Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1994 Fréttir Björn mælir hér eldisþorskinn lifandi en eftir slátrun er lifrarstærð og magainnihald skoðað. DV-mynd GVA Sumarbústaðaeigendur við Þingvallavatn Stofnfundur Félags sumarbústaðaeigenda við Þingvallavatn verður haldinn á morgun, sunnu- daginn 27. febrúar, kl. 14 í Tjarnarbíói við Tjarn- argötu. Undirbúningsnefnd Merkilegar tilraimir á þorskeldi í Grindavík: Þorskur alinn á * rækju og loðnu segir Bjöm Bjömsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun „Með því að nýta auðlind okkar á réttan hátt er kominn grundvöllur fyrir því að veiða og selja fisk með tilliti til gæða. Eldi fiska má stjórna og fá þannig besta hráefnið hverju sinni. Eldisþorskur verður þó að vera samkeppnishæfur í verði við þann þorsk sem veiddur er í sjón- um, “ segir Björn Björnsson, fiski- fræðingur hjá Hafrannsóknastofn- un. Björn hefur yfirumsjón með til- raunum sem gerðar eru á eldi þorsks en þær tilraunir eru liöur í fjölstofna- verkefni Hafrannsóknastofnunar. Alinn á rækju eða loðnu Eldisþorskurinn, sem var aðalrétt- ur við afhendingu Menningarverð- launa DV á fimmtudag, var alinn í Tilraunaeldisstöð Hafrannsókna- stofnunar á Stað við Grindavík. Hann var veiddur á tímabilinu nóv- ember ’92 til janúar ’93. Eftir það var hann alinn á rækju í eldisstöðinni fram að slátrun í janúar síðasthðn- um. Rækja er þó ekki endilega besta fóðrið fyrir fiskinn þótt flestir búist við að með slíku gæöafóðri ættu bragögæðin að vera meiri. „Við gerðum tilraunir með þrenns konar fóður í tólf innikerum við mis- munandi hitastig. Fóðrað var með feitri loðnu, magurri loðnu og rækju. Við bragðprófun nýlega var misjafnt hvað mönnum fannst og virtust skoðanir ekki síður eftir matreiðslu- aðferð heldur en hvaða fóður hafði verið notað,“ segir Björn. Upphaf tilrauna Upphaf tilrauna með þorskeldi hér- lendis má rekja til Stöðvarfjarðar en þar hófst tilraun með eldi undirmáls- þorsks í kvíum árið 1992. Tæknilega hefur það gengið mjög vel. Afföll við veiðar voru lítil og vöxtur ótrúlega góður miðaö við hvað sjávarhiti fyrir austan er lágur. Þorskurinn fimm- faldaði þyngd sína að meðaltali á hálfu öðru ári. Eldi undirmálþorsks í kvium má líkja við að ávaxta peninga. Veiddur fiskur er of smár til þess að nýtast og því er honum sleppt strax náist hann lifandi um' borð. Meö því að safna honum saman við veiðarnar og ala hann síðan í kvíum stutt frá landi þar til stærðin er heppileg til slátrunar hefur hann veriö „ávaxtað- ur“. Mimunandi kostnaður Björn segir að eldi undirmáls- þorsks kunni að eiga mikla framtíð fyrir sér hér á landi. „Ágóðinn byggist helst á að halda fóðurkostnaðinum í lágmarki. Víða hefur verið hægt að fá fóður fyrir lítið, svo sem afskurð, afbeitu og ferska loðnu og síld,“ segir Bjöm. Það þarf þijú kíló af feitri loðnu til að þyngja þorskinn um eitt kíló. Hins vegar þarf þorskurinn fimm kíló af rækju til að þyngjast um eitt kíló. Þar af leiðandi er fóðurkostnaður á framleitt kg 12 krónur fyrir þorsk sem alinn er á loðnunni en um 350 krónur fyrir þorsk sem alinn er á rækju. Seiðaeidi kostnaðarsamt Enn sem komið er snúast þorsktil- raunirnar um eldi veidds smáþorsks. Þorskseiðaeldi í stórum stíl er ekki í sjónmáh þar sem mjög kostnaðar- samt er að framleiða seiðin. Það standa þó yfir tilraunir með seiðaeldi í tilraunaeldisstöð Hafrannsókna- stofnunar og Fiskeldi Eyjafjarðar hf. hefur um nokkurra ára skeið gert tilraunir með fjölgun á lúðu. Um leið og tekst að framleiða nægilegt magn lúðuseiða mun tilraunaframleiðsla á henni hefjast. Framleiðsla á sæeyra Minni háttar tilraunir hafa verið gerðar með eldi á hlýra, steinbít, sandhverfu og ígulkerum. Hafrann- sóknastofnun hefur keypt um 30 sandhverfur, sem er sjaldgæfur fisk- ur hér við land en er eftirsóttur mat- fiskur í Evrópu, og selst á háu verði. Fyrirtækið Sæbýli hf. í Vogum hefur hafið framleiðslu á sæeyrum sem gefur góðar vonir. Sæeyru eru verð- mætur kuðungur sem fluttur var inn árið 1988 frá Kaliforníu. Þorskeldi og nýting Þorskeldistilraunirnar á Stað við Grindavík miðast ekki eingöngu við möguleika á framleiðslu eldisþorsk heldur ekki síður til að skilja betur líffræði íslenska þorskstofnsins. Þorskur af mismunandi stærð er al- inn við mismunandi hitastig (1-13°) og á mismunandi fóðri. Fylgst er með vexti hans og magainnihald og lifrar- stærð skoðuð við slátrun. „Við höfum áhuga á að vita hve mlkið þorskstofninn þarf að éta og hvaða samband er milli vaxtarhraða og fóðurþarfar. Fiskurinn í sjónum vex ekki eins hratt og eldisfiskurinn því hann þarf að hafá fyrir því að ná í fóðrið sitt. Fjölstofnaverkefnið mið- ar að því að skilja samband helstu nytjastofna og hvernig best megi stjórna nýtingu þeirra í því ljósi hvað mikið megi t.d. veiða af loðnu án þess að það komi niður á vexti þorsk- stofnsins. Fæðuþörfin er lykilatriði í þessum rannsóknum og eldistilraun- imar miðast við að kanna hvernig hún breytist með hitastigi, stærð fisks og orkuinnihaldi bráðar,“ segir Björn Björnsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. -JJ Gólíefnatoá 25% afsláttur í örfáa daga af öllum teppum, dúkum og gólfflí sum. liðstöð heimila Reykjavik Akureyr Isaférði Akranesi í Mjódcl ng Lynhólsi 10 FuriiVíillun Stillholt 16 67005C 67560C 96-12780 94-4644 93-11799 SYNING UM HELGINA HUS HÆSTARÉTTAR Sýning að Hverfisgötu 6 á teikningum, líkani, byggingarefni og öðru sem tengist fyrirhugaðri nýbyggingu Hæstaréttar. • Hvers vegna nýtt hús fyrir Hæstarétt? • Undirbúningur málsins. . • Valkostir um staðsetningu. Sýningargestum gefst tækifæri til að meta með eigin augum áhrif hússins á nágrenni sitt, kynnast verkinu og undirbúningi þess, svo og öðrum staðsetningarmöguleikum fyrir aðsetur Hæstaréttar. Opið laugardag og sunnudag kl. 12-18. HÚS HÆSTARÉTTAR Sýning að Hverfisgötu 6, jarðhæð. Opið frá kl. 14-20 virka daga og 12-18 um helgar. Ókeypis aðgangur. Erindi um nýbygginguna verður flutt kl. 17 virka daga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.