ég er sannfærður um aö þetta
skiptir máli. Ef við væram einhveijir
þrír til fjórir íslendingar að dingla
við aö selja inn í landið þá myndu
Frakkar kæra sig kollótta. Að auki
er 20% atvinnuleysi hér í Suður-
Frakklandi þannig að þeir hafa ekki
efni á því að missa stöif út úr hérað-
inu,“ sagði Birgir.
íslenskar sjávarafurðir hf. í Bou-
logne hafa aðeins þurft að snúa ein-
um gámi við meö íslenskan fisk frá
því innflutningshindranir Frakka
hófust. Fyrirtækið hefur flutt inn
freðfisk sem hefur verið tollskoðaður
í öðram löndum en heilbrigðisskoð-
aður í Frakklandi.
„Allur innflutningur gengur mun
hægar fyrir sig núna og er mjög dýr.
Því er ekki að leyna að óöryggið kem-
ur illa við okkur en viö veröum að
halda okkar striki," sagöi Ólafur
Þorsteinsson hjá Icelandic Seafood í
samtali viö DV.
-bjb
LHil ásókn í áskríft að Fjölvarpi
Um og yfir 500 örbylgjuloftnet hafa
selst frá því sala þeirra hófst í des-
ember. Af viötölum við söluaðila loft-
netanna að ráða hefur veriö mjög lít-
il hreyfing á loftnetum frá því í nóv-
ember og desember, um þaö leyti er
útsendingar.Fjölvarpsins hófust. ís-
lenska útvarpsfélagið flutti inn 1000
myndlykla fyrir Fjölvarp.
Eftir því sem DV kemst næst hafa
allmargir notað tilkomu örbylgju-
loftnetanna til að bæta móttöku á
útsendingum RÚV og ólæstum hluta
Stöðvar 2, aðallga þeir sem hafa átt
í vandræðum vegna „drauga" í
myndinni. Þannig hafa alls ekki allir
kaupendur loftneta keypt aðgang að
Fjölvarpi eða Stöð 2.
Nokkrir erfiðleikar hafa veriö í
endurvarpi nokkurra sjónvarpsrása
í Fjölvarpinu en breska stöðin BBC
er dottin út um óákveðinn tíma.
Merkið frá gervihnettinum næst illa
hér og er of veikt fyrir myndlykilinn.
Reynt er að ráða bót á þessu vanda-
máh. Þá hafa gæði útsendinga frétta-
rásarinnar CNN verið afar sveiflu-
Fiskmálin í Frakklandi:
Slæm áhrif af
pólitík Frakka
Hannes Hafstein, sendiherra ís-
lands í Belgíu og fulltrúi í sameigin-
legu EES-nefndinni, átti fund í gær
með Hans van den Broek í fram-
kvæmdastjóm EBí Brassel. Þar kom
Hannes boðskap íslendinga á fram-
færi vegna innflutningshindrana á
íslenskum fiski til Frakklandk. Að
sögn Gunnars Snorra Gunnarssonar
hjá viðskiptaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins var þetta stuttur fund-
ur og engin niðurstaða fékkst. Boö-
skapur íslands er í meginatriöum sá
að hindranir Frakka bijóti í bága við
EES-samninginn.
„Þetta var nokkurs konar undir-
búningur fyrir fund sameiginlegu
EES-nefndarinnar í Brassel á þriðju-
daginn. Síðan mun sendiherrann í
París tala máli okk;. r við frönsk yfir-
völd um helgina,“ sagði Gunnar.
Það sem veldur íslenskum stjórn-
völdum miklum áhyggjum í barátt-
unni viö Frakka er að innanlands-
pólitík í Frakklandi gæti haft slæm
áhrif á viðræðumar í Brassel og Par-
ís. Forsetakosningar era í Frakk-
landi á næsta ári. Þeir Jacques Del-
ore, forseti framkvæmdastjórnar EB,
og Balladure, forsætisráðherra
Frakklands eru orðaðir viö framboð.
Ljóst er að þeir munu ekkert gera á
næstunni sem gæti hljómað illa í
eyrumvæntanlegrakjósendur. -bjb
kennd og afar léleg á köflum. Er í
umræðu að skipta yfir á annan gervi-
hnött, Thor.
DV hefur heimildir fyrir því að
mikil gróska sé hins vegar í gerð sjó-
ræningjamyndlykla fyrir eigendur
gervihnattamóttakara. Þá er um
svipaða aðgerð að ræða og í tilfelli
Stöðvar 2 lyklanna nema að búin eru
til sérstök rafræn kort, en notuð eru
áskriftarkort að mörgum læstum
sjónvarpsrásum, sem tryggja fría
áskrift í tiltekinn tíma. Að þeim tíma
liðnum sjá „sjóræningjar" um að
breyta kortinu svo nota megi það
áfram. Á þennan hátt geta menn séð
íþróttarás Sky Sports þar sem leik-
irnir í ensku úrvalsdeildinni eru
sýndir beint. Þá era sænsku kvik-
myndarásimar TV-1000 og Filmnet
vinsælar en að sögn manna í „sjó-
ræningjabransanum" sækist fólk
aðallega eftir góðum bíómyndum
með stafrænum víðómi. Þá þyki ekki
verra að menn geti einnig séð „blá-
ar“ myndir.
-hlh
Stuttar fréttir
SamruniáFlateyri
Forsvarsmenn útgeröarfyrir-
tækjanna Hjálms og Kambs á
Flateyri tflkynntu á starfs-
mannaiúndi í gær að samruni
fyrirtækjanna væri í undirbún-
ingi. Stefnt er að sameiningu á
vordögum.
Barnadeðd
Borgarspitala
Barnadeild Landakotsspítala
verður lögð niður og önnur stofn-
uö á Borgarspítalanum. Þetta er
liður i sameiningu spítalanna.
Skv. RÚV mun heilbrigöisráð-
herra kynna reglugerð þessa efn-
ís í ríkisstjórn eftir helgi.
Breyttar útiánaregiur
Stjóm LÍN hefur ákveðið aö'
veita 100% námslán aö loknu
haustmisseri til námsmanna í
heilsársnámskeiðum. Ákvöröun-
in þýðir að um 350 námsmenn í
Háksólanum fá viöbótarlán fyrir
síðastliðiö haustmisseri.
Búnaðarþing að hefjast
Búnaðarþing hefst á mánudag-'
inn. Þar á að ræða hagkvæmni
þess að sameina Búnaðarfélagið
og Stéttarsamband bænda.
-kaa